Morgunblaðið - 24.04.1957, Side 13
Miðvíkud. 24. apríl 1957.
MORCTJNBLÁÐ1Ð
15
Fimmtugur í dag:
Óðinn Geirdal Akranesi
RÍÐASTA aldarfjórðunginn hef-
w hugur fjölmargra landsmanna
beinzt að Akraneskaupstað og
þeirri þróun sem verið hefur í
lífi og starfi fólksins sem þar
býr. Stór hópur manna hefur á
þessu tímabili tekið sig upp og
brugðið búi í byggðarlagi sínu og
fluttst búferlum á Akranes. Flest
er þetta fólk að ætt og uppruna
af Vestfjörðum og Norðurlandi.
Augu fólksins í nyrstu byggð
þessa lands, Grímsey, sem er út-
vörður lands vors á mótum
kaldra og hlýrra strauma í norð-
urhöfum, hafa einnig fest sjónir
á Akranesi.
Fyrir aldarfjórðungi fluttist
þangað úr Grímsey merkur og
fjölhæfur maður, sem á fimm-
tugsafmæli í dag, Óðinn Geirdal
skrifstofustjóri. Foreldrar hans,
Steinójfur Eyjólfsson Geirdal frá
Múla í Geiradal við Gilsfjörð og
kona hans Hólmfríður Sigurgeirs
dóttir frá Parti í Aðaldal í Suður-
Þingeyjarsýslu fluttust frá Húsa
vík til Grímseyjar á síðari hluta
fyrsta áratugs aldarinnar. Var
Steinólfur um áratuga skeið skóla
stjóri við barnaskólann þar og
mikill forystumaður í framfara-
og félagsmálum eyjarskeggja, en
Hólmfríður kona hans gengdi þar
finningu fyrir því að allar leik-
reglur séu í heiðri hafðar og að
öll framganga sé með virðulegum
brag.
Óðinn er söngvinn maður. Hef-
ir hann lengi verið þátttakandi í
karlakór staðarins sem getið hef-
ir sér gott orð heima og heiman.
Hafa kórfélagar lagt mikla rækt
við söngmenntina og leitað víða
til fanga um uppbyggingu hins
göfuga starfs.
Leiklistaráhugi er mikill á
Akranesi. Hefir þar með hverju
árinu sem liðið hefir nú upp á
síðkastið, verið færzt meira og
meira í fang. Nú síðast með þvl
að setja á svið Gullna hliðið, hinn
stórbrotna og vandmeðfarna leik
Davíðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi. Eigi verður slíkum fram-
förum, sem hér hafa orðið, náð
nema með því að fórna miklum
tíma og fyrirhöfn við æfingar, því
án þess fá þeir leikhæfileikar sem
fólkið býr yfir ekki notið sín.
Óðinn hefir með ráði og dáð stutt
leiklistarstarfsemina á Akranesi
og verið þar tíður gestur á leik-
sviði og farizt það vel úr hendi.
Sú söngmenntar og leiklistar-
starfsemi sem hér hefir verið lýst
er engan veginn til orðin af gróða
von á fjármálalegan mælikvarða.
Hún er af allt öðrum rótum runn-
ljósmóðurstörfum og veitti þar
læknishjálp í viðlögum því langt in‘ er tyr‘r ^st °S
gofgi sem þar heldur um stjórn
var læknis að vitja, annaðhvort á
Húsavík eða Akureyri. Foreldrar
Óðins intu af hendi um langan
aldur m'ikið og gott starf í þessu
afskekkta byggðarlagi. Óðinn var
fæddur á Húsavík og var hann
á öðru ári er foreldrar hans flult
ust til Grímseyjar. !>au Steinólf-
ur og Hólmfríður áttu fjölda
barna og hafa nokkur af systkin-
um Óðins flutzt til Akraness þótt
eigi hafi þau fest þar rætur til
langframa. Bróðir Óðins, Bragi,
reisti bú í nágrenni Akraness-
kaupstaðar og býr þar góðu búi
auk þess sem hann hefir reynzt
góður og farsæll liðsmaður í fé-
lagsmálum í hreppi sínum.
Öll börn þeirra Steinólfs og
Hólmfríðar eru skírð goðanötn-
um. Er það eitt af mörgum dæm-
um þess hve norrænn andi og
ræktarsemi við líf og sögu for-
tíðar vorrar á sér djúpar rætur
hjá því fólki, sem heyir lífsbar-
áttu sína og elur aldur sinn á af-
skekktunf stöðum í landi voru.
