Morgunblaðið - 06.06.1957, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.06.1957, Blaðsíða 8
r MORCPlVBtiBín Flmmtudagur 6. iúní 1957 tfttgttttfrliiM Otg.: H.i. Arvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri: Sigíús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Ami Óla, sími 3045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600. Áskriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. Nýskipon bankamálanna ÞÁ HEFUR verið komið í fram- kvæmd þeirri nýskipan bankamálanna, sem ákveðin hafði verið. Af því, sem enn er kunnugt, virðast 14 stjórnargæð- ingar hafa haft nýjar stöður eða titla upp úr krafsinu. Afdrifaríkust verða eflaust yfirráð kommúnista í bönkunum. I fyrsta skipti fá þeir nú íhlut- an um stjórn Landsbankans. Ein- ar Olgeirsson er orðinn banka- ráðsmaður og ber því, meðan svo stendur, ábyrgð á rekstri Lands- bankans, þeirri stofnun sem hann hefur fyrr og síðar svívirt meira en nokkra aðra. Fá menn nú að kynnast þeim úrræðum, er Einar hefur til að bæta úr fjárskortinum. Sennilega fer ekki mikið fyrir þeim. Hitt er víst, að öll áherzla verður lögð á að búa svo um, að kommúnistar komist í lykilstöður. Ingi R. Helgason hefur þegar verið val- inn í stjórn Seðlabankans og Jón Grímsson til þess vera aðalbók- ari og þar með til að gegna banakstjórastörfum í forföllum bankastjóra Viðskiptabankans. Ráðning Jóns er einkennandi fyrir sfarfshætti stjórnarliðsins nú. Hann hafði lengi áður fyrri verið starfsmaður Landsbankans en síðustu árin gegnt forstjóra- starfi í KRON. Á þeim árum hef- ur KRON vegnað illa. Tíminn hefur hvað eftir annað sagt, að það væri vegna þess að fyrir- tækið væri ekki n'ógu vel rekið. Nú er þeim manni, sem öðrum fremur ber ábyrgðina á hinum lélega rekstri KRON að undan- förnu, fengin ein þýðingarmesta staða fjármálalífsins. Auk hinna ríku áhrifa í Landsbankanum, hafa kommúnistar fengið Lúðvík Jósefsson í bankaráð Útvegs- bankans og Finnboga R. Valde- marsson sem bankastjóra þar. Eins hafa kommúnistar fengið einn mann í bankaráð Fram- kvæmdabankans. Mikil deila mun hafa staðið meðal stjórnarliða eftir .þingslit, sérstaklega um formennsku bankaráðs Útvegsbankans. Full- yrt er, að Stefán Jóhann Stefáns- son hafi fengið setningu í hana einungis til bráðabirgða, enda sé ætlunin, að hann verði sendi- herra í Kaupmannahöfn með haustinu. Kommúnistar voru mjög andvígir setningu Stefáns, þó að til skamms tíma væri, og heimtuðu þessa stöðu. Nýir menn af hálfu Alþýðu- flokksins eru Guðmundur I. Guðmundsson í bankaráði Út- vegsbankans og Jón Axel Péturs- son í stjórn Seðlabankans og Em- il Jónsson sem bankastjóri Við- skiptabankans. Því er ekki að neita, að Alþýðuflokkurinn hef- ur hér, eins og oftast áður, séð vel fyrir sínum flokksbroddum, enda eru þeir Gylfi Þ. Gíslason og Baldvin Jónsson látnir halda stöðum sínum, annar sem banka- ráðsmaður í Framkvæmdabank- anum en hinn sem bankaráðsmað ur í Landsbankanum. Mest áberandi er þó, hve Framsókn hefur orðið fengdrjúg. I Útvegsbankanum heldur hún einum bankaráðsmanni eins og áður, Gísla Guðmundssyni, og hefur einn bankastjóra en hef- ur haft mannaskipti og látið Jó- hannes Elíasson koma í stað