Morgunblaðið - 09.08.1957, Síða 11
Föstudagur 9. ágúst 1957
MORCVNBL4Ð1Ð
11
Samtök ungra hægrimanna
í Svíþjóð hafa stórefIzt
Rætt við H enrik
Gustafson frá
Gautaborg
Henrik Gustafson heitir ung-
ur Svíi. Hann starfar á bæjar-
skrifstofunum í Gautaborg, en
meðal margra tómstundasýslana
hans eru blaðamennska, ljós-
myndun og störf í þágu æsku-
lýðssamtaka sænska Hægri
flokksins. Gustafson kom til ís-
lands um miðjan júní, dvaldist
hér um mánaðartíma í sumar-
leyfi sínu og fór víða um. Hann
komst alla leið norður í Grímsey,
en dvaldist auk þess nokkuð í
Mývatnssveit, á Akureyri, Siglu-
firði, Hvanneyri og Úlfljótsvatni.
Hann er nú nýfarinn heim á leið
með nær 2000 ljósmyndir og
nokkrar blaðagreinar ýmist full-
skrifaðar eða í kollinum. Tíðinda
maður æskulýðssíðunnar hitti
Gustafson að máli litla stund
daginn áður en hann fór.
„Samtök ungra hægrimanna
hafa eflzt mjög í Svíþjóð á und-
anförnum árum, og félagatalan
hefur hækkað úr 10.000 í 35.000“,
segir Gustafson, þegar fréttamað
urinn spyr um þennan félags-
skap.
„Mér var sagt áðan, að þér vær
uð í stjórn Gautaborgarfélags-
ins“.
„Já, það er stærsta stjórnmála
félag æskunnar í borginni. Fé-
lagsmenn eru um 1200“.
„Hin einstöku félög hafa vænt-
anlega með sér samtök“.
„Já, bæði lénssambönd og svo
landssamband, sem hefur aðalað-
setur í Stokkhólmi. Landssam-
bandið hefur trúnaðarmenn í
hverju léni og fylgist vel með
starfseminni um land allt“.
„í hverju er starf þess aðallega
fólgið?“
„Það annast ýmiss konar fyrir-
greiðslu fyrir hin einstoku félög,
og svo t.d. útgáfustarfsemi og
fræðslu. Það gefur út blað, sem
nefnist Ung Höger og kemur út
18—20 sinnum á ári og er 16—20
síður í hvert skipti. Efni þess er
úr öllum áttum, og blaðið er sent
öllum flokksbundnum ungum
hægrimönnum í Svíþjóð".
„í hverju er svo önnur fræðslu
Starfsemi fólgin?"
„Æskulýðssambandið stendur
til dæmis að flokksskólanum á-
samt öðrum aðilum. Skólinn er
í Gimo nálægt Uppsölum. Þar eru
haldin námskeið allt árið um
kring. Standa þau 1—2 vikur
hvert og njóta mikilla vinsælda“.
„Stendur sambandið ekki fyrir
móti í Stokkhólmi nú um þetta
leyti?“
„í Gálö utan við Stokkhólm
hefst á næstunni kynningarmót
ungra hægri manna frá Svíþjóð,
Danmörku, Finnlandi og Noregi.
Þátttakendur verða væntanlega
300 til 400 talsins. Ég er raunar
á leiðinni á mótið og mun sýna
þar myndir, sem ég hef tekið á
íslandi að undanförnu".
„Hvað er að segja um þátttöku
ungra hægri manna í opinberum
málum í Svíþjóð?"
„Við eigum fulltrúa bæði á rík-
isþinginu og í sveitastjórnum. 1
þinginu er Hans Nyhagen aðal-
talsmaðurinn, og þykir mikið að
honum kveða. Formaður lands-
sambands okkar er annars Sven
Johanson, og er hann nýtekinn
við störfum“.
Henrik Gustafson
„Hægri flokkurinn vann mik-
ið á í kosningunum í fyrra?“
„Já, kosningarnar fóru fram í
september og fylgi flokksins
jókst um 10%. Þingmenn hans í
neðri deildinni eru nú 42, en
sósíaldemókratar hafa 106, frjáls
lyndir 58, Bændaflokkurinn 19
og kommúnistar 6“.
„Mér skilst, að borgaraflokk-
unum sænsku komi ekki sérlega
vel saman“.
