Morgunblaðið - 08.09.1957, Síða 9

Morgunblaðið - 08.09.1957, Síða 9
Sunnudagur 8. sept. 1957 MORCVISBI AÐIÐ 9 Náttúrufegurð er mikil þar sem Sogið feliur úr Þingvallavatni um Þrengslin. — Á naestu árum _ þegar virlcjun Efra-Sogs er lokið — er líkiegt að áin verði ekki eins svipmikil og hún er nú. (Ljósm.: Sig. J.) REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 7. sept Gott erindi Á norræna þingmannamótinu í fyrri viku flutti Davíð Ólafs- son fiskimálastjóri prýðisgott er- indi um friðun fiskimiðanna og Stærð landhelginnar frá sjónar- miði íslendinga. Davíð er einn hinna yfirlætislausu manna, er gerkynnir sér öll mál, sem hann á um að fjalla. Betri málsvari í þessum efnum varð þess vegna ekki fundinn á landi hér. Okk- ur íslendingum er- lífsnauðsyn að skýra skoðanir okkar á þess- um efnum fyrir erlendum valda- mönnum ,er á vilja hlýða. Aðstæð ur okkar og hagsmunir eru að ýmsu leyti ólíkir því, sem á hin- um Norðurlöndunum er. Fásinna væri að ætla, að eitt erindi eyddi þeim skoðanamun, sem er fyrir hendi. En dropinn holar steininn, og við megum aldrei sitja okkur úr færi með að útskýra þetta mál, sem úrslitaþýðingu hefur um framtíð íslenzku þjóðarinnar. Ekki íhaldsflokkur Tíminn hefur miklar áhyggjur yfir því, að norrænir íhaldsmenn, sem hingað komi, muni ekki vera ánægðir með Sjálfstæðisflokkinn sem íhaldsflokk. Það er hverju I orði sannara, að Sjálfstæðis- flokkurinn er að eðli ólíkur íhaldsflokkunum á hinum Norð- urlöndunum. Að vísu er sumt sameiginlegt með Sjálfstæðis- flokknum og þessum flokkum. Þeir hafa allir skilning á nyt- semi heilbrigðs atvinnulífs og frjálsræðis. En styrkur þeirra og fylgi með þjóðinni er miklu rýr- ara en Sjálfstæðisflokksins, þeir eru ekki almenningsflokkar á borð við Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hafa mest um eða innan við 20% af fylg'i kjósendanna, en Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú yfir 42%, og áratugum saman hefur fylgi hans verið einhvers- staðar nærri 40%. Sjálfstæðis- flokkurinn jafnast að stærð á við hina fjölmennu sósíaldemo- kratisku flolcka á Norðurlöndum. Rætur Sjálfstæðisflokksins í ís- lenzku þjóðlífi eru ekki síður víðgreindar og styrkar en þess- ara jafnaðarmannaflokka, sem lengi hafa ráðið mestu í heima- löndum sínum. Ef Skúli getur það ekki Jíá hver? Það er ámóta vonlaust, að ætla að stjórna íslandi til lengdar án atbeina Sjálfstæðisflokksins, eins og það væri á hinum Norð- urlöndunum að hafa ráð sósíal- demókratisku flokkanna að engu. Það er e. t. v enn fráleitara hér en þar, því að fylgi Sjálfstæðis- flokksins er ekki jafnstéttbund- ið sem hinna. Áhrifa hans gætir víðar í þjóðfélaginu en þeirra. Getuleysi núverandi stjórnar- flokka, til að ráða fram úr vanda málum þjóðfélagsins, sprettur m. a. af skilningsskorti þeirra á þessu. Suma forystumenn Al- þýðuflokks og Framsóknar sár- langar að vísu til þess, að Sjálf- stæðismenn væru ekki hlutfalls- lega fjölmennari en íhaldsmenn eru annars staðar á Norðurlönd- um. Þá væri mun hægara að ein- angra þá, en