Morgunblaðið - 27.02.1957, Síða 2
MORCIJTS'BLAÐIÐ
Miðvikudagur 27. fefer. 1957
Hekla gamla i vetrarbúningi
Á miðri myadinni er toppgígurinn, sem myndaðist í síðasta gosi, og eru barmar hans 50—60 m. háir.
í baksýn rennur Þjórsá — og sést norður yfir Kerlingafjöll. — Ljósm. Henning Finnbogason.
Árnesingafélagið
í Keflavík minnisf
tíu ára afmælis síns
KEFLAVÍK, 21. febr. — Árnes-
ingafélagið í Keflavík minntist
10 ára afmaelis síns sl. laugar-
dag með hófi í bíókjallaranum.
Jakob Indriðason, formaður fé-
lagsins, setti hófið og stjórnaði
því. Voru margar ræður fluttar
og mikið sungið, þá er borðhald
stóð yfir. Sæmundur G. Sveins-
son rakti sögu félagsins í stór-
um dráttum. Ingimundur Jóns-
son, kaupm., fyrsti form. félags-
ins og einn aðalhvatamaður að
stofnun þess, ræddi um hina
gömlu og góðu daga heima í Ár-
nessýslu. Kom hann víða við og
var ræða hans hin skemmtileg-
asta.
■ Þá talaði Jakob Indriðason og
minntist í ræðu sinni heima-
byggðarinnar, ræddi hann þær
miklu framfarir, sem hafa átt
sér stað sl. 10 ár. Stjórn Árnes-
ingafélagsins í Reykjavík var
boðin í afmælishófið og flutti
formaður þess, Hróbjartur
Bjarnason, kaupm., kveðjur og
árnaðaróskir frá félaginu og gat
um gjöf er síðar yrði afhent.
Dr. Guðni Jónsson talaði um
sjúkrahús og byggðasafn Árnes-
inga, og hvatti hann menn til
að styðja þessi menningarmál. Þá
las hann söguþátt og kvæði „vís-
ur gamals Árnesings" eftir Eirík
frá Hæli. Þorlákur Jónsson flutti
ávarpsorð og árnaði félaginu
allra heilla. f hófinu söng kvart-
ett Árnesinga búsettra í Kefla-
vík. Að lokum var stiginn dans
fram eftir nóttu.
Núverandi stjórn félagsins
skipa: Jakob Indriðason formað-
ur, Sæmundur G. Sveinsson, Ás-
dís Ágústsdóttir, Einar Ólafsson
og Skúh Oddleifsson.
— Ingvar.
EDW.4RD G. ROBINSON SELUR
MÁLVERKASAFN SITT
NEW YORK, 26. febr. —
Bandaríska stórblaðið The
Dagskrá Alþingis
SAMEINAÐS ALÞINGIS mið-
vikudaginn 27. febrúar 1957:
1. Fyrirspurnir:
a. Olía frá varnarliðinu. — Ein
umr.
b. Fræðsla í þjóðfélags- og þjóð
hagsfræðum. — Ein umr.
c. Álitsgerðir um efnahagsmál.
— Ein umr.
2. Kosning 4 manna og jafn-
margra varamanna í stjórn at-
vinnuleysistryggingasjóðs til
næsta þings eftir almennar al-
þingiskosningar, að viðhafðri
hlutfallskosningu samkvæmt 2.
gr. L nr. 29 7. apríl 1956, um
atvinnuleysistryggingar, sbr. 1.
gr. nýafgreiddra laga frá Al-
þingi.
Kosning eins endurskoðanda
reikninga byggingarsjóðs fyrir
þann tíma, sem eftir er kjör-
tímabilsins frá 1. jan. 1954 til
31. des. 1957, í stað dr. Björns
Björnssonar, sem er látinn,
sbr. 9. gr. í. nr. 36 16. febr.
1952, um opinbera aðstoð við
byggingar íbúðarhúsa í kaup-
stöðum og kauptúnum.
i. Verndun fiskimiða umhverfis
íslands, þáltill. — Hvernig
ræða skuli.
Endurheimt handrita frá Dan-
mörku, þáltill. — Hvernig ræða
skuli.
Björgunarbelti í skipum, þál-
till. — Hvernig ræða skuli.
?. Sameign fjölbýlishúsa, þáltill.
— Hvernig ræða skuli.
3. Fiskileitarskip, þáltill. — Fyrri
umr.
New York Herald-Tribune
hefur skýrt frá því, að leik-
arinn frægi Edward G. Ro-
binson hafi nýlega selt mál-
verkasafn sitt, sem er „eitt
bezta einkasafn með myndum
eftir nútímamálara sem til
er,“ eins og blaðið kemst að
orði. — Kaupandinn er M.
Knödler og Co. í New York,
sem er alþjóðleg málverka-
sala. —- Robinson seldi 58
myndir á meira en 3 milljón-
ir dollara.
Robinson, sem er einna
þekktastur fyrir leik sinn í
bandarískum glæpamyndum,
hóf málverkasöfnun sína fyr-
ir 25 árum. í safni hans eru
m. a. málverk eftir Cezanne,
Picasso, Renior, Toulouse-
Lautrec o. fl.
