Morgunblaðið - 29.10.1957, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.10.1957, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 29. okt. 1957 MORGVNBLAÐIÐ ■ur og manni mistekst. Nóttin líð- ur og þokan helzt. Ásgeir kem- ur með kaffi og hressir mig. Ég vil síður leggja hvolpaboga, því ég veit ekki hvenær vökul augu kunna að sjá til mín. Það líður önnur nótt og ekkert sést eða heyrist. En eftir hana kemur norðvestan kaela og þokunni létt- ir lítið eitt. Þá öskrar dýr grimmdarlega alllangt í suðvest- ur frá mér, og er mér þegar Ijóst að það hefir vitað af mér allan tímann. Sé ég þegar, að ekki er hægt að koma dýrunum að óvörum, og_ yrðlingarnir eru mín eina von. Ég leggst því yfir einn munnann og kvaka eins og læðan þegar hún kallar á unga sína til matar. Ég heyri brátt þrusk inni fyrir og tveir yrðling- ar koma út úr munnanum. Tekst mér að grípa annan og setja hann í poka. Og aftur skellur þokan yfir. Yrðlingurinn er nú mín ein- asta von, því meðan þokan er get ég ekki gengið tófuna uppi og vonlaust er að bíða hennar á greninu, þar sem hún veit af mér. Þriðju nóttina kl. að ganga fjögur kemur sunnangola og sviptir burt þokunni. Skömmu síðar öskrar dýr norðan við mig. Þannig hagaði til, að skammt norður af greninu var skafl. Hleyp ég nú með hvolpinn og tjóðra hann rétt við skaflinn. Það verk framkvæmi ég þannig að ég bind um báða afturfætur hans með mjúku snæri og tjóðra hann við 2—3 kg. hellustein. Þetta geri ég til þess að hann geti ekki sloppið þótt nagaður væri sund- ur annar spottinn. Fyrst kippir hann í og reynir að losna. Síðan fer hann að athuga bandið og steininn. Hann glefsar í það en hefir ekki eirð í sér til þess að naga það í sundur og hellunni veldur hann ekki. Þegar öll sund virðast lokuð, fer hann að gefa frá sér hljóð. Fyrst ýlfrar hann, en það er ekki kvalahljóð. Yrðlingar eru ekki kvaldir nema svo sem 10 metra vanti til þess að dýr komi í skot- mál. Síðan gaggar yrðlingurinn hátt, en faðir hans tekur undir \ nákvæmlega sama tón. Hef ég sjaldan séð rösklegar tekið til fóta, en þegar rebbi hélt af stað til sonar síns. Nú gerist margt í senn. Ég bíð á bak við stóran stein með byssuna spennta. Ætla ég mér að skjóta refinn þegar hann er í ákveðinni fjarlægð frá yrðlingnum, en áður en hann er kominn á þann stað, sem ég ætl- aði honum að falla, er læðan komin við hliðina á hvolpinum. Hafði hún komið ofan úr fjalli að baki mér, hafði steininn, sem ég lá við, borið á milli. Svo vel vill til að bæði dýrin bera sam- an, sem við skyttur köllum. Ég hleypi af. Læðan liggur, og ref- urinn kastast til undan skotinu. Ég hef sært hann. Læðan var í um 20 m. fjarlægð, en refurinn 60 m. frá mér. Ég tek nú til fótanna og fer á öllum gangi nið- ur skaflinn glerhálan. Hugðist elta refinn, sem rann niður brekkuna. Ef ekki hefði verið mjúkt fyrir neðan skaflinn, hefði farið illa fyrir mér. Hófst nú eldingaleikur um móana, sem endaði með því að rebbi féll dauður niður. Voru þrír fætur hans brotnir eftir skotið. Ég blés nú mæðinni og hélt af stað með rebba og sótti skóna mína upp