Morgunblaðið - 19.10.1957, Side 16
VEDRIÐ
Allhvass sunnan og rigning
Bréf
Irá sr. Sigurði Einarssyni
Sjá bls. 9.
237. tbl. — Laugardagur 19. október 1957-
Maður bíður bána í um-
ferðarslysi við Keflavík
Var? fyrir varnarliðsbifreiS
KEFLAVÍK, 18. okt. — í gær-
kvöldi vildi það hörmulega slys
til á Reykjanesbraut, milli
Keflavíkur og Njarðvíkur, að
varnarliðsbifreið ók á miðaldra
mann, Guðna Jónsson, vélstjora,
Vatnsnesveg 25, Kefiavík og slas-
aðist hann svo, að hann lézt af
afleiðingum þess í morgun.
Vegurinn ólýstur
Það var um kl. 19,25, að Guðni
heitinn, sem var 51 árs, var á
leið heim til sín frá Njarðvíkum,
en þar hafði hann verið við
vinnu. Var hann á reiðhjóli.
Hraðkeppni
í handknattleik
HIN árlega hraðkeppni H.K.R.R.
í handknattleik hófst að Háloga-
landi í kærkvöldi. Fjöldi fólks
horfði á keppnina og voru
flestir leikanna spennandi og
akemmtilegir. Flest liðanna virð-
ast nú vera í betri þjálfun en und
anfarin ár. Úrslit í gærkvöldi
urðu þessi:
Afturelding—Víkingur 11:6
KR—ÍR 12:9
Valur—F.H.B. 12:5
Fram—Ármann 11:6
F.H.A.—Þróttur 11:5
Mótið heldur áfram á morgun
kl. 20 og leika þá þessi félög
taman:
Afturelding—Fram, KR—Val-
ur, en F.H. situr hjá.
Jafnframt fara fram kvenna-
leikir milli KR og Fram annars
vegar og Ármanns og Þróttar hins
vegar. Þau lið, sem sigra, keppa
Cíðan til úrslita.
Mikil umferð er á veginum um
þetta leyti, en hann er ólýst-
ur.
Strax fluttur i sjúkrahús
Slysið vildi þannig til, að varn-
arliðsbifreiðin sem er merkt
VLE-274, var á leið til Keflavík-
ur. Mun bifreiðarstjórinn ekki
hafa séð til ferða Guðna heitins,
og ók bifreiðinni aftan, á hann.
Varð bifreiðarstjórinn þó var við
er slysið varð, en Guðni hafði
þá kastazt út af veginum. Komu
margir að slysstaðnum þá þegar,
þar á meðal lögregla Keflavíkur-
flugvallar. Guðni heitinn missti
strax meðvitund Qg var honum
þegar ekið í sjúkrahús Keflavík-
ur. En þar lézt hann sem fyrr
segir í morgun af völdum slyssins.
Vel látinn
Guðni heitinn lætur eftir sig
konu og fimm börn, það yngsta
11 ára. Hann var dugandi sjó-
maður og vel látinn. Guðni hefur
undanfarin ár verið vélstjóri á
m.b. Heimi frá Keflavík.
—Ingvar.
Sími á alla bæina
í Grímsey
HÚSAVÍK, 18. okt. — f dag fór
frá Húsavík, með báti, sjö manna
vinnuflokkur til Grímseyjar, og
mun vinna að því næstu viku til
10 daga, að leggja síma á alla
bæina í Grímsey. Þar hefur ekki
verið sími hingað til.
Símakerfi þetta er aðeins
bundið við eyjuna sjálfa til að
byrja með. En það mun vera í
athugun hjá Landssímanum að
gera talbrú frá Grímsey til lands
næsta sumar.
Eins og sKyrt var ira hér i blaðinu nú fyrir skömmu fóru
tveir menn nýlega í eftirleit í flugvél inn yfir afréttarlöndin
fram af Suður-Þingeyjarsýslu. Fundu þeir alls 15 kindur, sem
síðan verða sóttar „landleiðina". — Mynd þessi er af þeim
félögum er þeir komu úr fjögurra tíma leiðangri sínum. T.v.
Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði, hinn kunni fjaliamaður, en
hann stjórnaði leitinni. T.h. Jóhann Helgason, sem stjórnaði
flugvélinni. (Ljósm.: vig.)
Guðmundur Pálmason
Fjöltefli Heimdallar
á sunnudag
GUÐMUNDUR Pálmason skák-
meistari teflir fjöltefli á vegum
Heimdallar, í Valhöll á sunnu-
dag kl. 2. — öllu æskufólki er
heimil þátttaka.
Vísilalan 191 slig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. okt. sl.,
og reyndist hún vera 191 stig.
(Frá Viðskiptamálaráðuneytinu)
Stúdentaráðskosningarnar
KOSNINGASKRIFSTOFA VÖKU er í félagsheimib
V. R. í Vonarstræti 4, 3. hæð, símar 24477 og 10530.
Aríðandi er, að stuðningsmenn Vöku hafi sam-
band við kosningaskrifstofuna snemma.
Kosið er í Háskólanum frá kl. 2 til um kl. 8.
Kosningaskrifstofa Vöku verður opnuð kl. l.
Listi Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, er
D —LISTINIM
Eftirgjöf lána vegna óþurrka
Ríkisstjórnin hefur nýlega falið bjargráðasjóði
innheimtu lánanna
INGÓLFUR Jónsson og Sigurður
Ó. Ólafsson flytja á Alþingi eftir-
farandi þingsályktunartillögu:
1949—50 á Austur- og Norð-
austurlandi."
í greinargerð geta flutnings-
1 menn þess, að þeir hafi áður flutt
„Alþingi ályktar að fela sams konar tillögu, en núverandi
ríkisstjórninni að gera ráðstaf- ríkisstjórn hafi snúizt gegn henni
anir til, að gefin verði eftir Qg sj mánudag afhent bjargráða-
að fullu lOVz millj. kr. vegna sjóði lán þessi til innheimtu.
óþurrkanna á Suður-og Suð-
vesturlandi árið 1955 og enn
fremur allt að 3 millj. kr. lán
vegna harðinda og óþurrka
Þjóðviljinn í gœr og blekkingar Hannibals:
Bls. 10: „sparifjáraukning„
Bls. 12: „bankainnlög, jafnt sparifé
sem hlaupareikningar
MÓTSAGNIR og ónákvæmni ein
kenna skrif Þjóðviljans í gær
um blekkingar Hannibals í út-
varpsumræðunum um fjárlögin.
Blaðið birtir ræðu Hannibais
og segir þar orðrétt:
„Og nú myndi mönnum þykja
fróðlegt að heyra, hver sparifjár-
aukningin hafi orðið í bönkum
og sparisjóðum fyrstu 7 mánuði
þessa árs. Varð hún 98,9 milljón-
ir, eins og í fyrra, eða varð hún
yfirleitt nokkur? Jú, reyndar hef
ur hún samkvæmt opinberum
skýrslum orðið — ekki sú sama
og í fyrra 98,9 milljónir, heldur
141 milljón á fyrstu 7 mánuðum
ársins 1957“.
j rammagrein á baksíðu
Þjóðviljans er svo það, sem
Hannibal kallar „sparifjár-
myndun“ orðið að „bankainn-
lögum“, enda er orðalag
Hannibals svo fjarri lagi, að
svarbróðir hans Lúðvík Jósefs
son viðurkenndi við umræð-
urnar, sem urðu utan dag-
skrár í neðri deild í fyrradag,
að félagsmálaráðherrann
hefði átt að nota annað og ná-
kvæmara orðalag.
Menn eru nú farnir að
skilja, með hvaða rangsnúning-
um Hannibal fann út, að fyrstu
7 mánuði þessa árs hefði „spari-
fjáraukningin" orðið 141 milljón
og var frá því sagt í Mbl. í gær.
Hitt er enn algerlega óskýrt,
hvernig þessi nýtilkomni hag-
skýrsluhöfundur hefur fundið út
þá vizku, að á fyrstu 7 mánuðum
ársins 1956 hafi sams konar aukn
ing „í bönkum og sparisjóðum“
orðið 98,9 milljónir. Hinar réttu
tölur um aukninguna 1956 skv.
hagskýrslum eru þessar:
Sparifé Veltiinnlán
millj.
