Morgunblaðið - 09.08.1957, Side 2
2
MOPC V’vnr 4Ð1Ð
Föstudagur 9. ágúst 1957
Eftir því sem ungarnir sta-kkuðu í hreiðrinu, þurftu foreldr-
arnir að afla meiri fæðu. Það voru margar ferðir sem þau
þurftu að fara á hverjum degi eftir ormum og sniglum. — Á
myndinni sést móðirin vera að koma úr einni slíkri ferð og er
hún að hvíla sig í gluggakistunni með feng sinn sinn, áður en
hún byrjar að útdeila matnum í fjóra svanga munna. Heimilis-
faðirinn, þrastapabbinn, sem hefur gætt bús og barna meðan
móðirin var af afla matarins, en það skiptust þau á um, færði
sig niður í næsta glugga meðan máltíðin stóð yfir.
Þrasfahjén komu á legg fjór-
um sfálnum ungum í glugga
I þessum sama glugga urpu þrasfahjón fyrir sex árum
ÞAÐ vildi til hér í bæn-
um að morgni hins 8. júlí
s.l. að hjónin Jóna Sæmundsdótt-
ir og Sigurður Jónsson, Auðar-
stræti 11, tóku eftir því, að þrasta
hjón voru í óðaönn að bera strá
og lauf inn í gluggakistuna í
stofu þeirra. Héldu þau þessum
starfa áfram nokkra daga og
ekki leið á löngu áður en þarna
var komið haganlega gert hreið-
ur, bak við gluggatjöldin, en
stofuglugginn stóð opinn meðan
á þessu stóð.
Velkomnir gestir
Það var síður en svo að
þeim hjónunum væri ami
að þessu tiltæki þrastanna, held-
ur fögnuðu þau komu þeirra
ynnilega. Þannig vill til, að árið
1951 urpu þrastahjón á þessum
sama stað og var þá allt gert til
þess að þeim liði sem bezt og
hefðu næði. Næstu vor á eftir um
varptíma þrastanna var stofu-
glugginn látinn standa opinn í
von um að þessir litlu gestir
kæmu aftur, en það gerðu þeir
ekki, enda þótt þeir unguðu út
þama tveim ungum 1951. Alls
voru eggin fimm, en þrjú urðu
kaldegg.
Eru þetta
sömu þrestimir ?
Þegar þrastafjölskyldarf
fluttist úr gluggakistunni,
var mikill söknuður á heimilinu.
En nú eru þau hjónin að vona,
að sömu þrestirnir séu komnir
aftur, þótt liðin séu sex ár. Ekki
eru þau þó viss um að svo sé,
þótt þessi hjón hagi sér nákvæm-
lega eins og hin fyrri. Þessir hafa
aðeins orpið seinna, fyrsta eggið
kom 12. júlí, en 1951 byrjuðu
eggin að koma 17. maí.
Sár söknuður
Sigurður Jónsson hefur
skýrt Morgunblaðinu frá
þessu. Hann kvað fyrsta ungann
hafa komið úr eggi að þessu sinni
26. júlí, en eggin voru fjögur, síð-
an kom ungi á hverjum degi og
úr öllum eggjunum. En nú end-
urtók sig sama sagan og í fyrra
skiptið. Ungarnir voru aðeins
skamma hríð í hreiðrinu, sá elzti
Og þroskaðasti flaug úr því 5.
ágúst. Og svo týndust þeir hver
af öðrum. Söknuður heimilisfólks
ins að Auðarstræti 11 er sár. Það
ber áhyggjur út af því, hvað
kunni að bíða þessara litlu vina
þeirra, en hættan, kettirnir, eru
alls staðar, og voði bíður lítilla
þrastaunga nærri í hverjum
garði. Þó er það huggun að enn-
þá geta hjónin fylgzt með ferð-
um þeirra í garðinum fyrir utan
gluggann.
GJÖGRI, Ströndum, 8. ágúst. —
Handfæraveiði hefur verið góð
undanfarið, en sjómenn þurfa
að salta afla sinn sjálfir vegna
þess að ekki er hægt að taka á
móti honum í frystihúsinu hér
vegna síldveiðarinnar.
Gamla Flensborg
A SÍÐARI árum hefur það farið
mjög í vöxt á landi hér, að halda
við minningu ýmissa merkra
staða og sýna þeim ræktarsemi,
og er það vel farið.
Nýlega var ég á ferð í Hafnar-
firði og kom þá á staðinn þar
sem gamla Flensborg stóð og
stendur að nokkru leyti enn. Þar
hóf Flensborgarskólinn starf-
semi sína fyrir 75 árum og starf-
aði um langt árabil, svo sem al-
kunnugt er.