raunin hefur á orðið hér. Hræðslubandalagsbroddarnir ráða sjálfir óskum sínum, en þeir búa sjálfum sér bráðan voða, ef þeir rugla óskunum saman við veruleikann. Menn, sem ekki skilja uppbyggingu íslenzks þjóð félags né eðli stjórnmálabarátt- unnar hér á landi, standa að von- um uppi úrræðalausir, þegar þeir fá völdin Þannig hefur farið fyr- ir núverandi valdhöfum. Skúli Guðmundsson er manna skarpastur í þeirra hóp og oft orðheppinn. En þegar hann á fundi austur á landi 'átti að fara að verja gerðir núverandi rík- isstjórnar, varð honum orðvant. Hann gat aðeins spurt: Ef nú verandi ríkisstjórn getur það ekki, þá hver? Svona mundi Skúli ekki spyrja, ef hann yfirgæfi draumaland ósk hyggju Hræðslubandalagsins og hyrfi inn á hin hversdagslegu lönd veruleikans. Þá mundi hann skilja, að þeir, sem sniðganga Sjálfstæðisflokkinn, yfirgefa þar með mestu framfara- og uppbygg ingaröfl þjóðfélagsins. Þess vegna standa Hræðslubandalags- broddarnir nú úrræðalausir á berangri og jafnvel Skúli Guð- mundsson finnur engin rök þeim til varnar. Og ef Skúli getur það ekki, þá hver? Skriðan ekki auðstöðvuð í hárri fjallshlíð er oft auðvelt að koma skriðu af stað en erfitt að stöðva hana, þegar hreyfing er á orðin. Með svipuðum hætti hefur orðið í kaupgjalds- og verð | lagsmálunum. Kommúnistar og l að nokkru leyti Alþýðuflokks- menn hafa áratugum saman alið á kröfuhörku og stéttatogstreitu. Sjálfir vissu þeir, að þetta var ekki fyrst og fremst gert með hagsmuni stéttanna fyrir augum heldur i annarlegum tilgangi, til að efla eigin flokka og grafa und- an þjóðskipulaginu. .Ef öllum al- menningi hefði verið þetta jafn- ljóst og forystumönnunum sjálf- n, þá hefði hann ekki fylgt þeim í svo ríkum mæli og orðið hefur. En þessum forystumönnum hef ur ekki einungis tekizt að blekkja almenning heldur einnig sjálfa sig. Þeir héldu, að stéttarfélögin væru eins og vax í þeirra hönd- um og um leið og þeir sjálfir vildu stöðvun kröfuskriðunnar, mundi kyrrð komast á. Ætlun þeirra var sú, að fá stöðvuninni framgengt á meðan þeir væru sjálfir við völd og framlengja völdin sem mest með því að hóta þjóðfélaginu nýju skriðufalli, ef menn vildu losna við þá úr valda- stólunum. Tímirm vanrækti afsökunina Til þess að gera skilninginn á þessu svo öflugan sem nauð- syn er á, þarf langt starf allra þjóðhollra manna. En við það má ekki gefast upp, því að þekk ing á staðreyndunum og hinu sanna samhengi þeirra er undir- staða lýðræðisins. Vandinn er einungis aukinn með því að leita skjóls í ósannindum á þann veg sem Tíminn hefur löngum iðk- að. Þess vegna bólgna vandamál- in yfirleitt út í höndum Fram- sóknarmanna í stað þess að hjaðna og verða viðráðanleg. Það er t.d. ekki von, að þeir ráði við verkföllin og verðbólguna, ef þeir telja sjálfum sér trú um, að hvort tveggja sé fyrst og fremst Sjálf- stæðismönnum að kenna. Eitt sönnunargagnið fyrir þeirri falskenningu var lengi vel í sumar það, að Morgunblaðið hefði hælzt um yfir uppsögn samninga Sjómannafélags Reykja víkur í vetur og sagt, að ef stjórn