98,1
38,0
ekki saman sparifé og veltiinnlán
eins og hann gerir, þegar hann
finnur út töluna frá 1957. Og
hann tekur ekki hina réttu tölu
um spariféð (136,1 millj. kr.).
Einna næst fer hann tölunni um
sparifjáraukninguna í bönkun-
um einum!
Ríkisstjórnin tók þó fram, er
hún ritaði bjargráðasjóði um mál
ið, að heimilt sé að fella niður
vexti, lengja lánstímann eða gefa
lánin eftir að hluta eða öllu leyti.
Síðan segja flutningsmenn:
„Það sýnist vera eðlilegra að
afgreiða þessi mál á þann hátt,
sem farið er fram á með tillögu
þessari, en það er að ganga hreint
til verks og gefa lánin eftir að
fullu. Það, sem bjargráðasjóði er
ætlað að vinna samkvæmt bréfi
ríkisstjórnarinnar, virðist vera
mjög erfitt í framkvæmd —
Þess skal getið, að á síðasta Al-
þingi var samþykkt að gefa eftir
sams konar lán og hér er um að
ræða til Austfirðinga. Alþingi
hefur því með þeirri samþykkt
skapað fordæmi, sem eðlilegt er
að fylgja hvað snertir þau lán,
sem nefnd eru í þessari tillögu.“
MEÐAL hinna mörgu glæsilegu
happdrættisbíla, hinna ýmsu sam
taka í bænum sem eru til sýnis á
götunum er lítill fallegur Fiat-
bíll, sem venjulega stendur niðri
í Austurstræti. Þessi bíll er aðal-
vinningur í happdrætti því sem
Krabbameinsfélag Reykjavikur
hefur stofnað til, til ágóða fyrir
Krabbameinsleitarstöðina sem
stofnsett var 14. maí í vor og er
til húsa í Heilsuverndarstöðinni.
Úr þessum bíl hafa undanfarnar
vikur verið seldir happdrættis-
miðar félagsins, en nú er sölunni
að ljúka, því dregið verður i
happdrættinu á sunnudag.
Góðir vinningar
Sala miða félagsins hefur geng
ið heldur treglega, þótt undar-
legt megi virðast, þar sem um svo
mikilvægt málefni er að ræða.
Þó hefur salan glæðzt nú síðustu
dagana. Tveir aðrir vinningar
eru ennfremur í happdrættinu,
radíógrammafónn og aukavinn-
ingur, sem er málverk eftir Jón
Þorleifsson.
Skátarnir á vettvang
Morgunblaðið snéri sér til
skrifstofu Krabbameinsfélags
Reykjavíkur í gær og spurðist
an við 98,9 milljónirnar, sem | fyrir um sölu happdrættismiða
Hannibal talar um. Hann tekur | og var því tjáð, að góðar horfur
Bankar
Sparisjóðir
millj.
4-28,7
2,7
136,1
•4-26,0
Hér kemur ekkert heim og sam
Skátar hjáJpa við sölii happdrættis-
miða Kraíjljameinsfélags Rvíkur í dag
Á morgun verður dregið í happdrættinu
væru nú á sölu. Skátar hafa einu
sinni ennþá sýnt hjálpsemi sína
og viðbragðsflýti. Þegar Skáta-
félag Reykjavíkur varð þess
vart, að salan gekk ekki að ósk-
um, bauð það fram aðstoð sína.
í gærkvöldi seldi fjöldi skáta
happdrættismiða í bænum og í
dag munu þeir „herja“ víða í
sama tilgangi. Kvað skrifstofan
hjálp skátanna mjög mikilvæga.
Dregið úr seldum miðum
Reykvíkingar eru því beðnir
að taka vel á móti skátunum í
dag og kaupa happdrættismiða
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
og leggja þannig fram sinn skerf
til hinnar mikilvægu stofnunar,
Krabbameinsleitarstöðvarinnar.
Skrifstofa félagsins verður opin
í dag til kl. 10 og einnig á morg-
un, sunnudag. Aðeins verður
dregið úr seldum miðum.
Varðarkaffi í Valböll
i dag kl. 3-5 ss*