Morgunblaðið - 22.02.1957, Side 11
Föstudagur 22. febrúar 1957
MORCVNBLAÐIÐ
11
Allt völundarsmíði sem
hann lét frá sér fara
ÁTTRÆÐUR er í dag, 22. febrú-
ar, Benjamin Jónsson, vélsmiður,
sem nú dvelst að Elliheimilinu
Grund. Hann er Reykvíkingum
vel kunnur, og þó sérstaklega
eldri mönnum. Benjamín var um
skeið aðalvélaviðgerðamaður bæj
arins, og var þá ekki mörgum á
að skipa í því efni. Um nokkurra
ára bil voru aðeins tveir menn í
höfuðstaðnum, sem lögðu stund
á vélaviðgerðir og vélsmíði og
var Benjamín annar þeirra. En
þótt Benjamín væri slíkur völ-
undur sem raun bar vitni um,
hefur hann aldrei lært neitt til
vélsmíði, aðeins notazt við gott
hugvit og hagar hendur. Á verk-
stæði sínu að Vitastíg 10, mótaði
hann og smíðaði þá hluti í vélar,
með frumstæðum verkfærum,
sem standa hvergi að baki þeim
sem nú eru gerðir sams konar,
með hinum tæknilegustu vélum.
Fréttamaður Morgunblaðsins átti
stutt samtal við Benjamín í gær
í tilefni afmælisins.
— Eruð þér fæddur Reykvík-
ingur, Benjamín?
— Nei, ég er fæddur í Dals-
mynni í Eyjahreppi í Snæfells-
nessýslu, 22. febrúar 1877. For-
eldrar mínir voru Jón Þórarins-
son, bóndi og smiður þar og
Ágústa Sighvatsdóttir. Faðir
minn fékkst jöfnum höndum við
smíðar og búskap, enda var hann
prýðilega laghentur maður. Til
Reykjavíkur fluttumst við 1882.
Þá var ég á sjötta ári. Eftir það
vann faðir minn aðallega og jafn-
vel eingöngu við smíðar, mest
fyrir Geir Zoega.
Hjá föður mínum fékk ég
fýrstu tilsögnina, í smíðum, en
hann hafði yfir að ráða litlu
verkstæði.
— Svo þér hafið tekið smiðs-
hæfileikana í arf frá föður yðar?
— Já, það má segja svo.
ÆTL.AÐI AS VERBA
ÚRSMIÐUR
— En ég ætlaði mér nú samt
ekki að verða vélsmiður.
— Nú, — til hvers stóð þá hug-
ur yðar?
— Þegar ég var um tvítugt, fór
ég til Seyðisfjarðar og réðst til
Stefáns Th. Jónssonar til þess að
læra úrsmíði. Úrsmíðin tók fjög-
ur ár, en ég var þar ekki nema
þrjú ár. Þá fann ég að það átti
ekki við mig.
— Og hvað svo?
— Ja, ég fór aftur til Reykja-
víkur og byrjaði að gera við vél-
ar, auðvitað án nokkurrar kunn-
áttu eða tilsagnar. Ég þreifaði
mig áfram sjálfur í þvi efni og
tókst furðanlega vel. Það voru
aðallega bátavélar sem gera
þurfti við og smíða hluti í. Þá
voru bátarnir venjulega ekki
stærri en 12 lestir, venjulegast
8—12 lestir. Þetta voru allar
mögulegar tegundir af vélum,
sem ég meðhöndlaði, eða þær
tegundir sem þá voru þekktar
hér og notaðar, en það voru mest
Alfa-, Duxen-, Bolinder- og Dan
vélar.
4 ísl. mef og 5 unglingamet
voru sett á sundmóti Ægis
SUNDMÓT ÆGIS fór fram í Sundhöllinni í fyrrakvöld. Á mót-
inu voru sett fjögur íslandsmet og fimm unglingamet. Met
þessi settu Guðmundur Gíslason, ÍR, Ágústa Þorsteinsdóttir, Ár-
manni, Sigríður Sigurbjörnsdóttir Ægi, Helgi Sigurðsson, Ægi og
boðsundssveit Ægis. Keppni á mótinu var oft tvísýn og skemmti-
leg eins og sjá má af úrslitunum hér að nefan.
Benjamín Jónsson
— Það hafa vsu-la verið margir
vélsmiðir í Reykjavík á þessum
árum?
— Við vorum tveir, ef vélsmiði
skyldi kalla, Ólafur Jónsson og
ég, en hvorugur okkar með próf.
Við höfðum því nóg að gera, því
það var talsvert mikil bátaútgerð
hér þá.
— Hvenær byrjuðuð þér að
smíða hluti í vélar?
— Ja, næstum strax eftir að ég
byrjaði að fást við vélaviðgerðir.
Það var nauðsynlegt, því að oft
brotnuðu hlutir svo illa, að ekki
var hægt að gera við þá. Þá varð
að smíða nýja.
AULT TEKIB GILT
— En hvernig var það, fenguð
þér aldrei réttindi sem vélsmið-
ur?
