Morgunblaðið - 16.06.1957, Page 6
V
MORCVNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. Mní 1957
10. landsmót UMFl á
Þingvöllum 29. júní
Mótstjóri verður Þorsteinn Ein
arsson íþróttafulltrúi ríkisins,
Þórir Þorgeirsson íþróttakennari
Laugarvatni mun stjórna fim-
leikasýningunum, frú Sigríður
Valgeirsd. íþróttakennari mun
verða dansstjóri vikivakanna.
Hátíðarnefnd skipa fimm menn
_ • u. F it ' t 2 eru fulltrúar IJMFÍ, þeir Stefán
Pai mmnst 50 ara afmælis UMFI Ól. Jónsson kennari og Axel Jóns
son sundlaugarvörður, aðrir í
nefndinni eru, Þórir Þorgeirsson
íþróttakennari, frá Héraðssam
UNGMENNAFÉLAG íslands heldur hátíðlegt 50 ára afmæli sitt á
14). landsmóti sínu, dagana 29. og 30. júní n. k. Hátíðahöldin fara
fram á Þingvöllum og hefjast kl. 9 árd. báða dagana. Sundkeppni
fer fram í Hveragerði laugardaginn 29. og hefst hún kl. 14,30.
Dagskrá mótsins verður í stór-
um dráttum þesi.
Laugardagur: Lúðrasveitin
Svanur leikur fyrir skrúðgöngu
iþróttafólks forseti íslands hr.
Ásgeir Ásgeirsson flytur ávarp,
keppt verður í frjálsum íþróttum
karla og kvenna. Um kvöldið
verður haldinn útifundur, þar
munu flytja framsöguræður
nokkrir þjóðkunnir menn. Um
kvöldið verða dansaðir vikivakar
og almennur dans stiginn á 300
fermetra palli.
Á sunnudag hefst dagskráin
með skrúðgöngu íþróttafólks og
framhaldið verður íþróttakeppni
frá deginum áður, til hádegis.
Eftir hádegið hefst aðal hátíðar-
dagskráin með guðsþjónustu sr.
Eiríks J. Eiríkssonar formanns
UMFÍ., síðan setur Stefán Jóns-
son form. hátíðarnefndar mótið,
þá verður hópsýnig í fimleikum,
lúðrasveitin leikur, Bernharð
Stefánsson aiþingism. flytur
ræðu, almennur söngur, sr. Jó-
hann Hannesson flytur ræðu,
Kristinn Hallsson syngur einsöng,
ávörp erlendra fulltrúa, þá fer
fram bændaglíma, þar sem Ung-
mennafélag Reykjavíkur mætir
flokk manna utan úr landsbyggð-
inni, íþróttakeppni, dansaðir viki-
vakar og knattspyrnukeppni.
Lokþáttur mótsins, um kvöld-
ið, hefst með ávarpi formanns
UMFÍ, þá fer fram verðlaunaaf-
hending og mótinu lýkur með al-
mennum dansi.
Tékkarnir og Valur
leika á þriðjudaginn
Á ÞRIÐJUDAGSKVÖLDIÐ Ieika tékknesku knattspyrnu-
irnir sem hingað koma í boði Víkings, sinn fyrsta leik. _
Máeta þeir þá Islandsmeisturum Vals. Valur leikur með
óstyrktu liði.
Þetta tékkneska lið sem kemur hingað flugleiðis í dag,
er skipað mönnum 23 ára og yngri. Er það úrvalslið tékk-
neska knattspyrnusambandsins, sterkt lið sem verið hefur
í keppnisför í Þýzkalandi, Englandi og lék í gærkvöldi í
Kaupmannahöfn við úrvalslið Kaupmannahafnar. Það verð-
ur gaman að sjá þetta tékkneska landslið yngri manna.
Akranes vann Val 4:1
5. LEIKUR Islandsmótsins, milli
Vals og Akraness, var mun betri
en sá 4., en þó engan veginn góð-
ur þegar litið er á hann sem heild.
Akranesliðið byrjaði leikinn vel,
svo vel að þeir hafa ekki í annan
tíma í sumar leikið betur. Knött-
urinn gekk frá manni til manns
og leiðir fram var fundin með
samleik í stað að berjast í návígi.
Það voru oft mjög laglegir sam-
leikskaflar fyrsta hálftímann, svo
að leikmenn Vals stóðu ráðþrota
oft á tíðum er hinir léku fram-
hjá. En dýrðin stóð stutt 20 mín
til hálftíma og eftir það var uppi
á teningnum þóf, árangurslitlar
eða árangurslausar tilraunir ein-
staklinga til að komast í gegn-
um varnarmenn, samleikurinn
gleymdist og þar með var draum-
urinn búinn.
