Morgunblaðið - 22.10.1957, Qupperneq 10
MORGVKBT 4ÐIÐ
Þriðjudagur 22. október 1957
Cftg.: H.í. Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigíús Jónsson.
Aðairitstjórar: Vaitýr Steíánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
UTAN UR HEIMI
Maðurinn sem talaði við Krúsjeff
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími J3045
Augiysingar: Arni Garðar Knstinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aigreiðsia: Aðalstræti 6. Sími 22480
Askriftargjald kr 30.00 á mánuði innaniands.
t lausasölu kr t.50 emtakið.
ÞUNGIR DRAUMAR FRAMSÓKNAR
AF forystugrein „Tírnans" sl.
sunnudag er auðsætt að
Framsóknarmaddaman
hefur um þessar mundir þunga
drauma. Ástandið í stjórnmálum
Og efnahagsmálum Frakklands
verður blaðinu tilefni til hugleið-
inga um þær hættur, sem steðji
að þingræðinu við slíkar aðstæð-
ur. Kveður það aðrar þjóðir
margt geta lært af ástandinu I
Frakklandi. Kemst Tíminn síðan
að orði á þessa leið:
„Meðan almenningur þekk-
ir ekki ástandið er blekkingin
auðveld, en einnig hún hefur
sinn tima.
Ef beðið er eftir þvi, að
staðreyndirnar svipti henni
sundur svo að öllum sé ljóst,
er komið hættulega nærri þvi
ástandi, sem nú er í Frakk-
landi, þar sem traust manna
á þingræöinu er sett að veði.
Hin rétta leið ei að gera við-
reisnarráðstafanir í tíma fyr-
ir opnum tjöldum og í augsýn
þjóðarinnar, enda fram-
kvæmi þær trúnaðarmenn
fólksins sjálfs“.
Þetta voru ummæli Tímans
sl. föstudag.
%Almenningur þekkir
ekki ástandið“
„Meðan almenmngur þekkir
ekki ástandið er blekkingin auð-
veld“, segir málgagn Framsókn-
ar. Það er vissulega rétt. En
hvernig hefur Framsóknarflokk -
urinn hjálpað þjóðinni til þess að
„þekkja ástandið" og hinar raun-
verulegu orsakir þess? Hefur
hann gert það með því, að taka
höndum saman við kommúnista
um stjórn landsins og reyna að
telja þjóðinni trú um að allt, sem
aflaga fer í efnahagsmálum henn-
ar, sé Sjálfstæðismönnum að
kenna, enda þótt Framsóknar-
flokkurinn hafi setið með þeim í
stjórn nær samfleytt sl. tíu ár?
Hefur flokkurinn gert það með
þvi að vinna baki brotnu að því
að telja fólkinu trú um það, að
eina hjálpræðisins í íslenzkum
efnahagsmálum sé að vænta frá
kommúnistum og í samvinnu við
þá?
Það getur vel verið að Tíminn
álíti að þegar þjóðlygar um or-
sakir og afleiðingar í íslenzkum
stjórnmálum séu til þess fallnar
að kenna „almenningi að þekkja
ástandið". En hver einasti heið-
arlegur og vitiborinn maður ven
að svo er ekki. Og það ei vissu-
lega komið „hættulega nærri þvi
ástandi" að „staðreyndirnar
svipti henni sundur" (blekking-
unni). Þess vegna hafa Tíma-
menn nú þunga drauma Þeir
finna að þeir hafa gert allt, sem
þeir gátu til þess að „almenn-
ingur þekki ekki ástandið". Þeir
hafa snúið staðreyndum við, farið
með staðleysur og blekkingar um
þróunina í íslenzkum efnahags-
málum. Þeir hafa heiðrað skálk-
inn, tekið bölvaldana í íslenzk-
um efnahagsmálum, kommúnist-
ana, upp af eyðimerkurgöngu
þeirra og sagt þjóðinni, að þeir
einir gætu leyst vanda efnahags-
lífsins.
Sjálfir vita Tímamenn og leið-
togar Framsóknarflokksins, að
aðeins ofstækisfyllstu fylgis-
menn þeirra trúa þjóðlyginni um
að Sjálfstæðismenn eigi sök á
efnahagsöngþveitinu, en kom:n-
únistar séu hinir miklu bjarg-
vættir í vandræðunum.
„Viðreisnarráðstafanir
— fyrir opnum tjöldum“
Nú talar Tíminn um nauðsyn
þess „að gera viðreisnarraðstaf-
anir í tíma fyrir opnum tjöldum
og í augsýn þjóðarinnar, enda
framkvæmi þær trúnaðarmenn
fólksins sjálfs“.