— Það var nú þannig, að ég
hafði aldrei lært neitt til vél-
smíði, en eftir að M. E. Jessen
tók við skólastjórn Vélskólans
hér, fór hann að kynna sér starf
mitt og smiðar. Hann veitti mér
að vísu ekkert plagg upp á að
ég væri löggiltur vélsmiður, en
hann tók allt gilt sem ég smíðaði.
— Hjá hvaða fyrirtæki vannst
þú lengst af?
— Ég vann lengst hjá Ólafsen,
sem átti Duus-verzlanimar í
Keflavík.
— En hve lengi fenguzt þér við
þessa vinnu?
— í 20 ár.
SMIÐSHÆFILEIKARNIR
ERFAST ENN
Benedikt var kvæntur Guð-
laugu Árnadóttur, ættaðri úr
Skaftafellssýslu. Þau gengu í
hjónaband skömmu eftir alda-
mótin. Hann missti konu sína
eftir tæplega 20 ára sambúð. Þau
hjónin áttu 5 börn og eru aðeins
tveir synir á lífi, Sigurður, sem
er steypumaður í Jámsteypunni
og Ágúst, vélamaður. Tveir syn-
ir og ein dóttir eru látin.
í dag dvelst Benjamín á heim-
ili Sigurðar sonar síns og tengda-
dóttur, Súsönnu Pálsdóttur, að
Hverfisgötu 73. — M. Th.
300 m skriðs. karla:
1. Helgi Sigurðs. Æ 3:35,8 íslm.
2. Guðm. Gíslason Í.R. 3:48,0
Drengjamet.
3. Guðm. Sigurðsson ÍBK 4:15,3
í þessu sundi var tími tekinn
á Guðmundi Gislasyni við 200 m
Þar setti hann einnig drengja-
met 2:27,9. Það gamla var 2:31,0.
Gamla fsl.metið var 3:40,4 og átti
Ari Guðmundsson það. Var þetta
Helgi setti met í 300 m.
— og átti þátt í öðru.
síðasta met Ara í einstaklings-
greinum, en eitt sinn átti hann
metin á öllum skriðsundsvega-
lengdunum.
50 M. SKRIÐSUND KARLA
1. Pétur Kristjánsson, Á, 26,8.
2. Gylfi Guðmundsson, ÍR, 27,6
3. Ólafur Guðmundsson, ÍR, 28,4
4. Þórir Arinbjarnarson, Æ, 28,5
Keppnin var geysihörð í öllum
riðlunum þremur, ekki sízt milli
Ólafs og Þóris í 2. riðli. Pétur og
Gylfi eru þó í sérflokki en Gylfi
varð fyrir því óhappi að lenda
tvívegis í brautarlínunni og tafði
það nokkuð fyrir honum.
50 M. BRINGUSUND TELPNA
1. Sigríður Sigurbjörnsd., Æ, 41,0
2. Bergþóra Lövdahl, ÍR, 42,6
3. Hrafnh. Guðmundsd., ÍR, 44,0
4. Margrét Ólafsd., Á, 46,4
Ágústa Þorsteinsdóttir kom
fyrst að marki á tímanum 40,6, en
var dæmd úr leik vegna ólög-
legrar snertingar við endamark.
Keppni Ágústu og Sigríðar var
einkar skemmtileg, þær beittu
fyrstar kvenna hér kafsundsað-
ferð af og til. Báðar fóru þær
undir telpnameti Þórdísar Árna-
dóttur 41,2. Athyglisverður er ný-
liðinn Hrafnhildur.
50 M. BRINGUSUND DRENGJA
1. Einar Kristinsson, Á, 36,5
2. Tómas Zoega, Á, 38,1
3. Birgir Dagbjartsson. SH, 38,3
4. Hörður Finnsson, IBK, 38,5
Einar er í sérflokki drengj-
anna, en það verður honupi og
fleirum erfitt drengjametið hans
Sigurðar Sigurðssonar, Akranesi,
35,2.
50 M. BAKSUND KARLA
1. Guðm. Gíslason, ÍR, 32,8
Isl. met og drengjamet
2. Ólafur Guðmundss., ÍR, 33,1
3. Sig. Friðriksson, IBK, 35,4
Tvísýnasta og skemmtilegasta
keppni kvöldsins. Ólafur átti
gamla metið 33,0 og kom nú eftir
margra ára fjarveru til að verja
met sitt, og var það með miklum
sóma gert. Guðmundur reyndist
hinn harðasti og með þessu meti
hefur hann staðfest, að hann er
bezti baksundsmaður, sem ísland
hefur átt.
OFÆRÐ I DOLIJM
BÚÐARDAL, 20. febr. — Undan-
farna daga hefur verið allhvöss
norðanátt og fannkoma. Hafa all.
ir vegir teppzt og liggja sam-
göngur því niðri. Er það mjög
bagalegt þar sem margir bændur
þurfa að ná til sín fóðurbæti o.
fl. í dag er hér logn en allmikil
snjókoma. Ekki er vitað hvenær
snjó verður rutt af vegunum, en
vegagerðin hefur engar snjóýtur
hér í Dölum.