Á þessum öru breytingatímum
verða gömlu húsin fyrr eða síðar
að víkja fyrir götum og stærri
byggingum og svo mun verða um
gamla Flensborgarhúsið áður en
langt um líður. Götur hafa verið
lagðar um Flensborgartúnið og
þar hafa risið og eru að rísa
stórar byggingar. Gera má ráð
fyrir því, að á grunni gamla húss-
ins rísi stórhýsi í framtíðinni og.
allt umhverfið breytist frá því
sem nú er og verið hefur, og
staðurinn gleymist ef ekkert er
að gert. En þessi staður er mörg-
um gömlum FlensborgurUm kær
og svo myndi verða komandi
kynslóðum við að sjá hvar gamla
skólahúsið stóð.
Fyrir því langar mig að koma
á framfæri þeirri hugmynd, að
sett verði áletruð plata með
mynd af gamla FlensDorgarskóla-
húsinu á hús það, er síðar kann
að verða reist á grunni gamla
hússins. Sýndi það ræktarsemi
við staðinn ©g myndi viðhalcV
minningu hans um ókomin ár, og
jafnframt minna á, að Hafnfirð-
ingar væru minnugir þessarar
fornu menntastofnunar sinnar.
Fyrir tíu árum síðan minntist
ég á þessa hugmynd við Gunn-
laug heitin Kristmundsson og
leizt honum vel á hana. Síðan
hefur hugmynd þessari öðru
hverju skotið upp í huga mín-
um, þótt ég hafi ekki komið
henni á framfæri fyrr en nú.
Vænti ég þess, að hugmynd
minni verði vel tekið.
Egill Hallgrímsson.
Óvinátta magnast milli
Sýrlendinga og Jórdana
DAMASKUS. — Skömmu fyrir helgi tilkynnti jórdanska stjórnin,
aö því er Sýrlandsstjórn hefur skýrt frá, að hún mundi grípa til
róttækra aðgerða. ef sýrlenzk blöð hættu ekki áróðri sínum gegn
Jórdönum; jafnvel kæmi til mála, að Jórdanir gripu til vopna gegn
Sýrlendingum, ef þeir létu ekki af uppteknum hætti. — Segir Sýr-
landsstjórn, að ntanríkisráðherra Jórdaníu, Samir Rifai, hafi skýrt
sýrlenzka sendiherranum í Amman frá þessu fyrir helgi. Kröfðust
Jórdanir þess, að fá svar við málaleitan þessari fyrir 4. ágúst.
Sýrlandsstjórn segir, að Rif;..<g>-- - ---------
hafi lýst því yfir, að Jórdanir
mundu ekki láta sér nægja að
slíta stjórnmálasambandi við Sýr
lendinga, ef þessu yrði ekki kippt
í lag, heldur mundu þeir fara með
her á hendur þeim.
Þegar sendiherrann benti Rifai
á ,að þetta væru stór orð, 3varaði
hann: Ég veit vel, hvað ég segi,
og þér eruð beðnir um að skýra
stjórn yðar orðrétt frá málaleit-
an minni. Þið haldið áfram bar-
áttunni gegn okkur, af því að þið
háldið, að við séum veikir fyrir,
en við getum vel sýnt ykkur í tvo
heimana, eins og fsraelsmönnum.
Þá benti sendiherrann á, að sam-
eiginlegur fjandmaður Jórdana
og Sýrlendinga væri ísrael, og
svaraði Rifai þá, að Jórdanir
hefðu fórnað mannslífum við
landamæri ísraels og gætu þeir
gert hið sama við landamæri Sýr-
lands.
Þegar sendiherrann spurði Kií-
ai, hvort leyfilegt væri, að Arabi
dræpi arabískan bróður sinn,
svaraði hann hiklaust: — J4, ef
hann er neyddur til þess. fsrael
var óvinur okkar, en nú eruð þið
það einnig.
Þetta er haft eftir sýrlenzka
utanríkisráðuneytinu, en þess má
geta, að Jórdansstjórn heíur mót-
mælt því, að Samir Rifai hafi
hótað að fara með her á hendur
Sýrlendingum.
Hafnarframkvœmdir
á Pafreksfirði o.fl.
HINN 1. apríl sl. hóf dýpkur.ar-
skipið Grettir að grafa út úr Pat-
rekshöfn og var þeim áfanga lok-
ið 13. júní sl. Grafnir voru út
60 þús. ten.m. — Hafnarinnsigl-
ingin var dýpkuð og hafnarmynn
ið breikkað og er dýpið um 5V2
m. miðað við stórstraumsfjöru.
Inn í höfnina var grafið út snún-
ingssvæði fyrir öll hin stærri
skip og er það um 130 m. á hvern
veg og í 5V2 m. dýpt eins og inn-
siglingin, miðað við fjöru. Enn
fremur var grafið út allstórt
svæði fyrir bátaflotann og hin
minni skip, þar sem þau geta
legið og athafnað sig. Verk þetta
mun verða allkostnáðarsamt eða
um 1.6 millj. kr.
