Morgunblaðið - 18.10.1957, Side 16

Morgunblaðið - 18.10.1957, Side 16
VEÐRIÐ Norðangola eða kaldi, léttskýjað Akureyrarbréf Sjá bls. S. 236. tbl- — Föstudagur 18. október 1957. Björn Pálsson flugmaður, næst flugvélinni á Norðfjarðarvelli Fyrsta flugvélin lendir á Norðfjarðar-flugvellinum NESKAUPSTAÐ, 17. okt. — A hádegi í dag lenti fyrsta flugvélin á nýja flugvellinum í Norðfirði. Það var Björn Pálsson flugmaður, sem lenti þar og var kominn til að sækja sjúkling. Flugtiminn frá Reykjavík var 1 klst. 59 mín. í logni og heiðskíru veðri. Flujvöllurinn á Norðfirði á að verða 1200 metra langur. Verkið hófst sl. vor. Nú er búið að ganga frá 230 metrum af flugbrautinni en ráðgert að lengja hana enn um 60 metra í haust, ef veður leyfir. Áætlað er að flugvallar- gerðinni ljúki næsta haust. Völlurinn er þannig gerður, að sanddælur moka sandi úr árós og grunn leira fyrir botni Norð- fjarðar er fyllt upp. Björn Pálsson hefur í huga að hefja áætlunarflug milli Reykja- víkur og Norðfjarðar, þegar brautin er orðin 290 metrar og fljúga hvern dag sem flugveður er fyrir flugvélar hans. Að þessu sinni kom Björn til að sækja sjúkling austur. En far- þegi, Sigursveinn Þórðarson, var með honum báðar leiðir. Björn var 1 klst. og 40 mín. á leiðinni til Reykjavíkur. Hvað tefur skyldusparnauinn ? Fyrirspurn frá Sigurbi Bjarnaéyni I FYRRADAG var útbýtt á Alþingi fyrirspurn frá Sigurði Bjarna svni til félagsmálaráðherra, um framkvæmd skyldusparnaðar. Er hún á þessa leið: „Hver er ástæða þess, að svo mjög hefur dregizt að setja reglu- gerð um skyldusparnað ungs fólks samkvæmt III. kafla laga nr. 42 frá 1. júní 1957, um húsnæðismálastofnun, byggingarsjóð ríkis ins, sparnað til íbúðabygginga o. fi.?“ Eins og kunnugt er gortuðu^" kommúnistar mikið af því sl. vetur að þeir hefðu tryggt stór- aukið fjármagn til íbúðalána, m. a. með tillögum sínum um skyldusparnað ungs fólks. — Nú eru nær 5 mánuðir liðnir síðan húsnæðismálatillögur kommún- ista og vinstri stjórnarinnar voru lögfestar á Alþingi. En reglugerð hefur ekki ennþá verið sett um framkvæmd skylduspárnaðarins og engar tekjur því enn af hon- um orðnar! Fulltrúaráð Sjélf- dæðisfélaganna í Keflavtk FUNDUR verður haldinn í Full trúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Keflavik í kvöld í Sjálfstæðishús- inu og hefst fundurinn kl. 8,30 stundvíslega. Rætt verður um bæjarmál og bæjarstjórnarkosningar og er nauðsynlegt að fulltrúar fjöl- meaai á fundinn. ísfisksala í Bretlandi TOGARXNN Jörundur frá Akur- eyri, landaði í gær rúmlega 120 tonna ísfiskafla sínum í Grims- by og seldi hann fyrir rúm 8600 sterlingspund. í dag mun togar- inn Karlsefni selja þar. í byrjun næstu viku munu tveir togarar selja í Þýzkalandi. Aðalfundur Þérs í Hafnsrfirði AÐALFUNDUR ÞÓRS, féiags Sjálfstæðisverkamanna og sjó- manna, verður haldinn í Sjálf- stæðishúsinu í kvöld og hefst kl. 8,30 e.h. Á fundinum fara fram venju- leg aðalfundarstörf og félagsmál rædd. Þá mun Gunnar Helgason, erindreki Sjálfstæðisflokksins mæta og flytja erindi um verka- lýðsmái. — Eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna. Sjálfsfæðisfélögin á Isa- firði hefja veirarsfarfið SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á ísa- firði hefja annað kvöld vetrar- starfið með félagsvist og dansi að Uppsölum. Undanfarna vetur hafa Sj álfstæðisfélögin á ísafirði haldið uppi fjölbreyttri vetrar- starfsemi og hefur félagsvistin verið einna vinsælust enda jafn- an vel sótt. Með vistinni annað kvöld hefst þriggja kvölda keppni og verða góð verðlaun veitt. Nokkur ny þingskjöl FUNDIR voru í gær bæði í sam- einuðu Alþingi og deildum. Sam einað þing vísaði fjárlagafrum- varpinu til fjárveitinganefndar, en útvarpsumræður um það voru j fyrrakvöld. í efri deild var eitt mál á dag- skrá: Frumvarp varðandi áfram- haldandi álag á tolla (sjá Mbl. 12/10). Var því vísað umræðu- laust til 2. umr. og fjárhags- nefndar. í neðri deild var fundur sett- ur á venjulegum tíma, kl. 1,30. Áður en gengið var til dagskrár kvaddi Jóhann Hafstein sér hljóðs og ræddi um útvarpsræðu Hannibals Valdimarssonar félags