Morgunblaðið - 19.10.1957, Side 12

Morgunblaðið - 19.10.1957, Side 12
12 MORGUNBLifílÐ Laugardagur 19. okt. 1957 ustan Edens eftir John Steinbeck ur og fjandmaður hafði saumað? Hr. Fenchel sat allan daginn á borðinu sínu og hafði ekkert að gera og þess vegna bætti hann og spretti upp, saumaði og spretti upp aftur — sömu flíkurnar, dag- inn út og daginn inn. Við sýndum hr. Fenchel alla þá grimmd og allt það miskunnarleysi er við höfðum yfir að ráða. Hann var okkar óvinur, okkar Þjóðverji. Hann gekk framhjá húsinu okk- ar á hverjum degi og áður fyrr hafði hann heilsað hverjum karli og hverri konu og hverju barni og hverjum hundi og allir höfðu end- urgoldið kveðju hans. Nú heilsaði honum enginn maður, eða tók und- ir við hann og ég get ennþá séð fyrir mér þann örvæntingarfulla einstæðingsskap og særða metnað Þýðing Sverrii Haraldsson □----------- er skein út úr hverjum andlits- drætti hans. Litla systir mín og ég létum ekki okkar eftir liggja í þessu kalda stríði Salinasbúa við hr. Fenchel og það er endurminning- in um eitt slíkt smánarlegt at- hæfi, sem enn þá getur komið svit anum út á mér og herpt saman hálsvöðvana, svo að mér verður örðugt um andardrátt. Við stóð- um eitt kvöld úti á flötinni fram- an við húsið og sáum hann koma gangandi með stuttum, þreytuleg um skrefum. Ég man ekki eftir þvi að við hefðum gert nokkrar fyrirfram ákvarðanir, en það hljót um við samt að hafa gert, úr því að við gengum svo beint og hik- laust til verks. Þegar hann nálgaðist gengum við systkinin hægt og samhliða yf- ir götuna. Hr. Fenchel leit upp og sá okkur. Við námum staðar í göturennunni, meðan hann gekk hjá. Hann brosti glaðlega til okkar og sagði: — „Gott kvöld, Chon. Gott kvöld, Mary“. Við stóðum hreyfingarlaus, störðum á hann og sögðum bæði samtímis: — „Hoch der Kaiser". Ég sé andlit hans svo greinilega fyrir mér, hræðslulegu, saklausu, bláu augun. Hann reyndi að segja eitthvað og svo brast hann í grát. Reyndi ekki einu sinni að leyna því. Stóð bara snöktandi fyrir framan okkur. Og hugsið þið ykk- ur bara — við krakkarnir slógum saman hælum, snerum okkur við og gengum snúðugt og hnakkakert yfir götuna og inn í húsagarðinn okkar. En satt að segja fund- um við bæði til blygðunar og hryggðar og svo verður mér enn, þegar ég hugsa um það. Við vorum of ung til þess að þjarma verulega að hr. Fenchel. Til þess þurfti sterka menn — um þrjátíu að tölu. Eitt laugardags- kvöld komu þeir saman í veitinga- krá og þrömmuðu í skipulagðri fylkingu, fjórir og fjórir í röð, út eftir Central Avenue, um leið og þeir endurtóku í sífellu: „Einn- tveir, takt — einn-tveir“. Þeir brutu niður hina hvítu rimlagirð ingu hr. Fenchels og brenndu alla framhliðina á húsi hans. Enginn bölvaður Þjóðverjavargur og keisaradindill skyldi sleppa ómerkt ur undan refsivendi okkar. Og nú þurfti Salinas ekki lengur að skammast sín fyrir San José. En við þetta fannst Watsonville auðvitað sem heiður sinn væri í hættu. Borgararnir þar tóku Pól- verja, sem þeir álitu að væri þýzk- ur og veltu honum upp úr tjöru og fiðri. Hann talaði lika með er- lendum hreim. Við £ Salinas gerðum allt það, sem óhjákvæmilega er gert stríði og við hugsuðum hinar óum- flýjanlegu hugsanir. Við æptum og fögnuðu yfir góðum fréttum og fylltumst skelfingu við uggvænleg og ill tíðindi. Hver maður bjó yf- ir einu eða öðru leyndarmáli, sem hann varð að breiða út með ýtr- ustu leynd, til þess að það héldi áfram að vera leyndarmál. Dag legt líf okkar breyttist á hinn venjulega hátt. Kaupgjald og verð lag hækkaði. Hver minnsti orðróm ur um matarþurrð kom okkur til að kaupa og safna hvers konar fóðurtegundum. Siðprúðar hæglát ar frúr bórðust með kjafti og klóm um eina tómatkrukku, svo að lá við meiðingum. Það var ekki einungis um eymd, eigingirni og hugsýki að ræða. — Hetjuhugur þekktist einnig. Menn sem gátu sloppið við herskyldu, buðu sig fram sem sjálfboðaliðar og aðrir neituðu að ganga í herinn af siðferðislegum eða trúarlegum orsökum og kusu heldur Golgata- gönguna, sem venjulega fylgir slíkum ákvörðunum. Svo voru líka enn aðrir sem gáfu allar eigur sínar til hernaðarþarfa, vegna þess að þetta var síðasta stríðið og