Morgunblaðið - 14.09.1957, Page 3
Laugardagur 14. sept. 1957
MOftGinvnr 4 ðið
3
Bœrinn Cröf í Örœfum
grafinn úr gleymsku
Merkar rústir, sem veifa mikla frœðslu
um þróun byggingarlisfar á Islandi
GÍSLI GESTSSON safnvörð-
ur kallaði á blaðamenn í gær
og skýrði þeim frá merkileg-
um fornleifafundi, sem nu
hefði verið lokið rannsókn á.
Málavextir eru þeir, að 1955
gerðu menn kartöflugarð .við
bæinn á Hofi í Öræfum og
Þegar fjósið og hlaðan höfðu
fundizt í kartöflgarðinum vaa-
hafin leit að bæjarhúsunum sjálf
um og fundust þau ásamt úti-
húsum. Þau eru um það bil 100
m. frá fjósinu. Ef bæjaröðin er
talin frá austri til vesturs, er
húsaskipun þessi: fyrst kemur
eldhús, síðan skáli, stofa og búr.
Bæjarröðin er upp undir 40 m.
í fjósinu eru básar fyrir 5 nautgripi. Básarnir sjást giögglega
á myndinni.
komu þá niður á gamlar húsa-
rústir. Við nánari rannsókn
kom í ljós, að þetta voru fjós
og hlaða, og voru rústir þess-
ar óvenjuvel varðveittar, sem
stafar af því, að þær hafa
fyllzt af vikri. Var þegar ljóst,
að vikurinn hafði fallið, með-
an húsin voru enn uppistand-
andi, og því augljóst, að bær
sá, sem hér um ræðir, hefur
farið í eyði í Öræfajökulgos-
inu mikla 1362. Þá varð
feiknamikið eldgos í jöklin-
um og byggðin öll, sem nú
heitir Öræfi, en þá Litla-
Hérað, fór í eyði.
Gísli sagði, að ómögulegt væri
að vita, hverjir hefðu búið á bæ
þeim, sem nú hefur verið graf-
inn úr gleymsku, en sennilega
væri hér um sama bæ að ræða
og nefndur er í heimild frá því
um 1700. Þar er hann nefndur
Gröf.
í fjósinu eru básar fyrir fimm
nautgripi, en hlaðan er 14 metr-
ar á lengd og 2 m á dýpt. Hún
hefur tekið rúmlega 100 hesta og
hefur það verið stór hlaða á sín-
um tíma. Hlöður gerðust ekki
stærri á íslandi, allt fram á miðja
19. öld.
á lengd og hefur þetta verið stór
bær. Auk þessa voru á bak við
bæjarhúsin tvö smáhýsi, annað
iíklega baðstofa (þ.e. gufubað-
stofa), hitt tvö smáhús byggð
Hverfisteinn, sem fannst í rúst-
unum.
saman, og þar hefur sofnhúsið
verið. Þar var kornið þurrkað
við eld, eins og venja var í norð-
lægum löndum. — Loks má geta i
þess, að í rústunum fundust brýni
steinkolur, hengilás frá 14. öld
(og kemur það heim við aldur
Uppdráttur af húsaskipan bæjarhúsa að Gröf í Öræfum.
rústanna) og 2—3 kvarnasteinar,
sem eru einna m'erkilegastir af
fornleifafundum þarna.
Bærinn er ákaflega vel varð-
veittur, veggir standa í fuliri
hæð og jafnvel neðstu þakhellur
með. Skálinn virðist hafa verið
alþiljaður að innan með fjalagólfi,
enda er mikið timbur í Öræfun-
um, reki góður. Hins vegar hefur
ekki verið timbur í stofu.
Þessi bæjarfundur er einna
merkilegastur fyrir þær sakir, að
hann er frá 14. öld. Þess má geta,
að Stöng í Þjórsárdal er frá því
um 1100 og Sandártunga í Þjórs-
árdal, sem er mjög lítill bær, er
frá því um 1700. Gröf fyllir því
vel í eyðuna, sem þar er á milli,
enda má sjá,að húsaskipun bendir
bæði aftur og fram í tímann: í
Gröf er byggingalagið mitt á
mill langhúsa (Stöng) og ganga-
bæja, sem síðar komu til sög-
unnar (sbr. Sandártungu). Rúst-
irnar veita okkur því mikla
fræðsiu um þróun byggingarlist-
ar á fslandi.
