Morgunblaðið - 08.09.1957, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.09.1957, Blaðsíða 1
16 siður og Lesbók Lík Mussolinls fasistaleifftoga var flutt I fjölskyldugrafreit fyrir nokkrum dögum. Grafreit- urinn er í San Cassina, 15 km frá fæðingarbæ einræffisherrans, Forli. Viff enda kistunnar stendur ekkja Mussolinis, tvær dætur hans, þ. á m. Edda Ciano, ekkja utanríkisráðherra Mussolinis, og Romano Hussolini, sonur hans. — Mennirnir í svörtu skyrunum eru fasistar, sem ekkert hafa lært og engu gleymt. Sjö rússnesk herfylki halda Ungverjum í járngreipum VÍNARBORG, 7. sept. — Sjö rússnesk herfylki og leynilög- regla, sem er algerlega undir rússneskri stjórn, halda Ung- verjalandi í járngreipum nú, 10 mánuðum eftir þjóðarupp- reisnina. Þetta verður að lík- indum dregið enn frekar fram í dagsljósið, þegar Alls- herjarþing S. Þ. kemur sam- an á þriðjudaginn til að ræða Ungverjalands-skýrsluna, en niðurstöður hennar eru þær, að leppstjórn Kadars tali ekki fyrir munn þjóðarinnar og haldi völdum í skjóli rúss- veginn fara, jafnt útlenda sem innlenda. Lögreglan hefur stöffugar gæt- ur á öllum útlendingum í Ung- verjalandi. Hótelherbergl þeirra eru rannsökuff, meffan þeir eru fjarverandi, og hlustað er á öll símtöl þeirra. Oft er útlendum karlmönnum fylgt eftir af falleg- um kvennjósnurum. Þjóffarótti í höfuðborginni eru rússnesk- ir hermenn ekki mjög áberandi en á hernaðarlega mikilvægum stöðum fyrir sunnan og vestan borgina eru sjö rússnesk her- fylki. í Búdapest eru búðirnar fullar af vörum, og á veitingahúsum er jafnvel hægt að fá skozkt viskí. En þetta er aðeins sýndarfyrir- bæri, því ríkisstjórnin leggur sig í líma til að láta lita svo út, að í landinu sé velmegun. Kjör verkamanna hafa stórversnað, þar sem verð hefur hækkað mjög, en laun standa í stað. Eitt hið hörmulegasta, sem austurriski vezlunarmaffurinn sá, var stöðugur ótti fólksins við leynilögregluna. Á götunum gæta menn þess að sneyffa vandlega hjá útlendingum og gefa sig aldrei á tal viff ókunnuga. Þrátt fyrir óþreytandi við- leitni Kadars við að vinna hylli fólksins hefur honum ekki tekizt að vekja traust þjóðarinnar. I kommúnistaflokknum eru aðeins 360.000 meðlimir eða bara þriðj- ungur meðlimatölunnar fyrir byltinguna. Talið er, að óveru- legur liluti núverandi meðlima flokksins taki virkan þátt í gtarf- semi hans. Ræningjar ná dem- antnámu á sitt vald FREETOWN, 7. sept. — Óeirðir hafa verið að undanförnu í brezku nýlenduni Sierra Leone á vesturströnd Afríku. Gerðist sá atburður þar nýlega, að fjöl- mennur hópur ræningja réðst á demantanámur Breta í Yengema. Voru ræningjarnir svo fjölmenn- ir, að lögreglan gat ekkert að- hafst. Tóku ræningjarnir nám- una á sitt vald, brutu upp öfluga stálskápa, sem verulegt magn af demöntum var geymt í, einnig notuðu þeir tækifærið og tóku að vinna demanta úr jörðu. Það er loks hú sem tekizt hef- ur -að ná námunni úr höndum ræningjanna, en þeir munu hafa tekið á brott með sér demanta að verðmæti mörg milljón sterlings- pund. Þessir atburðir munu verða til St. Laurent lætur af forystu OTTAWA, 7. sept. — S. Laur- ent, fyrrum forsætisráðherra Kanada, hefur tilkynnt, að hann hafi ákveðið að láta af forustu frjálslynda flokksins. Sagðist hann miyidu gegna áfram embættum sínum í flokknum þar til að flokkurinn hefði komið sér þess að lögreglugæzla í demanta- héruðum verður stórlega efld í framtíðinni. Og verður nú látið til skarar skríða að hindra ólög- legt demantanám, sem mikill fjöldi ævintýramanna frá Evrópu hefur stundað í þessum héruðum, en það voru einmitt þeir sem höfðu samtök um árásina á nám- una í Yengema. „Andbyltingar- seggir“ líflátnir PEKING, 7. sept. — Kínverska kommúnistastjórnin hefur skýrt svo frá, að þrír „andbyltingar- seggir“ sem fundir voru sekir um að hafa staðið fyrir uppreisn í skóla einum í Mið-Kína í júni sl., hefðu verið líflátnir. Aðrir þátttakendur uppreisnarinnar hlutu fangelsisdóma frá 5 til 15 ára. Voru það bæði kennarar og nemendur. Sl. mánuff skýrffi kínverska fréttastofan svo frá, aff 1000 stúd entar hefðu tekið þátt í uppreisn- inni, sem var bæld niður eftir tvo daga. Hefffu þeir ráðist á stöffvar kommúnistaflokksins í héraðinu, móðgað flokksmenn og veriff meff andkommúniskan áróffur og krafizt endurkomu kín versku þjóffernissinnastjórnarinn ar. St. Laurent Molotov afhendir embættisbréfiá PEKING, 7. sept. — Kínverksa fréttastofan skýrir svo frá, aff Molotov sé kominn til höfuðborg ar Mongólíu og hafi afhent yfir- völdurn Mongólíu embættisbréf sitt, en Molotov hefur sem kunn- ugt er, veriff skipaður sendiherra Ráðstjórnarinnar í Mongólíu. — Segir í fréttinni, aff kona Molo- tovs hafi veriff í för meff honum. Soud í shyndi- heimsókn Hernaðaraðsfoðinni fagnað neskra vopna. Vestrænir stjórnarerindrekar í Vín og ferðamenn, sem komið hafa heim frá Búdapest undan- farið, skýra svo frá, að ógnar- stjórn kommúnista hafi gert ungversku þjóðina algerlega sinnulausa. 