Að loknu barnaskólanámi í
Grímsey fór Óðinn í Gagnfræða-
skólann á Akureyri og lauk þar
prófi. Að námi loknu stundaði
Óðinn ýms störf þar nyrðra í
nokkur ár eða þangað til hann
íluttist á Akranes og settist þar
að. —
Óðinn er, sem fyrr segir, fjöl-
hæfur maður, greindur eins og
hann á kyn til og vel menntaður.
Á atvinnusviði hefir hugur hans
einkum beinzt að verzlunarstörf-
um. Rak hann um skeið verzl-
un á Akranesi. Síðar seldi hann
verzlunina og hefir síðan stund-
að skrifstofustörf. Síðustu árin
hefir hann verið skrifstofustjóri
hjá útgerðarfélaginu Fiskiver.
Óðinn er maður bókhaldsfróður,
ritar fallega hönd, viss og ábyggi-
legur í öllum viðskiptum, og
grandvar til orðs og æðis.
Óðinn er gæddur ríkri félags-
lund. Býr hann í því efni að
fyrstu gerð bernskuáranna í
Grímsey á heimili foreldra sinna,
en þau voru jafnan mjög í farar-
broddi um alla félagsmálastarf-
eemi í þessum afskekkta stað. —
Hæfileikar Óðins á þessu sviði
féllu í góðan jarðveg á Akranesi.
Þar er eins og alkunnugt er líf
og fjör í ýmsum greinum félags-
legra samtaka.
Mikil rækt hefir um langt
skeið verið lögð þar við íþvótta-
iðkanir. Hefir hróður knattspyrnu
mannanna á Akranesi borizt víða
bæði utan lands og innan. Óðinn
hefir jafnan starfað af lífi og sál
1 þessum félagsskap og ekki dreg-
ið af sér, enda knár og kappsfúll-
ur. Þá hefir hann og næma til-
völinn. Launin eru fólgin í þeirri
ánægju, sem það veldur að lyfta
huga fólksins á hærra stig, örfa
þær kenndir sannrar gleði og
fagnaðar sem ná til hjartans og
eru oss til sálubóta. Þá hefir Óð-
inn unnið mikið og gott starf í
Góðtemplarareglunni á Akranesi.
Hefir þar farið saman einlægur
vilji til þess að forða mönnum
frá skaðsemi og eyðileggingu vín-
nautnarinnar og hæfileiki hans
til Þess að byggja upp skemmti
legan og aðlaðandi félagsskap
sem tekur opnum örmum á móti
þeim sem veiklundaðir eru og
hrösunargjarnt, og leitast við að
veita þeim styrk til afturhvarfs
og þess manndóms er fær sé um
að standa af sér freistingar og
allt sem ginnir og glepur.
Eins og þetta stutta yfirlit um
félagsmálastarf Óðins Geirsdals á
Akranesi á því aldarfjóröungs-
skeiði. sem hann hefir þar búið,
ber með sér, hefir hann ekki hald-
ið að sér höndum um að vinna
að menningu og framförum þessa
byggðarlags. Hvar sem hann geng
ur að verki, gerir hann það heills
hugar og leggur alla sál sína í
starfið. En störf sem unnin eru
með slíku hugarfari verða jafn-
an farsæl og árangursrík.
Óðinn er kvæntur ágætri og
geðþekkri konu, Guðrúnu Jóns-
dóttur, Jónssonar kaupmanns í
Ásbergi og Guðbjargar Einars-
dóttur Gíslasonar í Akurprýði.
Þau eiga tvö uppkomin börn:
Dröfn, sem er gift norskum skóg-
fræðingi, Severin Lavik og
Njörður, nemandi í menntaskólan
um á Laugarvatni.
Óefað berast þeim hjónum
margar heilla- og hamingjuóskir
á fimmtugsafmæli þessa vinsæla
félagsmálafrömuðar.
Pétur Ottesen.
4ra herbergja íbúðarhæð
með sér hitaveitu við Njálsgötu til sölu.
IVýja Fasteignasalan
Bankastræti 7, sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e.h. 81546.