Ennfremur er unnið að því að
hefja niðurrömmun á staurabúkk-
um í mynni innsiglingarinanr og
koma þeir til með að ná út frá
stálþili um 120 metra. Þetta verk
er talið að kosti um 400 þús. kr.
Rafveitumál
f júní sl. var lokið við að tengja
nýjan spenni, er settur var upp
við Hraðfrystihús Patreksfjarðar
og eru þá háspennu og lágspennu
jarðstrengir komnir í 'jörðu urn
allt byggðarlagið, nema Mikla-
dalsveg og Stekka, en þar er nú
verið að ljúka við að setja nýja
loftlínu. Verður þessi fram-
kvæmd mikil bót fyrir allan inn-
hluta byggðarlagsins óg þó eink-
um fyrir hraðfrystihúsið, sem
ávallt er að auka starfsemi sína.
Barnaskólabygging
Hafizt var handa við barnaskóla
bygginguna í júní sl., en búið
var að steypa og ganga frá grunni
hennar á sl. ári. Nokkur töf var
á að byrja verkið nú í vor, vegna
þess hve seint timbur kom til
landsins, en nú er búið að slá
upp fyrir 1. hæð og verður byrj-
að að steypa hana strax og sem-
ent kemur, sem búizt er við að
verði I byrjun ágústmánaðar,
er meint að leggja allt kapp
á að koma byggingu þessari und-
ir þak í haust.
íþróttamál
f sumar var sundlaugin máluð
að innan. Er hún nú mjög smekk
lega máluð og vistleg. Gufubaðið
var einnig allt standsett. Aðsókn
hefir verið frekar góð og margir
tekið þátt í 200 metra sundkeppn-
inni. Laugin er hituð upp með
vatni frá vélum rafveitunnar og
er laugin 25—27 gráða heit.
Á s.l. sumri var rutt með ýtu
allstórt svæði fyrir fyrirhugað-
an íþróttavöll. Er það á mjög
skemmtilegum stað, innan við
kauptúnið, í mynni Mikladais. í
fyrrahaust og í vor var svo unn-
ið í sjálfboðavinnu við að hreinsa
svæðið og er nú kominn þarna
sæmilega stór völlur fyrir knatt-
sprnu og handknattleik. Félag-
arnir í íþróttafél. Herði hafa lagt
þarna fram mikla vinnu, eink-
um hinir yngri.
Hingað er von næstu daga kenn
ara til að þjálfa knattspyrnu-
flokka félagsins og handknatt-
leiksflokk.
í sumár verður unnið áfram
á vegum hreppsins við íþrótta-
svæðið. fþróttastarfsemi hefir
legið niðri hér um nokkurn tíma,
vegna þess að hér heíir ekki ver-
ið staður til að æfa á eða halda
íþróttamót.
Niðurjöfnun útsvara
í Patreksfj.hr. var lokið 13. júlí
sl. Jafnað var niður 1.260.000.00
kr. á 292 gjaldendur. Er það um
2% hærri upphæð en á sl. ári.
Hæstu útsvör bera: VerzL
Ó. Jóhannesson hf. kr. 40.800,00,
Kaupfél. Patreksfjarðar 30.126,00,
Kaldbakur hf. 30.000,00, Skelj-
ungur hf 29,780,00, Grótti hf.
20.400,00, Gísli Auðunsson skip-
stjóri 18.000,00, Eyjólfur Guð-
mundsson, vélstj. 16.500,00, Gylfi
hf. 15.000,00.
Helztu útgjaldaliðir fjárhags-
áætlunar eru þessir:
Lýðhjálp kr. 323 þús., Mennta-
mál 214 þús. Sýslusjóðs- og sýs’.u-
vegasjóðsgjald 101 þús. Til rekstr
ar fyrirtækja hreppsins 80 þús.
Til nýbygginga 360 þús. kr.
— Karl.
Jemen undirbýr
áhlaup
ADEN, 8. ágúst. — Brezkar her-
flugvélar gerðu í dag árásir úr
lofti á ólöglegar varðstöðvar, er
herlið frá Jamen hafði komið sér
upp innan landamæra Aden-
verndarsvæðisins.
Herstjórnin í Aden skýrir frá
því að Jamen-menn safni miklu
herliði saman við landamærin og
virðist búa sig til áhlaups. Sjást
liðsflutningarnir greinilega frá
fjallshrygg einum á Aden-svæð-
inu. — Reuter.
.Daviðs-verðlauniri'
Mynd þessi er tekin af kvikmyndastjörnunni Ingrid Bergmann er hennl voru afhent Daviðs-kvikmynda
verðlaunin í ftalíu, en meiri heiður getur kvikmyn daleikurum í Ítalíu ekki hlotnazt. Verðlaunin hlaut
Ingrid Bergmann fyrir leik sinm í kvikmyndinni Anastasia. Á vinstri hönd Ingrid situr dóttir heun-
ar, Jenny Ann Lindström ea tU Iwegri brezki sendiherrann í Ítalíu, Ashley Clarke.