Val- týs Blöndals. Valtýr er svo gerður að formanni í bankaráði Lands- bankans. Fær Framsóknarflokk- urinn þar með tvo bankaráðs- menn þar, Valtý og Steingrím Steinþórsson. Þá fær hún aðal bankastjóra Séðlabankans, Vil- hjálm Þór, og einn af stjórnend- um Seðlabankans, Ólaf Jóhann- esson. Hún er því eini flokkur- inn, sem fær tvo menn af stjórn- endum Seðlabankans, en lætur sér nægja einn mann, Svanbjörn Frxmannsson, af bankastjórum Viðskiptabankans. Þá hefur hún tryggt sér tvo af fimm banka- ráðsmönnum Framkvæmdabank- ans og hreinan meirihluta í bankaráði Búnaðarbankans, eins og hún hafði raunar áður ásamt bankastjóranum þar. Þegar á það er litið, að Sjálfstæðismenn hafa einn af fimm bankaráðs- mönnum Landsbankans, Útvegs- bankans og Framkvæmdabank- ans og einn af þremur banka- stjórum í Viðskiptabanka LafTds- bankans og Útvegsbankanum en einn af fimm í stjórn Seðlabank- ans, sést hversu fráleit sú full- yrðing er sem stjórnarliðið hef- ur haldið fram, að með þessari nýskipan ætti að koma á sama hlutfalli um stjórnendur bank- anna og er >'• - ^’lgi flokkanna með þjóðinn nðisflokkur- inn fær mik hlut en hon- um ber og var auövitað ætíð við því að búast. Magnús Jónsson er látinn hverfa úr formennsku banka- ráðs Landsbankans. Átti hann þó eftir nær þrjú ár af skipunartíma sínum og hefur verið í bankaráð- inu frá því, að það var fyrst stofnað. Magnús Jónsson hefur gegnt því starfi sem öðr- um af frábærri skyldurækni og mun þessa viðskilnaðar við hann lengi minnzt. Þá er Gunnar Viðar ekki ráð- inn aftur sem bankastjóri Út- vegsbankans og er í því efni látið ganga hið sama yfir hann og Valtý Blöndal. Valtý Blöndal mun raunar hafa verið gefinn kostur á að lýsa yfir því, að hann óskaði ekki eftir endurráðningu, en við Gunnar Viðar mun yfir- leitt alls ekki hafa verið rætt, fyrr en allt var um garð gengið. Gunnar Viðar hefur lengi haft mikil skipti af fjármálum, ver- ið í bankaráði Landsbankans, Landsbankastjóri og nú síðast bankastjóri Útvegsbankans. Um heiðarleik hans og óhlutdrægni befur enginn efazt. Jafnvel nú- verandi ríkisstjórn hefur sýnt honum verðskuldað traust með því að endurskipa hann sem for- mann ríkisskattanefndar ekki alls fyrir löngu. Hann er sá eini, sem hér kemur við sögu, sem hef- ur hagfræðimenntun og minnst allra hefur tekið þátt í stjórn- málaerjum. En hann hefur aldrei farið leynt með, að hann væri kjósandi Sjálfstæðisflokksins og ræður það eflaust framkomunni gegn honum. Aftur á móti er það eftirtektar- vert, að Jóhann Hafstein og Pétur Benediktsson, sem stjórnarflokk- arnir hafa gert sérstakar árásir á að undanförnu, voru báðir i endurráðnir. UTAN UR HEIMI Tveir AVOanna lifðu af kúlnaregnið U, allan hinn vest- ræna heim fylgdist fólk með frelsisbaráttu Ungverja á liðnu hausti með eftirvæntingu og samúð. Þegar leið að fréttasend- ingum útvarpsstöðvanna safnað- ist fólk við viðtæki sín á heimil- um og á vinnustöðvum til þess að hlíða á nýjustu fréttirnar. Það varð þögult og vonsvikið, er á leið og sýnt var, að ofbeldið ætl- anlegir fyrr en myndir þessara frökku ljósmyndara fóru að birt- ast á prenti. T Ivær efstu myndirnar hér á síðunni eru einna frægast- ar mynda þeirra, sem