Morgunblaðið - 22.02.1957, Page 12

Morgunblaðið - 22.02.1957, Page 12
12 MORCVNBT.AÐIÐ Fðstudagur 22. febrúar I95T GULA lllll herhergiS eftir MARY ROBERTS RINEHART Framhaldssagan 58 eigið þér við, að Elinor hafi kveikt í brekkunni? Það er dá- lítið alvarlegur hlutur að saka fólk um. — Bíllinn henhar sást þar í nágrenninu, kvöldið sem morðið var framið. Nei, verið þér rólegur, bætti hann við, er Greg gekk að honum. — Ég held ekki, að hún hafi myrt stúlkuna. Það er ólik- legt eins og á stóð, bætti hann við, þurrlega. En víst er um hitt, að hún getur vitað meira en hún lætur uppskátt. Til dæmis hafði greinilega verið gerð tilraun til að gera stúlkuna óþekkjanlega. Föt- in hennar hafa ekki fundizt og jafnvel ekki snyrtitaskan hennar. Kannske hefur Carol sagt yður, hvers vegna við héldum, að dótið hennar hefði verið grafið uppi í brekkunni, og um skófluna, sem fannst þar? En ef til vill hefur hún ekki sagt yður, að frú Hilli- ard var býsna hrædd, þegar Lucy kom með framburð sinn við rétt- arhaldið. Ég horfði á hana, svo að ég veit það. En Lucy var varkár. Hún sagði ekki nema hálfan sann- leikann og það vissi frú Hilliard. — Ekki hefur hún drepið Lucy, það get ég fullyrt, sagði Greg og var loðmæltur. — Hvers vegna kveikti hún þá í brekkunni? spurði Dane. — Því UTVARPID Föstudagur 22. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Lesin dagskrá næstu viku. 18,30 Framburðarkennsla í frönsku. 18,50 Létt lög. 19,10 Þingfréttir. — Tónleikar. 20,30 Daglegt mál (Arnór Sigurjóns- son ritstjóri). 20,35 Strandavaka: a) Frásögn Eggerts Ólafssonar og Bjama Pálssonar frá heimsókn þeirra á Strandir. b) Rímnalög af Ströndum. c) Seljanes-Móri, síðasti uppvakningur á Strönd- um. d) Þórður sakamaður: Tómas Guðmundsson víðförli frá Gróu- stöðum skráði. Símon Jóh. Ágústs son prófessor sér um þessa dag- skrá og flytur ásamt Jóhanni Hjaltasyni kennara og Þorsteini Matthíassyni kennara. 21,45 Is- lenzk tónlist: Lög eftir Þórarin Jónsson (plötur). 22,10 Passíu- sálmur (5.). 22,20 Þýtt og endur- sagt: Þýzki fjármálasnillingurinn Ludwig Erhard (Helgi Hallgrims son fulltrúi). 22,35 Tónleikar: — Björn R. Einarsson kynnir djass- plötur. 23,10 Dagskrárlok. t.augardagur 23. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 12,60 óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 16,30 Veður- fregnir. — Endurtekið efni. 18,00 Tómstundaþáttur bama og ungl- inga (Jón Pálsson). 18,30 Útvarps saga bamann. „Lilli í sumar- leyfi“ eftir Þómnni Elfu Magnús dóttur; III. Höfundur les). 18,55 Tónleikar (plötur). 20,20 Leikrit Leikfélags Reykjavíkur: „Kjara- orka og kvenhylli" eftir Agnar Þórðarson. — Leikstjóri: Gunnar R. Hansen. Leikendur: Þorsteinn ö. Stephensen, Guðbjörg Þor- bjamardóttir, Helga Bachmann, Brynjólfur Jóhannesson, Ámi Tryggvason, Margrét Magnúsdótt ir, Gísli Halldórsson, Knútur Magnússon, Nína Sveinsdóttir, Áróra Halldórsdóttir, Sigríður Hagalín, Steindór Hiörleifsson, Valdimar Lárusson o. fl. 22,20 Passíusálmur (6.). 