Morgunblaðið - 30.08.1957, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 30.08.1957, Qupperneq 11
Föstudagur 30. ágúst 1957 MORCVNBLAÐIÐ II Frú Cuðný Cunnarsdóttir Minningarorð Það hefur einhver drepið,.., FJÖGUR alvarleg andlit birtust í anddyri Morgunblaðsins í gær- morgun. „Við fundum þennan fugl í Tjörninni oj* það hefur einhver drepið hann“, sögðu krakkarnir, sem voru með ræfil af fugli sennilega stelk, og var tvinni bundinn um háls hans. Keflið hékk enn við. „Amma mín gaf mér brauð í morgun til þess að fara niður að Tjörn og gefa öndunum. Þá fann ég þennan fugl“. Það var Axel Björnsson, Barmahlíð 46, 6 ára, sem þannig gerði grein fyrir aðdraganda máls þessa. Fx-ænka hans, sem heitir Henný Hjördís Sigurðar- dóttir 9 ára, Réttarholtsvegi 57, og var með frænda sínum er þetta gerðist staðfesti að Axel litli færi rétt með og bætti við: „Lögreglumaður sem við hittum, sagði okkur að við skyldum fara með dauða fuglinn og láta koma mynd af honum í Morgunblaðinu, því hér hefði ljótur verknaður verið framinn á vesalings fugl- inum“. Ljósmyndarinn tók við fuglinum. Með þeim frændsyst- kínum voru tvær telpur eldri, sem fylgt höfðu þeim gegnum Miðbæinn niður á Morgunblað. Nokkra stund var rætt um hve gaman væri að gefa fuglunum á Tjörninni brauð, og þá jafnframt hörmulegt ‘til þess að vita að til er fólk sem getur farið svona með litla fugla. SILFURÞRÁÐURINN slitnar og gullskálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn og moldin hverfur aftur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs, sem gaf hann. Þegar vér menn hugsum um þessi orð hins forna spekings, fær oss ekki dulizt sannleikur þeix'ra, þótt þau séu sett fram á skáldlegan hátt og ívafin líkinga- máli. Þau færa oss sígildan boð- skap í daglegu starfi lífsins, um- svifum þess og baráttu fyrir líf- inu. Margt fær brugðizt oss á lífs- leiðinni, en eitt er áreiðanlegt: vér hverfum öll innan skamms af sjónarsviði jarðlífsins, þegar stundin kemur, og hún getur komið fyrr en nokkurn grunar. Daglega erum vér skammsýnir menn minntir á þennan eilífa sannleika. Vér erum aðeins duft og aska, hversu hátt sem vér kunnum að ná í stiga mannfé- lagsins. Vér erum allir dauðlegir. Þessi orð mín eiga að verða minningarorð um eina af hús mæðrum þessarar þjóðar, sem vann kyrrlátt starf innan vé banda heimilisins af þreki og dugnaði meðan orkan entist. Snemma voru frú Guðnýju Gunnarsdóttur innrætt þau verð- mæti, sem reyndust henni hald- bezt í baráttu lífsins, stríði þess og erfiðleikum, en einnig sigrum þess. Yfir heimili og börnum vakti hún síðar með kærleika og ósér- plægni. Og hvaða betri vitnis- burð er hægt að gefa hinni horfnu samferðakonu en þenn- an? í þessu sambandi má minnast hins fornhelga orðs, þar sem seg- ir um góða konu: hún vakir yfir heimili sínu .'. . Og hún á enga ósk betri en þá að vita að börn hennar framgangi í sannleika. Þegar góð kona, eins og frú Guð- ný Gunnarsdóttir, kveður og hverfur að sýnilegum návistum er söknuðurinn eðlilega sár í hjörtum ástvinanna: eftirlifandi eiginmanns, er kveður hjartkæra Frú Cuðrún Hafliðason Fáein minningarorð ÞANN 9. ágúst s. 1. andaðist frú Guðrún (Bjarnadóttir) Hafliða- son að heimili sínu í Winnipeg. Er þar til moldar gengin gagn- merk kona og góður fulltrúi ís- lenzkra húsmæðra í Vesturheimi. Frú Guðrún var fædd að Pfest- bakka á Síðu 1. janúar 1888, dótt- ir hjónanna, frú Ingibjargar Einarsdóttur (systur Sigfúsar tónskálds) og sr. Bjarna Þórarins- sonar (bróður sr. Árna og Ágústs kaupmanns í Stykkishólmi). Laust eftir síðustu aldamót flutti Guðrún til Kanada, um þær mundir er foreldrar hennar tóku sér bólfestu þar, en sr. Bjarni gerðist þá þjónandi prestur í Winnipeg. Ung að árum giftist hún Jóni Hafliðasyni trésmið í Winnipeg, dugandismanni og góð um dreng, sem lifir konu sína ásamt með fimm uppkomnum börnum. Guðrún bar glögg ættarein- kenni. Hún var kona greind, Fundur félagsmála- ráðherra STOKKHÓLMI, 28. ágúst. (NTB) •>— Á mánudag hófst í Stokkhólmi fundur félagsmálaráðherra Norð urlanda. Eru fundirnir haldnir í boði Torsten Nilsson félagsmála- ráðherra Svíþjóðar. Um 50 full- trúar á sviði félagsmála af öll- um Norðurlöndum sitja fundinn. Aðalumræðuefnið var stytting vinnutímans. virðuleg í framgöngu og kvenna kurteisust. Segja má, að heimili þeirra hjóna væri í þjóðbraut, þar sem gestir og gangandi áttu jafnan vísan beina. Mun ég mæla fyrir munn margra