Finna menn ekki verkinn í
samvizku Tímaliðsins í þessum
ummælum?
Áreiðanlega. Eftir að ríkis-
stjórn Hermanns Jónassonar og
kommúnista hefur setið í 15 mán-
uði og engin ný úrræði eða leið-
ir getað bent á til lausnar efna-
hagsvandamálunum, kemur Tím-
inn grátklökkur og segir að nauð-
synlegt sé „að gera viðreisnar-
ráðstafanir í tíma fyrir opnum
tjöldum-----“!
Lofaði ekki forsætisráðherra
vinstri stjórnar „úttekt fyrii
opnum tjöldum“ á ástandinu í
íslenzkum efnahagsmálum strax
og stjórnin tók við völdum? Víst
gerði hann það. Hann lét fara
fram ýmiss konar rannsóknir og
semja fjölda greinargerða og
álitsgerða. Innlendir og erlendir
sérfræðingar voru fengnir til
þess að vinna þetta verk, sem
vissulega gat verið skynsamlegt
og gagnlegt.
Hin opnu tjöld
En þjóðin hefur aldrei fengið
að sjá neitt af greinargerðum og
tillögum sérfræðinganna. „Út-
tektinni“ hefur verið haldið
leyndri eins og mannsmorði. —
Ekkert hefur verið gert fyrir
„opnum tjöldum“. Með allt hefur
verið pukrað. Sjálfir ráðherrar
vinstri stjórnarinnar hafa komið
fram í útvarp í áheyrn alþjóðar
og lýsingar þeirra á ástandi efna-
hagsmálanna hafa gersamlega
stangazt á. Jafnvel fjármálaráð-
herrann hefur reynt að breiða
yfir fyrri yfirlýsingar sýnar um
raunverulegar orsakir vandamál-
anna. Hann hefur vissulega gert
sér það ljóst „að meðan almenn-
ingur þekkir ekki ástandið er
blekkingin auðveld-------“.
Ráðherra kommúnista gengur
þó snöggt um lengra. Hann mál-
ar ástandið í efnahagsmálunum
með rósrauðum litum. Aldrei
meiri sparifjármyndun, vöxtur
dýrtíðarinnar stöðvaður, kaup-
máttur launa tryggður, auðveit
að spara upp í greiðsluhallann,
sem sprettur af of varlegri tekju-
áætlun Eysteins Jónssonar, segir
kommúnistaráðherrann.
Er vinstri stjórnin ekki að
hjálpa almenningi til þess að
„þekkja ástandið"?
Það sætir engri furðu þótt
þungir draumar sæki á Tímaliðið
og leiðtoga Framsóknarflokksins
I um þessar mundir. Þjóðlygin
j sem hann hefur byggt málflutn-
| ing sinn á undanfarið er ótraust-
ur grundvöllur til frambúðar. —
Þjóðin trúir heldur eklci á hjálp-
ræði kommúnista.
„Blekkingin“ kann að vera
„auðveld" eins og Tíminn seg-
ir í sunnudagsleiðara sínum.
En nagandi ótta við hverful-
leik hennar skýtur upp, jafn-
vel hjá leiðtogum Framsókn-
ar: „En einnig hún hefur sinn
tíma“.
EKKI ER HÆGT að segja, að til-
viljun ein hafi ráðið því, að það
var aðalfréttaritari New York
Times, James Reston, sem átti tal
við Krúsjeff í Kreml nú á dög-
unum og frægt er orðið.
Ef til vill hefur það heldur
ekki komið neinum á óvart, að
New York Times skyldi verða
fyrst blaða til þess að birta við-
tal við Krúsjeff um þau miklu
ágreiningsmál, sem nú eru efst
á baugi. Því síður hefur það vak-
ið furðu þeirra, sem til þekkja,
að maðurinn, sem fór til fundar
við Krúsjeff, var einmitt Rest-
on, einn færasti blaðamaður
vorra tíma. Hann er vel þekktur
i Kreml — og hann nýtur trausts
þar sem annars staðar.
Scotty ber nafnið með sóma
Já, við sögðum að hann héti
Reston. Venjulega er hann samt
kallaður Scotty — og það er ó-
sköp eðlilegt, því að hann er
nefnilega fæddur í Skotlandi.
Enda þótt hann hafi flutzt ung-
ur til Bandarikjanna má enn
heyra það á mæli hans, að hann
er að skozku bergi brotinn og
ber nafnið Scotty með sóma —
enda þykir honum vænt um það.
iþróttafréttaritarastarfið
er góður skóli.