En á meðan dýrðin stóð mátti
margt skemmtilegt sjá. Fyrsta
markið skoruðu Akurnesingar á
11. mínútu. Fékk Ríkharður
knöttinn um 20—25 m frá marki
eftir laglegt upphlaup og spyrnti
dúndurskoti sem lenti í stöng og
inn — án nokkurs möguleika fyr-
ir markvörð að verja. Tveim mín
síðar fékk Þórður Þórðarson
knöttinn um 15 m frá marki Vals
og fékk óhindrað að leggja hann
vel fyrir sig og skoraði laglega.
Þegar samleiksgleðin rann af
Skagamönnum fórtu Valsmenn að
láta meira að sér kveða, þó sókn-
artilraunir þeirra væru án mikils
þunga og mikillar hættu. Á 37.
mín tókst þeim að skora. Gunnar
Gunnarsson gaf fyrir frá hægri
og Sig. Sigurðssyni tókst að
skalla inn. Þann knött átti Helgi
að geta tekið, en var úr jafn-
vægi og staðan var 2:1 í hálf-
leik eftir að Björgvini markverði
Vals hafði tekizt að bjarga
tveimur hörkuskotum á síðustu
mínútum hálfleiksins.
Síðari hálfleikur stóð langt að
baki hinum fyrri og það var þessi
gamli svipur einhæfni og lítt já-
kvæðrar knattspyrnu sem ein-
kenndi leikinn sem svo marga
leiki ísl. liða.
Akranesliðið gerði þó það sem
gert var ásamt Elíasi Hergeirs-
syni v.framvarði Vals sem stóð
sig af mikilli prýði. Valsliðið var
orðið eins og vængbrotinn fugh
Páll Aronsson farin út af og Ein-
ar Halldórsson haltrandi út á
kanti Akranesliðið réð mestu á
vellinum og með svipuðum sam-
leik og þeir áttu í upphafi og
ágengni í skotum á mark hvenær
sem færi gafst, hefði þeim án efa
tekzt að skora fleiri mörk, en
þeir völdu aðra leið, návígið sem
ekki gaf mikinn árangur. Á 18.
mín hálfleiksins sendi Þórður
Jónsson sendingu fyrir mark
Vals, Björgvin sló til knattar-
ins með hendinni en hélt honum
ekki og Helgi Björgvinsson sendi
hann í netið. Skömmu fyrir leiks
lok komst Þórður Þórðar inn fyr-
ir og skoraði mark sem Björgvin
átti að geta tekið.
Akurnesingar fengu mörk sín
heldur ódýr einkum í síðari hálf-
leik. En tækifærin voru flest
þeirra megin og þó munurinn í
mörkum væri ef til vill heldur
mikill þá var Akranesliðið mjög
vel að sigri komið. — A.St.
Syndið 200 metra
bandinu Skarphéðni, Ármann Pét
ursson skrifstofum., frá Ung-
mennasambandi Kjalarnesþings
og Skúli H. Norðdahl afkítekt,
frá Ungmennafélagi Reykjavíkur.
Ungmennafélag íslands hefur
látið gera mjög fallegt merki í
tilefni þessara tímamóta, merkin
eru nú til sölu um land allt, í
Reykjavík hjá verzl. „Bækur og
ritföng" Austurstræti 1 og Bóka-
búð Norðra Haínarstræti 4, salan
hefur gengið mjög vel.
Margvíslegur undirbúningur
hefur farið fram undir mótið
íþróttafólkið hefur þjálfað vel
en gert er ráð fyrir að um 300
manns taki þátt í íþróttakeppn-
inni. Keppt verður um marga
glæsilega verðlaunagripi.
Föstudaginn 28. júní verður
haldið 20. sambandsþing UMFÍ,
í Valhöll á Þingvöllum, þar verða
tekin fyrir og rædd ýmis menn-
ingarl. þjóðmál eins og venja hef-
ur verið á öllum undanförnum
þingum. — Þingið hefst kl. 10
Þar verður m.a. rætt um liand-
ritamálið og þátt ungmennafél.
í örnefnasöfnun.
Nýr íþróttavÖllur vígður
í Njarðvík
KEFLAVÍK 14. júní. — Sunnu-
daginn kemur 16. júní verður
vígður nýr glæsilegur íþrótta-
völlur í Njarðvíkum, er Ung-
mennafélag Njarðvíkur hefur lát
ið gera.