birzt hafa frá átökunum. Þær eru teknar af blaðaljósmyndara og eru vissu- lega hrollvekjandi. Þær bera vott haturs Ungverja á kommún- istastjórninni og leiguþýi henn- sem þeir stóðu afvopnaðir í hnapp (efsta myndin). Síðan létu frelsissveitirnar vélbyssuskothríð dynja á hópnum og sýnir næsta mynd ljóslega sórsauka AVO- anna, er þeir falla fyrir skothríð- inni. Ljósmyndarian var í fylgsni í mikilli fjarlægð og tók mynd- irnar með aðdráttarlinsu. O ennilega hefur engum, sem séð hefur þessar myndir, dottið í hug, að einhver þessara manna hafi risið upp aftur. Fyrir skemmstu varð það þó uppvíst, að tveir úr þessum hópi höfðu komizt lífs af. Og báðir þessir menn sjást á myndunum frægu. Þeir eru Lajos Somogyi, lengst til vinstri á efstu myndinni, og Jozsef Farkas, lengst til hægri á sömu mynd. Frásagnir þeirra af þessum atburði hafa birzt í blöð- um bæði austan og vestan járn- tjalds. Eiga þeir starfsmönnum Rauða krossins líf sitt að launa, en hjúkrunarliðið kom á vett- vang um 15 mínútum eftir skot- hríðina og færði þá, sem lífsmark var með, í hjúkrunarstöð. xJ omogyi var særður 9 skotsárum og í sjúkrahúsi varð að taka af honum hægri fót. Farkas særðist einnig mjög mik- ið, sérstaklega á fótum, og hefur hann skýrt svo frá atburði þess- um, að frelsis- sveitirnar hafi safnað lögreglu- mönnunum saman utan við bygging- una. Skothríð hafi heyrzt í nágrenn- inu. „Éinhver hróp aði. Skjótið ekki, þeir eru fangar okkar. En félagar mínir féllu eins og flugur. .. Einhver skaut á okkur af hálfs meters færi. Ég féll á andlitið og fann heita blóðgusuna. Umhverfis mig heyrði ég skothríð, öskur, stun- ur og grát. Ég lézt vera dauður. Um 15 mínútum síðar komu ein- hverjir mér til hjálpar". •_______________ __________________________________ Hjúkrunarliði bograr yfir Somogyi. aði að sigra. Fjöldi fréttaritara hætti lífi sínu í þessum hildar- leik til þess að veita fréttastof- um sinum sem bezta þjónustu og ekki ber síður að geta fréttaljós- myndara heimsblaðanna, sem hvarvetna voru í eldlínunni. — Margir gerðu sér naumast grein fyrir því hvað atburðirnir í Ung- verjalandi voru í rauninni átak- ar, því þetta eru hinir svonefndu AVOAR (öryggislögreglumenn), sem frelsissveitir smöluðu sam- an í hóp til lífláts. Myndirnar eru teknar í Búdapest, fyrir utan bækistöðvar kommúnistaflokks- ins. Frelsissveitir náðu bygging- unni á sitt vald, hröktu alla lög- reglumennina, sem inni voru, 45 að tölu, út undir húsvegginn þar Sólríkur en kaldur maímánuður á BlÖndósi BLÖNDUÓSI, 5. júní — Tíð hef- ur verið köld í maí-mánuði, en þó sólríkt með næturfrostum. Jörð er mjög klakalítil á þessum árstíma og því gróður í meðal- lagi í maílok. Sauðburður vanhaldalítill, en mikið fóður fór til fésins þar til því var sleppt af húsi síðarihluta mánaðarins. — Túngróður er orð- inn sæmilegur fyrir kýr og er allt útlit fyrir að grasvöxtur geti orðið með eðlilegum hætti ef Farkas hlýnar í veðri. Kalskemmdir eru engar í túnum þrátt fyrir að frost hafi verið sumar maí-nætur. Syndið 200 mefra Nú gensm xsomogyi við tvær hækjur. Hann hefur orðið að láta af fyrri iðju og klæðist nú borgaralega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.