22 30 Danslög (plötur). — 24,00 Dagskrárlok. að það munuð þér sanna, þótt síð- ar verði, að hún gerði. — Hún vissi, að kannan var á háaloftinu og 11 Carol úti á brautinni. Meira að segja hafði hún gúmmí- slöngu til þess að ná benzíninu af bílnum. Ég sá slönguna inni í svefnherbergin; hún er annars notuð við hárþvott. Og hún lykt- aði af benzíni, enda þótt ég búist við, að hún hafi reynt að skola hana. — Ég trúi þessu ekki, svaraði Greg, þverúðarfullur. — Og ég trúi ekki, að hún hafi verið hér, þegar Marguerite var myrt. Hvers vegna spyrjið þér hana ekki sjálfa? — Af því að hún hefur eins konar fjarverusönnun. Dane var mjúkur í málrómnum. — Hún seg- ist hafa verið þessa nótt í tómri íbúð í New York. Og víst er um það að hún var þar í borginni á laugardag. Hún segist hafa borðað kvöldverð með manninum sínum og farið í leikhúsið. Og sennilega hefur hún gert það, nema hann þá sé í vitorði með henni. En vel gæti hún hafa verið hérna, eins og þér vitið; hún gat hafa ekið seinnipart nætur til Providence og tekið morgunlest til New York. Og það er ég reyndar hér um bil viss um, að hún hefur gert. — Svo hún á þá að hafa skotið sig sjálf, sagði Greg harkalega. — Farið út í rigninguna, brölt upp brekkuna og skotið sig í lærið? Nei, guð minn almáttugur, Dane, reynið þér að tala eins og maður með vitil — Gott og vel. Við skulum taka þetta öðru vísi. Hún myrti ekki stúlkuna, heldur fór á eftir henni, af því að hún vissi, að hún var á leið hingað. Þegar hún kom hing- að, var stúlkan þegar dáin, svo að hún gerði það eina, sem hægt var að gera, þ. e., fór með líkið upp á loft í lyftunni og faldi það í skápn um. — Það er ekki nema vitleysa! — Svo kann að virðast, en eitt- hvað þvilíkt hefur nú samt átt sér stað. Líkið var auðvitað falið til þess að vinna tíma. .. . — Til þess að Elinor gæti kom- izt til New York og farið í leik- hús, eða hvað? — Nei, til þess að geta hlíft yður. Og sjálfri sér um leið. Á ég að halda áfram? — Maður verður víst einhvern tíma að heyra það, hvort sem er, urraði Greg. — Gott og vel. Nú liggur Lucy fyrir neðan stigann. Hún er með- vitundarlaus, en getur auðvitað raknað við þá og þegar. Frú Hilli- ard vissi ekki, að Lucy hafði fót- brotnað, en hún varð að koma föt- um stúlkunnar undan. Hún fann þau og töskurnar hennar í gula herberginu. Um þetta leyti var Lucy farin að hreyfa sig og lík- lega að stynja. Hvað gat hún gert? Tekið fötin með sér? Hún var á leið til New York, eins og þér vitið og Lucy gæti gert aðvart, hvenær sem væri. — C tið þér hugsað yður Elinor fara að grafa fötin úti þama um nóttina? Hún gat losnað við þau á hundrað stöðum á leiðinni til New York. Greg var orðinn bein- línis ögrandi. — Hún kann að hafa hina og þessa galla, en fábjáni er hún ekki. Dane kinkaði kolli og lét sér hvergi bregða. — Einmitt. Þama stanza ég. Og ég hef staðið þama tíu daga. Það var úr sléttur og svo eru fötin grafin uppi í brekkunni! Nema hún hafi haft einhvem til að