Morgunblaðið - 09.08.1957, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.08.1957, Blaðsíða 15
Föstudagur 9. ágúst 1957 MORCT'rvnr AftiÐ 15 Rússar unnu 7:1 RÚSSARNIR frá Kiev maettu í gærkvöldi „tilraunalandsliði“. — Rússarnir fóru með sigur af hólmi 7:1, en leikurinn gaf þó alls ekki tilefni til sliks. 4 markanna má hreinlega skrifa á reikning mark- varðanna, fyrst Björgvins, Val og síðan Helga, Akranesi. Staðan í hálfleik var 2:0. Leikur ísl. liðsins var með því betra sem hér hefur sézt lengi til isl. liðs einkum er að vörn laut, en framlinan var sundurlaus og Albert sá eini er byggði upp og sýndi góðan leik. Hann skoraði markið með skalia eftir góða fyrirsendingu Gunnars Gunnarssonar. Valbjörn var nœrri 4,42 í fyrstu tilraun Málmey, 7. ágúst. — Frá Erni Eiðssyni. SIÐASTA keppni ÍR-flokksins í íörinni var í gærkvöidi er miklu móti með keppendum tíu þjóða lauk hér. Valbjörn var með í stangarstökki, hafði stokkið 4.20 og síðan var hækkað í 4,42. Var hann mjög nærri að fara yfir í fyrstu tilraun. en það tókst ekki og varð hann annar. Arangur Sigurvegari í stangarstökki varð Bandaríkjamaðurinn Don Bragg, stökk 4.50. Valbjörn stökk 4.20 og Heiðar 4.10 m. Richard Larsen Danmörku varð 4. með 4.00. Höskuldur Karlsson varð 2 í B-riðli í 200 m hlaupi á 23.0 og Daníel Halldórsson þriðji í A- riðli 400 m hlaupsins á 50,3 Pear- main sigraði á 48.0 og Jenkins (báðir frá Bandaríkjunum) varð 2. 48.2. Kristján og Sigurður kepptu í 5 km hlaupi. Kristjan varð 6. á 15:15,6 mín. og Sigurður Guðna- son 7. á 15:23,0, en það er sami tími og hið fræga met Kaldals er stóð í 23 ár sem ísl. met. — Brautirnar voru pungar eftir mikla rigningu. Þrjú Evrópu- metCermars FYRIR nokkru setti þýzki sprett- hlauparinn Germar 2 Evrópumet og í fyrradag bætti hann hinu þriðja við. Á móti í Köln fyrir nokkrum dögum setti hann Evrópumet í 100 m hlaupi, hljóp á 10,2 sek. í 200 m setti hann einnig met, hljóp á 20,4 sekúndum. í fyrradag bætti hann Evrópu- met McDonalds Baileys á 100 yards vegalengd. Hljóp Germar á 9,6 sek. Félagslíf Þróttur — Knattspyrnumenn Æfing föstudag kl. 8 á Mela- vellinum, Mfl., I. og II. fL Þróttur — Ilandknattleiksstúlkur Æfing föstudag kl. 8,30. — Þjálfari. Farfuglar — Farfuglar Farið verður á Baulu um helg- ina. Skrifstofan opin í kvöld kL 8,30—10 að Lindargötu 50. Knattspyrnumenn K.K. Æfingar í kvöld á félagssvæð- inu. Kl. 7,30 3. flokkur. — KI. 8,30 Mfl., I. og II. fl. — Þjálfari. Innilega þakka ég öllum vinum og vamdamönnum, heiðruðu mig á margan hátt á sjötugsafmæli mínu. Ingunn Sveinsdóttir, AkranesL Húseignin Hólatorg 2 ER TIL SÖLU í húsinu eru 8 herbergi auk 2 í kjallara. Bað og eldhús m. m. Heimilt er að nota neðri hæð hússins til annars en íbúðar. Nánari uppl. veitir kl. 1.30—3 e. h. næstu daga. GUNNARS J. MÖLLER, hrl. Suðurgötu 4 Simi 13294, Þolprófun segir uð Hilmur hnfi ekki hæfileikn til drongurs í 400 m hluupi Rœtt viÖ Ben. Jakobsson um þolpráfun