Morgunblaðið - 24.04.1957, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.04.1957, Blaðsíða 16
!€ MORCVNBLAÐIÐ Miðvikud. 24. apríl 1957. A ustan Edens eítir John Steinbeck 18 I og svörtum buxum úr vönduðu klæði, með svartan, barðastóran hatt á höfði, í frakka með loð- kraga og með göngustaf úr íben- viði, sem minnti á sverð í hendi hans. Og Cyrus hegðaði sér eins og mikill maður. Hann talaði hægt og rólega, eins og hann hugsaði vandlega hvert orð, beitti miklum handahreyfingum og nýju tenn- íirnar settu einhvern slóttugan refssvip á allt andlitið. Jafnvel þegar Adam var orðið Ijóst, að þetta var faðir hans, biðu hans ný undrunarefni. Fað- irinn gat bæði kreppt hnéð og rétt úr því og á fætinum hafði hann gljáfægða leður-legghlíf. Hann var að vísu örlítið haltur í gangi ennþá, en ekkert líkt því sem áð- ur hafði verið. Cyrus veitti tilliti sonarins at- hygli: „Yélrænn útbúnaður — fjaðrir og hjörur. Þarf ekki að haltra neitt lengur. Ég skal sýna þér allan útbúnaðinn, þegar ég tek fótinn af mér. Komdu nú með mér“. Adam sagði: „Ég er hingað kominn samkvæmt skipun. Ég á □-------------------□ Þýðing: Sverrir Haraldsson □-----------------—□ að tilkynna Wells ofursta komu mína“. „Ég veit það vel. Það var ég sem fékk Wells til að kalla þig hingað. Komdu nú, drengur minn“. Adam sat við sinn keip. „Fyr- irgefðu, en ég held að það sé bezt fyrir mig að tilkynna Wells of- ursta komu mína“. Faðir hans varð alvarlegur á svipinn. „Ég var einungis að reyna þig“, sagði hann hátíðlega. „Mig langaði til að vita, hvort nokkur agi væri í hernum lengur. Vel mælt, drengur minn. Ég vissi að þú myndir hafa gott af því. Þú ert maður og hermaður, son- ur minn“. „Ég er hér samkvæmt skipun", sagði Adam. Þessi maður var honum framandi og hann fann til óljósrar óbeitar. Eitthvað var öðruvísi en það átti að vera. Eitt hvað var ekki alveg sannleikan- um samkvæmt. Og þessi tilfinn- ing hvarf honum ekki, þegar of- urstinn tók á móti þeim með auð- mjúkri lotningu og sagði: „Ráðherrann bíður komu yðar, sir“. „Þetta er sonur minn, hr. ráð- herra — óbreyttur hermaður eins og ég var sjálfur, óbreyttur liðs- maður í bandaríska hernum". „Ég var gerður að liðþjálfa, sir“, sagði Adam. Hann heyrði naumast skjallyrðin sem flugu manna á milli. Hann hugsaði: — „Þetta er hermálaráðherrann. — Getur hann ekki skilið það, að fað ir minn er raunverulega alls ekki svona? Hann er að leika. Hvað gengur eiginlega að honum? Það er undarlegt að ráðherrann skuli ekki gera sér grein fyrir því“. Þeir gengu til gistihússins, þar sem Cyrus bjó og á leiðinni þang- að benti hann syni sínum á allt hið markverðasta er fyrir augun bar, byggingar og sögulega staði, með öruggu látbragði kennarans. „Ég bý á gistihúsi", sagði hann. „Mér hefur dottið í hug að kaupa hús, en vegna hinna sífelldu ferða laga minna, myndi það varla svara kostnaði. Ég er á einlægum þveitingi um landið, þvert og endi langt, allan ársins hring“. Þegar til gistihússins kom var sömu sögu að segja. Dyravörður- inn hneigði sig auðmjúklega, kall- aði Cyrus „senator" og hét því að útvega Adam hei'bergi, jafnvel þótt hann yrði að kasta einhverj- um öðrum dvalargesti á dyr, til þess. „Gerið svo vel að senda flösku af góðu viskí upp í herbergið rnitt", sagði Cyrus í myndugum rómi. „Á ég að senda ís líka, sir?“ „ís?“ endurtók Cyrus. „Sonur minn er hermaður". Hann barði stafnum í tréfótinn svo að small í. „Ég hef sjálfur verið hermaður — óbreyttur hermaður. Til hvers skyldum við vilja ís?