Er íþróttavöllur þessi fullkomn
asti og bezti íþróttavöllur, sem
tekinn hefur verið í notkun á
Suðurnesjum. Stendur völlurirm
sunnan við samkomuhús Njarð-
víltinga. Það var árið 1950 sem
félagar úr Ungmennafélaginu
hófust handa með gerð vallarins
undir stjórn Ólafs Sigurjónsson-
ar, en hann er formaður Ung-
mennafélagsins og Óskari Krist-
jánssyni form. íþróttavallarnefnd
ar. Svæðið sem tekið var undir
völlinn er 4 hektarar að stærð.
Á þessu svæði voru gerðir tveir
vellir malarvöllur og grasvöllur,
sem eru að stærð 105X70 metrar.
Þá er 400 metra hlaupabraut og
tvær stökkgryfjur. Það var Gísli
Halldórsson arkitekt sem teiknaði
völlinn og hefur hann ásamt Þor-
steini Einarssyni íþróttafulltrúa
verið félögunum til leiðbeining-
unnið hefur verið á hverju ári
síðan verkið hófst.
Kostnaðarverð vallarins er 415
þúsund krónur og hefur Njarð-
víkurhreppur árlega lagt fé til
framkvæmdanna.
Eins og gefur að skilja hafa
félagar lagt mikla sjálfboðaliðs-
vinnu, en félagar í Ungmenna-
félaginu eru nú 135.
Hefur íþróttalíf jafnan verið
öflugt innan félagsins ávetrum.
Þessi nýi iþróttavöllur mun
ekki aðeins hafa mikil áhrif á
íþróttalíf þeirra Njaðvíkinga
heldur á allt íþrótalíf Suðurnesja,
þar sem hér er um að ræða eina
grasvöllinn fyrir fótbolta hér
syðra.
Á vígsludaginn verða ýrnsar
keppnir í íþróttum.
Verður fyrst keppni í knatt-
spyrnu milli Njarðvíkur og Gerð-
ar. Þá verður bæjarkeppni milli
Kefiavíkur og Hafnarfjarðar og
handknattleikur milli Njarðvik-
ur og Sandgerðis. Lúðrasveit
Keflavíkur mun leika milli at-
riða og verða veitingar á staðn-
um. Um kvöldið verður svo dans
ar um framkvæmd verksins, enað I samkomuhúsinu. — Ingvar.
17. júní háfíðahöldin
í Keflavík
HÁTÍÐAHÖLDIN 17. júní i Kefla
vík hefjast að þessu sinni með því
aðsafnast verður saman við kirkj-
una kl. 1 og paðan mun verða
gengið í skrúðgöngu um bæinn og
verður Lúðr-esveit Keflavíkur í
fararbroddi ásamt skátum. KL
1,50 verður hátíðin sett í skrúð-
garðinum af Kristjáni Guðlaugs-
syni formanni 17. júnínefndar.
Kl. 2 verður þjóðhátíðarfáninn
dreginn að hún en síðan syngur
karlakórinn og kirkjukórinn
þjóðsönginn með undirleik lúðra-
sveitarinnar.
Kl. 4 verður messa í garðinum
og flytur séra Jón A. Sigurðsson
prédikun. Þá flytur Gunnar
Sveinsson, kaupfélagsstjóri minni
dagsins. Karlakór syngur undir
stjórn Guðm. Norðdahl. Þá verð-
ur gamanþáttur er Klemenz Jóns
son ásamt fleirum flytja. Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari
syngur. Þá verður knattspyrna
og frjálsar íþróttir og mun lúðra
sveitin leika milli atriða.
Kl. 8,30 um kvöldið hefst svo
dans á Hafnargötunni verði veður
hagstætt annars verður dansað í
samkomuhúsunum.
— Ingvar.
Umdæmísstjóri
Rotary á Islandi
SÉRA Sigurður Pálsson prestur
á Selfossi, var kosinn umdæmis-
stjóri 126. umdæmis, sem er eina
umdæmi Rotary International á
íslandi, á 48. ársþingi Rotary.
Hann mun taka við störfum 1.
júlí og starfa til jafnlengdar
næsta ár.
A þessu ári mun hann heim-
sækja alla klúbbana og veita
leiðbeiningar og aðstoð.
Séra Sigurður Pálsson hefur
verið meðlimur Rotary-klúbbs
Selfoss síðan 1948 og hefur verið
forseti þess klúbbs.
