Morgunblaðið - 09.08.1957, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.08.1957, Qupperneq 1
Krúsjeff ræðst mjög harkalega á Adenauer. Líkir honum við Hitler Berlín, 8. ágúst (Reuter). Nikita Krúsjeff hélt í dag há- pólitíska ræðu í austur-þýzka þinginu, þar sem hann réðst harkalega á Adenauer forsætis- ráðherra Vestur-Þýzkalands og líkti honum við Hitler. Einnig endurtók hann fyrra boð sitt um að Rússar skyldu flytja á brott herlið sitt úr leppríkjunum, ef Bandaríkjamenn flyttu allt her- lið sitt úr Evrópu vestur um haf. í ræðu sinni lagði Krúsjeff á- herzlu á það, að Varsjárbanda- lagið væri einvörðungu varnar- samtök, ætluð til að verja sósíal- isku ríkin gegn hinu árásarsinn- aða Atlantshafsbandalagi. Hann kvað Sovétríkin berjast fyrir friði og frelsi og fullkomin ein- ing ríkti meðal kommúnistaflokk anna í öllum sósíalísku ríkjunum. Gat þann þess m.a. að ríkisstjórn- ir allra bræðraríkjanna hefðu lýst sig samþykkar ákvörðuninni um brottrekstur Malenkovs, Molotovs og Kaganovich. Krúsjeff kvað brottrekstra þessa ekki mundu hafa í för með sér neinar breytingar á stefnu Sovétríkjanna, því að hún var á- kveðin á 20. flokksþinginu. Hann snerist harðlega gegn yf- irlýsingu Vesturveldanna og Vest ur-Þýzkalands um sameiningu Þýzkalands. Kvað hann með yf- irlýsingunni reynt að viðhalda skiptingu landsins og stefnt að áframhaldandi vígbúnaðarkapp-^ hlaupi. Kvað hann furðulegt að vestur-þýzka. stjórnin talaði um frjálsar kosningar, þar sem hún ofsækti bæði kommúnistaflokk- inn og ýmis friðarsamtök í Vest- ur-Þýzkalandi. Krúsjeff líkti Adenauer við Hitler og sagði að hann stefndi að ofbeldisverkum og kjarnorku- styrjöld. En hann varaði Vestur- Þjóðverja, sem og Vesturveldin við afleiðingunum af kjarnorku- styrjöld. Nú væri svo komið, að hægt væri að senda eldflaugar með kjarnorkusprengjur hvert sem væri í heiminum. Ræðu Krúsjeffs var fagnað með miklu lófataki austur-þýzku þing mannanna. Otto Grotewohl forsætisráð- herra Austur-Þýzkalands flutti einnig ræðu, þar sem hann end- urtók fyrri tillögur sínar um ríkjasamband til bráðabirgða milli austur- og vesturhluta Þýzkalands. Samþykkti þingið að ' því búnu í einu hljóði ályktun þar að lútandi. Gerald Long fréttaritari Reut- ers í Berlín skrifar að ekkert nýtt atriði hafi komið fram í ræðu Krúsjeffs úm lausn Þýzkalands- málanna. Ræðan sýni það aðeins, að málin séu komin í sjálfheldu. Hann telur að árásir Krúsjeffs á Adenauer muni fremur styrkja hann í kosningabaráttunni. Er málamiðíun líkleg í hand- ritamálinu? spyr Politiken KAUPMANNAHÖFN, 8. ágúst. — Politiken skrifar í dag for- ústugrein um handritamálið. Þar segir m. a.: — Kyrrð kemst ekki á um handritin, fyrr en málum verð- ur svo skipað, að ísland.geti við það unað. Handritin eru helgi- dómur fyrir íslendinga, en ekki fyrir yfirgnæfandi meirihluta Dana. Aðalvandamálið nú er hvort þriðji stjórnarflokkurinn, þ.e.a.s. Réttarsambandið fellst á tillögu íslendinga um skipun nefndar Ef til vill fellst Viggo