Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 17

Morgunblaðið - 19.03.1957, Page 17
Þriðjudagur 19. marz 1957 MOKCVHBL4Ð1Ð Snjólaug Jóhannesdóttir MinningarorS í DAG verður jarðsett hér í bænum frú Snjólaug Guðrún Jóhannesdóttir, Grenimel 12. Þegar ég stend yfir moldum þess- arar mætu konu, er margs að minnast og þakka. Þakka vináttu við hana og fjölskyldu hennar í 28 ár, sem aldrei bar skugga á. Þakka nærgætni hennar og tryggð við aldurhnigna foreldra mína og fjölskyldu í nábýli í sama húsi í 15 ár. Frú Snjólaug var grein af sterkum stofni. Foreldrar hennar voru hjónin Jóhannes Sigurjóns- son frá Laxamýri og Þórdís Þor- steinsdóttir. Þessi heiðurshjón eignuðust ellefu börn, fimm sonu og sex dætur, en svo mikill harmur var að þeim kveðinn, að þau misstu alla sonu sína, en dæturnar urðu allar merkiskon- ur, sem héldu hópinn, fram á síðastliðið sumar að ein þeirra féll í valinn fyrir aldur fram, en það var frú Jóna kona Árna Benediktssonar forstjóra, og nú er enn höggvið skarð í systra- hópinn með fráfalli Snjólaugar. Það var skammt milli dánar- dægra þessara systra, en það var líka skammt milli þeirra í lífinu. Systraböndin voru sterk og sorg og gleði annarrar var þeirra beggja. Frú Snjólaug var fædd að Laxa mýri í S-Þingeyjarsýslu 13. des. 1903 og þar ólst hún upp, en til Reykjavíkur fluttist hún árið 1927 og giftist svo hér árið 1930 ágætum manni Eiríki Jónssyni trésmið, ættuðum úr öxarfirði. Þau bjuggu hér í Reykjuvik all- an sinn búskap og var sambúð þeirra með ágætum. Þau eignuð- ust 4 börn, sem öll eru á lífi, en þau eru: Jóhannes Þórir, kvænt- ur og lýkur prófi nú í vor frá landbúnaðarháskólanum í Kaup- mannahöfn. Rósa Jóna,- sem lok- ið hafði námi við Verzlunarskól- ann hér, en er nú gift og búsett á Jamaica. Sturla, skrifstofumað- ur, sem lokið hefir námi í Sam- vinnuskólanum, er giftur og bú- settur hér í bænum, og Snjólaug Guðrún, ógift, og líkur námi í vor frá Ballet Akademíinu í Kaupmannahöfn. Frú Snjólaug var á flesta lund hamingjusöm kona. Hún eiskaði n ann sinn, börnin og heimilið og henni entist líf og heilsa til þess að fórna sér fyrir þetta allt þeg- ar það þurfti hennar mest með og hún lifði það, að sjá ávöxt ævi- starfsins í börnunum, myndar- legu uppkomnu fólki, sem feng- ið hafði góða menntun og öll skil- HILMAR FOSS lögg. skjalaþýð. & dómt_ Hafnarstræti 11. — Sími 4824. -PALL S. PÁLSSON hæstarétlarlögmaður Bankastræti 7 — Simi 81511 yrði þess, að verða góðir og nýtir þjóðfélagsþegnar. Slíkt eru góð laun göfugri móður. Ættarmót Laxamýrarfólksins er sterkt. Sér stakt svipmót, mikið mannvit og viðkvæm lund er ættarfylgja þessa fólks, og þótt Jóhann Sig- urjónsson skáld föðurbróðir frú Snjólaugar, hafi sennilega borið hæst vegna leiftrandi gáfna og glæsimennsku, var þó Jóhannes faðir frú Snjólaugar einnig sér- stæður gáfumaður. Ungur gekk hann menntaveg. Varð stúdent. Hafði sérstaka hæfileika til nátt úrurannsókna. Hann var mikill bókamaður og hafði mikla þekk- ingu á enskri timgu. í Ameríku var hann í fjögur ár, en fluttist svo á jörð feðra sinna, Laxamýri, og varð bóndi. Frú Snjólaug haxði fengið í vöggugjöf einkenni ættar sinnar. Hún var gáfuð kona með barns- lega viðkvæma lund og svipmót- ið leyndi sér ekki. Allt þetta gerði hana hugþekka þeim, sem kynntust henni. Frú Snjólaug hafði búið við mikla vanheilsu síðustu árin og var henni vel Ijóst að hverju dró. En dauðinn gekk léttum skrefum að sjúkrabeði hennar nóttina milli 10. og 11. þessa mán- aðar. Hún fékk hægt andlát. Við fráfall þessarar goðu og trygglyndu konu, votta ég nán- ustu ættingjum hennar og vin- um dýpstu samúð mína. Aron Guðbrandsson. BEZT A» AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINV tbúðir óskast Hefi kaupanda að einbýlishúsi eða 4 herbergja hæð, helzt í smáíbúðahverfinu (má vera í smíðum). Möguleiki á skiptum á 5 herb. íbúðarhæð í smíðum. STEINN JÓNSSON, hdl. Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala, Kirkjuhvoli, Símar 4951 — 82090. Fokheld hæð til söhi Portbyggð rishæð, fokheld, sem getur orðið fjðgur herbergi og eldhús og bað, til sölu á mjög skemmti- legum stað í Kópavogi. STF.INN JONSSON, hdl. Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala, Kirkjuhvoli, Sítnar 4951 — 82090. Húseign til sölu ásamt erfðafestulandi. Má Iflutningsskrif stofan EGGERT CLAESSEN GÚSTAF A. SVEINSSON, hæstaréttarlögmenn, Þórshamri — sími 1171, Vefnaðarvöruverzlun í fullum gangi á mjög góðum stað til sölu. — Einnig gæti verið um verzlunarstjóra stöðu að ræða með hlutdeild í fyrirtækinu. Tilboð merkt „Framtíð —2339“, sendist blaðinu sem fj rst. Fínriflað flauel FALLEGT EFNI FALLEGIR IJTIR GULT — HVÍTT — GRÆNT — BLÁTT — RAUTT LAUGAVEGI 60 — SÍMI 82831. SELEIMIUM afriðlar til ýmissa nota Fyrir gullsmíðaverkstæði. Afriðlar fyrir leikhús og kvik- myndahús. Til hleðslu á alcaline- og blýsýrugeymum. Afriðlar fyrir símstöðvar og færanleg raftæki. Ýmsar stærðir spennubreyta. Allskonar hleðslutæki fyrir bílaverkstæði, gerð UT. Hleðslugeymar fyrir rafknúna þungavörubíla. Gerð VI. Útflytjendur: ELEKTROIMPEX Hungarian Trading Company íor Telecommunication and Precision Goods Letters: Budapest 62, P.O.B. 296. /Hungary/ Telegrams: ELEKTRO BUÐAPEST Allir eiga enn erindi í Listamannaskálann í tlag, hriðjudag, seljum við í Listamannaskálanum nokkur þúsund bóka úr fornbókasölu Guðm. Gamalíeissonar, þar á meðal nokkrar fágætar bækur og tímarit. Ennfremur rnikið af lítið eitt gölluðum eintökum af úrvals bókum, fyrir smápening. — Þér getið fengið síórt bókasafn fyrir nokkur hundruð krónur. Útsölunni lýkur í kvöld. A llra síðasta tækifæri. ^eir. sem eiga óinnTeysta happdrættismiða verða að framvísa þeim í kvöld,annars ógildir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.