Morgunblaðið - 30.08.1957, Page 1

Morgunblaðið - 30.08.1957, Page 1
44. árgangur. 194. tbl. — Föstudagur 30. ágúst 1957, Prentsmiðja Morgunblaðsins* Afvopnunartillögur Vesturveldanna I heild lagðar fram En Rússar hafna Jbe/m e/nn/g jafn- skjótt og án umhugsunar U tanríkismálanefnd rœð- ir tilmœli íslendinga IjUNDÚNUM, 29. ág. (Reuter). — í dag lögðu fulltrúar Vestur'- veldanna á afvopnunarráðstefnunni fram í heild tillögur sínar um íyrstu skref til afvopnunar. í tillögum þessum er það fólgið 1) að dregið verði þegar í stað verulega úr herstyrk stór- veldanna; • 2) að eftirlit sé haft með því að skerðing herjanna sé efnd og stórveldin afhendi skýrslur um árlegan herbúnaðar . kostnað til alþjóðastofnunar; 3) að stórveldin heiti því að beita ekki kjarnorkuvopnum nema þau hafi orðið fyrir hernaðarárás; 4) að komið sé á alþjóðlegu eftirliti með framleiðsiu kjarn- orkuefna; 5) að tilraunir með kjarnorkuvopn verði stöðvaðar í eitt ár; 6) að bannað sé að senda skeyti upp í háloftin nema í frið- samlegum tilgangi; 7) að gerðar verði sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir óvænta og skyndilega hernaðarárás. Tillögur þessar eru mjög ýtarlegar og í mörgum liðum. Það er tekið fram, að þær séu aðeins fyrsta skref í áttina til afvopnunar og er gert ráð fyrir því, að ef þetta heppnast vel, þá verði innan skamms hægt að hefja miklu víðtækari afvopnun. Eftir að fulltrúar Vesturveldanna höfðu lagt tillögurnar fram, stóð upp Valerian Zorin fulltrúi Sovétríkjanna; flutti hann stutta ræðu þar sem hann hafnaði tillögum þessum skilyrðislaust. Sagði hann að tillögur Vesturveldanna væru einskis virði og bað hann ekki einu sinni um frest til þess að geta grandskoðað þær. Af elnstökum ákvæðum af- vopnunartillagna Vesturveldanna má nefna eftirfarandi: Einu ári eftir að afvopnunar- gamningur er undirritaður, skal herstyrkur stóveldanna tak— markaður svo: Frakkland og Bretland hafi hvort um sig 750 þúsund manna her, en Rússland og Bandaríkin hvort um sig 2,5 miiljóna heri. Síðan skulu stórveldin, ef þau efna vel ofan nefnda skerðingu herstyrksins og ef áfram stefnir í átt til stjórnmálalegs samkomu lags, hefja samninga um að tak- marka herstyrk Rússlands og Bretlands við 1,7 milljón manna. Jafnframt þessari afvopnun skal komið á gagnkvæmu eftir- liti með herstyrk stórveldanna og skulu aðilar afhenda alþjóða stofnun ýtarlegar og endanlegar skýrslur um árleg fjárframlög til herbúnaðar og hvernig þeim fjárveitingum er varið til hinna ýmsu greina herbúnaðarins. Stórveldin skuldbinda sig til að nota kjarnorkuvopn aðeins í sjálfvarnarskyni sé hernaðarárás gerð á þau. Stórveldin skuldbinda sig til að stöðva framleiðslu á kjarn- kleifum efnum til hernaðar- þarfa. Öll framleiðsla á kjarn- kleifum efnum skal lögð undir alþjóðlegt eftirlit. Þau skuld- binda sig einnig til að afhenda ekki öðrum þjóðum kjarnkleif efni til hernaðar. Stórveldin skuldbinda sig til að stöðva allar tilraunir með kjarnorkuvopn í tólf mánuði frá því samkomulag er undirritáð Skal framkvæmt alþjóðlegt eft- irlit með því, að þetta loforð sé efnt. Eftir að þessu tólf mánaða reynslutímabili er lokið skulu aðiljarnir aftur koma saman til að ræða framlengingu bannsins við kjarnorkutilraunum. Mikið sjóslys á La Plata BUENOS AIRES 29. ágúst: (Reuter). — 195 manns er enn saknað eftir sjóslys, sem varð á La Platafljóti í morgun. Árekst- ur varð milli