Benedikt Jakobsson íþróttakenn- ari er nýkomin heim úr rúmlega 2 mánaða dvöl í Noregi og Sví- þjóð, þar sem hann kynnti sér ný tæki og aðferðir við þolprófun íþróttamanna. Blaðið hafði stutt tal af Benedikt um ferðina og gagn hennar og fórust honurn orð m.a. á þessa leið. Ég dvaldist fyrst á Flygmedis- insk institut í Qsló hjá prófessor Lange. Er stöðin nýlega sett á stofn og fékk ég þar að fylgjast með þolprófum, og fylgdist hún með líkamlegri getu almennings, íþróttamanna og væntanlegra flugmanna. Flugið hefur mjög stuðlað að því að stöðin er kom- in upp. Próf. Lange hefur unnið að gerð sérstakrar róðravélar til að mæla þolgetu manna ásamt því að hann hefur gert sérstakt tæki annað til þeirra hluta, en slíkir hlutir nefnast á erl. tungu ergo- meter. Slik áhöld hafa verið send til margra staða í Noregi, aðal- lega til íþróttalækna. Á Þolprófun — Hver er tilgangur þolpróf- unar? — Að því er lýtur að íþrótta- mönnum er tilgangurinn að fylgj ast með þjálfun þeirra er æfa þoliþróttir. Þeir eru þolprófaðir með 2. mál. millibili. Fylgzt er með þyngd þeirra og gert línurit yfir starf hjartans og öndunar- færa. Annar tilgangur þolprófunar er að læknar á sjúkrahúsum reyna þolgetu sjúklinga og þol- prófunin þar miðar að því að fá úr því skorið hvort sjúklingur- inn er nægilega sterkur til að ganga undir skurðaðgerð. — En áfram með ferðasöguna. — Frá Noregi hélt ég til Stokk- hólms og var þar lengst af tíman- um. Svíar eru lengst komnir í þolprófuninni. Kynntist ég starfi lífeðlisdeildar kennaraskólans og var einnig á lifeðiisdeiid lækna- skólans á Karolinska sjúkrahús- inu svo og á Bosön, æfingamiðstoð sænskra íþróttamanna, en þar eru flestir íþróttamenn Svía þol- prófaðir á sumri hverju. — Hvernig eru þessi ergomet- ers-tæki? — Til eru ýmsar tegundir, en algengust eru hjólin vegna þess að þau krefjast einskis af þeim sem reyna sig nema krafts. Þetta eru venjuleg hjól á sérstakri grind, afturhjólið er hindrað með reim sem spennt er um það með ákveðnum útbúnaði. Mótstöðuna má auka og minnka eftir vild og þegar vitað er um snúningshraða hjólsins og um mótstöðuna sem hjólið er hindrað með, má reikna út hraðann, hversu mikið þolpróf andinn erfiðar á mín. Þolið er síð- ar. reiknað út eftir því hvað hjart að þolir mikið erfiði. ★ Ávinningurlnn — Hver er þýðing þolprófun- ar? —Þolprófunin hefur mikla þýðingu. Mikilsvert er að fylgj- ast með hverjum íþróttamanni sem mikið lenggur á sig, sjá hvað hann skortir, hvernig líkami hans bregzt við þjálfuninni. Þessu er líka mikilsvert fyrir þá sjálfa að fylgjast með. Ýmsir beztu íþróttamenn Svía í þolgreinum, s.s. í skíðagöngu og langhlaupum hafa reglulega ver- ið þolprófaðir undanfarin 2—3 ár. Sé það gert er hægt með all- mikilli nákvæmni að segja fyrir um hvernig viðkomandi mundi standa sig á ákveðnu móti. Þetta er þýðingarmikið ekki sízt fyrir íþróttamanninn, sem fær að sjá hvað gerist ef hann ekki þjálfar rétt, eða