Morgunblaðið - 03.10.1957, Side 6

Morgunblaðið - 03.10.1957, Side 6
MORCVTSBLAÐ IÐ Fimmtudagur 3. okt. 1951 Dregur úr úhrifum Schoffers fjúrmúlarúöherra Þjóðverja ÞAÐ er hermt í Bonn að Adenauer forsætísráð- herra sé orðinn svo.leið- ur á sífelldum eftirtölum o? mrf- ilshætti Fritz Schaffers fjármála- ráðherra, að hann hafi jafnvel um tíma verið að hugsa um að leysa hann frá embætti. Sú hefur þó orðið raunin á, eftir því sem síðustu fregnxr herma að Schaff- er mun halda embætti sínu, en Ludwig Erhard efnahagsmála- ráðherra verður skipaður formað ur efnahagsmálaneíndarinnar í ráðuneytinu i stað Schaffers. Eftir að kosningunum í Þýzka- landi lauk með glæsilegum sigri kristilega lýðræðisflokksins hefur upp hafizt í flokknum hin skæð- asta valdabarátta. Otar þar hver Fritz Schaffer sínum tota, enda margir fram- gjarnir menn í sveitinm Er það haft eftir Adenauer, að hann vildi jafnvel fremur ganga í ~egnum nýja kosningabaráttu en endur- skipulagningu ráðuneytisins. ★ Til þess er ætlazt, að Adenauer skipi nýtt ráðuneyti. Breytingarn- ar getur hann þó ekkx tilkynnt fyrr en þýzka hagstofan sendir frá sér endanleg kosningaúrslit í fyrrihluta þessa mánaðar. Hefuv Adenauer notað þann t.ítna til að ræða við aðra flokksforingja. Vxt að er þegar, að stjÓTnarsamstarf muni halda áfram við ->ýzka flokkinn, að öðru leyti vill gamli maðurinn ekkert láta opinber- lega uppi um skipun stjórnarinn- ar. Þykjast stjórnmálafréttarit- arar þó hafa komizt á sroðir um hitt og þetta með því að leggja saman tvo og tvo. Mesta deilumálið er, hver skuli verða eftirmaður Aden- auers ef hann fellur frá eða dregur sig út úr stjórnmálum. Ekki er talið ólíklegt að það verði á þessu kjörtímabili, því að Adenauer er orðinn 81 árs. Stuðningsmenn hans hafa lagt fast að honum að tilgreina eft- irmann. Þykjast ......„ír til þess kailaðir og þó dnkum þrír menn, þeir Ludvvig Er- hard efnahagsmálaráðherra, Franz Josef Etrauss landvarna ráðherra og von drentano utanríkisráðherra. Ef Aden- auer skipaði einhvcrn þessara þriggja manna vara forsætis- ráðherra yrði taiið að hann hefði fellt sinn dóm. En stjórnmálafréttaritarar telja mjög ólíklegt, að Adenauer ætii að taka nokkra slíka ákvörðun að sinni. Hann muni fremur skipa einhvern minna megandi marin í stöðuna. ★ Hinn kristilegi lýðræðisfloklcur Adenauers er í rauninni settur saman úr tveimur flokkum þ.e. CDU (Christliche Demokratische Union), sem er aðalflokkurinn og CSU (Christliche Soziale (Jnion), sem er í sérflokki fyrxr Bajara- land. í síðustu kosningum var sigur hinnar bajersku deildar flokksins áberandi mikill. Þeir unnu hvert einasta kjördæma- kosið þingsæti í Bajaralandi. Vegna þessa sigurs hefur Baj- aradeildin krafizt þess að fá auk- in áhrif og völd í stjórninni. Sér- staklega hefur foringi CSU Fritz Schaffer fjármálaráðherra !agt áherzlu á það, að tekið sé mikið tillit til hans persónulega, enda er hann framgjarn og ráðríkur maður. Er það álit manna, að þetta hafi farið þvert ofan í á- ætlanir Adenauers. Hann hafi hugsað sér eftir þessar kosningar, að leysa Scháffer frá fjármála- ráðherraembættinu, enda hafi margir aðrir ráðherrar verið þess hvetjandi. Fritz ’Scháffer hefur ekki verið vinsæll meðal starfsmanna s'nna í stjórninni. Sem fjármálaráðh. hefur honum borið að sjá öðrum ráðuneytum fyrir fé til ýmis kon ar framkvæmda en hann hefur verið ákaflega fastheldinn á fé, jafnvel svo að meðráðherrarnir saka hann um ráðríki. Hann vilji í rauninni hafa hönd í bagga með starfsemi annarra ráðuneyta og noti sér stöðu sína við ríkiskass- ann til þess. Það er enn í fernsku minni deilan sem' upp kom milli Scháffers fjármálaráðherra og Strauss landvarnaráðherra, þegar verið var að koma þýzka hernum á fót. Lengi þverskall aðist Scháffer við að leggja fé til herstofnunarinnar og ’iærði Strauss það fyrir Adenauer. Miklir og langir ráðuneytis- fundir voru haldnir um málið og var aðgerðum Scháffers líkt við skemmdarverk gegn landvörnum Þýzkalands. Fór það svo að lokum, að