„Bændaflokkurinn situr í stjórn
með sósíaldemókrötum, svo að
ekki verður sagt, að samstarf
hans og Hægri flokksins sé upp
á marga fiska. Hægri flokkurinn
og Frjálslyndi flokkurinn fara
einnig hvor sína leið. í Svíþjóð
er því ekki um að ræða sam-
ræmt starf borgaraflokkanna,
eins og virðist vera farið að tíð-
kast í Danmörku hjá Vinstri
flokknum og íhaldsflokknum".
„Svo að við víkjum talinu að
öðrum efnum. Hér á íslandi hef-
ur allmikið verið rætt um flutn-
inga ungs fólks úr landi að und-
anförnu. Eiga Svíar einnig við
þetta vandamál að stríða?“
„Nei, varla verður það sagt.
Helzt fara úr landi menn,- sem
hlotið hafa sérmenntun til vissra
iðnaðarstarfa. Þeir fá reyndar
góð laun í Sviþjóð, en ennþá
betri sums staðar í öðrum lönd-
um“.
„Fyrst minnzt er á launin.
Hvaða kaup fá ungir menn í Sví-
þjóð, þegar þeir koma af skóla-
bekk?“
„Ég er kunnugastur kjörum
skrifstofumanna, og er því bezt
að halda sér við þau. Þeir piltar,
sem hefja skrifstofustörf um tví-
tugt hjá hinu opinbera, fá senni-
lega um 750 krónur á mánuði, en
á 9 árum hækka launin í h.u.b.
1200 krónur. Þeir, sem vinna hjá
einkafyrirtækjum fá áennilega
oftast lægri laun í upphafi, um
500 kr. á mánuði, en þau hækka
upp í það sama og hjá hinu op-
inbera. Kjör þessara manna eru
annars nokkuð misjöfn. Meðal-
kaup skrifstofustúlkna mun vera
um 25% lægra en karlmann-
anna“.
„Svo að maður hlaupi úr einu
í annað. — Skólamálin eru alltaf
mikið áhugaefni ungs fólks. Er
ekki eitthvað varðandi sænska
skóla, sem yður virðist, að verða
mætti íslendingum til fyrirmynd-
ar?“
„Ég held að segja megi, að í
Svíþjóð séu góðir skólar fyrir
fólk á aldrinum 5 til 50 ára. Ég
hef alltaf haldið,, að það, sem
vekti mesta athygli útlendinga,
er kynna sér sænska skóla, væru^
tækniskólarnir og námsflokkarn-1 g ^
Mig langar hins vegar til að víkja
að menntun skrifstofufólks. Mér
skilst, að bréfritaraskólar séu
ekki til á íslandi, svo að það
skrifstofufólk, sem ekki kemur
úr verzlunarskólum, verði að
læra margt á eigin spýtur, ea
fara ella til útlanda eða í einka-
tíma. f Svíþjóð eru sérstakir skól- -
ar fyrir þetta fólk og þykja þarf-
ar stofnanir".
Gustafson var á hraðri ferð, —
átti sjálfur eftir að eiga tal við
nokkra menn og taka myndir.
Fréttamaðurinn þakkaði honum
því fyrir spjallið, og þessi há-
vaxni og ljóshærði Svíi snarað-
ist út á götu með skrifblokk sína
í vasanum og tvær myndavélar
af gerðunum Ikonta og Leica á
brjóstinu.
Þ. V.
Krúsjeff: Lysenkc
er eins og hundur
að skapferli
ir, sem eru mjög vinsælir. Ég
er hins vegar ekki nógu kunnug-
ur til að geta sagt, hvort eitt-
hvað snertandi þessar fræðslu-
stofnanir er sérstaklega nýstár-
legt fyrir íslendinga. Sama er að
segja um barnafræðsluna sænsku
og ýmsar nýjungar, sem verið
er að brydda upp á á því sviði.
Vart getur fegurri stað fyrir útisamkomu en Egilsstaðaskóg.
Ágœt hópferð Heim-
dallar til EgilsstaSa
Sótt var héraðsmót Sjálfstæðismanna
á Austurlandi um siðastliðna helgi
HEIMDALLUR, F.U.S., efndi til
hópferðar til Egilstaða um verzl-
unarmannahelgina, en þar fór þá
fram hið árlega héraðsmót Sjálf-
stæðismanna á Austurlandi. —
Þesi ferð var sú fyrsta, sem farin
hefur verið á vegum Heimdallar
til Egilsstaða og jafnframt
lengsta ferð að fjarlægð, sem fé-
lagið hefur efnt til. Flogið var
með vélum frá Flugfélagi íslands
báðar leiðir.
