Morgunblaðið - 14.09.1957, Blaðsíða 7
Laugardagur 14. sept. 1957
MORCTJIS' BLAÐIÐ
7
HEIÐMÖRK
EINN hinna mörgu Reykvíkinga,
sem leggja að sumarlagi leið sína
um Heiðmörk, minntist fyrir fá-
um dögum í dálkum Velvakanda
á skógræktarstarfsemi þá, sem
hefur farið þar fram um nokkur
undanfarin ár, og spjöll þau, sem
ungplönturnar verða fyrir af
manna völdum vegna skorts á að
vörun til vegfarenda og á eftir-
liti.
Um Heiðmörk hef ég farið all-
oft, síðan skógrækt hófst þar, og
hef því miður svipaða sögu að
segja og þessi maður. Oft hef-
ur mig langað til að koma þeirri
hugmynd á framfæri, að Reykja-
víkurbær hefði eftirlitsmann á
Heiðmörk um sumartímann,
mann, sem hefði bæði þann starfa
með höndum að bægja fólki frá
skógræktarsvæðunum og fylgj-
ast með þrifum ungplantnanna.
Hann ætti að sjá um, að smá-
plöntur köfnuðu ekki í grasi,
klippa burt birkikjarrið þar sem
það vex barrplöntum yfir höfuð
eða nuddar þær í stormum, og
jafnvel gefa áburð þeim ungplönt
um, sem fölar eru og framfara-
lausar af næringarskorti og
liggja hálflausar í frjóefnasnauð-
um mosa yfirborðsins.
Ég hef oft lagt leið mína um
plöntuuppeldisstöð Skógræktar-
félags Reykjavíkur í Fossvogi og
veit, að þar er árlega sáð til nokk
ur hundruð þúsunda skógartrjáa.
Plönturnar, sem vaxa þar upp,
eru flestar gróðursettar á Heið-
mörk, þegar þær eru þriggja eða
fjögurra ára. Þar ættu þær að
geta myndað stórskóg í framtíð-
inni, ef þeim væri séð fyrir full-
kominni friðun og öðrum viðhlít-
andi vaxtarskilyrðum er þær
hafa verið gróðursettar þar. í
Fossvogsstöðinni er unnið af alúð
og umhyggju að uppeldi plantn-
anna. Þar hafa þeim verið gerð
skjólbelti úr þroskamiklum greni
trjám, álmi, víði o. fl. í þessari
uppeldisstöð og fleirum vinna á-
hugasamir kunnáttumenn mikið
og gott menningar- og þjóðþrifa-
starf, sem alls ekki má fara for-
görðum á Heiðmörk vegna skorts
á umhirðu og eftirliti. Reykja-
víkurbær hefur yfir *vo miklu fé
að ráða, að litlu ætti að muna,
þótt hann réði mann til umsjón-
ar og eftirlits á mörkinni. En
sá maður þyrfti að vera natinn
og áhugasamur.
Oft hef ég hugleitt það, hvort
ekki væri nauðsynlegt að koma
upp skjólbeltum á Heiðmörk og
annars staðar þar, sem vindasamt
er og skjóllítið, áður en við-
kvæmar ungplöntur eru gróður-
settar. Það munu Danir hafa orð-
ið að gera á Jótlandsheiðum, sem
eru 7 —8 breiddarstigum sunnar
á hnettinum en Heiðmörk. Ég
tel brýna nauðsyn að búa íslenzk
um ungskógum sem allra bezt
vaxtarskilyrði, jafnvel þótt
minna magn plantna væri gróð-
ursett árlega fyrir þær sakir.
Núverandi skógræktarstjóri og
samstarfsmenn hans hafa' unnið
þrekvirki. Þeir hafa flutt til lands
ins margar trjátegundir, sem
reynslan sýnir æ betur, að vaxið
geta í landi voru ölnum og ó-
bornum til gagns og gleði. Þeim
hefur og tekizt að glæða með
þjóðinni trúna á það, að stórskóg-
ar muni í framtíðinni rísa úr ís-
lenzkri mold. Þessa trú, sem
studd er fræðilegum athugunum
og nokkurri reynslu, megum vér,
sem njótum starfs þeirra, ekki
deyða með hirðuleysi eða kot-
ungslegum sparnaði, meðan ’oær
og ríki leggja stórfé í margt ann
að, sem ekki ber arð i dag eða
á morgun.