stjórnin í heild skyldaði Scháffer til að Ieggja peningana strax á borð- ið. Þessi sama saga hefur marg- sinnis endurtekið sig og er það skoðun meðráðherranna, að þrátt fyrir þetta sým Scháffer lítinn sparnað í verki, heldur vilji hann aðeins sjálfur ráðskast með ríkisféð. Það er álitið að eftir kosning arnar hafi Adenauer ætlað að losa sig við Scháffer, og skipa í hans stað kunnan þýzkan fjár- málasérfræðing Franz Etzel, sem verið hefur varaformaður kola- og stál-samsteypunnar. En nú hefur komið strik í reikninginn. Bajara-flokksdeild Scháffers er öflugri en nokkru sinni fyrr og eftir að Frakkinn René Mayer sagði af sér formennsku í xcola- og stálsamsteypunni mun Etzel hafa meiri áhuga á að taka við því embætti. Líkur eru því nú fyrir því að Scháffer haldi embætti smu, en þó með nokkuð breyttri afstöðu, þannig að áhrifavald hans verður ekki eins mikið. Innan ríkisstjórnarinnar er starfandi sérstök efnhagsmála- nefnd, sem hefur það verkefni með höndum að samræma gerðir allra ráðuneyta í efna- hagsmálum. Fritz Scháffer hef ur verið formaður þessarar nefndar, en nú er búizt við, að Ludwig Erhard efnahags- málaráðherra verði skipaður í hans stað. Hann getur líka bent á, að hafa átt mikinn þátt í kosningasigrinum, ekki aðeins í Bajaralandi heldur út um allt Þýzkaland. Verður þessi breyting rétt- lætt með því að viðfangsefni stjórnarinnar á sviði efnahags- mála verði nokkuð önnur á komandi kjörtímabili en því síðasta. Nú verður erfiðast að glíma við verðhækkanir, sem þegar er farið að bera á og Iaunadeilur eru að hefjast í landinu, máske skæðari en nokkru sinni fyrr, þar sem samband málmiðnaðarmanna gerir nú kröfur um 10% launa hækkun og ætlar vægðarlaust að hefja vinnustöðvun. Er því ekki óeðlilegt að efnahags- máiaráðherrann skipi nú áhrifamestu stöðuna um efna- hagsmál landsins. En með því er talið, að Erhard verði mað- ur nr. 2 í hinni þýzku stjórn, nánasti samstarfsmaður Aden- auers. ER HRÍMFAXI Flugfélags xS- lands fór frá Hamborg sl. mánu- dag voru þrír háttsettir stjórnar- meðlimir Vestur-Þýzkalands með al farþega. Þeir ferðuðust til Oslóar þar sem þeir komu fram sem fulltrúar Vestur-Þýzka sam- bandslýðveldisins og Adenauers kanslara, við jarðarför Hákonar Noregskonungs. f sendinefndinni voru þessir menn: Merkatz, sambandsráðherra, Bott, ráðuneytisstjóri í forsætis- ráðuneytinu og Idohr, sendiherra. Þeir lögðu af stað frá Bonn á mánudagsmorguninn og komu með flugvél frá þýzka flugfélag- inu Lufthansa til Hamborgar kl. 14, þar sem þeir svo biðu unz Hrímfaxi lagði af stað kl. 17. Flogið var til Oslóar með við- komu í Kaupmannahöfn. Er til Oslóar kom var móttökunefnd fyrir á flugvellinum en lögreglu- menn stóðu vörð. Á myndinni eru frá vinstri: Mohr, Bott og Merkatz. ( Ljósm.: Sveinn Sæmundsson) Tímamóf í sögu heimsins VÍNARBORG, 1. okt. — í dag komu fulltrúar 60 ríkja sa...an til ráðstefnu hér í borg til að ,;anga frá stofnun alþjóðlegrar kjarn- orkumálastofnnuar, sem hafi það markmið að hagnýta kjarnoi’k- una í friðsamlegum tilgangi. — Forseti Austurríkis, Adolf Scha- erf, setti ráðstefnuna með ræðu og sagði m.a., að þetta væru tíma- mót í sögu heimsins. Á fundinum í dag voru lesnar sferifar úr daglega lífínu IT'YRIR tveimur dögum stóð ég undir miðnættið á bryggju einni í kaupstað norðanlands. Menntunin og kvenfólkið ÞAÐ var hópur manna á víð og dreif á bryggjunni því að í vændum var atburður, sem jafn an þykir enn nokkrum tíðindum sæta, skipakoma. Einn af Fossum Eimskipafélagsins skreið inn höfn ina og eftir stundarkorn hafði hann lagzt að bryggjunni. Með skipinu var allmargt framhalds- skólanema innan við tvítugt. sem í land gekk, frá nálægum sveitum og kauptúnum. Á bryggjunni hitti ég miðaldra mann sem þangað var kominn til þess að taka á móti ungri stúlku sem með skipinu kom til ^ess að ganga í skóla. Við tókum tal saman og það snerist að mestu um menntun og skólamál. Hann sagði: Ég tel vafasaman hagnað af því að senda kvenfólk í fram- haldsskóla. Það er í lagi