“ Adam undraðist mjög hversu faðir hans barst á. Hann hafði ekki aðeins svefnherbergi, heldur og líka setustofu til umráða og snyrtiklefinn var inni í svefnher- berginu. Cyrus settist í djúpan hæginda stól og andvarpaði. Svo skrúfaði hann fótinn af sér og reisti hann upp við stólinn. „Það er dálítið lýjandi að ganga á honum lengi í einu án hvildar", sagði hann við Adam, eins og til skýringar. Það var ekki fyrr en eftir að Cyrus hafði tekið af sér fótinn, sem hann varð raunverulega aft- ur hinn sami og Adam minntist frá bernskuárum sínum. Hann hafði til þessa kennt sterkrar óbeitar, en nú íann hann aftur til óttast frá æskudögunum, virð- ingarinnar, hatursins og það var því líkast sem hann yrði aftur lít- ill drengur, og reyndi að gera föð- urnum til geðs og þóknast honum, til þess að komast hjá ávítunum og refsingum. Cyrus fór sér að engu óðslega, hellti úr flöskunni í glas sitt, saup á og losaði um flibbann að framan. Því næst leit hann á Adam: — „Jæja?“ „Hvað, sir?“ „Hvers vegna léztu endurskrá þig í herinn?“ „Ég veit það ekki, sir. Mig lang aði bara til þess“. „Þér geðjast ekki að hermennsk unni, Adam“. „Nei, sir“. „Og hvers vegna fórustu þá aft ur í herinn?" „Mig langaði ekki til að fara heim“. Cyrus andvarpaði aftur og barði með fingrunum í stólbrík- urnar: „Ætlarðu að vera í hern- um eftirleiðis?" „Ég veit það ekki, sir“. „Ég get komið þér í herskólann í West Point. Ég hef talsvert að segja í þeim málum. Ég get feng- ið þig lausan úr hernum, svo að þú getir farið í herskólann". „Ég hef enga löngun til þess“. „Ertu að bjóða mér byrginn?" spurði Cyrus rólega. Adam varð seinn til svars og hugur hans leitaði árangurslaust að einhverri undankomuleið, áður en hann svaraði: „Já, sir“. Cyrus sagði: „Helltu dálitlum sopa í glasið mitt, sonur sæll“, og þegar Adam hafði gert það, hélt hann áfram: „Þú veist víst ekki hversu áhrifamikill ég er í raun og veru. Ég get komist til hinna æðstu metorða í hernum, ef ég kæri mig um slíkt. Jafnvel ráð- herrann sjálfur leitar míns álits og minna ráða í vandasömum mál- efnum. Ég get steypt ráðherrum úr sessi og ég get ráðið því, hverj ir hljóta störf og stöður. Ég get bjargað mönnum og ég get eyði- lagt menn. Veistu það, drengur minn?“ Adam vissi það og hann vissi meira. Hann vissi að Cyrus var að verja sjálfan sig með hótun- Húsmœður: Hafið fiér reynt ROYAL ávaxfahlaup (Gelatin) 6 bragðtegundir: JARÐARBERJA ANANAS APPELSÍNU HINDBERJA SÍTRÓNU KIRSUBERJA ROYAL ávaxtahlaup inniheldur C bætiefni. Það er ljúffengt og nærandi fyrir yngri sem eldri og mjög fallegt til skreytingar á tertum. Reynið ROYAL ávaxtahlaup á fermingar- tertuna. FramköUnm og kopienun FILHVB Fljót afgreiðsla — Vönduð vinna. Afgreiðsla í Orlofsbúðinni, Hafnarstræti 21. >>«5** <• <9 MARKÚS Eftir Ed Dodd PAT CARUNS, \M-tEN AEE VQJ <301NS TO S GIVE UP THIS fSTUPIO NURSIN3 f BUSINESS...X HAVE y A NICE INCOME y. 7 ANO VOU DONT Y V. NEED TO y *5wl 00 »t/ S' VOU WOUUDNIT OBJECT IF I NUIBSEQ ONLV • VOJE FEIENDS. \ WOUUO VOLt CAD* } NO, I WOULDNT: 4 BUTXHATETO & SEE vou voacvV . VOUE HEART V? OUT ON THOSE ‘>7 WOETHLESS J 5iklNDIANS/r 1) Þú veist það Peta, að mig hefur alltaf langað að eiga Bern- harðshund, frá því ég var lítill drengur. Já ég er svo glöð yfir því að við höfum eignast hann. Hann verður góður félagi í veiðiferð- um. 3) Peta min, hvenær ætlarðu að hætta þessari hjúkrun. hætta þessari hjúkrun. Ég hef nógar tekjur fyrir okkur bæði og þú þarft ekki að vinna. 