Keilvískir skótor minnast
20 óra aimælis iélags síns
KEFLAVÍK, 13. sept. — Á morg-
un sunnudag verðúr mikill fagn-
aður hjá skátum hér, ‘ en þann
dag verður Skátafélagið Heiða-
búar 20 ára. Félagið var stofnað
15. sept. 1937 og voru stofnendur
8. Nú eru um 400 skátar í Heiða-
búum og hefur starfið undanfarið
verið mjög öflugt. Aðalhvatamað
ur á stofnun Heiðabúa og jafn-
framt fyrsti félagsforingi var
Helgi S. Jónsson og hefur hann
allt frá stofnun félagsins verið
félagsforingi þess.
Hátíðahöldin á morgun hefjast
I með skátamessu kl. 11 í kirkjunni
og prédikar sr. Jakob Jónsson
Hallgrímskirkjuprestur í Reykja
vík. Við guðsþjónustuna verða
skírð 4 börn skáta. Eftir hádegið
verður kvikmyndasýning í Bíó-
höllinni og þar sýndar myndir
frá skátamótum. Um kvöldið
verður svo afmælisfagnaður í
samkomuhúsi Njarðvíkur fyrir
eldri og yngri skáta og gesti
félagsins. Verður þar margt til
skemmtunar svo sem söngur,
skátaleikir, varðeldur og -svo að
lokum stiginn dans.
Listsýning Jnliönn Sveinsdóttur
Abstrakf list úr islenzku bandi
ÞÓ Júlíana Sveinsdóttir sé kunn
öllum þeirri, er fylgzt hafa með
íslenzkri málaralist, held ég, að
flestum sé þó enn ekki nægilega
ljóst, að hún er einn fremsti mál-
ari, sem við eigum. Hún hefir
verið búsett í Danmörku um
langt skeið og er nú komin heim
í boði Menntamálaráðs með yfir-
listssýningu á verkum sínum. í
listasafni ríkisins hafa verið
hengd upp rúmlega 100 málverk
og eru mörg þeirra meðal þeirra
beztu, sem hér hafa verið máluð.
Fáir málarar hafa skynjað betur
íslenzkt landslag en Júlíana.
Hin yfirlætislausa túikun hennar
á viðfangsefninu sýnir greinilega,
hvað hún forðast alla „effekta"
eins og sá, sem elskar sann-
leika, forðast lygi. Listin byrjar
þegar listamaðurinn umskapar
viðfangsefnið. Að finna sitt eigið
frumlega tjáningarform — þann
stíl, sem manni er eiginlegur og
eðlilegur — kostar mikla og erf-
iða baráttu fyrir hvern listamann.
Síll Júlíönu er heilsteyptur og
frumlegur. Hún túlkar á sérstæð-
an hátt hina mildu, draum-
kenndu iiti íslenzkrar náttúru.
Vefnaður Júlíönu er riátengdur
hinni abströktu nútímalist. í
teppunum hefir hún losað sig við
hið figurativa viðfangsefni og
eru þau byggð sem abstrakt mál-
verk, enda þótt íslenzkt landslag
lifi þar áfram. Teppi no. 140 gæti
vel verið landslag frá Vestmanna-
eyjum. Teppi no. 141 gæti verið
hús í landslagi, o. s. frv. Mörg
teppi Júlíönu eru í raun og veru
ofnar myndir, og eru þau með
því bezta, sem ég hefi séð af því
tagi bæði hér og erlendis.
Er það mjög ánægjulegt, að
Menntamálaráð skyldi gangast
fyrir þessari fögru sýningu. Vel
komin heim, Júlíana og ég óska
þér til hamingju með árangurinn
í starfi þínu.
Nína Tryggvadóttir.
Spilakvöld
á Akranesi
HIN vinsælu spilakvöld Þors Fél.
ungra Sjálfstæðismanna á Akra-
nesi munu hefjast annað kvöld
kl. 8,30 verður þá fyrsta spila-
kvöldið á Hótel Akranesi. Að
vanda verða góð spilaverðlaun
veitt ennfremur glæsileg verð-
laun handa þeirri dömu og herra
sem flesta slagi hljóta í fimm
kvölda spilakeppni. Sjálfstæðis-
fólk og gestir fjölmennið og verið
með frá byrjun.
L
Rafmagnsfram-
kvæmdum hraðað
BOLUNGARVÍK, 12. september:
Unnið hefur verið af kappi í
sumar við virkjunarframkvæmd-
ir á Reiðhjalla og alve'g sérstakt
kapp lagt á framkvæmdir í þess-
um mánuði. Hingað eru komnir
tveir menn frá Tékkóslóvakíu til
að setja riiður vélar og pípulínu
samkæmt viðtali við verkfræðing
sem fylgist með framkvæmdun-
um þar efra.