í brekkuna, en þá hafði ég misst í upphafi hlaupsins. Yrðlingana var þægilegt að vfnna. Við tók- um frá þeim allt æti og lögðum hvolpaboga. Hungrið dregur þá loks út úr greninu. Þannig getur þetta verið þeg- ar við slægan dýrbít er að eiga. Ég gæti sagt þér margar sögur svipaðar þessari. Ég hef víða legið á grenjum, verið fenginn í aðrar sveitir og jafnvel allt fram undir jökla til þess að reyna að vmna greni, sem aðrir hafa geng- ið frá. Auðvitað gæti ég einnig sagt þér margar sögur, þar sem ég hef farið hinar herfilegustu hrakfarir, einkum á yngri árum. — En hvernig stóð á þvi að þú lagðir svona mikla rækt við að vinna refi? — Það er ljótt atvik, sem varð orsök þess. Ég var þá ungur mað- ur — það mun hafa verið 1921. Ég lá þá á greni og refurinn kom heim með júgur af svartri kind. Ég skaut refinn en gaf engan frekari gaum að júgrinu, gerði ráð fyrir að refurinn hefði drep- ið kindina og tekið mýksta bit- ann með sér heim. En þegar ég var á leiðinni heim af greninu tveimur sólarhringum eftir að ég hafði skotið refinn, fann ég kindina og þá deplaði hún enn augunum. Hún hafði dottið fram af barði, er refurinn hefir verið að elta hana, oltið um hrigg og fest hausinn. Gat hún því ekki hreyft sig. Hefir þá refur- inn rifið undan henni júgrið, lif- andi. Þá sór ég þess eið að unna mér engrar hvíldar við útrým- ingu þessarar meinvættar. Og ég tel mig hafa staðið við það. — En minkarnir? — Það er ekkert gaman að eiga við þá. Þeir virðast grunn- færnir og treggáfaðir. Hundur- inn hefir mest fyrir að di-epa þá. Þó tel ég að minkurinn sé jafn- vel enn hættulegri okkur en ref- urinn. Hann er harðsnúinn og grimmur. Ég veit til þess að minkur hefir drepið fullorðna Gunnar með minkahundinn sinn, sem hann fékk hjá Carlsen álft. Það er sama þótt hún fljúgi. Hann bítur sig fastan og hang- ir svo á henni þar til hún lækk- ar flugið og gefst upp. — Við fleira hefurðu fengizt en tófu- og mikadráp. — Já, ég hef stundað sjó og drepið flest, sem drepið er á sjó. — Og þú ert kennari. — Það er ég búinn að vera í 31 ár. — En hvernig gengur þér, svona skömmóttum eins og þú ert, að uppfræða börnin? Eru ekki tómir skammarkjaftar hér á Skaga? Gunnar hlær dátt að þessu, en segir svo: — Nei, ég læt þá hafa það óþvegið, sem þola það, svona menn eins og þig og þína líka, en börnin læt ég alveg í friði. — En þú ert nú búinn að lofa okkur að heyra nokkrar vísur eftir þig, eins og t. d. þá, sem þú ortir á morgunsiglingunni út með Reykjaströnd. Nú þætti mér gaman ef þú vildir lofa okkur að heyra kvæði eftir þig. — Það er eitthvað til af þessu I bulli, segir Gunnar og sækir handskrifaða bók, gleraugu og lampa, því nú er tekið að skyggja. Siðan les hann hvert kvæðið af öðru og við hlustum. Ég undrast hvernig þessi harðsvíraði dráps- maður verður allt í einu að mildu, ljóðrænu skáldi, sem yrk- ir um iðgræna bala og hlýja vor- golu. Sem sýnishorn tek ég hér tvö af kvæðunum, sem hann las okkur. Hið fyrra heitir „Upp til heiða“ og hljóðar svo: Leikur við hafsbrún lítið ský. Ljósnáttað vor er komið á ný. Iðgrænir balar