Dálítið hefur orðið vart við
mink hér í vetur og nýlega brá
einn sér inn í hænsnahús og drap
þar 11 hænur af 14. Ekki hafði
hann þó gott af förinni því að
hann var sjálfur drepinn í dýra-
boga. í fyrradag var svo einn
minkur skotinn í fjörunni
skammt frá búð kaupfélagsins
hér í Búðardal. — E.
Olympíuleikar-
nii 1960 hefjast
25. dgúst
RÓMABORG, 21. febr. — Ólym-
píunefnd Ítalíu hefir nú ákveðið
að Ólympíuleikirnir 1960 verði
settir 25. ágúst og standi til 11.
september.
Ólympíunefndin hefir í stærstu
dráttum samið dagskrá leikanna
o gskipað nefndir til að sjá um
framkvæmd keppninnar í hinum
einstöku greinum. —Reuter.
200 M. BRINGUSUND KARLA
1. Sig. Sigurðss., ÍA, 2:54,6
2. Þorgeir Ólafsson, Á, 2:56,3
3. Torfi Tómasson, Æ, 2:57,9
4. Hörður Finnsson, IBK, 3:00,1
5. Einar Kristinsson, Á, 3:01,9
6. Valgarður Emilsson HSÞ, 3:02,7
Það voru ekki „toppmennirn-
ir“, sem vöktu mesta athygli.
Fyrstu 3 menn hafa allir náð betri
tíma áður. En næstu 3 menn
vöktu þeim mun meiri athygli.
Hörður synti nú þessa vegalengd
í fyrsta sinn hér á móti. Hann er
lítill, en knár og syndir vel. Og
hann hefur áreiðanlega ekki sagt
sitt síðasta orð í þessu sundi.
— Einar hefur áður náð svip-
uðum tíma. Báðir eru þeir Einar
og Hörður drengir að aldri. Val-
garður keppti einnig nú í fyrsta
sinn. Hann er kröftugur og lík-
legur til meiri afreka — en fyrst
þarf hann að laga ýmsa galla,
einkum að ná kyrrari legu.
50 M. FLUGSUND KARLA
1. Pétur Kristjánsson, Á, 31,7
2. Guðjón Sigurbjörnss., Æ, 32,9
3. Steinþór Júlíusson, Á, 35,0
50 M. SKRIÐSUND KVENNA
1. Ágústa Þorsteinsd., Á, 30,8
fsl. met og telpnamet (gamla
31,3)
2. Inga Árnadóttir, IBK, 33,4
3. Sigr. Sigurbjörnsd., Æ, 33,5
4. Margrét Ólafsd., Á, 39,7
Ágústa er í algerum sérflokki
ísl. sundkvenna og tími hennar
hér mjög athyglisverður. En hún
er enn átakanlega sein „á start-
pallinum" og það er dýrt í 50 m.
sundi.
50 M. SKRIÐSUND DRENGJA
1. Guðm. Gíslason, ÍR, 28,3
2. Sólon Sigurðsson, Á, 29,8
3. Guðl. Gíslason, SH, 31,0
4. Guðl. G. Jónsson, Á, 32,1
Guðmundur var hinn öruggi
sigurvegari og þessi tími hans
nægði til 3. verðlauna í skriðsundi
karla!
4x200 M. BOÐSUND
1. Sveit Ægis, 9:55,6
Met (gamla 10:04,4).
í sveitinni voru Helgi Sigurðs-
son, Guðjón Sigurbjörnsson,
Magnús Guðmundsson og Ari
Guðmundsson.
Það er ekki verið að amast við
metum eða þeim er það setur, þó
sagt sé að þessi grein átti ekki
heima í mótinu. Ein sveit í 10
mín. boðsundi er ekki til að lífga
upp á sundmót og hefði betur
átt heima á innanfélagsmóti.
★
Þá fór fram úrslitaleikur
„Febrúarmótsins" í sundknattleik
milli Ármanns og Ægis. Jafn-
tefli varð 4:4, eftir einn skemmti-
legasta og bezta leik sem hér
hefur lengi sézt. Ármann vann
mótið á þessu jafntefli, en nú er
komin meiri „breidd“ í sund-
knattleikinn en lengi hefur verið.
Er það einkum vegna framfara
Ægismanna. Þeir eiga nokkra
ágæta leikmenn, en Guðjón Sig-
urbjörnsson ber þó af.
ADALFUNDUR
Skrifstofu- og verzlunarmannafélags Suðurnesja verður
haldinn í bíókjallaranum í Keflavík miðvikudaginn 27.
febrúar kl. 8,30 e. h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar
Önnur mál.
Þeir félagsmenn sem ekki hafa greitt ársgjöldin, eru
vinsamlegast beðnir að gera það á fundinum.
Stjórnin.
Gi
•f í . n
STÆRSTU
'l'riliiii.h
LÆGSTA
VER6H)
j«a BOOT POLISHy "•
smmr*
- II ^ i*—-
NYJAR, LOFTÞETTAR DOSIR, SEM MJOG
AUÐVELT ER AÐ OPNA.
Umboösmérn:-KRISTJAN Ó SKAGfJÖRD h/f REYKJAVTK