að það taki gagnfræðapróf, en að það taki stúdentspróf tel ég vafa- saman gróða fyrir þær sjálfar og þjóðfélagið. Ég er þó ekki á móti því að kvenfólk læri, en það er ekki sama hvað það lærir. Hver er til dæmis þjóðfélagslegur hagn aður af því að troða löngum latínulestri í unga stúlku langt innan við tvítugt sem aldrei icem- ur til með að nota þann lærdóm nokkru sinni síðar á ævinni? Ekki syngur hún á latínu yfir börnunum sínum né notar horna- fræði og hærri flatarmálsfræði við að sjóða grautinn. Kvenfólk á að læra það sem því reynist nýtilegt til munns og handar en ekki að gefa sig að framhaldsmenntun nema það sé sérstaklega vel cil slíks fallið. Hagkvæmnisjónarm'ðið EG er sammála því að gáfaðar stúlkur svo af beri e:gi að hyggja á langskólanám en hmar, allur fjöldinn ekki. Margar stúlk- ur leggja nú á sig stúdentsnám og jafnvel háskólanám, en gift- ast svo í miðjum klíðum. Þá geta þær farið með mikinn lærdóm en minna fer fyrir því að þær kunni heimilistörf. Það er þjóðfélags- lega dýrt að langmennta hvern mann, og því þurfum við að haga menntun æskunnar svo sem hag- kvæmast er. Ég reyndi að malda i móinn við þessu tali en það kom fyrir ekki, hann hélt fast við sína skoð un. — Ég sagði að kvenfólk ætti, ekki síður en karlmenn, að sitja við vizkubrunna í æsku, hvað sem það tæki séi fyrir hendur síðar á ævinni. En hér eru sem fyrr skiptar skoðanir á því hvað gagnlegt er og hagnýtt og hvað á rétt á sér. Biðskýli Hafnarfjarðar- vagnanna HAFNFIRÐINGUR bendir á það að æskilegt væri að kom- ið væri upp biðskýlum við Lækj- argötuna á endastöð Hafnarfjarð- arstrætisvagnanna, þar sem fólk bíður tímunum saman eftir bíln- um í misjöfnu veðri. Einnig væri mjög æskilegt að biðskýli væri komið upp við Miklubraut, Þór- oddstaði og víðar. Þetta ættu for- ráðamenn Hafnarfjarðarstrætis- vagnanna að taka til greina. Hví flyzt hann ekki hingað? ENGLENDINGURINN Walter Hudd leikstjóri, segir svo í blaðasamtali við Tímann í gær: „Þegar ég er kominn til London á ný og farinn að ferðast með sóðalegum neðanjarðarlestum full um af döpru, sljóu fólki í velkt- um fötum með grá og guggin and- lit, þá ætla ég að loka augunum og laða fram í hugann myndir af íslenzkum fjöllum, sviphreinum og tígulegum." Hvað hefði Nelson gamli sagt um slíkan mann? upp orðsendingar frá æðstu mönn um stórveldanna, þeim Eisenhow- er, Voroshilov og Macmillan, svo og Dag Hammarskjöld, Eisen- hower, sem á hugmyndina að þessari alþjóðastofnun (1953), sagðist vona, að hún yrði til að sameina sundraðan heim. 180 nemendur í barna- og miðsMa ^twhklsbólms BARNA- og miðskólinn í Stykkis hólmi var settur í kirkjunni í Stykkishólmi s.l. sunnudag k!. 2. Skólastjórinn, Ólafur Haukur Árnason hélt setningarræðu en sr. Sigurður Ó. Lárusson flutti bæn. í barna- og miðskólanum munu verða tæpl. 180 börn í vetur þar af í miðskólanum um 75. Skólinn starfar nú vetur í 6 deildum og 3 miðskóladeildum. Fimm kenn- arar eru við skólann og bættist einn við í haust, auk þess er stundarkennari. Unnið nú við hina fyrirhuguðu heimavist við skólann og er búið að slá upp fyrir neðri hæðinni og verður hún steypt næstu daga. Trésmiðja Stykkishólms hefur verkið með höndum og yfirsmiður er Ágúst Bjartmars trésmíðameistarl. Trésmiðjan hefur einnig unnið að lagfæringum og endurbótum á barnaskólahúsinu að inr.an og er því verki lokið. Hefir skólinn allur verið málaður, borð viðgerð og er nú ástand skólans fyrsta flokks og öll vinna smekklega og prýðilega af hendi leyst. Þá hefir lóð skólans verið lög- uð og það sem gert hefir verið til prýði og mikilla bóta. — Á. Sæmilegur afli T V E I R þillarsbátar hafa undanfarið stundað haustróðra frá Stykkishólmi og hefir afli ver- ið mjög sæmilegur, eða allt að 4 lestum í róðri og má það heita sæmilegt því róið er með stutta lóð. Fiskurinn er mjög góður. Einnig hafa í sumar og haust róið héðan nokkrir trillubát- ar. Róið er hér út í flóann. ^æftir hafa verið góðar. — Á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.