arliðar hefðu ráðið þar, þá mundi ekki hafa úr henni orðið. Þau ummæli, sem þar var átt við, voru orð Alþýðublaðsins en ekki Morgunblaðsins. Alþýðublaðið hafði ekki hælzt um yfir valda- leysi stjórnarliða' heldur komm- únista, enda hafa Alþýðuflokks- menn einir hreinan meirihluta í stjórn Sjómannafélags Reykja- víkur. Sýnt var fram á hvernig þessi ósannindi Tímans voru til örðin, og hefur hann ekki haft kjark til að ítreka þau síðan, en skort drenglund til að biðja afsökunar á fljótræði sínu eða ósannindahneigð. austur-þýzkri yfirhjúkrunar- konu: „En verst er að þurfa að vara sig, þegár maður talar, geta ekki treyst þeim, sem maður talar við, geta ekki sagt hug sinn, það er verst“. Með sama hætti vitnaði skák- snillingunnn Benkö í frelsis- skortinn, sem gerði óþolandi að lifa í Ungverjalandi. Og í Ung- verjalandsskýrslu Sameinuðu þjóðanna segir ung stúlka, að á- stæðan fyrir þáttöku æskulýðs- ins í uppreisninni hafi verið sú, að hann var fjötraður af lyginni. Það voru þeir lygafjötrar, sem reyndust óþolandi. Hér á landi er sem betur fer enn ólíku saman að jafna við það, sem í kommúnistaríkjunum er. En þróunin gengur í sömu ógæfu-átt. Við þeim ófarnaði verða allir góðir menn að gjalda varhug. Ungverjalands- Varnarveggurimi Þetta fór á allt annan veg, en valdabraskararnir höfðu ætlað. Þeir höfðu sett af stað öfl, er þeir réðu ekki við, og gátu ekki stöðv- að eftir eigin geðþótta. Þess vegna hafa nú á einu ári a. m. k. á 14. þúsund launþegar fengið meiri eða minni kauphækkanir, sumir gífurlegar, og verðbólgan hefur óðum magnazt. Gegn þessu stoða engin skyndiúrræði eða valdboð eins eða neins. Á sama veg og tillitslaus kröfuharka hef ur verið alin upp áratugum sam- an, þá verður hún ekki kveðin niður nema með þolgóðri fræðslu um hið sanna samhengi efnahags málanna. Enginn skyldi vænta þess, að árangur þeirrar fræðslu kæmi fram fyrr en eftir alllang- an tíma. Þess vegna sögðu Sjálf- stæðismenn strax fyrir kosningar þau sannindi, að una yrði bráða- birgðaráðstöfunum í efnahagsmál unum, þangað til almenningur hefði skilið, að af atvinnuvegun- um verður ekki tekið meira en þeir raunverulega afla. Aukin fræðsla og skilningur á samhengi orsakar og afleiðingar er sá eini varnarveggur, sem hér dugar til lengdar. Ræða Jólianns Signrðssonar f stað afsökunarbeiðni hefur Tíminn síðustu vikurnar enn oft- ar en fyrr ítrekað, að Bjarni Benediktsson hafi samið ræðu“, sem hann hafi síðan „látið“ Jó hann Sigurðsson flytja á Dags- brúnarfundi í vor. Þessi fullyrð- ing hefur nú verið endurtekin vikum saman æ ofan í æ í mis- munandi samböndum og með ó- líku orðalagi, en efnið ætíð hið sama. Ekki hefur verið hirt urn að svara henni fyrr, því eins og hyggilegt er að eyða einni mein dýrategundinni í einu, þá þótti rétt að rekja fyrst hvernig ó- sannindm um Alþýðublaðsum mælin voru til komin og snúa sér síðan að þessum. Sannleikurinn er sá, að Bjarni Benediktsson og Jóhann Sigurðs- son hafa aldrei talazt við, hvað þá, að Bjarni Benediktsson hafi „sarnið" nokkra ræðu fyrir