Morgunblaðið - 29.10.1957, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 29. okt. 1967
MORCVHBLAÐIB
15
verðlaunin, sem ncma 75 þúsund dollurum. Milli þeirra stendur Eisenhower forsetL
Niels Bohr sæmdur hinum verð-
mætu kjarnorku-friðarverðlaunum
WAHINGTON — Bandaríska vísindafélagið ákvað fyrir skömmu
að sæma danska vísindamanninn Niels Bohr hinum svonefndu
Kjarnorku-friðarverðlaunum. Er það í fyrsta skipti sem þessi verð-
laun eru veitt, en Henry Ford-stofnunin hefur lagt fram mikinn
sjóð til veitingar verðlaunanna, sem munu árlega nema 75 þúsund
dollurum, ásamt verðlaunapeningi úr gulli. Er aetlunin að veita
þau þeim mönnum, sem bezt hafa unnið fyrir hagnýtingu kjarn-
orkunnar í friðsamlega þágu.
Aukin ábyrgð með
þekkingunni
Nú í vikunni var Niels Bohr
viðstaddur fund í bandaríska vís-
indafélaginu, þar sem hann veitti
verðlaunum móttöku. Meðal
gesta við athöfn þessa var Eisen-
hower forseti og fjöldi hinna
fremstu vísindamanna í kjarn-
orkufræðum.
Ávarp forsetans.
Eisenhower forseti mælti nokk-
ur orð við þetta tækifæri. Hann
benti á það í ræðu sinni, að nú
væri nýlega búið að stofna
kjarnorkustofnun Sameinuðu
þjóðanna, sem myndi vinna að
því að efla samstarf allra þjóða
í friðsamlegri hagnýtingu kjarn-
orkunnar. Sá atburður yrði enn
til að auka þann heiður, sem
Niels Bohr hlyti nú.
Eisenhower lagði á það á-
herzlu í ræðu sinni, að þjóð-
irnar stæðu nú á krossgötum,
um það hvort kjarnorkan yrði
notuð mannkyninu til bless-
unar eða gereyðingar. Á þeim
krossgötum hylium við hinn
mikla vísindamann, sem er
kunnur fyrir djúpar hugsanir
og framsýni. Slíkra manna
þarfnast heimurinn.
Framsýnn vísindamaður.
Á eftir ávarpi forsetans flutti
prófessor John Archibald Wheel-
er, gamall samstarfsmaður Bohrs,
ræðu, þar sem hann lýsti ævi-
atriðum hans. Hann ræddi um
það m. a. að auk þess sem Bohr
hefði verið framúrskarandi vís-
indamaður, hefði hann og verið
mjög framsýnn. Snemma hefði
hann hafið baráttu fyrir þvú að
rannsóknum á kjarnorku yrði
beint að friðsamlegri hagnýtingu
hennar. Hann hefur og lengi bar-
izt fyrir alþjóðlegu samstarfi á
sviði kjarnorkuvísinda. Þar ætti
ekki að gera samstarfið örðugra
með því að hjúpa rannsóknirnar
leynd. Og Bohr gekk enn lengra.
Hann hélt því stöðugt fram, að
með tilkomu kjarnorkunnar yrðu
þjóðirnar að taka upp nýjar að-
ferðir í almennum samskiptum.
Fyrst og fremst yrði heimurinn
að vera opinn. Það mætti ekki
hindra flutning hugmynda og
skoðana milli landa. Opinn heim-
ur er grundvöllur að friðsam-
legum heimi.
Að lokum talaði Niels
Bohr sjálfur. Hann sagði í
ræðu sinni að þekking manna
á kjarnorkufræðum í dag
Fædd 4. febrúar 1859.
Dáin 9. október 1957.
HANA vantaði því aðeins rúm-
lega eitt ár til að ná 100 ára
aldri.
Hún var fædd að Hamrakoti í
Andakílshreppi, er var eitt af
þeim mörgu býlum í umhverfi
Hvanneyrar, áður búnaðarskóli
var settur þar.
Foreldrar hennar voru Jón
Sigurðsson, bóndi þar og kona
hans Þórunn Ólafsdóttir.
Rúmlega tvítug giftist hún
Teiti Jónssyni á Hvanneyri, fædd-
um þar 19. okt. 1861. Foreldrar
hans voru Ingibjörg Teitsdóttir
og Jón Jónsson. Oddný og Teitur
misstu bæði feður sína er þau
voru í æsku. Annan í marz en
hinn um haustið árið 1870.
Þórunn móðir Oddnýjar bjó
eftir það í Hamrakoti, þar til
þau Teitur og Oddný giftust.
Árið 1882 fluttu þau að Ferju-
bakka og bjuggu þar til ársins
1898 er þau fluttu til Borgarness.