Austur-ís- lendinga, þegar ég sendi þessari konu hinztu kveðjur, og hef ég þá í huga allar þær ánægjustund- ir, sem við nutum á heimili henn- ar, þá er við gistum Winnipeg um lengri eða skemmri tíma. Vinum og ættmennum frú Guð- rúnar finnst nú skarð fyrir skildi, en hér tjóar ekki að deila við dómarann, heldur skylt að hafa í heiðri minninguna um góða konu, sem naut trausts og virð- ingar allra þeirra, sem kynntust henni. H. B. eiginkonu eftir 42 ára samvistir, og barnanna, er sjá á bak ást- ríkri móður sinni, og barnabarna. En þegar vér skyggnumst lengra, sjáum vér, að í raun og veru er hér engin ástæða til sorgar 'eða saknaðar, því vissan um það, að hinn burtfarni ástvinur hafi fullnað skeiðið, hafi komið heim úr reynslu og þregningu jarðlífsins, hlýtur miklu fremur að vekja gleði syrgjendanna en ekki sorg. Og þegar hugsað er um hve liðið var á æviár húsfrú Guð- nýjar, þá virðist að hvíldin frá jarðnesku ævistarfi sé eðlileg. Dauðinn er því eðlilega eina lausnin, lausn, sem oft er kær- komin. f dag er því kvödd frá Fossvogskapellu ástrík kona, sem bar gott fram úr góðum sjóði hjartans. Fædd var frú Guðný Gunnar.s- dóttir 24. júlí árið 1893 í Nausta- vík í Ljósavatnshreppi í Suður- Þingeyjarsýslu. Fluttist hún nokkurra ára með foreldrum sín- um til Húsavíkur og ólst þar upp. 1916 giftist hún Guðjóni Jóns- syni verkamanni á Akureyri og bjuggu þau hjónin þar í 23 ár, en fluttust hingað suður til Reykjavíkur árið 1935. Eignuðust þau hjónin 8 börn. Af þeim lifa 7. Fimm þeirra eru búsett hér í bænum, eitt dvelst erlendis. Silfurþráðurinn slitnar og gull- skálin brotnar og skjólan mölvast við lindina og hjólið brotnar við brunninn og moldin hverfur aft- ur til jarðarinnar, þar sem hún áður var, og andinn til Guðs, sem gaf hann. Moldin hverfur aftur til jarð- arinnar. Þetta er aukaatriðið. Hitt er aðalatriðið, að andinn hverfur til Guðs, sem gaf hann. Þegar andvana líkami frú Guð- nýjar Gunnarsdóttur er í dag fluttur frá heimili hennar og í kirkjugarðinn, í móðurskaut jarð ar, þá virðist mér, sem þeir eigi mikla huggun, sem eftir lifa, er þeir virða fyrir sér líf hennar og starf. Við lát góðrar konu er því í raun réttri lítið tilefni til sorgar því vissan um það að hin látna kona, sé komin heim frá þreytu og baráttu jarðlífsins, heim til hinna eilífu bústaða, hlýtur að vekja gleði vora en ekki sorg. Þetta á að vera huggun ástvina frú Guðnýjar Gunnarsdóttur á útfarardegi hennar og alla daga meðan þeir hugsa til hennar og um líf hennar og starf. Og betra vegarnesti er ekki hægt að gefa, þegar gengið er frá gröf hennar á þessum síðsumars- degi, á þessum bjarta og fagra ágústdegi, sem er minnisstæður sökum tregans og sársaukans, sem á vissulega að hverfa úr hjörtum syrgjandi ástvina. Og ef þessi fáu orð geta orðið einhverjum syrgjendum til hugg- unar, þá hafa þau eigi verið til einskis fest á pappírinn, þótt þau fyrnist eins og allt annað. Guð gefi að minning frú Guð- nýjar Gunnarsdóttur geymist og varðveitist björt og hrein í hjört- um ástvina hennar og vina. Vinur. UngSinga vantar til blaðburðar við Hverfisgata II Freyjugötu Sendisveinn • Sendisvein vantar okkur nú þegar. Þyrfti að hafa rétt til að aka hjóli með hjálparvél. Aðeins kemur til mála að ráða sendisvein, sem yrði vetrarlangt. Upplýsingar í skrifstofu vorri. SÖlusamband ísl. fisktramleiðenda Byggingalóð Vil kaupa lóð eða lóðaréttindi fyrir íbúðas'hús (helzt einbýlishús) í vesturbænum, eða góðum stað annarsstaðar í bænum. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir 3. sept. auðkennt: „Byggingalóð —7843“. ðdýrar 3ja herbergja íbúðir Hafnar eru framkvæmdir við 8 hæða fjölbýlishús við Ljósheima, í þeim tilgangi að byggja ódýrar og hagkvæmar íbúðir af hóflegri stærð. Einstaklingar og félagssamtök er áhuga kynnu að hafa á því að tryggja sér íbúðir í húsinu, hafi góðfúslega samband við skrifstofu vora. Upplýsingar ekki veittar í síma. Fjölvirki sf. Laugavegi 27, II. hæð. ÚTSALA 25%-75% lækkun í dag verða teknar fram vörur, sem ekki hafa verið á útsölunni áður. Telpnapils — Blússur sett. Kvenbuxur nælon, prjónasilki, Kvenúlpur Karlm.-sportblú^sur nælon. Karlmanna nærföt. Barnaregnkápur Barnafrakkar Barnahúfur Drengjavinnubuxur Drengjapeysur Athygli viðskiptavina skal sérstaklega vakin á því, að þessar vörur hafa ekki verið á útsölunni áður. Laugaveg 22 — Inng. Klapparstíg. Sími: 1-2600.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.