Magnus Finnbogason.
Ilöfum kaupanda
að Chevrolet eða Ford vöru
bifreið, 4%—5 tonna, ár-
gang ’53—’55. Staðgreiðsla.
Bifreiðasalan
Njálsgötu 40, sími 1-40-20.
Fyrsta flokks
Pússníngasandur
til sölu. -
Sími 3-30-97.
• •
Oryggiskcrfi Austur-Þjóðverja í
hættu - ef Mielke leysir frá skjóðunni
BERLÍN, 9. sept. — Þær fregnir
berast frá Berlín, að Erik Mielke
hafi flúið til Vestur-Berlínar. —
Hann var grunaðux um að hafa
haft samband við „óþjóðleg öfl*’
í Austur- og Vestur-Þýzkalandi.
Fréttamenn segja, að ef þessi
frétt reynist á rökum byggð, þá
sé hér um mjög merkilegan við
burð að ræða, vegna þess að
Mielke lagði grundvölinn að öllu
njósnakerfi austur-þýzku komm-
únistastjcrarinnar á sínum tíma.
Fyrirmynd hans var njósnadeild
fasistanna þýzku. Þá skipulagði
hann alla starfsemi austur-þýzku
öryggislögreglunnar og var fyrsti
yfirmaður hennar. Undanfarið
hefir hann haft mikilvægu em-
bætti að gegna sem aðstoðarmað-
ur Piecks forseta.
Mielke myrti tvo lögregluþjóna
á Búlow Platz í Berlín 1931, en
tókst að flýja til Sovétríkjanna,
þar sem hann fór í skóla komm-
únista, en síðan var hann send-
ur til baka með Rauða hernum.
Hann skipulagði njósnastarfsemi
og öryggisþjónustu Austur-
Þýzkalands eftir stríð og var
hægri hönd Wilhelms Zaissers,
sem var öryggismálaráðherra,
þangað til hann féll i ónáð og
varð að víkja sessi fyrir Woll
weber.
Búizt er við, að allt njósna-
og öryggiskerfi Austur Þýzka-
lands molni niður, ef Mielke leys
ir frá skjóðunni.
Bifreiðar
v/ð allra hæfi
Opel-Record ’54
Opel-Caravan '55
Consul-Ford ’55
Ford-Anglia *55
Ford-Prefecl ’56
Volkswagen ’54, ’56, ’58
Clievrolet J55, ’54, ’53, ’52,
1947. —
Ford ’56, ’55, ’47
Wauxhall ’52
Hillnian ’51
Standard ’50, ’47
Chrysler ’54, ’52
Plymouth ’51
Mercury ’49
Mercedes—Benz ’55, ’49
Skoda ’55
Moscwitch ’57, ’55
Pobeda ’56
Chevrolet-Station ’55
Ford Ranch-Wagon
Ford Ranch-Wagon ’54
Auk fjölda bifreiða af ýms-
um stærðum o g gerðum,
sem fást með ýmsum
greiðsluskilmálum.
Bifreiðasalan
Garbasfræfi 6
Sími: 18-8-33
Tvo háseta
vantar á m.b. Faxa, á rek-
net. — Upplýsingar í síma
11067. —
Hlégarður Mosfellssveit
Almenn skemmtun
að Hlégarði í kvöld kl. 9
Skafti Ólafsson otr hliómsveit skemmta
Ferðir frá B.S.Í. — Húsinu lokað kl. 11.30
Ölvun bönnuð
Aftureldine.
íbúð í
vesturbœnum
ER TIL SÖLU.
Ibúðin er í steinhúsi á hitaveitusvæðinu.
Undirritaður gefur allar nánari upplýsingar.
EgiM Sigurgeirsson hrl.