Rotary International nær nú til
99 landa hins frjálsa heims og er
stöðugt vaxandi þjónustufélags-
skapur. Meira en 9300 Rotary-
klúbbar hafa innan vébanda
sinna 442,000 meðlimi, sem vinna
saman að framgangi Rotary-hug-
sjónarinnar um félagslegar um-
bætur, siðgæði í viðskipta- og at-
vinnulífi, og eflingu alþjóðlegs
skilnings, góðvilja og friðar.
shrifar úr
daglega lífinu
kÁ er komið að þjóðhátíðardeg-um, að fara um helgar á ýmsa
sveitabæi og hjálpi heimafólki
við heyvinnu. Það geta allir haft
gott af þessu. Fólk hangir hér
unnvörpum í bænum yfir helgi,
og veit oft á tíðum ekki hvað það
á af sér að gera. Þetta á vissulega
aðallega við fólk sem á ekkert
farartæki til þess að komast á út
úr bænum.
Þetta yrði vitanlega sjálboða-
vinna, nema hvað ég reikna með
að allir vinni fyrir mat sínum og
svo konu sinnar og barna ef það
verður með, sem yrði í fiestum
tilfellum. Ég og kona mín höfum
mikinn áhuga fyrir því að komast
í samband við annað ungt fólk
sem hefði áhuga fyrir þessu, og
væri til í að stofna samtök um
þesa bændahjálp, sem ég reikna
vitaskuld með að bændur verði
himinlifandi yfir. Við Reykvík-
ingar og annað bæjarfólk gerum
of lítið af því að leiða huga okkar
upp til sveita þessa fallega lands
og ættum að gera okkar til að
hjálpa sveitafólki við störf sín,
fyrir utan það að í góðu veðri
hafa allir bæjarbúar gott af því,
að komast út í sveitir landsins
burt frá borgarrykinu og marg-
menninu.
Þetta er í aðalatriðum bað sem
ég átti við með þessu bréfi mínu
og vona nú að þér komið þessu á
framfæri I þætti yðar og með til-
Sönn þjóðhátíð
AÐ þesu sinni verður mikið um
dýrðir að venju. 17. júní er
sannarlega orðinn mesti hátíðis-
dagur ársins og þá á ég ekki við
það að hann sé það að formi og
efni til heldur er hann það í hjört
um fólksins. Það sér maður bezt
á hinni almennu þátttöku í há-
tíðahöldunum, og þeim hugarblæ
sem yfir deginum hvílir.
Jafnvel kaldhæðnustu menn
hefi ég séð hrífast og næstum
komast við á þeim eina degi
ársins. Og það fer líka vel vegna
þess að það veitir sannarlega ekki
af því að menn eigi þó þann dag
einan sameiginlegan, svo margt
sem á milli ber í voru landi. Og
ekki þarf að efast um að svo verði
líka á morgun.
Úr kaupstað í heyskap
KÆRI Velvakandi,
Það er svolítið sem mig lang-
ar að koma á framfæri. Svo er
mál með vexti að ég hefi mikinn
áhuga á því að komast að
raun um hvort ungt fólk hér i bæ
hefði ekki áhuga fyrir þvi að
hjálpa bændum svolítið við hey-
annir yfir sumarið. Það sem ég
á við, er að menn taki sig »aman
stuðlan yðar gætum við hjónin
svo komizt í samband við þá, sem
áhuga hafa á þessu.
Virðingarfyllst,
Stefán G. Ásbjörnsson.
Velvakandi vill mjög gjatnan
gegna því hlutverki og biður þá
sem hafa áhuga á þessu að
hringja eða skrifa dálkunum um
það.
Útvarpsþulir
OFT hefir mig langað til að
vekja athygli á smávægilegu
atriði varðandi kynninguþulanna
hér hjá Ríkisútvarpinu á lögum
almennt. Að sjálfsögðu eru þau
kynnt áður en þau eru leikin og
t.d. ef um sönglag er að ræða
hver syngi, hver leiki undir og
eftir hvern kvæðið sé. Og að um
3 mínútum liðnum, eða að lagi
loknu, er sama romsan þulin upp
aftur. Þessar endurtekningar
ættu með öllu að leggjast niður
nema um stór tónverk sé að ræða,
enda eru þær flestum mjög hvim
leiðar og tilgangslausar. Slíkt fyr-
irkomulag tíðkast yfirleitt ekki
hjá erlendum útvarpsstöðvum,
enda álitið óþarfi, sem það
reyndar er. — Vil ég nú beina
þeim tilmælum til þulanna að
hætta þessum endurtekningum
nema, eins og fyrr segir, um sé
að ræða löng tónverk. — G.