málaráðherra í fyrrakvöld og tölur þær, er ráðherrann nefndi um sparifjármyndunina. Um þetta atriði urðu umræður, er stóðu nærri 3 stundarfjórðunga, og er sagt frá þeim á öðrum stað í blaðinu í dag. Að þeim loknum var gengið til dagskrár. Fjármálaráðherra fylgdi frum- varpi um áframhaldandi inn- heimtu söluskatts (sjá Mbl. 12/10) úr hlaði með nokkrum orðum, en því var síðan visað til 2. umr. og fjárhagsr°fndar. Ný þingskjöl Á fundi í fyrrakvöld var út- býtt 6 nýjum þingskjölum: Sigurður Ó. Ólafsson, þing- maður Árnesinga, flytur tillögu um vegamál, sem lýst er annars staðar í blaðinu. Karl Guðjónsson (K) og Gunnar Jóhannsson (K) flytja fi’umvarp um, að atvinnutekjur, sem skatt- þegn hefur aflað sér með eftir-, nætur- og helgidagavinnu við störf í þjónustu útflutningsfram- „Hönd dauðans", leikrit eftir Krisfján Albertsson kemur út í dag í DAG kemur út hjá Helgafelli nýtt leikrit eftir Kristján Albert- son, er hann nefnir „Hönd dauð- ans“. Þetta er harmsaga ungrar stúlku, dóttur einræðisherra í einu af löndum Evrópu. Hún ferðast um hásumar, undir öðru nafni, upp í fjöll í Sviss, til þess að ganga ein um hálendið, fjarri andrúmslofti ættjarðarinnar. En hún þekkist — og áhyggjulaust ferðaævintýri breytist í hörð og óvænt örlög. Leikurinn sýnir baráttu hennar fyrir ást sinni til eins af óvinum föður síns. En þessi ástarsaga er samofin annarri sögu, enn meiri að yfir- gripi og hörmugum þunga. Hönd dauðans mun vera fyrsti sjón- leikur, sem fram hefur komið, þar sem brugðið er upp mynd af einræði vori'a tíma, — barátt- unni gegn ftelsi mannsins, í einu sem öllu, og fyrir almætti harð- svíraðs ríkisvalds í hönduxn fá- mennrar klíku eða eins manns, aðferðum þessarar baráttu, innsta viija og hinztu afleiðingum á líf einstaklinga og þjóða. Leikurinn snýst um þá spurningu, sem nú er efst á baugi um heim allan — hvort maðurinn eigi að njóta sama frelsis og áður í leit sinni að persónulegri hamingju, betra lífi, fullkomnara skipulagi, eða hvoi't mikill hluti þjóðanna og ef til vill gjörvallt mannkyn, eigi eftir að lifa við rammari skorður um sköpunarmátt og lífs- þróun, þrengra svigrúm í hugsun og athöfn en nokkurn tíma hefur þekkzt á jörðinni. Er það „hönd dauðans, sem nú varpar skugga sínum á þennan hnött okkar, og nálgast hann, til að herða tak- ið“? Leikurinn er í fimm þáttum og er bókin nær 160 bls. leiðslunnar og ekki eru orlofs- skyldar, skuli dregnar frá tekj- um áður en skattur er á þær lagður. Benedikt Gröndal (A) tlytur tillögu til þingsályktunar um rannsókn á orsökum „hinna tíðu eldsvoða, sem valdið hafa miklu tjóni á atvinnutækjum þjóðar- innar“, og að ríkissjórnin skuli gera „hverjar þær ráðstafanir, sem þurfa þykir til að draga úr eldhættu í atvinnufyrirtækjum“. í greinargerð kemur fram, að árið 1956 greiddu tryggingarfé- lögin um 17 milljónir króna í brunabætur. Páll Zóphóníasson (F) flytur frumvarp um refsingar fyrir land helgisbrot. Efnið er það, að auk sekta skuli svipta skipstjóra, sem sekur verður um landhelgisbrot, rétti til skipstjói'nar á íslenzk- um skipum um eins árs skeið við fyrsta brot, en ævilangt, ef um ítrekað brot er að. ræða. Sigurður Bjarnason spyr Hanni bal Valdimarsson um fram- kvæmd skyldusparnaðar. Er nán- ar sagt frá fyrirspurninni annars staðar i blaðinu. Þá er einmg sagt annars staðar frá stjórnar- frumvarpi um jarðhita. Alfreð Gíslason kom tii þings í gær, og eru pá allir þingmenn komnir til starfa. Skemmdarverk í GÆRDAG kærði maður yfir því til rannsóknarlögreglunnar að skemmdarverk hafi verið unn- ið á nýjum bíl hans milli kl. 10 og 12 árdegis í gær. Hér er um að ræða austur- þýzkan plastbíl með seglþaki yfir, R-2935. Stóð bíllinn fyrir utan húsið Vitastíg 20. Brennt hefur verið gat á þakið álíka stórt um sig og krónupeningur. Þykir senniiegt að sigaretta hafi verið notuð í þessu skyni. Það er ekki vitað um neina sjónar- votta að þessu, en rannsóknar- ögreglan vill eindregið hvetja þa til þess að gera sér viðvart er einhverjar upplýsingar gætu gefið um skeihmdarverkamann- Kristján Albertsoi : Ól. K

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.