Morgunblaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ Flmmtudagur 26. sept. 195T Magnús Þórðarson sfud. jur. VII. NiÖurlag MOTIÐ í MOSKVU Skylduvinna Eitt hvöldið buðu þrír stúdent- ar mér til herbergis síns. Held- ur þótti mér þröngt um þá, því að ekki var einu sinni rúm fyrir skrifborð inni hjá þeim. Þeir kváðust fá kaup fyrir að stunda nám, en sá böggull fylgir skamm- rifi, að þeir eru skyldir til að vinna fyrstu þrjú árin eftir loka- próf þar, sem yfirvöldin ákveða. Þetta þýðir, að flestir eru sendir austur á bóginn til hinna „nýju landsvæða“, þ. e. héraða, sem nú er verið að taka til ræktunar, eða til nýgrafinna náma. Þeir viðurkenndu fúslega, að fjöldinn allur kviði fyrir þessum árum, því að lífið væri erfitt þar eystra. Flestir eru látnir fara sem „sjálf- boðaliðar", en þeir sögðu það bara vera „opinbert heiti“. Kaup stúdenta Einn stúdentanna var Hvít Rússi, annar Úkraínumaður og sá þriðji frá Tadzhikistan. Ég tal- aði mest við Hvít-Rússann, því að bæði var hann opinskáastur og talaði bezta ensku. Hann kvaðst fá 300 rúblur í kaup um mánuðinn, en það væri of lítið, svo að hann yrði að vinna með náminu. í skólanum væri hann frá átta til þrjú, en milli klukkan fjögur og átta á kvöldin ynni hann á safni einu. Fyrir þá vinnu fengi hann 600 rúblur á mán., svo að hann væri „kapitalistinn“ meðal þeirra félaga. „En hvenær lestu þá?“ spurði ég. „Á kvöld- in, eða á nóttunni ef ég fer í bíó með kærustunni". Hann sagði, að þetta væri ekki gott fyrirkomu- lag, en það væri betra en að hafa ekkert tækifæri til þess að stunda nám. T. d. væri sá frá Tadzhikistan sovét-skipulaginu þakklátur fyrir að hafa gert sér kleift að komast í skóla, en for- eldrar hans væru fátækt og frum- stætt fólk. Leyniræðan og þræiabúðir Margt höfðu þeir þó við ríkj- andi skipulag að athuga. Þeir sögðu leyniræðuna um Stalin hafa komið mikilli ólgu af stað meðal stúdenta, en hún hafði ver- ið lesin upp fyrir þá á fundi, án þess að nokkrar skýringar fylgdu eða umræður væru leyfð- ar á eftir. Þess vegna væru mjög skiptar skoðanir um það, hvað hefði raunverulega staðið í henni, því að minni manna væri mis- jafnt. Áfellisdómurinn yfir Stalin hefði komið eins og reiðarslag yfir fólk, og ýmsir stúdentar hefðu komið saman á óopinber- um fundum til þess að ræða hana. Ýmsir hefðu gengið of langt í gagnrýni sinni á ríkið, svo að þeir hefðu verið reknir úr skóla og líklega flestir settir í fangelsi, því að til margra þeirra hefði ekki spurzt síðan. Ég spurði, hvort tilvist þrælabúðanna hefði alla tíð verið á almannavitorði, því að út á við hefði henni jafn- an verið neitað, þangað til í fyrra, þegar háttsettur maður innan rikislögreglunnar lýsti því yfir á fundi með frönskum sósíal- istum, sem voru á ferð í Sovét- ríkjunum, að nú væri verið að leggja þrælabúðirnar niður, sem áður var sagt, að væru ekki til. „Mörg andlit" Úkraínumaðurinn varð fyrir svörum og sagði, að auðvitað hefðu allir vitað um þær, og þá ekki sizt Úkraínumenn. Sagði hann fáar þjóðir hafa verið beitt- ar jafn mikilli harðyðgi og allt reynt til þess að bæla niður sjálf- stætt menningarlíf þeirra. Ég spurði, hvort þetta færi ekki batn andi, og sagðist hann bæði geta svarað því játandi og neitandi. Að vísu væri farið að viðurkenna ýmislegt opinberlega, sem áður var einungis haft í hvíslingum, en „þegar við sjáum andlit þeirra, sem nú ráða ríkjum, þá munum við líka eftir mörgu, sem þeir hafa illa gert í fortíðinni“. Ég spurði, hvort hann ætti við Krjúsoff, en hann sagðist eiga við mörg andlit. Malenkoff vinsæll Malenkoff var vinsæll af þeim félögum, og varð ég oftar var við það, að fólki lá vel orð til hans. „Hvers vegna var hann þá sendur í útlegð?