Hann settist að í Mið vestur-
ríkjum Bandaríkjanna og er
hann óx úr grasi fékk hann mik-
inn áhuga á blaðamennsku. Eins
og margir af snjöllustu blaða-
mönnum Bandaríkjanna hóf Rést
on blaðamennsku sína sem
íþróttafréttaritari. Það þykir svo
sem ekki mikil staða innan blaða
mannastéttarinnar vestan hafs,
en hins vegar er það ekki á allra
færi að leysa verkefnin af
hendi á fullkominn hátt. Banda
ríski íþróttafréttaritarinn verður
að vera eldsnöggur og snarráður,
því að allt hans starf byggist á
næmleika og snerpu. Hann verð
ur að kryfja málin til mergjar
á svipstundu, atburðina á meðan
þeir eiga sér stað og vera fljótur
að hripa þá á pappírinn á lifandi
máli, sem hrífur lesendurna inn
í rás viðburðanna. Þetta er góður
skóli, sem kemur blaðamannin
um að góðu haldi á öðrum svið
um blaðamennskunnar, þegar
hröð viðburðarásin knýr hann
áfram.
Hann sVildi starf sitt
James Reston starfaði fyrst við
lítið sveitablað, Dayton Ohio
News. En hann var þar ekki lengi
um kyrrt, því að hann ætlaði sér
allt annað. Hann óx stöðugt í á-
liti og 1937 fór hann til London
á vegum fréttastofunnar Associat
ed Press, en þar átti hann að
fylgjast með íþróttaviðburðum í
Englandi.
Þarna var það, að tækifærin
komu upp í hendur honum, ef
svo mætti segja. Íþróttalífið er
ekki fjölbreytt að vetrinum og
þess vegna fékk Reston skipun
um það frá fréttastofu sinni í
New York að „standa vörð um“
brezka utanríkisráðuneytið vetr-
armánuðina. Reston hafði gott
auga fyrir öllu, sem fréttnæmt
var og hann skynjaði vel sam-
hengi hlutanna á þeim örlagatím-
um, sem þá fóru í hönd. Starf sitt
íLondon leysti hann af hendimeð
slíkum ágætum, að Sulzberg, út-
gefandi New York Times, kom
. auga á hann. í fyrstu vann hann
já fréttastofu New York Times í
I London, en síðar var hann kall-
' aður til New York — og þar varð
, hann einn af nánustu samstarfs-
(mönnum útgefandans.
i
! Luktar dyr urffu hontim enginn
I Þrándur í Götu
* En Reston var enn ekki kom-
James Reston
inn á hátindinn. Hann átti eftir
að vinna margt stórvirkið, sem
síðar lyfti honum enn hærra til
vegs og virðingar. Það var við-
Dumbarton Oaks ráðstefnuna,
þar sem grundvöllurinn að S.Þ.
var lagður, að hann varð heims-
frægur. Fundirnir voru haldnir
fyrir luktum dyrum og fulltrú-
arnir vildu lítið láta uppi um
gang málanna. En Reston dó ekki
ráðalaus — hann vann upp á eig-
in spýtur. Hann komst lengra en
allir aðrir fréttaritarar og varð
fyrstur til þess að skýra heimin-
um frá því hvað í rauninni var að
gerast á ráðstefnunni í Dumbart-
on Oaks. Það var m.a. hann, er
fyrstur skýrði frá hugmyndinni
um neytunarvaldið í öryggisráð-
inu — og hrakspár hans um gildi
þess áttu eftir að rætast.
Heiðraður á margan hátt.
Fulltrúunum á ráðstefnunni
varð heldur illa við, er New York
Times skýrði lesendum sínum
dag eftir dag frá gangi málanna
á þessari lokuðu ráðstefnu — og
um tíma voru bandarískir leyni-
lögreglumenn látnir fylgja Rest-
on eftir til þess að koma í veg
fvrir að hann ljóstraði einhverju
upp, sem bryti í bága við hags-
muni Bandaríkjanna. Skömmu
síðar hlaut Reston Pulitzer verð-
launin fyrir greinar sínar. Og
þetta urðu ekki síðustu heiðurs-
verðlaunin, sem hann hlaut í
starfinu, því að síðan hefur hann
verið sæmdur ótal heiðursnafn-
bótum fyrir framúrskarandi ár-
vekni og nákvæmni í fréttaflutn-
ingi sínum.
„Vann í jólahappdrætti Stalins".