Starcke þó á það, því að nefndarskipunin felur ekki í sér neitt loforð um að afhenda handritin. Politiken kveðst ekki vilja spá neinu um horfur á afhendingu handritanna. — Það er bæði vafa mál, hvort Danir halda fast við lagalegan rétt sinn og hirða ekki um siðferðilegan rétt íslendinga og einnig, hvort íslendingar fall- ast á málamiðlunarlausn (kom- promis). Sparnaður og gengislækkun boðuð í aukafjárlögum Finnskir ráðherrar ganga á undan með góðu fordæmi og lækka laun sín HELSINGFORS, 8. ágúst. Aukaþing hefur verið kvatt sam- an í Finnlandi og á fyrsta degi þess lagði ríkisstjórn Sukselain- ens fram frumvarp til aukafjár- laga. Stjórnin leggur til að sparnað- ur verði aukinn á öllum sviðum og væntir þess að með því megi draga úr útgjöldum ríkissjóðs sem nemur 600 milljón ísl. kr. — Ráðherrarnir ganga á undan með góðu fordæmi. Er gert ráð fyrir að ráðherralaun verði skorin nið- ur um 5%. Það vekur nokkra athygli, að í frumvarpinu er viss undirbún- ingur að gengislækkun, sem er í því fólginn, að leggja á útflutn- ingstolla. Er ætlunin ef gengis- lækkun verður framkvæmd að taka umframhagnað útflutnings- iðnaðarins af gengisbreytingunni með þessum tollum. Verður fénu varið til að reisa verksmiðjur í þeim héruðum þar sem lítið er um atvinnu. Enn samsæri í Kina PEKING, 8. ágúst. — Fréttastofa kommúnistastjórnarinnar, New China Agency, tilkynnti í dag, að fjöldi manna hefði verið hand- tekinn í Kiangsu-fylki sannir að sök um að hafa hindrað matvæla- dreifingu í fylkinu. Samsærishópur þessi var skip- aður gömlum jarðeigendum og svarta-markaðs bröskurum. Þeir frömdu skemmdarverk m. a. með því að breiða út orðróm um að kínverskir bændur mættu nú svelta í hel, vegna þess að komm- únistastjórnin hefði framið póli- tísk mistök. Fréttatilkynningin segir enn- fremur, að 180 manns hafi þegar verið fundnir sekir um þennan glæp og hafi þeir verið dæmdir í fangelsi eða nauðungarvinnu. Vinsæll íþrólla- maður OSLO, 8. ág. (NTB). — Norskir íþróttaáhugamenn hafa hrifizt mjög af afreki bandaríska stang- arstökkvarans Don Brago, er fór í dag yfir 4,60 metra og setti þann ig nýtt vallarmet. Stökkvarinn fór yfir allar hæð ir fram að 4,40 í fyrstu atrennu. Honum virtist ætla að takast illa með 4,40, en skreið yfir í þriðju atrennu. Sama var með 4,50. — Hann rétt teygði sig yfir þá hæð í síðustu atrennu. Nú var hækkað í 4,60 og bjugg- ust menn við að þetta væri þýð- ingarlaust. En íþróttamaðurinn flaug yfir þá hæð í fyrstu at- rennu. Gamla vallarmetið var 4,57. Her soldáns sækir fram BAHREIN, 8. ágúst. (NTB). —- 700 manna her soldánsins af Múskat sækir nú inn á lands- svæði uppreisnarmanna í Oman. Nálgast herinn nú aðalbækistöð uppreisnarforingjans, sem er í borginni Niswa. Var hann síðast þegar til fréttist við Firk, sem er fimm kílómetra fyrir norðan borgina. Brezka herstjórnin tilkynnir að brezk herdeild fylgi her soldáns- ins, en taki ekki þátt í bardög- um. Tvö þorp uppreisnarmanna voru tekin í morgun og kom til vopnaviðskipta í öðru