Teitur var smiður góður og hóf
þegar byggingu þar á húsi handa
sér, er enn stendur, mikið stækk-
að. Mun það fyrst hafa verið
12x12 álnir að stærð, tvær hæðir
og kjallari. Ekki voru kröfur um
húsrými þá meiri en svo, að þar
býr Teitur við tólfta mann alda-
mótaárið 1900. Sýnir það hjálp-
fýsi þeirra hjóna, að veita þeim
húsnæði er það skorti.
Þetta ár voru íbúar Borgarness
aðeins 50, svo nær því Vt þeirta
hafði þá þar verustað.
Börn Oddnýjar og Teits voru
6. Eru nú aðeins tvær dætur
þeirra lifandi. Ingibjörg, ekkja
eftir Búa Ásgeirsson er um skeið
var verzlunarmaður í Borgar-
nesi og síðar í Reykjavík og Ing-
veldur, gift Jónasi Kristjánssyni
kaupmanni í Borgarnesi. Jón og
Þórunn drukknuðu með föður
væri árangurinn af alþjóðlegu
samstarfi. Kjarnorkuvísindin
væru og myndu ætíð verða
alþjóðleg. Síðan hélt hann
áfram:
„Sérhver aukning á þekk-
ingu okkar og möguleikum
eykur um leið ábyrgðina sem
við berum á herðum. Hin
hraða tækniþróun okkar ald-
ar felur í sér bæði fögur fyr-
irheit og myrkar hættur. —
Þeim verðum við að mæta,
með því að laða fram hina
beztu eiginleika mannsins í
samstarfi um víða veröld.
sínum í Borgarfirði skammt frá
Borgarnesi 9. apríl .1914. Þorkell,
póstafgreiðslumaður og síma-
stjóri dó árið 1949. Alfreð var
yngstur þeirra systkina, dó í
æsku.
Oddný var afburða-þrekkona,
enda þurfti á því að halda. Frá
almennu sjónarmiði voru hörð
lífskjör í landi hér á æsku- og
þroskaárum hennar. Föðurinn
missir hún í æsku og tekur síðar
móður sína, mædda og aldraða til
forsjár. Flytur frá æskustöðvum
í leiguliðabúskap í annarri sveit
og þaðan í lítt byggðan verzlun-
arstað. Missir þar manninn og
fjögur börnin sín. Býr þar í
óvenjulegri gestaörtröð. Borgar-
nes orðin tengistöð fyrir alla
fólksflutninga frá og til Reykja-
víkur. Var örtröð sú tilfinnanleg
meðan hús voru fá og gistihús
ófullnægjandi.
Auk þess átti fjöldi erindi við
húsbóndann, því hann var af-
greiðslumaður Norsku bátanna —
Reykjavíkanna beggja, hvorrar
eftir aðra um og eftir aldamótin,
sem voru í siglingum milli Borg-
arness og Reykjavíkur. .
Einnig hafði Teitur á hendi
vöruflutninga inn í Hvítá, með
mótorbát sínum, áður vegir bötn-
uðu og landflutningar urðu auð-
veldari.
Þó eru enn ótalin mestu þrek-
virki Oddnýjar, en það voru
mannúðarstörf hennar.
Á yngri árum hafði hún numið
ljósmóðurfræði. Ekki hafði hún
ákveðið ljósmóðurembætti, en
varð þó mörgum til hjálpar. í
SímanúmeriS er:
24-3-38
B L Ó M 1 Ð, Lækjargötu 2.
— Samtal v/ð
Birgir Þórhallsson
Framh. af bls. 6
tveim hæðum: Götuhæð og ann-
arri hæð. Farmiðasala og af-
greiðsla er á götuhæðinni og þar
er einnig snyrtiherbergi og eld-
hús fyrir stafsfólkið. Hér uppi er
bókhaldið, vélritun og skrifstof-
an mín. Hér vinna áuk mín þau
Helge Olesen, Steinunn Jónsdótt
ir, Áslaug Steingrímsdóttir, Stef-
án Jónsson og Þorvaldur Jónsson.
Dagur í júlí
__ Hvernig skiptist dagurinn
milli þess sem gera þarf?
—■ Ég skal segja þér að þó ég
færi að telja upp það sem hér
gerist á einum degi og þú settir
það í blað, þá mundi fólk alls
ekki trúa því. Hver myndi trúa
því að við hér höfum í allt sum-
ar unnið frá því snemma á morgn
ana og fram til klukkan ellefu
á kvöldin. Én þetta verður svo að
vera því annars komum við því
ekki frá, sem gera þarf.
Dagurinn byrjar hér klukkan
7. Þá er hafizt handa um að svara
bréfum, senda umbeðnar upplýs-
ingar og afgreiða fyrirspurnir.
Það vill verða svo, að skrifstofu-
tíminn milli kl. 9 og 5 á daginn
fer mest í alls konar fyrirgreiðslu
og hana oft af ótrúlegasta tagi:
Afgreiða farpantanir, útvega
hótelherbergi hér og í öðrum
löndum og allt til þess að vísa
fólki á hvar það geti fengið hitt
og þetta keypt hér í nágrenninu.