4) Ef ég aðeins hjúkraði og lækn- aði vini þína, þá myndirðu ekki hafa á móti því. Nei, en ég skil ekki í þér að vera að fórna þér fyrir þessa ein- skinsnýtu Indíána. um. „Já, sir. Ég hef heyrt það sagt“. „Ég gæti fengið þig fluttan til Washington". „Ég vildi heldur verða settur í gömlu herdeildina mina aftur, sir“. Hann sá að skuggi ósigurs- ins myrkvaði andlit föðurins. „Kannske hefur mér skjátlast. Ég sé að þú hefur lært hina heimskulegu þrjósku hermanns- ins“. Hann andvarpaði. „Ég skal sjá til þéss, að þú verðir settur í gömlu herdeildina þína. Þú get- ur þá haldið áfram að lifa hunda- lífi hermannaskálanna". „Þökk fyrir, sir“. Eftir stund- arþögn spurði Adam: „Hvers vegna gerir þú ekki boð eftir Charles?" „Vegna þess að ég. — Nei, Char les er bezt kominn þar sem hann er — bezt kominn þar sem hann er“. Adam mundi raddhreim föður- ins og svipinn á andliti hans. Og hann fékk nægan tíma til að muna, því að hann hélt áfram að lifa hundalífi herskálanna. Hann mundi, að Cyrus var einmana og yfirgefinn — og vissi það sjálfur. 3. Charles hafði hlakkað til heim komu Adams, eftir fimm ára fjar veru hans. Hann hafði málað hús- ið og hlöðuna og þegar heim- komutími Adams nálgaðist, fékk Charles kvenmann til að gera hús ið hreint — raunverulega hreint, Þetta var þrifin, nostursöm, gömul kona. Hún leit á öskugráu, mölétnu gluggatjöldin, reif þau síðan niður og saumaði önnur ný í staðinn. Hún hreinsaði sótið úr eldavélinni, sem fengið hafði að liggja óhreyft og safnast fyrir, síðan móðir Charles lézt og hún skúraði hin sótblökku, fitustorknu óhreinindi af veggjunum. Hún skrúbbaði gólfin upp úr sterkum sápulút og þvoði ullarteppin úr salmíakvatni um leið og hún tautaði sífellt fyrir munni sér: „Ja, þvílíkur maður, herra minn trúr. Svona eru þessir karlmenn — verri en nokkur svín. Undar- legt að nokkur kvenmaður skull líta við þeim. Það er óþefur af þeim öllum. Þeir þrífast hezt í sinum eigin saur og óhreinindum". Charles hafði flutt sig út I Sfllltvarpiö Miðvikudagur 24. apríl; Fastir liðir eins og venjulega. 12.50—14.00 Við vinnuna: Tónleik ar af plötum. 18.00 Ingib.jörg Þor- bergs leikur á grammófón fyrir unga hlustendur. 18.30 Bridge- þáttur (Eiríkur Baldvinsson). 18. 45 Fiskimál. 19.00 Þingfréttir. 19L 30 Óperulög (plötur). 20.25 Dag- legt mál: (Arnór Sigurjónsson, ritstjóri). 20.30 Dagskrá háskólá- stúdenta: Samfelld dagskrá una skólalíf á Islandi fyrr á tímum. 22.10 Létt lög. 23.45 Dagskrárlok. Fimmtudagur 25. april. (Sumardagurinn fyrsti). Fastir liðir eins og venjulega. 8.00 Heilsað sumri: Ávarp (Vil- hjálmur Þ. Gíslason, útvarps- stjóri). Vorkvæði (Lárus Pálsson leikari les). Sumarlög (plöturk. 9.00Morgunfréttir. 9.10 Morguiv tónleikar (plötur). 11.00 Skóta- messa í Dómkirkjunni( Prestur Sr. Þorsteinn Björnsson. Organ- leikari Kristinn Ingvarsson). .13. 15 Útvarp frá útihátíð barna 1 Reykjavík: Lúlrasveit drengja leiga, söngur og upplestur. 18.30 Barnatími (Baldur Pálmason). 19.30 Tónleikar. 20.20 Náttúra ís* lands; II. erindi: Farfuglarnir ‘Agnar Ingólfsson, menntaskóla- nemandi). 20.445 Kórsöngur: Karlakórinn Fóstbræður synguc. Söngstjóri Ragnar Björnsson. Ein söngvarar: Þuríður Pálsdóttir, Einar Kristjánsson, Kristinn Hallsson og Sigurður Björnsson. Píanóleikari Ásgeir Beinteinsson. 21.40 Upplestur: Guðbjörg Vig- fúsdóttir les sumarkvæði. 22.03 Banslög, þ.m. leikur danshljóm- sveit Svavars Gests. 01.00 Dag- skrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.