Það var nokkru fyrir dauða
Stalins, að Reston komst í beint
samband við Kreml. Vinir hans
segja, að hann hafi „unnið í jóla-
happdrætti Stalins". Sagan er
nefnilega sú, að skömmu fyrir
jól 1952 skrifaði Reston Stalin og
bar fram fjórar spurningar við-
víkjandi Kóreustríðinu. Reston
til mikillar undrunar svaraði
Stalin bréfi hans — og jóladag
birti New York Times grein Rest-
ons með svörum Stalins á for-
síðu. Þá náði Reston hátindi
frægðar sinnar — og hann stend-
ur enn á þeim tindi — óhaggað-
ur.
Allir þekkja Scotty.
Nú hefur hann, 47 ára að aldri,
tek 1) við aðalfréttaiitarastarfi
blaðs síns í Washington, en það
er ef til vill ein mikilvægasta
staða við New York Times. í
Hvíta-húsinu er hann ekki leng-
ur kallaður Reston — heldur
Scotty. Og hvar sem hann fer —
hvort sem það er heldur í þing-
húsinu í Washington, brezka
þinginu eða Kreml — þá þekkja
allir hann Scotty.
Forstjóri ráðinn yfir-
hafnsögmaður á Isaf.
í ísafjarðarblaðinu Vesturland er
frá því skýrt að miklar deilur
hafi orðið innan bæjarstjórnar-
innar út af ráðningu manns í yfir
hafnsögumannsstarfið þar. Um
það höfðu sótt tveir menn er um-
sóknarfrestur var útrunninn. —
Annar þeirr er Símon Helgason,
hafnarvörður, sem staríað hefur
við hcfnina þar í mörg ár. Hmn
maðurinn er Guðmundur Guð-
mundsson, forstjóri.
Var í bæjaistjórn samþykkt
n-.eð l atkv. gegr. fjórum að ráða
forstjórann og ganga þannig
framhjá hinum gamla hafnar-
starfsmanni. — Er málið var út-
kljáð í bæjarstjórn gerðu bæjar-
fulltrúarnir Matthías Bjarnason,
Kjartan J. Jóhannsson, Marzellí-
us Bernharðsson og Högni Þórð-
arson grein fyrir atkvæðum sín-
um, en þeir töldu Símoni bera
starfið.
Greinargerð þeirra er svo-
hljóðandi:
„Símon Helgason hafnarvörður
hefur verið í þjónustu Hafnar-
sjóðs ísafjarðar sl. 8 ár og gegnt
starfi sínu af sérstakri alúð og
skyldurækni. Við álítum að þeg-
ar hann nú sækir um betur laun-
að starf hjá Hafnarsjóði, þá beri
fremur að veita honum yfirhafn-
sögumannsstarfið, en hinum um-
sækjandánum, Guðmundi Guð-
mundssyni, sem aðeins hefur ver-
ið- við störf hjá hafnarsjóði 2—3
ár og gegnir auk þess forstjóra-
starfi við fiskvinnslufyrirtæki og
vélbátaútgerð hér í bænum. Þess-
vegna greiðum við atkvæði gegn
ráðningu Guðmundar Guðmunds
sonar og segjum nei“.
Segir blaðið ennfremur að
framkoma forsprakka krata í
bænum gagnvart Símoni hafi
vakið reiði óbreyttra flokks-
manna.
17 hjúkrunarkonur
brautskráðar
NÝLEGA útskrifuðust þessar
hjúkrunarkonur frá Hjúkrunar-
xvennaskóla íslands:
Anna Guðrún Jónsdóttir frá
Skriðinsenni, Strandasýslu; Ása
Breiðfjörð Ásbergsdóttir, ísaf.;
Ásthildur Þórðardóttir, Hólma-
vík; Bergljót Líndal, Reykjavík;
Gréta Halldórs, Akureyri; Guð-
finna Pálsdóttir, Skagaströnd;
Guðrún Hulda Guðmundsdóttir,
Karlsá, Dalvík; Guðrún Karls-
dóttir, Borgarnesi; Gunnheiður
Magnúsdóttir, Fagurhlíð, Land-
broti, V-Skaft.; Ingibjörg Árna-
dóttir, Kópavogi; Jónína Kristín
Þorsteinsdóttir, Reykjavík; Jó-
sefína Magnúsdóttir, Glerár-
þorpi við Akureyri; Kristín Bald
vina Óladóttir, Siglufirði; María
Guðmundsdóttir, Akureyri; Sess-
elja Þorbjörg Gunnarsdóttir,
Gestsstöðum, Norðurárdal, Mýr.;
Soffía Gróa Jensdóttir, Akur-
eyri; Steinunn Dóróthea Ólafs-
dóttir, Stykkishólmi.