Ágæt veiði á austursvæðinu —
— bræla vestantil
Og það get ég sagt þér að hing-
að hringja menn og spyrjast fyr-
ir um ótrúlegustu hluti. Eitt það
algengasta sem um er spurt, er
hvernig síldveiðin gangi heima.
í dag er t.d. ágæt veiði á aust-
ursvæðinu og bræla vestantil!
Þú mátt ekki taka þetta svo, að
okkur sé þetta á móti skapi.
Þvert á móti. Ekkert er okkur
kærara en að landarnir komi
öllu sínu annríki á umsvifamiklu
heimili, var því við brugðið. að
hvar sem sjúkleika bar að hönd-
um, eða önnur bágindi í nágrenni
hennar, virtist hún, fram á elli-
ár, alltaf hafa tíma og tækifæri
til hjúkrunar og huggunar þar
sem þess var þörf.
Margir blessa því minningu
hennar. Rúmu ári áður en hún
dó varð hún fyrir meiðsli af
byltu og var því rúmliggjandi
til dánardægurs. Naut þá um-
hyggju og hjúkrunar Ingveldar
dóttur sinnar og Júlíönu tengda-
dóttur, ásamt árvekni Eggerts
Einarssonar læknis.
hingað eða hringi, hvort sem
þeir eru að hugsa um að fljúga
með okkur á næstunni eða ekki
og við reynum að leysa vanda
hvers íslendings sem til okkar
leitar.
Takmarkið — traust þjónusta
Markmið Flugfélags íslands er
að veita öllum sínum viðskipta-
vinum fullkomna og trausta þjóa
ustu og farþegarnir eru okkar
fólk, áður en lagt er í flugferð-
ina; meðan á henni stendur ðg
síðast en ekki sýzt að henni lok-
inni. Það er ánægja okkar a#
verða þeim öllum að liði. Fóllc
leitar hingað með ótrúlegusta
vandamál og er hjartanlega velr
komið.
— Hafa margir sjúklingar kom
ið hingað að heiman í sumar?
— Já, þeir eru margir, sem i
sumar hafa leitað hér lækninga
og ýmiss konar séraðgerða.
Þegar sjúklingar leita hingaS
að heiman er það ekki vegna vaa
trausts á íslenzkum læknum. 1
sumar hefi ég eytt mörgu kvöld-
inu og jafnvel nóttunni í sjúkra-
húsunum hér, við að túlka sjúk-
dómslýsingar sjúklinga, sem
komu að heiman. Þá hafa mér oft
borizt til eyrna lofsamleg um-
mæli læknanna hér um stéttar-
bræður þeirra heima á FrónL
Það, sem oft ræður, að sjúkling-
urinn leitar hingað er það, að hér
er betri aðstaða og ýmis dýr tæki
og svo eru hér mjög góðir sér-
fræðingar í mörgum geinum.
Sjúklingar sem hafa komið að
heiman í sumar láta yfirleitt vel
yfir ferðinni, sem tekur styttri
tíma í Viscount-flugvélunum og
það fer mun betur um þá heldur
en í gömlu vélunum.
Sumarstarfið
— Hvað um sumarstarfið og
fjölda farþeganna?
— í sumar hefir sem betur fer
verið mikið að gera. í júlímánuði
fóru héðan 1088 farþegar til
Reykjavíkur og til samanburðar
má geta þess, að í fyrra voru far-
þegar milli sömu staða 814,
sem var þá algjört met. Það er
nokkurn veginn sama tala bg við
fluttum allt fyrsta árið sem ég
starfaði hér fyrir Flugfélagið.
— Að endingu ein spurning.
Hvernig líkar þér og fjölskyld-
unni Danmerkurveran?
— Fjölskyldan telur nú fjóra
meðlimi, segir Birgir og brosir
við. Konan mín er Anna Snorra-
dóttir, Sigfússonar og við eigum
tvö börn Snorra Sigfús, þriggja
og hálfs árs og Guðrúnu Sigríði,
eins og hálfs árs. Við búum hérna
úti í Gentofte og kunnum þar vel
við okkur. Stöku sinnum skrepp-
um við heim til íslands og þegar
bezt lætur förum við alla leið til
Akureyrar, og það eru okkar
beztu tyllidagar, því máttu trúa.
Magnús Jónsson.
Zerex trostiögur
fæst nú á Öllum BP benzínstöðvum vor-
um í Reykjavík og nágrenni. Sendingar
út á land verða afgreiddar jafnskjótt og ferðir
falla. —
10 LÍUVERZLUN ÍSLANDSM/f)
Stú&ka óskast
strax í matstofuna Hvol. — Upplýsingar á staðnuua.
Einar Eiríksson
— Hafnarstræti 15 —
Oddný Jónsdóttir — minning