argentíska fljóta- skipsins Ciudad Buenos Aires og bandaríska flutningaskipsins Mormacsurf. Fjöldi farþega var með fljótaskipinu. Yfirvöldin greina frá því, að vonir séu til að nokkur hluti þeirra, sem sakn að er, hafi komizt upp í einhver skip, sem bar að skömmu eftir slysið. Strangir dómar MOSKVA 29. ág. (Reuter). Fyrir nokkru var rússneskur bifreiða- stjóri í fylkinu Kasahstan dæmd- ur til dauða fyrir að aka bifreið ölvaður og valda dauða eins fót- gangandi manns og særa þrjá til viðbótar. Annar bílstjóri hlaut 25 ára fangelsisdóm fyrir að aka bifreið sinni drukkinn í skurð, en við það létu þrír lífið. Þegar fundur Þingmannasambands Norðurlanda var settur í gær. Tryggve Bratteli fjármálaráð- herra Noregs í ræðustólnum við hlið Gunnars Thoroddsen. Norðurlönd hallast að óbeinum sköttum Frá 31. fundi Þingmannasambands * Norburlanda, sem var settur hér i gær KLUKKAN 10 í gærmorgun var 31. fulltrúafundur Þingmanna- sambands Norðurlanda settur í sal Neðri deildar Alþingis. Sækja hann samtals 67 þingmenn frá öllum Norðurlöndum. Eru 11 þeirra , frá Danmörku, 8 frá Finnlandi, 13 frá Noregi, 16 frá Svíþjóð og 19 frá íslandi. Gunnar Thoroddsen, sem er formaður íslenzku fulltrúanefndar- innar setti fundinn með stuttri ræðu. Bauð hann fulltrúana vel- komna og rakti nokkuð sögu þingmannasambandsins. Hann kvað sambandið nú eiga 50 ára afmæli. Það hefði verið stofnað 1907. Væri þetta í þriðja skipti sem það héldi fund hér á landi. Ný vináttubönd Hann kvað margvísleg málefni hafa verið tekin til umræðu á fundum sambandsins. Hefði það átt ríkan þátt í að skapa aukin kynni milli löggjafa Norðurlanda. Af því hefði leitt mikið gagn. Það hefði jafnan staðið trúan vörð um hina norrænu frelsis- hugsjón. Gunnar Thoroddsen lét að lok* um í ljós þá von að þessi fundur, sem haldinn er á íslandi, mætti verða til þess að hnýta enn ný vináttubönd milli þinga og þjóða Norðurlanda. Formenn fulltrúanefndanna voru síðan kjörnir forsetar fund arins. Eru það þeir Gunnar Thor- oddsen, Nils Hönsvald, Noregi, Gunnar Henrikson, Finnlandi, Alsing Andersen, Danmörku og Erik Hagberg, Svíþjóð. Beinir eða óbeinir skattar Þá var tekið fyrir fyrsta um- ræðuefni fundarins: Beinir eða óbeinir skattar. Urðu um það miklar umræður. Framsögumað- ur var fjármálaráðherra Noregs, Tryggve Bratteli, sem tilheyrir Verkamannaflokknum. Flutti hann ýtarlega og fróðlega ræðu. Hallaðist hann mjög að óbeinum sköttum og kvað beinu skattana m.a. hafa þá galla að lama fram- tak einstaklinganna. Erik Hagberg, hægri þingmað- ur frá Svíþjóð tók í sama streng. Ólafur Björnsson prófessor tal- aði næstur. Kvað hann óbeina skatta vera meira tíðkaða á fs- landi en í nokkru hinna Norð- urlandanna. Var hann á sömu skoðun og frummælandi að Framh. á bls. I Kaupmannahöfn 29. ág. — Skeyti frá Páli Jónssyni. ÞEGAR utanríkismálanefnd danska þjóðþingsins kom saman í dag lýsti H. C. Hansen því yfir að ríkisstjórn hans teldi rétt að verða við tilmælum fslendinga að skipa nefnd til að ræða handritamálið. Nefndarmenn hétu að leggja máli fyrir flokka sína. Síðan var fundi frestað. Formenn fulltrúanefndanna á 31. þingi Þingmaunasambands Norðurlanda. Talið frá vinstri: Erik Hagberg, Svíþjóð, Alsing Andersen Danmörk, Gunnar Thoroddsen, Island, Nils Hönsvald, Nor- egur, og Gunnar Henriksson, Finnland. — Ljósm. Vigfús Siggeirsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.