Starfsstúlka óskast
að Þórscafé. Uppl. frá kl. 2—3
SJONRUKRR
ÚRVALI
sjónaukar
stækkun ljósop krónur
8 x 30 1189,00
8 x 40 1590,00
10 x 40 1624.00
12 x 40 1659,00
Verzlun
Hans Petersen H.f.
Bankastr. 4, sími 3213.
SÖLUTURN tíl lcigu á bezta stað í bæn- um. Tilboð sendist Mbl., — merkt: „Sölutum — 5472“. SMJÖRBRAUÐS DAMA óskast að veitingaskálanum við Hvítárbrú, í sumar, ca. 3 mánuði. Upplýsingar í síma 6769.
TIL SÖLU er Buick Speeial, model ’47. Selst ódýrt. Uppl. í Þver- holtl 15. Sími 81850.
Volvo vörubíll 7957 Nýr 5 tonna diesel-bifreið til sölu. — BifreiSasalan Bókhlöðust. 7. Sími 82168. STÚLKA óskast trt afgreiðslu f bakaríi. Tilboð sendist Mbl. fyrir fimmtudagskvöld, — merkt: „L. F. — 5474“.
Ford Prefect '55 Sem ókeyrður, til sölu. Bifreiðasalan Bókhlöðust. 7, sími 82168. 2 herbergi helzt með eldhúsi eða að- gangi að eldhúsi, óskast yf- ir sumarmánuðina. Tvennt fullor’Cð í heimili. Upplýs- ingar í síma 3003.
Farsgerðarvél Og áleggshnífur til sölu, ó- dýrt. Hentugt fyrir stærri matsölur. Einnig þýzkur peningakassi. Uppl. gefur: Btla & fasteignasalan Vitastíg 8A. Sími 6205. Nýr, þýzkur radiofórm fil sölu Upplýsingar f síma 2160.
íbúð óskast Miðaldra kona með 1 barn, óskar eftii íbúð, 1 herb. og eldhúsi, í kjallara eða á hæð. Fyrirframgreiðsla eftir sam komulagi. Tilb. sé skilað á afgr. blaðsins fyrir sunnu- dag, merkt: „íbúð — 5478“. Stúlka óskast í vist, hálfan daginn eða all- an. — Upplýsingar í síma 5726. —
Bifvélavirki Reglusamur bifvélavirki óskar eftir vinnu. Húsnæði þyrfti helzt að fylgja. Tilb. með launakjörum og hlunn- indum, leggist inn á afgr. Mbl., merkt: „666 — 5477“. Heimíliselsk kona óskar eftir að annast um heimili fyrir einhleypan mann. 55—65 ára. Gott hús- næði áskilið. Kjör eftir sam komulagi. Tilb. sendist Mbl. til sunnudags, merkt „Fram tíð — 5473“.
Vantar leiguibúÖ Get greitt 20—30 þús. fyr- irfram. Fátt í heimili. Tilb. sendist Mbl., merkt: „Aust- urbær — 5476“. PRJÖNAVEL ein eða fleiri og spunaá- höld, með 7 smá mótorum, til sölu. Uppl. gefur Hall- dór Þorgeirsson, Fálkanum.
7/7 leigu strax 100 ferm. risíbúð í Vestur- bænum. Tilb. merkt: „Fyr- irframgreiðsla — 5475“, — sendist Mbl., fyrir fimmtu- dagskvöld. Múrarar athugið Tilboð óskast í múrverk á húsi að utan og innan. Uppl. Grettisgötu 96, fyrstu hæð. —
STÚLKA Sendibílastöð Hafnarfjarð- ar óskar eftir afgreiðslu- stúlku strax. Vaktaskipti. Upplýsingar á stöðinni. ÍBÚÐ óskast til leigu, tvð til þrjú herb. og eldhús. Engin fyr- irframgreiðsla. — Upplýs- ingar í síma 80986.
Vantar nokkra MENN á handfæraveiðar. Upplýs- ingar í síma 5670 eftir kl. 6. Nokkrar Saumastúlkur óskast. Upplýsingar í síma 6305. — Fatagerðin BI’RKÍNI h.f. Brautarholti 22.
Matreiðslukona og afgreiðslustúlka óskast nú þegai-. Hátt kaup. Uppl. í síma 7514 og á staðnum. MiSgarður. Tveir páfagaukar ásamt búri, til sölu. Uppl. Laugavegi 137, III. hæð. — Sími 6082.