Austurstræti 3, simi 15958.
Startstúlka óskast
Upplýsingar gefnar á skrifstofunni
Elli- og hjúkrunarheimilið
Grund.
Nýjar gerðir af
húsgagnaáklæbi
í nútima litaskiftingu.
Bílasmiðjan
Laugavegi 176.
Dodge Veapon
óskast. —
Sími 15808.
VERZUININ
EDSNBORG
Nýkomið
kiiflótt efni
í skólakjóla. — Margir litir.
Verð kr. 22,90 pr. m.
BIIIKKttKt!
TIL LEIGU
í eitt ár, er 4ra herb. íbúð í
nýju húsi í Vesturbænum,
vegna dvalar erlendis. Simi
og ísskápur geta fylgt. Til
mála kæmi einnig aö leigja
með húsgögnum. Fyrirfram
greiðsla æskileg. —■ Tilboð
merkt: „Eitt ár — 6547“,
leggist inn á afgreiðslu
blaðsins fyrir þriðjudags-
kvöld. —
Volks-Wagen
Nýr Volkswagen, eða inn-
flutningsleyfi, óskast til
kaups nú þegar milliliða-
laust. Sími 19408.
Söluturn
Söluturninn við ráðhúsið 1
Hafnarfirði er til sölu strax
Tilboð sendist afgr. Mbl.,
fyrir 18. þ.m., merkt: —
„6545“. —
Austin A-40
Árg. 1949, til sýnis og sölu
í dag. — Bíllinn er mjög
þokkalegur einkabíll.
Aðnl Bílasalan
Aðalstr. 16, sími 1-91-81.
TIL LEIGU
eðo sölu
húsið Laufésvegur 16, á-
samt eignarlóð. Tilboð send
kst Guðmundi Hlíðdal, Fom
haga 20.
Frá Bifreiðasölanni
Njálsgötu 40
Höfum kaupendur að
Willy’s landbúnaðar-jepp-
um. —
Bifreiðasalan
Njálsgötu 40. Sími 11420.
Pianó til sölu
Upplýsingar í síma 23758,
eftir hádegi, laugardag og
sunnudag.
Bifreibaáklæbi
í miklu úrvali.
Bílasmiðjan
Plastáklæbi
á eldhús-húsgógn, í miklu
úrvali. —
Bílasmiðjan
Pedigree-
BARNAVAGN
til sölu, Tómasarhaga 9,
II. hæð. Sími 18143.
Þeir, sem eiga geymd
matvæli
í Sænska frystihúsinu, eru
beðnir að taka þau fyrir
17. þ.m. eða semja um
geymslu að nýju. Annars
verða þau fjarlægð á kostn
að eigenda.
Sænsk isl. Frystihúsið h.f.
TIL LEICU
2 herb. og eldhús í kjallara
í nýju húsi í úthverfi
fyrir fullorðna. Sanngjöm
leiga. — Fyrirframgreiðsla
æskileg. Tilboð leggist á af-
greiðslu Mbl. fyrir 18. þ.m,
merkt: „Sólríkt — 6550“.
Kennara vantar
IBUÐ
nú strax eða fyrsta okt.
Kaup á íbúðinni kæmu til
greina eftir fáa mánuði. —
Upplýsingar gefnar í síma
14743. —
4ra herbergja, fokheld
IBUÐ
á bezta stað f Laugarésn'
um, til sölu. Allt sameigin-
legt búið. Tilb. sendist afgr,
Mbl., fyrir 17. þ.m., merkt
„Fallegur staður — 6549“,
KEFLAVÍK
Til leigu litil íbúS. — Upp
lýsingar Hringbraut 56.
Sími 822. —
V ö N
saumakona
óskast strax.
NærfataverksmiSjan LiBa
Víðimel 64. Sími 15104.
Dömur
Vegna forfalla eru tvö pláss
laus ánæsta sniðanámskeið,
(kvöldtimar). Talið við mig
sem fyrst.
Bjarnfríður Jóhannesdóttir
Hagamel 26, kjallara.