með þv£ að vinna það, mynum við rifa hið illa upp með rótum, £ eitt skipti fyrir öll, svo að heimurinn yrði laus við þetta óhugnanlega brjál- æði. Það er ekkert tignarlegt eða göfugt við dauðann á orrustuvelli Einungis sundurtættar holdflyks- ur og rauðir blóðstraumar — ó- geðsleg og hryllileg sjón. En það hvílir einhver mikil og hrein tign yfir sorginni, hinni örvæntingar- fullu og vonlausu sorg sem lam- ar fjölskylduna og nístir hjörtun, þegar skeytið kemur. Eklcert hægt að segja, ekkert hægt að gera og llmurinn er indœll og bragðið eftir því O. Johnson & Kaaber hf. Orðsending frá Þvottahúsinu L í N Getum nú afgreitt allan þvott með stuttum fyrirvara. SÆKJUM — SENDUM Þvottahú'sið Lín Hraunteig 9 Bílaviðgerðarmaður helzt meistari, óskast á verkstæði sem fyrst. Húsnæði fylgir, ef þarf. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Bílaviðgerðir —3016“. M A R K Ú S Eftir Ed Dodd VOUR POREMAN,1 LE3 PRICE, HAS | JUST DONE SOME I TALKING AND J WHAT HE TOLD | US WAS AN 1 UGLY STORV/ 1) Þegar Bangsi kemur til hjálpar á síðustu stundu, gerbreyt Mt allt. Freyfaxi sýnir nú listir sfnar, svo að áhorfendur ráða sér ekki af hrifningu. 2) Þulur segir: — Innan stund- ar munu dómararnir tilkynna hverjir eru sigurvegarar £ hesta- sýningunni. Þar koma aðeins tvær til greina, Lovisa og Sirri. 3) — Hvað? Vilt þú tala við mig, lögreglustjóri? Hvað er það? — Verkstjóri þinn, hann Láki, hefur nú játað brot sin. Það sem hann sagði okkur var ljót saga. aðeins ein einasta von. — Ég vona að hann hafi ekki þjáðst —■ og hversu veikt hálmstrá er ekki sú von. Og það fólk var vissulega til, sem breytti sorg sinni, þegar sárasti sviði hennar var horfinn, í stærilætd og áleit sig þýðingar- meira sökum þess missi er það hafði þolað. Sumt af þessu fólki færði sér það jafnvel £ nyt, að stríðinu loknu. Það er einungis eðlilegt að menn reyni að auðgast £ striði, eins og það er manninum eðlilegt ævistarf að vinna sér inn peninga. Enginn láði manni það, en þess var vænzt að hann verði hluta af fengnum £ striðs-skulda- bréf. Allt þetta héldum við að væri sérstaklega einkennandi fyrir Salinas, jafnvel sorgin. XLVII. KAFLI. I. í húsi Trasks við hliðina á Rey- nauds brauðgerðinni, hengdu þeir Lee og Adam upp landakort af vesturvfgstöðvunum, með röðum af marglitum tituprjónum £ krókum og hlykkjum og með þessu fannst þeim þeir verða nokkurs konar þátttakendur i leiknum sjálfum. Svo dó hr. Kelly og Adam Trask var kjörinn sem eftirmaður hans á útboðsskrifstofunni. Hann var rétti maðurinn i þvl starfi. Hann hafði sjálfur tekið þátt £ hernaði og hlotið viðurkenningu fyrir frammistöðu sina. Adam Trask hafði kynnzt stríði — smáskæruhernaði með laun- sátrum og manndrápum og hann hafði verið vitni að þeim laga- og réttarbrotum, þegar manninum er leyft að drepa hverja þá mannlegu veru, sem hann kemst i færi við. Adam mundi ekki lengur greini- lega eftir þessu stríði sínu. Ein- staka glöggar myndir geymdust þó í minni hans, mannsandlit, lík sem hlaðið var í kesti og brennd til ösku, glamrið í sverðssliðrum á hraðri göngu, óreglulegir, ákafir skothvellir £ riddarabyssum, kald- ur og skerandi hljómur herlúðurs úti í náttmyrkrinu. En myndir Adams voru stirðnaðar. í þeim fannst hvorki líf ná hreyfing — Þær voru líkastar myndum í bók og ekki sérlega vel teiknaðar. Adam vann kappsamlega, sam- vizkusamlega og þunglyndislega. Hann gat ekki varizt þeirri hugs- un að ungu mennirnir, sem hann skráði og sendi £ herinn, væru dæmdir til dauða. Og af þv£ að hann vissi að hann var istöðulaus og veiklyndur, varð hann stöðugt *I|ÍItvarpiö Laugardagur 19. oklóber: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 „Laugar- dagslögin". 19,00 Tómstundaþátt- ur barna og unglinga (Jón Páls- son). 19,30 Einsöngur. John Raitt syngur vinsæl lög (plötur). 20,30 Leikx-it: „Anna Kruse“ eftir Wil- fred Christensen, £ þýðingu Elías- ar Marar. — Leikstjóri: Haraldur Björnsson. 22,10 Danslög (plötur). 24,00 Dagskrárlok. B rcmsulof tkútar Zenith og Stromberg blöndungar. Ennfremur hljóðkútar £ flestar tegundir bifreiða. [P Slefúnsson Hf\ Hvarfisgatu IQJ - i « '\ \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.