Morgunblaðið - 06.06.1957, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.06.1957, Qupperneq 1
44. árgangur 125. tbl. — Fimmtudagur 6. júní 1957. Prentsmiðja Morgunblaðsins Inflúenzan breiðist ört ut Unnið að þvl að framleiða bóluefni við veikinni BOMBAY, 5. júní. — Inflúenzufaraldurinn breiðist ört út í Indlandi. í dag var tilkynnt, að um 350 þús. íbúar Bombay- borgar hafi tekið veikina, en þar búa 2.840.000 manns. Fréttir herma, að enn sé inflúenzufaraldurinn í Asíu heldur vægur, en veikin er aftur á móti ákaflega smitandi og hefir breiðzt ört út. Veikin hefir af sumum verið kölluð ,Taiwan-fIugan“ til aðgreiningar frá öðrum inflúenzufar- ©ldrum, svo sem „Spænsku veikinni“ svonefndu, en álitið er, að um 25 milljónir manna hafi dáið úr henni og fylgi- kvillum hennar á árunum 1918—1920. Sir Macfarlane Burnet, þekkt- ur læknir í Melbourne, skýrði frá þvl í síðustu viku, að veira „Taiwan-flugunnar“ sé ný af nál- inni, en af gerðinni Inflúenza A. — Sérfræðingar hafa brugðizt skjótt við til að hefta útbreiðslu veikinnar. Bakteríufræðingar í Singapore fundu veiruna og sendu sýnishorn af henni til Bret- lands, Bandaríkjanna og Ástra- líu, þar sem unnið hefir verið að rannsóknum á henni. — Þess má geta hér, að læknar benda á, að við erum nú betur undirbúin undir inflúenzufaraldur en áður, því að nú eru t.d. til hin áhrifa- ríkustu lyf við lungnabólgu sem var aðaldauðaorsökin í „Spænsku Bíða svars BLAÐIÐ átti í gær tal við Landlækni og spurð- ist fyrr um það hvort heilbrigðisyfirvöldin ís- lenzku hefðu gert nokkrar ráð stafanir sökum þessa inflú- enzufaraldurs. Landlæknir svaraði því til að í gær hefði heilbrigðismálastjórnin sent skeytl til stofnunar þeirrar í Róm, sem það sérstaka hlut- verk hefir með höndum að fylgjast með inflúenzufaröldr- um. Enn hefði ekkert svar frá henni borizt, en vafalítið væntanlegt í dag. Landlæknir hvað veikina mundu vera væga, en hér væri um nýjan stofn af henni að ræða, eftir því sem hann bezt vissl. — Myndi því vafalaust reynast erfitt um vik við framleiðslu bóluefnis og enn sem komið er hefði ekkert verið af því frámleitt. veikinni“. Hvað sem því líður, bíða menn í mörgum löndum eftir því með eftirvæntingu, hvort læknavísindunum tekst að vinna bug á þessari nýju veiki. —o— í skeyti til Mbl. frá NTB. í gærkvöldi segir svo um inflúenzu faraldurinn: Fréttir frá Asíulönd- um bera með sér, að hinn nýi inflúenzufaraldur breiðist út til nýrra héraða. Vísindamenn í Bretlandi og Bandaríkjunum vinna nótt með degi að því að framleiða bóluefni við veikinni, svo að hin vestrænu lönd geti veitt henni eins öfluga mótspyrnu og unnt er, ef hún breiðist þar út. KOM UPP f JAPAN Inflúenzufaraldurinn kom upp í Japan, og eins og nú standa sakir er ekkert bóluefni til við þessari veiru, þar eð hér er um nýja tegund að ræða. — Veikin hefir borizt til margra landa í Asíu og síðustu fregnir herma, að hún sé einnig komin til Suður- Kóreu. Þar hafa 100 manns í bænum Uisong tekið veikina og af þeim hafa 2 látizt. — Þá hefir veikin einnig breiðzt ört út í Indlandi og Malajalöndum. WHO segir, að ómögulegt sé á þessu stigi málsins, að stemma stigu við veikinni; nauðsynlegt sé að bólusetja fjölda manns, áður en það verði