20.000 í þrælabúðum Samkvæmt opinberum tilkynn- ingum leppstjórnarinnar hafa 200 manns veriff líflátnir fyrir „gagnbyltingarstarfsemi“, en kunnugir telja, aff tala þeirra, sem látiff hafa lífiff fyrir þátt- töku í þjóffaruppreisninni, sé a. m. k. 2000. Samkvæmt áreiff- anlegum heimildum eru ekki færri en 20.000 and-kommúnist- ar í einum þrælabúffum rétt fyrir utan Búdapest. Austurrískur verzlunarmaður, sem er nýkominn frá Ungverja- landi, segir að sér virðist ógnar- stjórn lögreglunnar verri nú en nokkru sinni, meðan stalinistinn Rakosi var við völd. Ennþá eru vegartálmar á þjóðveginum milli Vínar og Búdapest, og rússnesk- ir og ungyerskir hermenn skoða í sameiningu alla bíla, sem um WASHINGTON, 7. sept. — Eisenliower forseti kom i dag til Washington úr stuttu leyfi. Mun hann ræða í dag viff Dulles og Henderson um ástandiff fyrir botni Miðjarðarhafsins — og einnig er búizt viff því, aff hann muni taka til athugunar atburð- ina í Arkansas. Washingtonfréttaritarar segja, að meðal stjórnmálamanna þar ríki almenn ánægja með ákvörðun stjórnarinnar að hraða vopna- sendingum til nokkurra landa fyrir botni Miðjarðarhafsins, til þess að reyna að stemma stigu fyrir frekari ítökum kommún- ista i þeim heimshluta. Mikill ótti virðist ríkja meðal stjórnmálamanna á Vesturlönd- um um að Sýrlendingar kunni að beita vopnum gegn ná- grannaríkjunum, ef ekki er tryggt, að nágrannarnir hafi í fullu tré við Sýrlendinga hvað hernaðarstyrkleika viðvíkur. Utanríkisráðherra Ástralíu hef- ur lýst yfir fögnuði sínum yflr því, að Bandaríkin hafi tekið þessa ákvörðun. NÝJA DEIILI, 7. sept. — Seffla- banki Indlands hcfur varað stjorn landsins opinberlega við vaxandi erfifflcika í fjármálastjórn landsins. Krefjast forráðamenn bankans,.að fimm ára áætlunin verffi endurskoffuð og markiff ekki sett eins hátt og áffur. Segir og aff vaxandi þörf sé nú fyrir er- lenda affstoð. Fréttaritarar í Nýju Dehli skýra svo frá, að mikiff hafi að undanförnu verið rætt um að afnema fimm ára á- ætlunina, a. m. k. á sumum svið- um. saman um arftaka .hans. Hann kvaðst vera farinn að heilsu og ekki búa lengur yfir styrk og þreki til þess að standa í broddi fylkingar í kosningabaráttunni. St. Laurent er 75 ára að aldri og hefur verið leiðtogi frjáls- i lynda flokksins síðan 1948. Fjármálaráffherrann indverski fer innan nokkurra daga til Bandaríkjanna, Kanada, Bret- lands, Sviss og Vestur-Þýzka- lands til þess aff reyna aff afla fjárhagsaffstoðar. Allt á huldu LONDON, 7. sept. — Franski full trúinn í undirnefnd afvopnunac- nefndar S.Þ., sem setið hefur á rökstólunum í London um langt skeið, er nú kominn heim. Stass- en og Zorin ferðbúast einnig — og ekki er vitaff til þess aff þeir munu hittast áður en þeir halda heimleiðis. B E IR U T, 7. sept. — Saud Arabíukonungur kom í skyndi- heimsókn til Líbanon í morgun. Ekkert hafffi veriff tilkynnt um komu hans fyrirfram, en senni- legt þykir, aff hann ætli aff ræffa viff stjórn Líbanons um heim- sókn Hendersons og ástandiff í Sýrlandi. Forseti Líbanons svo og forsætisráffherra og utanríkisráð- herra tóku á móti Saud konungi á flugvellinum. Ekki hefur veriff tiikynnt neitt um þaff, hve lengi komungurinn mun dveljast i land inu. Uffanríkisráðherrafundur OSLÓ, 7. sept. — Arbeiderbladet skýrir svo frá, að utanríkisráð- herrar Norðurlandanna fimm komi saman til fundar í Osló á mánudag og þriðjudag. Ekki kveður blaðið efni fundarins kunnugt. Fundir utanríkisráð- herranna eru orðnir föst venja á þessum tíma, þ. e. skömmu áð- ur en Ailsherjarþing S.Þ. kemur saman til fundar. Venjulega hafa á fundunum verið rædd mál, sem þingið mun taka til meðferðar. Yerður fimm ára áætlunin afnumin ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.