Morgunblaðið - 06.06.1957, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.06.1957, Qupperneq 16
Samniíigaviðræður um ioftferða- samning SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa nú yfir í Stokkhólmi um loft- ferðasamning milli fslands og Svíþjóðar. í samninganefndinni íslenzku eru þeir Magnús V. Magnússon, ambassador, formaður, Agnar Kofoed-Hansen, flugmálastjóri, og Páll Ásgeir Tryggvason, deild- arstjóri í utanríkisráðuneytinu. (Frá utanríkisráðuneytinu) Bögglapóststofan flytur í Hafnar- hvol ÞRIÐJUDAGINN 11. júní verður Bögglapóststofan í Reykjavík flutt úr Pósthúsinu við Austur- stræti í Hafnarhvol við Tryggva- götu. Þar fer fram viðtaka böggla til innlendra og erlendra póstliúsa og afhending böggla frá póst- húsum innanlands. Sól og sumar í Reykjavík í gœrdag Maður skaddasf alvarlega á höfði undan felguhring ¥ ÆKNAR Landsspítalans vóru í gær nær sex klukkustundir með stórslasaðan mann á skurðarborði spítalans, en maður þessi varð fyrir járnhring af bílhjóli, er kom af afli í höfuð hans. Maðurinn heitir Eiríkur Ólafsson og er stýrimaður hjá Eimskipafélaginu, til heimilis að Ásvallagötu 61. GÖMUL GERÐ Um klukkan 2 í gærdag var hann að dæla lofti í bílgúmmí, sem sett hafði verið á sjálft hjól- ið, felguna. Hér var um gamla gerð af bílhjólum að ræða. — Gúmmíið er fest á hjólið með stálhring, sem situr í falsi. VAR A» DÆLA 1 HJÓLIÐ Eiríkur var með hjólið á benzín og olíustöð BP á Klöpp við Skúla götu, og er loftmu dælt frá loft- pressu. Eiríkur beygði sig yfir hjólið með gúmmíinu á og hleypt síðan lofti inn á. Þegar svo mikið loft var komið í gúmmí ið að reyna tók á stálhringinn, hrökk hann af feiknaafli í höfuð Eiríks og varð af svöðusár mikið en Eiríkur lá eftir í öngviti. Var hann þegar fluttur í Lands- spítalann. Var hann um klukkan 8 nýlega kominn af skurðarborð- inu og var enn í öngviti. Eiríkur er maður milli fertugs og fimm- tugs. Slys sem þetta eru ekki fátíð og fyrir nokkrum dögum meiddist maður á handlegg og fæti er slík- ur hringur, sem kallaðir eru felgu hringir, hrökk af, er verið var að dæla lofti í bílgúmmí. Ferð Heimdallar um hvítasunnuna EINS og undanfarin ár efnir Heimdallar FUS til skemmti- ferðar fyrir meðlimi sína um hvítasunnuna. Þrjú síðastliðin ár hefur verið farið með skipum skipaútgerðar ríkisins til Vestmannaeyja og tekið þátt í hátíðahöldum ungra Sjálfstæðismanna þar. Hafa ferð- ir þessar átt miklum vinsældum að fagna. Að þessu sinni hafði félagið hugsað sér að halda uppteknum hætti og fara til Vestmannaeyja, en það reyndist ókleift, þar eð skipaútgerðin hafði þegar ráð- stafað skipinu til annars aðila. Nú efnir Heimdallur til skemmtiferðar um Breiðafjarðar eyjar um hvítasunnuna. Verður lagt af stað frá félagsheimili fé- lagsins Valhöll kl. 2 á laugardag. Verður ekið til Stykkishólms og gist þar. Að morgni hvíta- sunnudags verður haldið á bátum út á Breiðafjörð og skoðaðar nokkrar helztu eyjarnar. Komið verður að landi að Hnjúki á Fells strönd. Þaðan verður ekið, sem leið liggur í Bjarkarlund og gist þar. Á hvítasunnumorgun verður nágrenni staðarins skoðað og m. a. komið að Reykhólum. Eftir hádegi verður lagt af stað til Reykjavíkur og komið þangað um kvöldið. Heimdellingar eru eindregið hvattir til# að taka þátt í þessari fjölbreyttu ferð og tilkynna þátt- töku sína sem allra fyrst og ekki síðar en í dag. Þess skal getið, að aðeins tak- markaður fjlödi getur farið í þessa ferð. Allar upplýsingar um ferðina eru gefnar á skrifsfofu félagsins í Valhöll við Suðurgötu frá kl. 10—7, í síma 7103. ÞAÐ var sérstaklega ánægjuleg- ur dagur í Reykjavík í gær. ■ Hvert sem litið var, ríkti gleði og út úr hverju andliti skein ánægja. Og hvað var það, sem olli þessu: Hlýjasti og sólríkasti dagurinn á sumrinu, sögðu allir. Blessuð júnísólin hellti heitum geislum sínum af heiðríkum himni, svo hvergi sá skýhnoðra. Allir voru í sannkölluðu sólskins skapi. Alls staðar voru börnin snöggklædd að leik, og í görðun- um, t. d. Hljómskálagarðinum, var komið með börn úr Grænu- borg til þess að þau gætu notið veðurblíðunnar. — í grasbollunum, þar