Morgunblaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.09.1957, Blaðsíða 14
14 MOnCVNBLAÐlÐ FSmmtudagwr 26. sept. 195T Stúlka óskast til afgreiðslustarfa strax. Kjöfverzlunin Hrísateig 14 Sigríður Helgadótfir 80 ára SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR, Ás- vallagötu 57, er áttræð í dag. Hún er fædd að Köldukinn á Fells- strönd í Dalasýslu 26. september 1877. Foreldrar hennar voru hjónin Helgi Sveinbjarnarson og Ingibjörg Sigurðardóttir, er þar bjuggu. Það hafa verið merkir og góðir foreldrar, því með svo mikilli óst og virðingu minnist Sigríður þeirra enn í dag. T œkifœrisverð Góð Rafha eldavél og B. T. H. þvottavél til sölu. Uppl. í síma 10262. Piltur 16—17 ára, óskasl til innheimtustarfa. Sig. Þ. Skjaldberg hf. Sími11491. Sendisveinn óskast hálfan eða allan daginn. Upplýsingar á skrifstofunni. * Brunabótafélag Islands Hverfisgötu 8—10. Sími 14915. Húseigendur Þér, sem ætlið að leigja út húsnæði, hvort sem er íbúð- ir, einstök herbergi, skrifstofuhúsnæði eða eitthvað ann- að, ættuð að snúa yður til okkar. Við höfum ávallt sam- band við mjög góða leigjendur, sem við komum yður í kynni við. — Upplýsingar daglega kl. 2—4 síðd. Husnæðismiðlunin Ingólfsstræti 11, sími 18085 Framleiðum rafm agnsvörulyftur hentugar til þess að ferma og afferma vörubila, enn fremur stafla í vörugeymslum. Hlutafélagið Hamar Frá Iðnaðarmálastofnun íslands: FYRIRLESTRAR UM Skrifstofustjórn verða haldnir í Iðnaðarmálastofnun Islands 2.—11. október nk. — Fyrirlesarar verða Bandaríkjamenn- irnir Mr. Edward J. Gauthier og próf. dr. O. Riehard Wessels. Fyrirlestrarnir verða fluttir kl. 16—19. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir 28. sept. Allar nánari upplýsingar í skrifstofu IMSI, símar 1 98 33 eða 1 98 34. IMSÍ. Svefnstólar Svefnsófar SÓFASETT frá kr. 5.400,00 DJÚPIR stólar frá kr. 1.250,00 SÓFABORÐ frá kr. 1.300,00 INNSKOTSBORÐ ódýr UNGLINGASKRIFBORÐ frá kr. 1.800,00. húsgagnaver/.Iun — Snorrabraut 48 sími 19112 Efri hœð verzlunarhúss vors við Miklubraut — Skaftahlíð er til sölu Hæðin er einn salur, 529 fermetrar. Auk þess geta fylgt geymslur í kjallara, allt að 200 fermetrar. — Húsnæðið er sérstaklega teiknað fyrir veitingarekstur, en auk þess má nota það fyrir iðnað, skrifstofur eða annan atvinnu- rekstur. Húsið er hið fyrsta af þrem húsum sem fyrirhugað er að reisa á lóðinni. Gert er ráð fyrir bílastæðum fyrir á annað hundrað bíla. Ennfremur er til sölu eða leigu verzlunarhæð hússins, en þar eru fyrirhugaðar matvöru- og kjötbúð, fiskbúð, mjólkurbúð og bakarí me-3 brauðabúð. Geymslur í kjall- ara fylgja. Hver búð fæst leigð eða keypt sér. Væntanlegir kaupendur svo og þeir félagsmenn, sem þegar hafa óskað eftir verzlunarhúsnæði, tali hið fyrsta við Agnar Gústafsson, Austurstræti 14, sími 22870 eftir kl. 3 daglega, en hann veitir allar nánari upplýsingar. VEGCUR HF. Af viðtali við Sigríði verður það ljóst, að hún hefir haft mikla löngun til að afla sér menntunar, og haft til þess næga hæfileika. En fátæktin á árunum fyrir alda- mótin aftraði því, að alþýðufólk fengi notið hæfileika sinna. 'Sig- ríður lærði þó fatasaum, og ber allt handbragð hennar vott um listfengi. Sigríður hefir aflað sér mikillar þekkingar í alþýðufróðleik og ættfræði. Og Ijóðum og kveð- skap ann hún af alhug. Hún kann allan fjöldann af sögum og lausa- vísum, sem fáir þekkja nú, og gæti leiðrétt margt í kveðskap og ættfræði, sem missagt er. Sigríður dvaldi á mörgum stór- býlum í Dalasýslu meðan hún var ung. Hún ber öllum húsbænd um vel söguna. En sérstaklega minnist hún með þakklæti og virðingu frú Ingibjargar Sigurð- ardóttur, konu Boga sál. í Búðar- dal. Ber þar til háttvísi og gófug framkoma frú Ingibjargar við hvern sem var, en einnig það, að frú Ingibjörg var ágætur kennari um leið og hún var virðuleg hús- móðir. Sigríður minnist þess, er séra Þorvaldur á Melstað kom að heimsækja séra Jóhannes Lynge á Kvennabrekku. En þar var hún þá vinnukona. Hún segir það hafa verið unun að hlusta á sam- tal þeirra um málfræði, sagn- fræði og kveðskap. En báðir höfðu þeir ágæta kosti og mennt- un til að vera háskólakennarar. Hún minnist einnig glæsi- mennsku og málsnilldar Bjarna frá Vogi, er hann mætti á þing- málafundum í Dalasýslu. Sigríður er einlæg trúkona og treystir handleiðslu guðs. Hún efar það ekki, að látnir vinir séu henni nálægir, og veiti henni styrk. Hún er að þ'ví lík fornkon- um, að hún hefir ekki sótt eftir vináttu margra. En þeir, sem hafa eignazt vináttu hennar eiga að mæta órofa tryggð. Og það er föst sannfæring hennar, að ailt hafi guð gert vel, en ekkert þó jafndásamlega og Daiina, Breiða- fjörð og eyjarnar. Sigríður varð sambýliskona vinar síns, Jóns Lárussonar, skip- stjóra, frá Arnarbæli, eftir að hann varð ekkjumaður. Hann andaðist 1949. Þau voru náskyld, jafngömul, og leikfélagar í æsku. Hún hjúkraði honum í þungum og langvinnum veikindum hans. Jón sál. var ágætlega gáfaður og æðrulaust þrekmenni. Hann skrif aði minningar sínar, rúmliggj- andi og þjáður. Þær komu út í bók hans, Æfi- saga Breiðfirðings, fróðlegar, og prýðilega ritaðar. Jón sál. hafði gert ráð fyrir því við börn sín, að Sigríð- ur skyldi hafa afnot af íbúð þeirra meðan henni entist aldur. Syndi hann með því drenglyndi og tryggð. Eftir að Jóns missti við hefir sonur hans, Friðrik lögreglu þjónn, sýnt henni trygga um- hyggju, svo segja má, að hann gengi henni í sonar stað, og það góðs sonar. Sigríður hefir verið glæsileg kona meðan hún var ung. Og ellina ber hún með prýði. Ég óska henni þess, að ævikvöldið verði sólbjart og heiðríkt, um leið og ég þakka henni fróðleik, og trygga vináttu við mig og mína. Vinur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.