Morgunblaðið - 16.06.1957, Qupperneq 10
10
MORGTJTSTtLAmn
Sunnudagur 1G. iúní 1957
t1T|pl#IwÍ
Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Ami Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Síml 1600.
Askriftargjald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr 1.50 eintakið.
Dagur sögu og gleði
ÞEGAR um það er rætt til
hvers 17. júní sé haldinn há-
tíðlegur, verður það jafnað-
arlega fyrst fyrir, að þá sé
minnst sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar og endurheimt
fullkomins stjórnarfarslegs
frelsis hennar, sem var á-
vöxtur þeirrar baráttu. En
það má líka segja að dagur-
inn sé til að minnast lands
og þjóðar á víðtækari hátt.
Loks er dagurinn almennur
hátíðis- og gleðidagur allra
landsmanna og hefur að því
leyti sjálfstætt gildi, hvað
sem hinu upprunalega til-
efni líður. Þá fá menn tæki-
færi til að safnast saman á
sumardegi, gleðjast sameig-
inlega og skemmta sér. Ung-
ir og gamlir eiga þar sam-
leið. Það er gott að eiga slík-
an dag. Hann skapar endur-
minningar, jafnframt því
sem hann rifjar upp hið
liðna í huga þeirra, sem eru
orðnir eldri.
Sú kynslóð, sem lifði bar-
áttu Jóns Sigurðssonar og
samherja hans, má nú kall-
ast liðin undir lok. Sá tími
heyrir nú sögunni einni til.
Þeim fækkar einnig óðum,
sem muna og tóku á virkan
hátt þátt í þeim kafla sjálf-
stæðisbaráttunnar, sem tók
við eftir daga forsetans og
lauk með fullveldisviður-
kenningunni, sem tengd er
við 1- desember 1918. Þeir,
sem muna þriðja þáttinn,
sem þá tók við og endaði
hinn 17. júní 1944 eru enn
fjölmargir. Segja má að það
tímabil, þegar menn eins og
Hannes Hafstein, Björn
Jónsson, Valtýr Guðmunds-
son og Landvarnarmennirn-
ir settu svip á frelsisbarátt-
una, sé á mörkum samtíðar
og sögu að því leyti, sem
þeim fækkar sífelt, sem
lifðu þann tíma. En loka-
kaflinn, milli þess að fáninn
var dreginn að hún á stjórn-
arráðshúsinu í Reykjavík 1.
desember 1918 og til þess að
hann blakti yfir Þingvöllum
17. júní 1944, er svo að segja,
hluti af samtíðinni.
En því má ekki gleyma
að nú rís óðum í landinu
mjög fjölmenn kynslóð, sem
ekkert man af þessu úr lífi
sjálfrar sín, kynslóð, sem
ekkert fylgdist með þeim at-
burðum, sem tengdir eru
sjálfstæðisbaráttunni og
muna ekki einu sinni eftir
17. júní 1944. Og þessi kyn-
slóð erfir land og ríki fyr en
varir, en hinir hverfa. í
augum þessarar kynslóðar
má vel vera, að 17- júní fái
annan svip en meðal hinna,
sem muna lengra aftur.
Hætt er við að dagurinn
missi smátt og smátt hinn
sérstaka, sögulega blæ í aug
um þessa fólks, en verði
fyrst og fremst eða jafnvel
nær eingöngu hátíðar- og
gleðidagur án lifandi
tengsla við fortíðina. Ef svo
færi væri mikið misst, dag-
urinn hefði þá tapað sam-
henginu við upphaf sitt og
væri orðinn breyttur. Við
þessu verður vafalaust ekki
gert, hinn sögulegi ljómi
hlýtur að blikna með nýjum
kynslóðum. Þannig fer ætíð
en þó má vafalaust ýmislegt
gera til að minna nýjar kyn-
slóðir stöðugt á sögu dags-
ins. Meðal þess eru söguleg-
ar sýningar, sögulegar út-
varpsdagskrár, kvikmyndir
og annað slíkt, sem nútíma-
tækni leyfir. Hér er líka um
að ræða verkefni fyrir skól-
ana. Þar, sem uppfræðsla
æskunnar fer fram, er hæg-
ast um vik að brúa bilið milli
fortíðar og nútíðar. Sýnileg-
ar menjar liðins tíma eru
fáar en þó er einnig ýmis-
legt til í því efni, sem styðj-
ast má við. Þetta er mál
framtíðarinnar, því enn er
svo mörgum saga dagsins í
fersku minni. En bráðlega
kemur að því að það þarf að
rifja hana upp fyrir alla.
★
En jafnvel þó að að því
komi að þessi dagur verði
ekki sögulegur á sama hátt
og var, þá verður hann jafn-
an gleðidagur, þjóðhátíðar-
dagur, hinn eini dagur, sem
heitir því nafni og er það-
Við höfum aðeins átt 'slíkan
dag í fá ár. En við þurfum
að vernda hann, varðveita
helgi hans og hreinleika.
Því þessi dagur er sannar-
lega dýrmæt eign.