Mun áætlun standast með verk
ið, ef unnið verður af fullum
krafti í mánuð hér frá. Mun raf-
rafmagni þá verða hieypt á kerf-
ið um næstu áramót.
Bíða menn hér í Bolungarvík
þess atburðar með óþreyju, enda
)rðnir langeygðir eftir góðu raf-
nagni. —Fréttar.
STAKSTEIMAR
Vilhjálmi Þór að kenna
í fyrradag var skýrt frá því
hér í blaðinu að daginn þar áður
hefðu bæði Landsbankinn og Út-
vegsbankinn stöðvað alla yfir-
færslu á ferðagjaldeyri. Hefði
þetta verið gert gersamlega fyr-
irvaralaust.
Blaðið benti síðan á það, að
af þessu mætti marka hversu
aumt ástandið væri orðið í gjald-
eyrismálunum. Samt sem áður *
létu máigögn stjórnarflokkanna
sig hafa það að halda þvi fram,
að gjaldeyrisástandið væri „betra
nú en í fyrra“. Enginn myndi
þó eftir því að til slíkrar yfir-
færslustöðvunar hefði nokkurn
tímann verið gripið þá.
Blað kommúnista og viðskipta-
máiaráðherrans segir í gær frá
þessu, að yfirfærsla á ferðagjald-
eyri hafi verið stöðvuð sl. mið-
vikudag. En það er ekki í neinum
vandræðum með skýringu á þess-
ari ráðstöfun. Það segir hrein-
lega frá því hverjum hún hafi
verið að kenna. Kemst blaðið að
orði um það á þessa leið:
„Var þar að verki Vilhjálmur
Þór og var þessi ráðstöfun hans
algerlega óskiljanleg".
Völd Bjama Benedikts-
sonar í verkalýðs-
félögunum
Kommúnistar hafa enn einu
sinni fengið Bjarna Benediktsson
„á heilann". Þeir kenna honum
um alla skapaða hluti, sem mið-
ur fara, að þeirra áliti. Hann á
að hafa staðið fyrir farmanna-
verkfalli, yfirmannaverkfalli og
nú seinast bakaraverkfalli. Og þó
segja stjórnarblöðin öll í einum
kór að Sjálfstæðisflökkurinn eigi
ekkert fylgi í verkalýðshreyfing-
unni. En Bjarni Benediktsson
ræður þar engu að síður lögum
og lofum og stendur fyrir verk-
föllum, til þess að ergja vinstri
stjórnina. Svona er nú samræmið
í málflutningi vinstri stjórnar
manna. Aðaládeiluefni stjórnar-
blaðanna á Bjarna Benediktsson
er nú það, að Morgunblaðið hefur
skýrt frá því, að bakaraverkfall-
ið hafi ekki verið leyst með venju
legum aðferðum. Sú staðreynd
verði ekki sniðgengin að samið
hafi verið um það þegar bakara-
verkfallið var leyst með tölu-
verðri kauphækkun til bakara-
sveina, að annaðhvort skyldi
brauðverðið hækka eða verða
greitt niður úr ríkissjóði.
Þetta segir kommúnistablaðið
og Tíminn að sé hrópleg ósann-
indi.
Sjáum hvað setur
Það er sama hvað vinstri stjórn
arblöðin hamast. það er stað-
reynd, sem þau eru að reyna að
dylja, að því hefur verið lofað
að annaðhvort skuli brauðverðið
hækka eða verða greitt niður,
sem auðvitað gerist ekki nema á
kostnað almennings. Við skulum
bíða og sjá hvað setur. Morgun-
blaðið hefur farið með sannleik-
ann einan um þeta mál. Þessi
Iausn bakaradeilunnar er líka í
fullu samræmi við lausnir annara
deilna fyrr á árinu. Farmanna-
verkfallið sl. vetur og yfirmanna
verkfallið í sumar voru leyst með
kauphækkunum, jafnvel til hinna
hæstlaunuðu með því að skipa-
félögin fengu að liækka flutn-
ingsgjöldin. Þannig var kaup-
hækkuninni velt yfir á almenn-
ing. En „Þjóðviljinn“ segir að
vinnudeilurnar hafi verið leystar
fyrir forgöngu, snilli og ágæti
Lúðviks Jósefssonar og auðvitað
*með „venjulegu maðferðum"!!!