“ spurði ég. „Hann hlýtur að hafa gert sig sekan um mikil mistök". Ég spurði, hvort þeir tryðu því, en þeir játuðu, að þeir hefðu enga aðstöðu til þess að dæma um það. „Við lesum margt í blöðunum, en við fréttum líka ýmislegt annars staðar frá“. „Leyfa Ameríkanar það?“ Þeim lék mikil forvitni á að heyra um stjórnmálalífið á ís- landi, og fannst merkilegt að heyra, að kommúnistar væru í ríkisstjórn. „Leyfa Ameríkanar það?“ spurðu þeir undrandi. Þeir töldu, að stjórnmáialífið yrði smám saman frjálslegra í heima- landi sínu, sérstaklega þegar gamla kynslóðin væri horfin af sjónarsviðinu. Áhrif flokksins á Æðsta ráðið yrði að minnka, það væri langþýðingarmesta réttar- bótin. Mjög var áberandi, hve stúdent ar þessir voru illa upplýstir um marga hluti á Vesturlöndum, og stundum gátu þeir komið með yfirlýsingar eins og þær, að allir Ameríkumenn væru eiturlyfja- neytendur. Ekki höfðu þeir þó heyrt getið um marihuana, en minntust á kókaín, ópíum og kókakóla! Vildu frjálsar kosningar Þegar ég spurði þá, hvað þeim þætti helzt aðfinnsluvert í Sovét- ríkjunum, voru þeir fljótir að telja upp ýmislegt. Þeir minnt- ust á lélegan húsakost, lágt kaup og hátt verðlag, góðir skór kost- uðu 600 rúblur eða mánaðarkaup verkamanns. Þá sögðust þeir vilja frjálsar kosningar „eins og á ís- landi“. Ég spurði, hvort þeir vildu þá láta leyfa alla flokka, en ekki voru þeir vissir um það og kom- ust í hálfgerðan bobba með svar- ið. Fasistaflokkar yrðu a. m. k. aldrei leyfðir. Þá kváðust þeir einnig vilja fá frelsi til að túlka skoðanir sínar, hvar og hvenær sem væri. Það væri skammarlegt, að enn væru stúdentar fjarlægð- ir fyrir það eitt að þora að gagn- rýna hluti, sem allir vissu, að farið gætu betur. í hvert skipti, sem einhver hyrfi, eignuðust yfir völdin ótal harðvítugra andstæð- inga, því að allir vinir og ætt- ingjar hins horfna hötuðu þau upp frá því. Þá vildu þeir og leyfa innflutning á ýmsum vör- um að vestan, t. d. bókum, og þeir vildu fá leyfi til þess að ferðast um heiminn, eins og þá lysti. Ég varð mjög oft þess áskynja, að fólk langar mikið til þess að skoða sig um í heiminum. Ofursti einn frá Vladivostok sagði sig hafa langað til þess alla ævi að koma til Parísar, en það væri víst útséð um að sá draumur rætt ist. Margir játuðu beinlínis, að frjáls ferðalög væru bönnuð, en aðrir (t. d. túlkarnir) sögðu það „mjög erfitt" að fá vegabréf o. s. frv. Ókeypis læknishjálp? Ég vildi þá fá að vila, hvað þeim líkaði vel, en þeir kváðu nær, að ég segði þeim, hvað mér litist vel á í þeirra þjóðfélagi. Ég leitaði góða stund í hugskoti minu, og nefndi svo ókeypis læknishjálp. „'Þekkist hún hvergi í kapitalisku löndunum?" spurðu þeir. Ég skýrði tryggingafyrir- komulagið á fslandi út fyrir þeim. Hvít-Rússinn sagði þá, að þetta væri í rauninni alveg það sama. einhvers staðar frá yrðu peningarnir að koma til þess að kosta læknastéttina, og ef við borguðum sérstakt gjald á ís- landi, þá væru þeir teknir með sköttum af Rússum. „Eða í Ríkis- happdrættinu", sagði Úkraínu- maðurinn hlæjandi. Almenning- ur eystra hefur nefnilega orðið að verja hluta launa sinna til kaupa á ríkisskuldabréfum, en fyrir nokkru, þegar greiða átti þau til baka, sveikst stjórnin um það og bar við greiðsluvandræðum, sem þó myndu leysast fljótlega, en hafa víst ekki gert það enn. Sunnudagsmatur stúdenta Við töluðum saman langt fram á nótt, og varð úr, að ég gisti hjá þeim. Næsta dag, sem var sunnudagur, ætlaði ég heim á hótel að borða. Þeir sögðu, að ég skyldi borða með þeim sunnu- dagsmatinn í mötuneytinu, og létu á sér skiljast, að þá væri betra fæði en aðra daga. Það var pylsur og þurrt hveitibrauð. Te- glas var hægt að fá með, en auka- lega varð að greiða fyrir það, og kökubita gáfu þeir mér í eft- irrétt, en urðu að borga eina rúblu