slær slöku við. Þolprófunin er líka ágæt til leiðbeiningar íþróttamönnum. Höfum við t.d. 100 og 200 m hlaupara sem langar að vita hvort hann er góður til 400 m hlaups getur þolprófunin orðið að liði. Hún getur sagt honum hvort hann hafi hæfni til að nýta súrefni, en það er nauðsynlegur eiginleiki til að hafa þol og út- hald. Þannig var t.d. Hilmar Þor- björnsson þolprófaður í sumar. Kom í ljós að hann hefur ekki eiginleika til að nýta súrefni vel og þaið liggur því fyrir að hann hefur'ekki góða líkamlega hæfi- leika til að fara í 400 m hlaup. En það er að visu aðeins einn þáttur. í keppni ræður það kannski mestu hvað menn geta pínt sig mikið, en vitanlega er gott fyrir manninn að vita hverj- ir eru eiginleikar likamans. Þolprófunin segir mönnum skýrlega til um þol þeirra. í út- varpsþætti í Svíþjóð kom þetta greinilega fram, sagði Benedikt. Þar var frá því skýrt að 36 ára gamail sölumaður hafi komið til þolprófunar og hún sýndi að þrek aldur hans var 63 ár. Þ.e.,’þrek hans var jafnlítið og 63 ára manns. Við þrekprófunina var íþrótta- kennari, sem bauð honum að „lækna“ hann. Fóru þeir saman til skipulagðra æfinga og eftir 2 mánuði var sölumaðurinn kom- inn í „normal" ástand. Tveim mánuðum síðar sýndi þolprófun að þrekaldur hans var 17 ár. Maðurinn var kominn í þjálfun. Og útvarpshlustendur fengu að heyra mismuninn á hjartaslögum sölumannsins, þegar hann fyrst kom og síðan er honum smáóx þrek við æfingarnar með íþrótta- lcennaranum. Þarna sést glögg- lega — og nú vita allir Svíar það — hvað þjálfun, þó létt sé, hef- ur að segja. Benedikt fór þessa för á vegum íþróttabandalags Reykjavíkur, en bandalagið hefur nú ákveðið að festa kaup á ergometer — sænsku þolprófshjóli sem verður væntanlega fljótt komið hingað til íands, Isl. íþróttamönnum og öllum almenningi til mikils gagns. — A. St. oskast hálfan daginn til afgreiðslustarfa. Uppl. á staðnum. — Ekki í síma. Verzl. Geirs Zoega Vesturgötu 6. Utför JÓNS INGVARS ÁRNASONAR sem lézt af slysförum, fer fram frá Fossvogskirkju, í dag klukkan 1,30 e. h. — Blóm afþökkuð. Þórunn Þórðardóttir og börn, Jakobína Jónsdóttir, Árni Ingyarsson, Brávallagötu 48. Útför mannsins míns, föður og tengdaföður BJÖRNSGUÐBRANDSSONAR er lézt á Landsspítalanum 7. þ.m. fer fram frá Kefla- víkurkirkju laugardaginn 10. ágúst kl. 3 e. h. Unnur Sturlaugsdóttir, börn o gtengdadætur. Kveðjuathöfn um móður mína JÓHÖNNU Þ. JÓNSDÓTTUR frá Tannstaðabakka, fer fram frá Dómkirkjunni í dag, föstu daginn 9. ágúst klukkan 3. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda Guðlaug Dahlmann. Alúðar þakkir mínar og annarra vandamanna fyrir vin- áttu og samúð við andlát og útför eiginmanns míns EINARS GUDMUNDSSONAR, stórkaupmanns Jóhanna Hallgrímsdóttir. Þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför eiginkonu minnar MARGRÉTAR JAKOBSDÓTTUB Fyrir hönd vandamanna Haraldur Þórarinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.