Sendiherra islands
í Sviss
í DAG afhenti dr. Helgi P. Briem
forseta Svisslands trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands í Sviss
með búsetu í Bonn, Þýzkalandi.
Frá Utanríkisráðuneytinu.
Rtuigar upplýsingar Tímans om
iélagslegn uppbyggingu SÍF
EFXIRFARANDI hefur Mbl.
borizt frá framkvæmdastjór-
um S.Í.F.:
í leiðara Tímans, þriðjudag-
inn 26. febrúar 1957, þar sem
um ræðir atkvæðisrétt félags-
manna S.Í.F., segir svo orð-
rétt: —
„Samkvæmt lögum S.Í.F.
skal hver sá, sem afhendir salt
fisk til útflutnings, fá eitt at-
kvæði fyrir hverjar 25 smál.
Enginn má þó fá meira en 8%
af atkvæðamagninu fyrir
þann saltfisk, sem hann sjálf-
ur leggur fram. Til viðbótar
má hann þó fara með atkvæði
í umboði annarra, og eru eng-
ar hömlur á því, hvað mikið
atkvæðamagn hann fer með á
þann hátt. Þannig er fullkom-
lega fræðilegir mögnleikar fyr
ir þvi, að einn maður geti far
ið með meirihluta atkvæða á
aðalfundi S.Í.F.Vitanlega býð-
ur þetta skipulag þeirri hættu
heim, að meginhluti atkvæða
lendi í höndum fárra manna,
— og þar með yfirráðin yfir
fyrirtækinu — eins og líka
raunin hefur orðið.“
TU Jeiðréttingar á þessari
rangfærslu Tímans, skal hér
birt orðrétt 12. gr. laga S.Í.F.,
IDunskur próiessor ó vegum
Búnaðarfél. íslunds
A",
forfallalausu kemur prófessor K.A. Bondorff, forstöðumaður
stofnunar fyrir jarðvegs- og jurtarannsóknir í Lyngby í Dan-
mörku, hingað til lands um næstkomandi mánaðamót og dvelur hér
dagana 1.—5. marz.
Flytur hann hér þrjú erindi
á vegum Búnaðarfélags íslands,
í I. kennslustofu Háskólans; tvö
þeirra fjalla um jarðvegsrann-
sóknir og hið þriðja um O.jS.E.C.
og áburðarmálin, en prófessor
Bondorff er formaður áburðar-
nefndar O.E.E.C. í París.
Nánari tilhögmi dagskrár fyrir
erindi þessi verður tilkynnt síð-
ar, en aðgangur að þeim er öllum
heimill svo sem húsrúm leyfir.
Sérstaklega skal á það bent,
að allir ræktunarmenn, og þeir,
Skákmeistari
AKUREYRI, 26. febr.: — Skák-
þingi Norðlendinga lauk hér í
gær. Efstur í meistaraflokki og
þar með skákmeistari Norður-
lands varð Ingimar Jónsson, sem
hlaut 4% vinning af 5 möguleg-
um. Annar varð Margeir Stein-
grímsson með 3, og efstur í 1. fl.
varð Magnús Stefánsson en í 2.
fl. Páll Jónsson. Keppni í ungl-
ingaflokki er ekki enn lokið, en
þar eru nú efstir eftir 7 um-
ferðir Ólafur Kristinsson, Gler-
árþorpi, með 614 vinning og Sig-
fús Jónsson, Samkomugerði, 4 v.
Að lokinni verðlaunaafhend-
ingu var keppni í hraðskák og
vann Ingimar Jónsson alla kepp-
endur, sem voru 13. Næstir voru
Júlíus Bogason með 11 v. og Jón
Ingimarsson 1014 v. — J.
er vinna að leiðbeiningum og til-
raunum í þeim efnum, og enn-
fremur náttúrufræðingar og verk
fræðingar, munu einkum hafa
gagn af erindum prófessorsins.
Einvígi Pilniks
og Friðriks
GERT ER NÚ ráð fyrir að ein-
vígi þeirra Pilniks og Friðriks
hefjist í næstu viku, en aðeins
er eftir að ganga frá formsatrið-
um. Verða tefldar 6 skákir og
tvær að auki ef þeir verða jafnir
eftir sex skákir.
í kvöld klukkan átta teflir
Pilnik fjöltefli í Sjómannaskól-
anum og er öllum heimil þátttaka.
sem einmitt fjallar um þetta
atriði, og hljóðar svo:
„Hver þátttakandi í félaginu
hefur eitt atkvæði fyrir
hverja 500 pk. eða 25 smáL
Brotum undir helmingi þess
magns skal sleppt, en helm-
ingur og meira hækkað upp.
Magnið miðast við útflutning
næsta ár fyrir aðalfund. Þó
má enginn þátttakandi fara
með meira atkvæðamagn fyr-
ir sjálfan sig eða aðra en 8%
af atkvæðamagni þvi, sem hef
ur rétt til þess að hafa full-
trúa, er fara með atkvæði á
fundum félagsins, áður en tak-
mörkun er gerð skv. þessari
grein“.