sem grasið var óbælt, stóðu fallegir fíflar teinréttir í sólinni. Meira að segja suður í Nauthólsvík var slangur af fólki í gær. Verkamenn voru snöggklæddir við vinnu sína, og undir kvöldið voru þeir orðnir rauðir sem karfar á skrokkinn. Þeir sem ’klæddu af sér‘ sumar- blíðuna, sögðu við hina: Þið mun- uð eiga órólega nótt fyrir hönd- um, því það er ekki með öllu óþægindalaust að leggjast út af svona á sig kominn. Búðar- stúlkurnar gripu hvert tækifæri, sem gafst til að stinga nefinu út í sólina, — og er vinnunni lauk, hópaðist fólk í Sundlaugarnar og Sundhöllina, til þess að njóta kvöldsólarinnar, sem enn skein glatt. , Um 6000 manns hafa gleymt sér í GÆRDAG spurðist Morgun- blaðið fyrir um það í Heilsu verndarstöðinni hversu áfram miðaði síðari bólusetningunni gegn mænuveikinni, sem stað- ið hefur yfir undanfarið. Það er sannast mála, að henni miðar eiginlega ekkert áfram. Það er engu lík- ara en fólk hafi gleymt því, að fnumbólusetningin nægir ekki, heldur þarf það að koma aftur og siðan í þriðja skipt- ið að ári liðnu, til þess að um fullkomna mænsóttarbólusetn ingu sé að ræða. Hjúkrunarkonur Heilsni- verndarstöðvarinnar fara í sumarleyfi um miðjan þennan mánuð, og fyrir þann tíma Belgar unnu íslendinga með 8:3 í GÆR léku íslendingar lands- leik í knattspyrnu við Belga og fóru leikar þannig að Belgar sigruðu með 8 mörkum gegn 3. Voru þau úrslit svipuð því sem menn hér heima höfðu búizt við. Leikurinn fór fram í Brússel, á Haysel leikvanginum, en það er mjög stór og glæsilegur völlur og rúmast þar um 70.000 manns á áhorfendasvæði. Leikurinn fór fram kl. 6.30 eftir staðartíma, 5.30 eftir ísl. tíma og voru áhorf- endur 10.000. Fyrir leikinn spáðu belgisku blöðin glæsilegum sigri Belga, einkum eftir að úrslitin við Frakka voru kunn. Belgar gerðu 7 mörk í fyrri hálfleik, en íslendingar 1 mark I en Belgar 1 og Islendingar tvö í þeim seinni. Mörkin gerðu þeir Ríkharður Jónsson og Þórður Þórðarson. Helgi Daníelsson markvörður meiddist í leiknum við Frakka og lék Björgvin Her- mannsson í hans stað. Þess má geta að þegar Frakkar léku nýlega landsleik við Belga í Frakklandi sigruðu þeir með 6:3. Belgar þykja harðir knatt- spyrnumenn og kappsfullir, og eru því oft nefndir „rauðu djöfl- amir“. í dag halda íslenzku knatt- spyrnumennirnir til London og koma heim á föstudagskvöld. verður annarri bólusetning. unni að vera lokið. Fram til 15. þessa mánað- að verða að koma til annarrar bólusetningar um 6000 manns, sem virðast gjörsamlega hafa gleymt sér. Vinningar 5ÍBS í GÆR var dregið í 6. flokki Vöru happdrættis S.Í.B.S. — Dregið var um 350 vinninga að fjárhæð 460 þúsund krónur alls. Þessi númer hlutu hæstu vinn- ingana: 100 þús. kr. 39538 (selt á ísafirði). 50 þús. kr. 38322 (selt í Aust. 9) 10 þús. kr. 7889 26921 30603 36531 36775 44135 45035 53133 5 þús. kr. 3447 10903 15271 31876 33094 43626 50458 51532 64374 64565 (Birt án ábyrgðar.) Flugfreyjur fá kjarabœtur er nema 6% kauphœkkun SAMNINGAR hafa tekizt milli flugfreyja og flugfélag- anna um kaup og kjör þeirra. Eru þetta fyrstu heild- arsamningarnir sem Flugfreyjufélag Islands gerir síðan það var stofnað. Ekki er um beina kauphækkun að ræða heldur lagfæringu og samræmingu á kjörum flugfreyjanna, sem munu nema rúmlega 6% kauphækkun. Samningar þessir, sem nú hafa verið gerðir milli flugfreyja og flugfélaganna gilda til 1. febrúar 1960, sem samningar annarra flugliða. Áður voru kjör flugfreyjanna dálítið mismunandi eftir því hjá hvoru flugfélaganna þær störfuðu. Nú hefir þetta verið samræmt og ná heildarltjör til þeirra allra. Mánaðarkaup helzt óbreytt, en flugstundaþóknun hækk- ar nokkuð. Eftir 6 mánaða starf hækkar hún úr kr. 1.50 í kr. 3.00 og eftir tveggja ára starf í kr. 3.50. Flugfreyjur fá eftirleiðis einkennisbúninga einu sinni á ári, en áður fengu þær búninga aðeins annað hvert ár. Ýmis önnur smærri atriði voru einnig lagfærð i samn- ingunum til hagsbóta fyrir flugfreyjurnar. Má ætla að kjarabætur þær sem fengizt hafa með nýju samningunum nemi rúmlega 6% kauphækkun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.