ÚR HEIMI I
_________j
BM - ungur og alhliha
forsætisráhherra
M,
aurice Bourges-Mau-
noury, hinn nýi foi-sætisráðherra
Frakka, ber nafn, sem er erfitt
bæði í framburði og réttritun. Það
er ekki sérlega heppilegt fyrir
stjórnarleiðtoga, sem er í fréttum
blaða eða útvarps svo að segja
l aglega. Hafa blöðin því tekið upp
sama ráð og notað var, þegar
Pierre Mendes-France var forsæt-
isráðherra. Þá var hann kallaður
(og kallaði sig jafnvel sjálfur)
einfaldlega PMF. Nú nefna París-
arblöðin hinn nýja forsætisráð-
herra einungis BM, en undir því
nafni gekk hann í síðari heim-
styrjöld.
BM
er smávaxinn mað
ur og dökkur yfirlitum. Hann var
upprunalega f jármálasérfræðing-
ur og tók próf frá háskóla, sem
útskrifað hefur marga afburða-
menn, nefnilega l’Ecole Polytecn-
nique. Hann er aðeins 42 ára að
aldri og þannig yngsti forsætisráð-
herra, sem Frakkar hafa átt síð-
an árið 1883. En hann er hins veg-
ar ekki yngsti meðlimur ríkis-
stjórnarinnar, sem hefur óvenju-
lágan meðalaldur (49 ár) af
franskri stjórn að vera. Yngstur
er nýi f jármálaráðherrann, 37 ára
gamall. Þess má geta hér, að með
tilliti til f jármálaástandsins í
Frakklandi, sem er vægast sagt
ískyggilegt, ber fjármálaráðherr-
ann beint viðeigandi nafn. Hann
heitir Gaillard, sem útleggst á ís-
lenzku „galgopi".
mt að voru stríðið og and-
spyrnuhreyfingin franska, sem
greiddu BM götu inn í stjórn-
málalífið. Hann gekk snemma í lið
með de Gaulle hershöfðingja í
London og fór fjölmargar lífs-
hættulegar sendiferðir til Frakk-
lands, sem þá var í höndum Þjóð-
verja. Þar skipulagði hann deildir
í andspyrnuhreyfingunni.
Jr að var í einni slíkri
för, sem hann hitti tilvonandi
konu sína í fyrsta sinn. Hún hélt
uppi sambandi milli tveggja and-
spyrnuflokka, og var það lífs-
hættulegt verk. Árið 1944 var BM
útnefndur staðgengill de Gaulles í
Frakklandi, og var 1 ann sendur í
fallhlíf tii svæðisins, sem hann
átti að hafa stjórn yfir. Eftir
styrjöldina kastaði hann sér út í
stjórnmálin og fylgdi Róttæka
flokknum að málum. Var hann
kosinn á þing árið 1946.
íðan hefur ferill hans
verið allt að því ævintýralegur.
Hann hefur verið ráðherra í ekki
færri en 11 ríikisstjórnum á síð-
ustu 10 árum, og nú er hann orð-
ínn forsætisráðherra. Hafi nokkur
franskur ráðherra aflað sér al-
hliða reynslu, áður en hann tók
við stjórnartaumum, má segja að
BM hafi gert það. Á síðustu 10
árum hefur hann verið yfirmaður
flestra mikilvægra ráðuneyta inn-
an frönsku stjórnarinnar.
ríkisstjórn Mollets var
BM landvarnaráðherra og átti
mestan þátt í skipulagningu land-
göngunnar í Port Said, en það
virðist ekki hafa valdið honum og
gengi hans neinu verulegu tjóni.
* Hann hefur verið Mollet mjög
tryggur samstarfsmaður, og gekk
það jafnvel svo langt, að hann
sagði skilið við flokksbróður sinn,
Mendes-France, þegar hinn síðar
nefndi hóf hatramar árásir á
Mollet fyrir stefnu hans í Alsír
fyrir rúmum mánuði.
BMh
hefur átt ýmsum
öðrum erfiðleikum að mæta. Þeg-
ar hann var landvarnaráðherra,
sýndi hann hernum fullkomna holl
ustu, þegar hann varð fyrir miklu
aðkasti i'yrir nokkrum mánuðum í
sambandi við grimmilegar bar-
dagaaðferðir herjanna í Alsír.
Bourges-Maunoury
Þessi samstaða BM við herinn
leiddi til þess, að margir vinstri
menn, sem hann lítur á sem skoð-
anabræður sína, snerust öndverðir
gegn honum.
kjagt er, að Parísarblöð-
unum þyki leitt til þess að vita,
að BM hefur engin einka-áhuga-
mál, sem gætu gefið persónuleik
hans aukinn lit í augum fjöldans.
Hann er mjög blátt áfram maður
og hörkuduglegur til vinnu. Um
hann leikur ekki hið fagurfræði-
lega eða náandlega andrúmsloft,
sem svo oft leikur um franska
stjórnmálamenn af gamla skólan-
um. 1 frístundum sínum kýs hann
helzt að leika tennis, enda er hann
mjög leikinn 1 þeirri íþrótt og hef-
"ir tekið þátt í mörgum tennis-
kappleikum, sem háðir hafa verið
milli þjóðþinganna. Hefur hann
t.d. unnið bezta tennisleikarann í
neðri málstofu brezka þingsins.