Ferðalangarnir lögðu af stað
frá Reykjavík laust fyrir kl. 9 að
kvöldi laugardagsins og komu
til Egilsstaða rúmlega klukku-
stund síðar. Frá flugvellinum á
Egilsstöðum var ekið í Vinmörk,
en svo efna Austfirðingar Egils-
staðaskóg. Þar reisti ferðafólkið
tjöld og dvaldist dagana, sem há-
tíðin stóð yfir. Þá um daginn
hafði drifið að fjölda fólks úr
öllum áttum, aðallega frá Aust-
fjörðum og Norðurlandi.
Um kvöldið var stiginn dans
í Egilsstaðaskógi, en á sunnudag
héldu Sjálfstæðismenn á Austur-
landi mjög fjölmenna útisam-
komu. Þar fluttu ræður þeir Jó-
hann Hafstein, bankastjóri, og
sr. Sigurður Einarsson, ská.d í
Holti. Einnig voru fjölbreytt
skemmtiatriði. Hátíðahöldunum
var slitið kl. 1 á miðnætti.
Heim til Reykjavíkur flugu
Heimdellingar svo síðdegis á
mánudag. Rómuðu þeir mjög
ágæti ferðarinnar, en mikil veð-
ursæld og fagurt umhverfi Egils-
staða átti drjúgan þátt í að gera
hana svo ánægjulega, sem raun
varð á.
úr samtali
transkra sijórnmála-
manna við Kremlbúa
Deixonne: Við höfum rætt um
menningartengsl. Þau eru æski-
leg. En hafa engin ný Lysenko-
mál skotið upp skollinum? Með
öðrum orðum, er skoðanafrelsi
vísindanna tryggt eða eru aftur
skyldukenningar við lýði?
Krúsjeff: Við erum með þess-
um tengslum. Hvað Lysenko
snertir, þá stangazt á skoðanir
manna á kenningum hans. Menn
verða að geta rætt sín á milli og
dæmt allar kenningar. Lysenko
er einn af mestu búnaðarfræð-
ingum okkar. En hann er eins og
hundur að skapferli.
Philip: Er það áunnið eða
erft? (Hlátur).
Krúsjeff: Síðastliðið ár, þegar
Bogomoletz dó, skulfu Úkraínu-
menn af ótta við, að Lysenko,
sem er einmitt frá Úkraínu, yrði
valinn í akademíu þeirra, þar
sem þeir óttuðust óþverraskap-
gerð hans. Ég endurtek, að hann
sé þó mikill búnaðarfræðingur.
Margir gervivísindamenn. sem
gagnrýna hann, eru ekki skó-
þvengsvirði.
Mikojan: Nú ýkirðu.
Deixonne: Það er vilji okkar,
að allir hafi rétt til þess að
skjátlast eins og þeir hafa frelsi
til að láta skoðanir sínar í Ijós.
Krúsjeff: Það er nauðsynlegt,
annars tækju vísindin engum
framförum.
Mikojan: En það er óþarfi að
verðlauna fyrir skyssurnar.
Commin: Verður maður að
vera guðleysingi til þess að verða
félagi í kommúnistaflokknum?
Krúsjeff: Vissulega, en til eru
kommúnistar, sem eru guðlcys-
ingar í sellunum og kristnir
heima hjá sér.
Sjepilov: Þó að þeir séu fáir.
Krúsjeff: í Asíu má finna
dæmi um þetta. Einnig í sveit-
um. Ef til vill einnig rneðal
menntamanna.
Sjepilov: Kommúnistaflokkur-
inn er boðar efnishyggju.
Commin: Kristinn maður er
þá ekki tekinn í kommúnista-
flokkinn?
Krúsjeff: Nei.
Mikojan: Sérhver kommúnisti
verður að tileinka sér hugsjóna-
kerfi kommúnistaflokksins. Þess
vegna er hafður ákveðinn
reynslutími á undan inngöngu i
flokkinn. Visst samræmi í hugs-
un er nauðsynlegt.