hjálpa sér? Nú varð þögn, en að lokum rauf Greg hana. — Hver þykist hafa séð bílinn hennar? — Gamla frú Ward, til dæmis. Hún var að gá að manninum sín- um. Það virðist sem hann eigi eitt- hvað bágt með svefn. Hún glopr- aði þessu út úr sér í sakleysi sínu. En svo sá ungfrú Dalton líka bíl- inn. Hún var úti með hundinn sinn. — Það er eins og allur skríll- inn hafi verið úti á flandri um miðja nótt, sagði Greg önuglega. Hann var farinn að klæða sig. Dane horfði á hann, en var að hugsa um það, sem hann hafði orðið vísari. Hann hrökk upp úr þessui.i hugleiðingum, þegar Greg var að fara í treyjuna. — Hvernig er það með yðar fjarveru, þegar konan yðar var myrt? spurði hann. — Þér fóruð frá Washington á fimmtudaginn í þessari viku, veit ég. Þér ætt- uð að athuga vandlega hvar þér hafið verið á hverjum tíma eftir það, og það þýðir ekki að bera fyrir sig minnisleysi. Greg hló kuldalega. — Gott og vel. Ég tók mér gistingu á Got- ham á fimmtudag. Það getið þér fengið staðfest. Heimsótti Elinor þann sama dag í Newport. Það má líka fá staðfest. Sömuleiðis, að ég tók bílinn minn úr geymslu til þess að aka til Newport að heim sækja Yirginiu og annað nákomið fólk. En svo getið þér ekki fylgzt með ferðum mínum á föstudag og mestallan laugardaginn, því að það gæti ég ekki sjálfur. Ég fékk þetta bréf frá Marguerite og ég hef sagt yður, hvernig mér varð við, bætti hann við, þurrlega. — Venjulega get ég drukkið eins og aðrir menn, en þegar gengur svona fram af mér, drekk ég mig blind- Dormeyer hrœrivélar Höfum fengið örfá stykki af hinum þekktu Dormeyer hrærivélum Tvær skálar og hakkavél fylgir. Gjörið svo vel að lita inn. — Tfekla Austurstræti 14 — Sími 1687 — Bútasala — Bútasala næstu daga □ DYRI M AR KAÐURINN TEMPLABASUNDI 3. Ódýrar prjónavörur Næstu daga verða seldar mjög ódýrar prjónavörur t. d. Herravesti kr. 35,00 Barnaföt kr. 35.00 Drengjapeysur .. kr. 25.00 Sportvesti kr. 23.00 Nærbuxur . . .. kr. 17,00 og ýmsar fleiri tegundir. IJtsalan á horni Snorrabrautar og Njálsgötu. Atvinna Ungur maður vanur skrifstofustörfum, óskast að útgerðarfyrirtæki úti á landi. Upplýsingar á Hótel Vík, herbergi 24, milli kl. 10—12 í dag. Jörðin Bakkasel í Öxnadalshreppi, Eyjafirði, er laus til ábúðar og reksturs greiðasölu í næstu fardögum. Upplýsingar hjá Vegagerð ríkisins, Akureyri og Vegamálaskrifstofunni, Reykjavík. MARKIIS Eftir Ed Dodd WAtT A '■“‘X MINUTE.«WE'LL SETTLE THIS AT THE RACE .« COME ON, 1) — Að hverju ertu að hlæja, lagsmaður. — Svona spikaður hundur end ist ekki í fimm mínútur. 2) — Þú ert bjáni. Þessi hund- ur er duglegur og hann vinnur. — Þorirðu að veðja um það. 3) — Ég á eaga peninga og jörfinn hefur eyðilagt öll skinnin mín, svo að ég hef engu að veðja. — Þú ert hræddur, Jonni. Það er enginn töggur í þér. 4) — Þetta skaltu ekki þora að segja við Jonna Malott. — Bíddu aðeins, Jonni. Látið þið úrslit keppninnar skera úr, en ekki fara að slást.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.