Guðrtkn Árnadóttir
frá Lundi sjötiu ára
SAUÐÁRKRÓKI 4. júní: — Þann
3. júní sl. var sjötug skáldkonan
Guðrún Árnadóttir frá Lundi. —
Frú Guðrún er fædd 3. júní 1887,
að Lundi í Fljótum.
Árið 1910 giftist hún Jóni Þor-
finnssyni trésmið á Sauðárkróki
og hófu þau búskap í Bólstaðar-
hlíð í A.-Húnavatnssýslu. Síðar
FjársÖfnun til björgunar-
. skútu Ausfurlands
bjuggu þau í Þverárdal 2 ár,
Breiðabólstöðum 1 ár, Valbjörg-
um 7 ár, Morlandi á Skaga 18
ár, en þaðan fluttust þau til Sauð
árkróks. Þau hjón eignuðust 3
börn: Hilmar Angantýr, búsettan
í Grindavík, Freystein Ástvald
og Maren Baldvin, bæði búsett
í Reykjavík.
Árið 1946 byrjaði Guðrún aS
rita skáldsögur:
Dalalíf: 1. Æskuleikir og ástir
1946. 2. Alvara og sorgir 1947.
3. Tæpar leiðir 1948. 4. Laun synd
arinnar 1949. 5. Logn að kvöldi
1950.
Sjómannadagurinn á Seyðis-
firði gefur kr. 5.000.00 í sjóðinn.
NÚ ÞEGAR hið myndarlega og
vandaða björgunarskip ÍNorður-
lands, Albert, er að verða full-
búið til að hefja sitt þýðingar-
mikla starf, er vaknaður mikill
áhugi meðal Austfirðinga fyrir
fjársöfnun til björgunarskipa fyr-
ir Austfirði. Það var á 8. lands-
þingi Slysavarnafélagsins sem
samþykkt var tillaga frá slysa-
varnadeildinni Báru Djúpavogi
um, „að hafinn verði undirbún-
ingur að söfnun i björgunarskútu
Austurlands“.
Slysavarnafélag íslands skrif-
aði svo öllum félagsdeiidum á
Austfjörðum og hvatti þær til
þess að hafa almenna samvinnu
og kjósa sér framkvæmdanefnd.
Undirtektir um þetta mál hafa
verið mjög góðar. Slysavarna-
deildir kvenna í Neskaupstað og
á Eskifirði hafa komið sér samari
um að vinna að undirbúningi
málsins í sameiningu, en ráðgert
ei að allir fulltrúar austfirzku
deildanna, er mæta á 9. lands-
þingi Slysavarnafélagssins verði
jafnframt fulltrúar deildanna til
að skipuleggja samstarfið við
söfnun til austfi^zku björgunar-
skútunnar og eitt aðalverkefni
næsta landsþings félagsins verður
að vinna að undirbúningi þessa
máls meðal annars.
Það eru slysavarnakonurnar,
sem fyrst hreyfðu þessu máli og
þær einnig líklegastar til að færa
þetta mikla nauðsynjamál fram
til sigurs og nú hafa sjómennirnir
á Seyðisfirði rétt þeim sína Srf-
andi hönd. f gær kom Árni Vil-
hjálmsson frá Seyðisfirði á skrif-
stofu Slysavarnafélagssins og af-
henti fimm þúsund krónur í björg
unarskútusjóð Austfjarða frá sjó
mannadeginum á Seyðisfirði.
Stjórn Slysavarnafélagsins og
slysavarnadeildir Austfjarða færa
Seyðfirðingum innlegar þakkir
fyrir þetta framlag þeirra.
Afdalabarn 1950. Kvöldgeislar
1950. Utan af sjó 1951.
Tendadóttirin: I. Á krossgötum
1952. II. Hrundar vörður 1953.
III. Sæla sveitarinnar 1954. —
Þar sem brimaldan brotnar 1955.
Römm er sú taug 1956.
Af þessari upptalningu verður
séð að Guðrún hefir verið ótrú-
lega afkastamikið skáld og bæk-
ur hennar hafa hlotið slíkar vin-
sældir að til fádæma heyrir, enda
vitnar sala bókanna þar gleggst
um. Þáð hlýtur að vera gleðiefni
hverjum bókunnandi manni, sem
þekkir Guðrúnu og hefir átt tal
við hana á þessum tímamótum í
lífi hennar að engin sjást þar elli-
mörkin og því mikil ástæða til
að vona að mega eiga þess kost
að lesa enn margar óskrifaðar
bækur eftir Guðrún frá Lundi.
Mikill fjöldi vina og ættingja
heimsótti frú Guðrúnu á afmæl-
inu, á hinu litla kyrrláta heimili
þeirra hjóna að Freyjugötu 5,
Sauðárkróki. — jón.