fyrir hann. Ég er hræddur um, að íslenzkir stúdentar fúls- uðu við slíkum viðurgerningi á Gamla Garði, en kannske eru þeir of kröfuharðir. Málaralist Síðan fóru þeir með mér víða um borgina og sýndu mér marga merkisstaði. Við fórum á Tretj- akovskaja-safnið, en það er safn rússneskra málverka. Þar eru sósíal-realisk málverk í þúsunda- tali og ægilegt um að litast. Bezt þótti mér lítil mynd af Stalín, þar sem hann ekur traktor um frjósamar sléttur, glaður í bragði og íklæddur vænum frakka, skó- síðum, en smáfuglar flögra í kring. (Þess má geta innan'sviga, að þetta var annar traktorinn, sem ég sá í Sovétríkjunum, og ókum við þó um þaulræktuð landbúnaðarhéruð alla leiðina austur. Þótt land sé rennislétt, stóðu menn að slætti með orfi og ljá eða sigðum. Uppskeru er svo ekið á hestvögnum. Mannafli virðist nógur í sveitum, og sáum við víða fyrirbærið, sem Magnús Kjartansson talar um í Þjóðvilj- anum, að einn kúasmali er um hverja kú og einn hirðir á hverja geit). Stúdentarnir voru mjög hrifnir af málverkunum og oft bentu þeir mér á stórar myndir, einkum stríðsmyndir, sem þeir sögðu marga málara hafa gert í sameiningu. Virtust þeir álíta það tryggingu fyrir listgæðunum. Nokkur málverk voru þarna frá seinustu árum fyrir fyrra stríð, sem þeim þóttu heldur nýtízku- leg og kölluðu þau „abstrakt" í fyrirlitningartón, þó að ekkert abstrakt væri við þau. Fáfræði þeirra er þó skiljanleg, þegar þess er gætt, að rússneskir listmál- arar, sem komu eitt sinn að hóteli okkar, höfðu aldrei heyrt Kandin- sky getið, en einn kannaðist við nafn Chagalls. Seinna frétti ég þó af rússneskum málara, sem kvaðst hafa séð myndir eftir þá báða. Álíka virtist hin andlega einangrun vera meðal arkitekta ef dæma má eftir því, að í félags- húsi þeirra í Moskvu (Arkitekta- höllinni) hangir mynd af húsi eftir „arkitektana Le Corbusier og C. E. Jeanneret“. Enginn hinna rússnesku arkitekta virt- ist vita, að þetta er einn og sami maðurinn og írægasti arkitekt, sem nú er uppi; annað er höfund- arnafn hans en hitt ættarnafn. Kröfuganga í Leningrad Púskínsafnið er á hinn bóginn mjög auðugt og merkilegt, en það er bæði safn fornminja og listaverka. Við gengum síðan um borgina og mættum m. a. hópi pólskra unglinga. Hafði Hvít- Rússinn þegar orð á því, að jafn- vel Pólverjarnir virtust ganga betur til fara en Rússar. Ég sagði honum þá frá samtali, sem við heyrðum nokkra Pólverja eiga við Þjóðverja. Pólverjarnir sögðu að eftir stríðið hefði allt verið tekið af fólki, en nú væru bænd- urnir að byrja að fá landið aft- ur frá samyrkjubúunum í sínar hendur, og allt væri strax orðið betra. Kannske þyrfti að gera einhverjar breytingar hér, sagði ég. Hvít-Rússinn sagði, að sam- yrkjubúin yrðu a. m. k. aldrei lögð niður í Sovétríkjunum, en mörgum þætti ýmislegt athyglis- vert í hinni nýju stefnu Pólverja. Því miður fengju þeir lítið að fylgjast með þeim. Hann sagði stúdenta í Leningrad hafa farið í kröfugöngu s. L nóvember og borið mynd af Gomúlka fyrir sér. Ekki vissi hann, hverjar kröfur höfðu verið gerðar. Mjög mikið var um hermenn og lögreglumenn í Moskvu, og var gaman að sjá, hve fljótir þeir voru að ryðja Rauða torgið, þeg- ar valdsmönnunum var ekið í lúxusbílum sínum inn fyrir Kremlmúra. Stúdentarnir sögðu mér, að geysilegur fjöldi her- manna hefði verið kvaddur til borgarinnar nú fyrir skemmstu, líklega til þess að koma í veg fyrir hugsanlegar óeirðir. Lögfræði og stjórnmál Stúdentar þessir urðu mjög undrandi yfir því, að ég skyldi ekki læra „stjórnmál“, fyrst ég legði stund á lögfræði. Ég sagði þeim, að háskólinn væri ópólitísk ur, menn yrðu að mynda sér stjórnmálaskoðanir utan hans. Að vísu væru tveir prófessorar í hagfræði, annar sósíalisti en hinn kapítalisti. Þetta þótti þeim stór- furðulegt, en viðurkenndu þó, að þetta hlyti að vera fróðlegt fyrir nemendurna. Seinna átti ég tal við einn túlkanna, vel menntaðan mann, og þótti honum það jafn- undarlegt og stúdentunum, að ég skyldi ekki læra pólitísk fræði. Ég sagðist geta fræðzt um stjórn- mál af blöðunum, þar væru allar stefnur túlkaðar. „Kommúnismi líka?