Einkennilegt má virðast að
Tíminn skuli rangfæra þessi
mál á jafnaugljósan háít, og
auðvelt hefði verið að fá rétt-
ar upplýsingar um þetta atriði
hjá stjórn S.Í.F. eða sam-
vinreumönnum, sem vitanlega
hafa einnig lög þessi undir
höndum.
Nýja Bímaðaríé-
lagslmsið f ær ekki
f járf estin garleyf i
Á MORGUNFUNDI á búnaðar.
þingi í gær, sagði Sæmundur
Friðriksson framkvæmdastjóri,
búnaðarþingfulltrúum frá bygg-
ingarframkvæmdum við hið
mikla stórhýsi sem Búnaðarfé-
lagið lætur byggja vestur við
Hagatorg. Skýrði Sæmundur m.a.
frá því að fjárfestingarleyfi til
framkvæmda á sumri komanda,
væru ekki fengin. Hefði verið
gert róð fyrir því, að kjallari
hússins og tvær hæðir yrðu
steyptar í sumar. — Sæmundur
kvaðst þó ekki vera með öllu
vonlaus um að fjárfestingarvaldið
leyfði þessar framkvæmdir m. a.
af því að ekki þyrfti til þeirra
neina lántöku. Upplýsti hann enn
fremur að þegar væri búið að
kaupa mikið af byggingarefni tii
hússins, sem verður sameign
Búnaðarfél. íslands að % og að
14 Stéttarsambands bænda og
Framleiðsluráðs landbúnaðarins.
Enginn fundur verður á bún-
aðarþingi í dag.
Stórvirk slysavarnadeiid
Nokkrar kindur
lýnast trá húsi
VALDASTÖDUM, 24. febrúar: —
Það bar til sl. miðvikudag að
Hjarðarnesi á Kjalarnesi, að
nokkrum gemlingum var sleppt
út úr húsi, sem ekki er í frá-
sögur færandi. Munu þeir hafa
verið 12 að tölu.
Á meðan bóndinn brá sér inn
nokkra stund, hurfu þeir allir,
og hafa ekki sézt síðan. Er þó
búið að leita allmikið, bæði uppi
í Esju, en þar munu þeir sézt
síðast, og eins hefur verið leitað
með sjónum. Ein ær mun hafa
verið með gemlingunum, en hún
stóð eftir, er þeir fóru.
Þegar menn voru að leita að
þessum kindum, er hurfu, fundu
þeir tvær aðrar kindur, frá Ólafi
bónda Eyjólfssyni í Saurbæ á
Kjalarnesi á svonefndum Bleik-
dal, sem skerst inn í Esjuna, að
vestanverðu._____ —St.G.
PATREKSFIRÐI, 22. febrúar. —
Ólafur Jóhannesson kom hingað
í gærmorgun af veiðum til Pat-
reksfjarðar eftir viku útivist. Var
hann með 140—150 lestir af fiski.
Er verið að landa fiskinum í dag
og fer hann til vinnslu í hrað-
frystihúsin.
í GÆR komu form. og gjald-
keri slysavarnadeildar kvenna í
Keflavík á skrifstofu Slysavarna-
félagsins og afhentu félaginu 40
þús. kr., sem er framlag hennar
til Slysavarnafélags íslands fyrir
síðastliðið ár, en alls námu árs-
tekjur deildarinnar um 54 þús.
krónum.
Er hér um að ræða alveg frá-
bærilegan dugnað slysavarna-
kvenna í Keflavík, en þar hafa
sömu konur farið með stjórn
mörg undanfarin ár. Gjaldkeri
deildarinnar, frú Kristín Guð-
mundsdóttir baðst undan endur-
kjöri sem gjaldkeri, en hún hefur
átt sæti í stjórn deildarinnar allt
frá stofnun hennar fyrir 26
árum. Hún féllst þó á að taka
sæti í varastjórn. Stjórn deildar-
innar skipa nú: Jónína Guðjóns-
dóttir form., Sesselja Magnús-
dóttir' ritari og Helga Þorsteins-
dóttir gjaldkeri. í varastjórn í
sömu röð: Guðný Ásberg, Elín
Ólafsdóttir og Kristín Guð-
mundsdóttir.
★
Þá hefur stjórn slysavarna-
deildarinnar Ingólfs ákveðið í til-
efni af 15 ára afmæli sínu að
leggja fram 100.000 — eitt hundr-
að þúsund krónur — í væntan-
lega björgunarstöð fyrir Reykja-
vík, en nú standa yfir samningar
við hafnarstjórn um framtíðar-
stað fyrir Slysavarnafélagið við
Reykjavíkurhöfn. — (Fréttatil-
kynning frá SVFÍ).
Skók-keppnin
2. BOR»
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness.- Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
&
á
\A
abcdefgh
Hvítt: Akureyri
(Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.)
36.
De7—eS