hann eða „látið" Jóhann gera eitt eða annað. Jóhann Sigurðsson er einn af hinum frjálshuga verkamönnum, sem ekki lætur segja sér fyrir um skoðanir sínar eða athafnir á vettvangi stjórnmálanna. Hann er maðui einarður og málsnjall, fyllilega fær um að semja ræður sínar sjálfur. Þess vegna hafa kommúnistar lagt sérstaka stund á að níða hann og rægja. Undir þann róg hefur Tíminn tekið síð- ustu mánuðina og var raunar ekki annars að vænta úr þeirri átt. „Verst að þurfa að vara sig, þegar maður talar44 Þvílík viðbrögð við frjáls- hyggju verkamanna hafa alveg öfug áhrif. Kommúnistar héldu, að í löndum sínum gætu þeir ráðið óskum og hugsunum þegn- anna. Afleiðingarnar eru nú að koma í ljós. Thor Vilhjálmsson hefur í Þjóðviljanum þetta eftir í Englandi Einmitt vegna þess, að vald- hafarnir vita, að málflutningur þeirra líkist um sumt of mikið því, sem tíðkað er í einræðis- löndunum, þora þeir ekki að láta þýða Ungverjalandsskýrslu Sam- einuðu þjóðanna á íslenzku og gera hana almenningi hér að- gengilega. Brezka stjórnin hefur nýlega látið prenta skýrsluna á opinberan kostnað og selur hana nú vægu verði. Eins hefur hún látið gera stuttan útdrátt úr henni, svo að enginn þurfi að ótt- ast stærð hennar né verð, held- ur geti allir kynnzt meginatrið- um þessa stórmerka vitnisburðar. Vonandi sjá lýðræðissinnar inn an stjórnarflokkanna að sér i þessum efnum og knýja stjórnina til að gefa skýrsluna, eða a.m.k. útdrátt svipaðan því, sem í Bret- landi hefur verið gerður, út á íslenzku. Slík útgáfa kann að hafa varanlega þýðingu fyrir fræðslu íslenzks almennings um hið sanna eðli kommúnismans. Verður kommún- isti sendur á þing S.þ.? Áliti íslenzku þjóðarinnar út á við er bráð hætta búin, ef úr þeirri ráðagerð verður, að senda kommúnista á það þing Samein- uðu þjóðanna, sem hefjast skal upp úr miðjum september. En þar á að ræða Ungverjalandsmál- in og sök kommúnista á ógæfu hinnar ungversku þjóðar. Fyrsta sending kommúnista á fulltrúum þeirra til þess þings var í rúss- nesku flugvélinni, er lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir 2—3 dögum. Vonandi er það ekki fyr- irboði þess, að frá íslandi eigi að koma hinn eini kommúnist- iski fulltrúi á þetta þing frá löndum vestan járntjalds. Á því er þó yfirvofandi hætta. Kommúnistar telja sig ekki sið- ur nú en i fyrra eiga rétt til fulltrúa á þing S.Þ. Sannast hér sem fyrr, að sá, sem gefur ljóta karlinum litla fingurinn, hefur misst alla hendina áður en varir. E. t. v. verður það þó íslending- um til björgunar að þessu sinni, að ríkissjórnin hefur orðið vör mikillar óánægju frá öðrum lýð- ræðisþjóðum, ef úr þessari fyrir- ætlun verður. Sannarlega óskar enginn þjóðhollur fslendingur þess, að stjórnin lúti áhrifum er- lendis frá. En úr því að velsæm- istilfinning stjórnarliðsins endist ekki til þess að útiloka kommún- ista, þá er þess að óska, að frem- ur verði látið undan almennings áliti meðal lýðræðissinnaðra þjóða en kröfum kommúnista. Framh. á bls. 10

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.