anga. Vorgolan andar hógvær og hlý. Til heiðar ég ætla að ganga. Þar átt hef ég marga unaðsstund. Yngist og hressist þjökuð lund, er hvarf ég frá byggð til heiðar. Ég sný nú baki við hal og hrund og held þangað minnar' leiðar. Sögu ég marga og minning á um mosarinda og stararflá með vötnum og tærum tjörnum. Oft hef ég hvílt mig örskammt frá öndum og svanabörnum. Hér engir vágestir unnu mein. Hér ei hafa snortið nokkurn stein mannanna mislögðu hendur. Hér ríkir náttúra íslands ein. Ég eigna mér þessar lendur. Þó biðist mér gull og gripafjöld, þó gefa ætti mér konungsvöld, ég aldrei eign minni farga. Þó borgir ræningjum greiði gjöld guð mun heiðinni bjarga. En verðir þú þreyttur, vinur minn og virðist þér borgarglaumurinn hættur að heilla og seiða. Vera skaltu hér velkominn að vormorgni, upp til heiða. Hér muntu finna frið og skjól, fegurri veröld, hlýrri sól. Lund þín léttast og kætast. Og vordraumar þeir sem æskan ól aftur birtast og rætast. Annað kvæði, um uppreisnina í Ungverjalandi. Það heitir „Verndarar“: Stálgráir fuglar fljúga, fljúga yfir landamerkin. Svo byrja þeir böðulsverkin. — Blóðið um göturnar streymir. En drenginn í vöggunni dreymir. Hann dreymir að saklaus dúfa dreifi út boðskap um friðinn. En bróðir hans liggur liðinn. — Og logandi rústirnar blína. Þær vitna um verndara sína. Guðni Jónsson vélstjóri minníngarorð EINS og lesendum blaðsins er kunnugt, varð hörmulegt bílslys suður á Keflavíkurvegi að kvöldi fimmtudagsins 17. þ. m. Setuliðs- bifreið ók á ofsahraða aftan á mann á hjóli, og hlaut hann bana. Maðurinn var Guðni Jóns- son, vélstjóri í Keflavík. Hann var að koma frá vinnu sinni við vélbát þann, sem hann var vél- stjóri á, en báturinn var í við- gerð á skipasmíðastöð. Guðni Jónsson fæddist 3. jan. 1906 að Steinum undir Eyjafjöll- um. Foreldrar hans voru Jón Einarsson, bóndi í Steinum, og kona hans Jóhanna Magnúsdótt- ir, sem var Fljótshlíðingur að ætt og uppruna. Þau hjón eign- uðust átta börn og áttu sér sér- stæða sögu. Stúttu eftir að þau hófu búskap sinn, veiktist Jón og varð síðan farlama maður til ævíloka. Gat hann helzt stund- að bókband. Kona hans sá svo fyrir barnahópnum, og reyndist þrek hennar, þolgæði og elja með miklum ólíkindum. Hún gekk á fjörur, eftir reknu fiski- fangi á vetrum, fór austan und- an Eyjafjöllum margoft með hest í taumi vestur á Suðurnes til þess að afla sér bjargar, ihirti allar skepnur, sló og batt hvern bagga. Og hún fór með veikan son sinn á hestvagni alla leið til Reykjavíkur til þess að leita honum lækningar við ill- kynjuðu fótarmeini. Þau hjónin urðu fyrir einstæðu óláni á skepnum sínum, en það gat ekki, ofan á allt annað, bugað kjark og þrótt hinnar furðulegu konu. Hjónaband þeirra Jóns var með afbrigðum ástúðlegt. Jón var allt- af hýr og glaður við konuna og börnin, og konan sýndi honum undraverða nærgætni og um- önnun. Jón lézt árið 1916, en Jó- hanna hélt áfram búskap um hríð. Árið 1919 flutti hún til Vestmannaeyja, og þar var hún svo til æviloka. Hún er látin fyr- ir aðeins fáum árum. Af þessari miklu konu skrifaði Þórður