“ spurði hann efablandinn. „Já, hvers vegna ekki?“ Hann hafði þá hálft í hvoru búizt við, að kommúnistar fengju ekki að gefa út blöð á íslandi. Hann spurði þá, hvernig íslenzkir dóm- arar gætu dæmt pólitíska glæpa- menn án þess að lesa stjórnmál til lagaprófs. „Hvaða stjórnmál?" spurði ég. „Kapitalisk fræði", svaraði hann. Ég sagði menn aldrei ákærða fyrir stjórnmála- skoðanir sínar á íslandi, og þótti honum það allmerkilegt. Gagnrýnisleikrit Sami túlkur bauð mér síðar að sjá leikflokk vinsælasta gaman- leikara í Moskvu, sem hann kvað heita Arkadii Raikin. Sýndir voru margir smáþættir og leikin danzmúsik á milli. Þættirnir voru ekki ýkja merkilegir, en leikur- inn mjög fjörugur. Hrifnastir voru áheyrendur af því, sem túlk- urinn nefndi „nýja gagnrýnis- leiki“ (new critical plays). í ein- um þeirra var skopazt að bið- raðafarganinu í Moskvu, í öðrum að háttsettum embættismanni, sem látinn var vera hauslaus, og sá þriðji fjallaði um mann, sem vildi fá rafmagn í íbúð sína. Ekki ætlaði það að ganga, fyrr en manngarminum hugkvæmdist að múta rafmagnsstjóra hverfisins. Fólkið klappaði langlengst að síðastnefnda atriðinu. Radio Moskva Við annan túlk átti ég lang- ar viðræður. Þetta var greind kona, vel menntuð og bersýni- lega í góðum efnum. Hún túlk- aði einu sinni viðtal, sem fregn- ritari Moskvuútvarpsins átti við mig, og kvað sá því viðtali mundu verða útvarpað á 38 tungumál- um. Vona ég, að við það hafi verið staðið og ekkert undan fellt. Eitt af því, sem fréttarit- arinn vildi vita. var nöfn og heimilisföng allra þeirra, sem ég hafði kynnzt að ráði eða heim- sótt í Moskvu. Mér þótti spurn- ingin óþörf og kvaðst hafa gleymt því jafnóðum. Að því við- tali loknu spurði túlkurinn mig, hvort við gætum ekki hitzt aftur og rætt saman einlæglega. Ég var auðvitað fús til þess og stakk upp á því, að við mæltum okkur mót á veitingastofu. Ekki vildi hún það, heldur bað hún mig að hitta sig eins og af tilviljun á hótelganginum á ákveðnum tíma, Varð það úr, og töluðum við sam- an í símaherberginu. Ekki paradís enn Hún sagði, að margir íslend- ingar virtust dálítið „kritiskir" í tali, og bað mig að segja sér, hvað við fyndum helzt að ástand- inu hér. Ég sagði, að fyrst og fremst hefðu margir orðið fyrir vonbrigðum með húsakost borg- arinnar. „Við hverju bjugguzt þið?“ spurði hún. Ég sagði sumt af fólkinu hafa lesið lofgreinar um Moskvu í íslenzkum blöðum, og séð margar myndir af hvítum höllum og háreistum. Það hefði líkast til ímyndað sér, að þannig væri Moskva öll. Hún sagði þá, að ef ég ætti við kommúnista- blöðin á Vesturlöndum, þá gæti hún sagt mér, að þau gæfu alls ekki rétta mynd af lífinu í Ráð- stjórnarríkjunum. „Ég hef I mörg ár lesið ýmis kommúnista- blöð að vestan, og ég þoli ekki þessa tilhneigingu til þess að fegra allt hjá okkur. Fólkið, sem trúir blöðunum, heldur, að hér sé Paradís á jörðu, og þegar það kemur hingað austur, hlýtur það að sjá, að það er ekki satt, og verður fyrir vonbrigðum. Hitt er annað mál, að við ætlum okkur að gera þetta að Paradís". „Tekur það langan tíma?“ spurði ég I sakleysi mínu. Ekki vissi hún það en kvaðst vona hið bezta. Ég taldi nú upp ýmislegt, sem mér þótti miður fara. Hún viðurkenndi flesta gallana en afsakaði þá um leið. Hún sagði það mjög til- finnanlegt að geta ekki keypt bækur að vestan, en spurði um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.