unnt. Aftur á móti segja sérfræðingar heilbrigðismála- stofnunarinnar, að veikin sé væg. Auk fyrrgreindra landa hefir veikin herjað á Formósu, í Thailandi, Vietnam, Filippseyj- um og í Singapore. Augljóst er, að hún er nú í rénun á Filipps- eyjum, þar sem um 150 þús. menn hafa lagzt í henni. Af þeim hafa um 500 sjúklingar dáið úr henni frá því hún gerði fyrst vart við sig í byrjun maí. (Þess má geta, að íbúar Filippseyja eru um 17 millj.). Fréttir í stuttu máli A LUNDÚNUM, 5. júní. _ Á T morgun hefst opinber heim- sókn Sovétleiðtoganna í Finn- landi. Þeir verða í Helsingfors í þrjá daga. Þess er getið, að Kru- sjeff hafi aldrei komið til Finn- lands fyrr, en Bulganin kom þar einhvern tíma við á leið heim til Moskvu. A Coty Frakkjpndsforseti hefir W beðið Mollet um að gegna áfram störfum forsætisráðherra, annaðhvort með því að segja af sér eins og hann heíir gert og mynda síðan nýtt ráðuneyti eða þá að taka lausnarbeiðni sína aft- ur. Mollet vill ekki verða við þess ari beiðni forsetans. Sagt er, að Jafnaðarmenn séu ekki ginkeypt- ir fyrir því að veita nýju ráðun. forystu, en aftur á móti hafa þeir lýst því yfir, að þeir muni styðja hvert það ráðuneyti sem gengur ekki í berhögg við stefnu flokks- ins. Maurice Bourjes Mauoury í Sósíalradíkala flokknum gerir nú tilraun til stjórnarmyndunar. Stjórnarkreppan hefir nú stað- ið yfir í tæpan hálfan mánuð. Harðnandi átök í Alsír Skærulíðaflokkarnir berjast innbyrðis PARÍS, 5. júní. ALSÍRSTRtÐIÐ hefir magnazt til muna undanfarið. Einnig hefir ókyrrðin í Frakklandi aukizt og hafa margar kröfugöngur verið farnar til að mótmæla hryðjuverkum skæruliða. 103 FELLU 103 skæruliðar féllu í bardaga um virki við Kabyli. Orrustan geisaði í 48 klst. og var barizt grimmilega. — Einnig geisa bar- dagar við bæinn Tlemcen í vestur hluta Alsír. Þjóðernishreyfingin hefir hvatt fólk til sólarhrings sorgarverk- falls vegna þeirra hörmungarat- burða, þegar 302 Múhameðstrúar- menn voru drepnir í þorpinu La Casbah í sl. viku. Tveir skæru- liðaflokkar berjast um völdin í Alsír, eins og kunnugt er: Þjóð- ernishreyfingin og Hinn þjóðlegi frelsisher. Hafa þessir andstæð- ingar óspart notað breiðu spjótin hvor á annan, og segja Þjóðernismenn, að Þjóðlegi frelsisherinn hafi staðið fyrir morðunum í La Casbah. Nýlega var skýrt frá því í fréttum, að líkur bentu til, að stjórn Kadars hefði fyrir skömmu komizt á snoðir um samsæri gegn henni, sem stuðningsmenn Rakosis hefðu staðið að. Hefði það verið kæft í fæðingunni. — Kadar er einn mesti landráðamaður sögunnar. Margir hafa undrazt örlög hans, því að hann gekk í lið með Imré Nagy í fyrrahaust og barðist því gegn stalínistum og Rakósi-klíkunni. En síðar þegar Rauði herinn framdi þjóðar- morðið á Ungverjum með hinni ruddalegu árás sinni á alþýðu landsins, þá gerðist hann undirlægja Rússa og hefir síðan verið algjör skósveinn þeirra og staðið fyrir handtökum, nauðungar- flutningum og hinum hryllilegustu morðum. Telja margir, að hann hafi verið þvingaður til þess, Rússar hafi jafnvel gripið til pyndinga í því skyni. — Hér á myndinni sést þessi ógæfusami kvislingur og „forsætisráðherra" ávarpa þingið í Búdapest. Skynsamur - Skynsamari — Skynsamastur! Dagens Nyheder segir :Meirihlutastjórn sem íslendingar geta snuið sér til — en hún er klofin i handritamálinu ÍLIÁLGAGN danska íhaldsflokksins „Dagens Nyheder“, birti ritstjórnargrein um handrita- máhð í fyrradag. Segir þar m.a., að Alþingi íslendinga hafi nýlega lokið lengstu setu sinni með því að samþykkja einróma ályktun þess efnis, að ríkisstjórninni sé fahð að taka á ný upp samningaumleitanir við Dani um að handritunum verði skilað. „Ike“ vill semja um kjurnorku- bunn WASHINGTON 5. júní. — Eisen- hower Bandaríkjaforseti sagði á vikulegum blaðamannafundi, sín- um í dag, að Bandaríkjamenn vildu láta setja ákvæði um bann við kjarnorku- og vetnissprengju tilraununum í sáttmála stórveld- anna um afvopnum. Aftur á móti gætu þeir ekki hætt þessum til- raunúm, ef ekki næðist samkomu lag um bann. Það væri ekki hægt af öryggisástæðum, því að allt benti til, að kjarnorkuvopn yrðu notuð, ef til styrjaldar drægi. — Forsetinn minntist á þá tillögu Krusjeffs, að Bandaríkjamenn cg Rússar kölluðu heim allan her sinn í Evrópulöndum og sagði, að hér væri um áróðursherbragð að ræða. Með þessu reyndu Sovét- leiðtogarnir enn einu sinni að reka fleyginn í varnarkerfi vest- rænna ríkja og æsa bandamenn Bandaríkjamanna í Evrópu gegn þeim. í greininni segir ennfremur: „Einkatillaga, sem var lögð fram á Alþingi, þess efnis að Dönum yrði „refsað“ með því að þeir fengju ekki nýjan ambassador ,þegar Sigurður Nordal prófessor lætur af störfum fyrir aldurssakir í sumar, var ekki einu sinni rædd. Það kom sem sé á daginn, eins og bent hefur verið á hér, að á íslandi hefur fljótfærnislegum og vanhugsuðum tillögum, sem aðeins sköðuðu samband þjóðanna, og þó fyrst og fremst ísland, verið vísað á bug, svo hægt væri að taka upp raunhæfa samninga". Bent er á, að danska stjórnin verði nú að taka málið til með- ferðar innan skamms, eftir að það hefir legið í láginni árum saman. Bæði minnihlutastjórn Vinstri flokksins og íhaldsmanna og minnihlutastjórn Jafnaðar- manna undir forustu Hans Hed- tofts höfðu á prjónunum tillögur um lausn á málinu, en hvorug þeirra gat lagt þær fram; hinni fyrri vannst ekki tími til þess, en hin síðari var stöðvuð áður en skriður komst á málið, með því að íslendingar þvertóku fyrir að ræða danskar tillögur um sam eiginlega eign. En nú hefur ástandið breytzt. Komin er meirihlutastjórn, sem íslendingar geta snúið sér til og fengið greið svör hjá um afstöðu Dana. Stjórnin getur nú fengið vilja sínum framgengt á þingi. En því miður hefur stjórnin klofnað um þetta fyrsta nor- ræna vandamál, sem fyrir henni liggur, segir „Dagens Nyheder". Það er alkunna, að forsætisráðhr. er fylgjandi já- kvæðri lausn, þ.e.a.s, að hand ritunum verði skilað. Sama er að segja um ráðherrann, sem fer með norræn málefni, Bertel Dahlgaard, og flokks- bróður hans Jörgen Jörgensen menntamálaráðherra, sem tjáði „Kristeligt Dagblad“, að hann hefði mikinn áhuga á - lausn málsins. En naumast var prentsvertan þurr á blaðinu, sem flutti um- mæli Jörgensens, þegar Viggo Starce lét „Berlingske Aften- avis“, hafa þau orð eftir sér, að íslendingar hefðu fengið þau handrit, sem þeim bæri, en Danir ættu lagalegan og siðferðilegan Framh. á bls. 15. »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.