fræðimaður Tómasson í Vallna- túni þátt í Sagna-Gest, sem út var gefinn 1953. Eins og nærri má geta, vönd- ust börnin vinnu strax og þau máttu verða að einhverju gagni, og þrátt fyrir basl og fátækt heima fyrir, uiðu þau hinar nýt- ustu manneskjur. Guðni var snemma laginn, duglegur og vinnusamur. Hann fór að stunda sjó sextán ára gamall, og tiltölu- Iega fljótlega varð hann vél- stjóri og var það svo til dauða- dags. Árið 1933 flutti hann til Keflavíkur, þá kvæntur myndar- konu, Karólínu Kristjánsdóttur, dóttur sjógarpsins, sem Örn Arn- arson orti um stórfrægt kvæði. Þau hjón hafa eignazt fimm börn. Hafa tvö þeirra, piltur og stúlka, þegar stofnað sín eigin heimili, einn sonur stundar nám í Kenn- araskólanum og tvær telpur, inn- an við fermingu, eru í foreldra- húsum. Guðni heitinn var sérstæður máður að dugnaði, reglusemi og trúmennsku við störf sín. Ég undirritaður þekkti hann frá bernsku, bar fundum okkar oft saman. Eitt sinn á styrjaldarár- unum, þegar mest uppgrip voru við vinnu á Keflavíkurflugvelli, sagði ég við hann, að jafnlag- hentur og duglegur maður og hann mundi geta unnið sér inn geysilega mikið fé í setuliðs- vinnu. Guðni svaraði: „Ég kemst vel af, og mér finnst það satt að segja ekkert stór- mannlegt að rjúka úr starfi á bátnum og fara að snúast kring- um Kanana. Einhverjir verða að sinna sjómennskunni, því að varla mun herinn verða okkur einhlítur til frambúðar“. Guðni var hinn mesti gæða- og greiðamaður. Hann var kátur og skemmtilegur, en þó jafnan prúð- ur, mikill vinur vina sinna og ágætur fjölskyldufaðir. Er að honum mikill mannskaði, og munu margir sakna hans, auk allra nánustu vina og aðstand- enda, svo svipleg sem ævilok hans urðu. Hann var að koma frá skyldu- störfum sínum, þegar hann féll i valinn, og ekki of sagt að hana hafi fallið á þeim vettvangi, þar sem það stríð er háð, sem eiti sæmir góðum drengjum og sönn- um manndómsmönnum. Guðmundur Guðjónssoa. Gunnar er náttúrudýrkandi, jafnvel þótt hann hafi látið hagla- byssuna gjalla í vorkliðnum. Hann trúir því að björgun manns ins sé fólgin í því, að hann taki sig upp og yfirgefi borgarglaum- inn, vélaskröltið, trúmáladjöful- skapinn — þessa iðandi kös, sem er að brjála mannkynið, — haldi til heiðar og finni þar frið. Þegar hann leggur frá sér bók- ina með Ijóðunum sínum, segir hann að stundum sé hann not- aður eins og þarfanaut, fluttur á milli skemmtistaða og látinn lesa upp. — Ég geri þetta að gamni mínu að bulla þetta, og menn hafa gaman af þvi. Ekki er trú hans meiri á sjálf- um sér sem skáldi. Það er almyrkt, þegar ég kveð þennan sérkennilega og skemmti- lega mann, skáld, bóndann og kennarann, sem drepur tófur eins og óður stríðsmaður. bjarfastur KIWI \ ! / / gljáinn - er og dýpstur Kiwi verndar sk« yðm og tykur endinguna. vig. 4ðalumboðsmenn: O. JOHNSON & KAABER H.F. Málverkauppboð verður í Sjálfstæð-ishúsinu nk. föstudag (1. nóv.) kl. 5 síðd. Málverkin verða til sýnis fimmtud. 31. okt. ld. 2—7 og föstud. kl. 10—4 í litla sal Sjálfstæðishússins. Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.