þeirra. Orrustuflugvélar Breta hafa dreift flugmiðum yfir byggð upp reisnarmanna, þar sem varað er við því að skotið verði á hópa og liðssafnað, hvar sem þeir sjáist. Hafa flugvélarnar sveimað yfir eyðimörkinni og mun ætlunin að hindra með þessu skipulagða mót spyrnu. í fréttatilkynningu sem fulltrúi uppreisnarmanna í Kairo gaf út í dag segir, að þeir hafi hvergi látið hlut sinn fyrir her soldáns- in, þeir muni aldrei gefast upp, heldur berjast unz fullum sigri er náð. Gagnrýni Altrinchams lávarðar á opinberri framkomu Elísa- betar Englandsdrottningar hefur vakið stórfellda athygli. Fyrir nokkru kom lávarðurinn fram í sjónvarpi og gerði nánar grein fyrir skoðunum sínum. En þegar hann kom út úr sjónvarps- stöðinni réðist ókunnugur maður á hann, löðrungaði hann og sagði: — Þetta skuluð þér hafa fyrir að móðga drottninguna. Myndin sýnir þann atburð. Lávarðurinn heldur á skjalatösku. Fellsf á einvígi með regnhlífum LUNDÚNUM, 8. ágúst. — Ítalsk- ur aðalsmaður og konungssinni hefur skorað Altrincham lávarð á hólm fyrir að móðga Elísabetu Englandsdrottningu. En lávarð- urinn hefur nýlega getið sér það til frægðar að gagnrýna fram- komu Elísabetar á mannamótum. Enskir blaðamenn ræddu í dag við lávarðinn um það hvort hann ætlaði að taka einvígisáskorun- inni. — Nei, það dettur mér ekki í hug, því að ég á hvorki skamm- byssu né sverð. Eina vopnið sem ég hef er regnhlífin. Kannske við gætum barizt með regnhlífum ? Blaðamennirnir bentu lávarð- inum þá á, að hann gæti keypt sér vopn. Hann svaraði þá: — Ég vildi fyrir alla muni ekki svipta lífi svo merkilegan full- trúa ítalska aðalsins. Þar að auki held ég að þessi konungssinni eyddi kröftum sínum betur með því að reyna að koma aftur á konungdæmi á ítalíu. Altrincham lávarður kvaðst fá daglega í kringum 10 hótanabréf, en yfirgnæfandi meirihluta bréf- anna iætur í ljós ánægju yfir gagnrýninni á framkomu drottn- ingar. wy/or afvopnunartillögur vœntanlegar með banni við kjarnorkutilraunum LUNDÚNUM, 8. ágúst. — Harold Stassen fulltrúi Bandaríkjanna í afvopnunarnefndinni skýrði fréttamönnum frá því í dag, að hann hefði í hyggju að bera í næstu viku fram nýjar tillögur um takmarkaða afvopnun. í þeim yrði gengið nokkuð til móts við afvopnunartillögur Rússa. Hann fékkst ekki til að greina nánar frá efni tillagnanna. Það er haft eftir öðrum örugg- um heimildum, að Vesturveldin muni leggja til að tilraunir með kjarnorkuvopn verði bannaðar um ákveðinn tíma og framleiðsla á efni til kjarnorkuvopna stöðv- uð. Einnig muni í þeim felast grundvallarreglur um notkun kjarnorkuvopna. Notkun þeirra verði aðeins heimiluð í sjálfs- varnarskyni í samræmi við regl- ur S.Þ. um sjálfsvörn. Þá munu Vesturveldin leggja áherzlu á eftirlit og stöðvun á vopnasölu til annarra rikja. Er það einkar mikilvægt með tilliti til þess hve vopnasölur Rússa til Arabaríkjanna hafa komið af stað mikilli ólgu og styrjaldar- hættu í nálægum Austurlöndum. 7 V-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.