Morgunblaðið - 20.11.1957, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 20.11.1957, Qupperneq 8
8 MOnCDTSJU AÐ1Ð Miðvikudagur 20. nóv. 1957 Spjallað v/ð jbýzka óperusfjórann dr. Schramm: „Eg held, að Peter Grim.es sé bezta óperan frá sfóari árum..." ÓPERUFLOKKUR frá Wiesbad- en sýndi Cosi fan tutte í síðasta sinn í Þjóðleikhúsinu á föstudags- kvöldið, og fréttamaður Morgun- blaðsins skrapp þá þangað upp eftir ásamt Halldóri Péturssyni listmálara í því skyni að hitta óperustjórann, dr. Schramm, að máli. Hann tók komumönnum ljúflega og tyllti sér hjá þeim í setustofu leikaranna, er sýningin var hafin frammi á sviðinu. Þriðjungur gjaldanna greiddur með eigin tekjum Fréttamaður hóf samtalið: „Hér á íslandi hefur nokkuð verið um það rætt að koma fast- ara skipulagi á óperuflutning með því að ráða söngvara að Þjóð leikhúsinu. Er það tíðkað í Þýzka landi að tengja þannig saman flutning söngleika og leikrita?“ „Það er gert víða í hinum smærri borgum. Annars staðar er þessi starfsemi stundum öll undir sameiginlegri stjórn, þó að hún fari fram í tveimur húsum. Nú munu vera í Vestur-Þýzkalani og Vestur-Berlín um 60 hús, sem óperuflutningur fer fram í, en aðeins 12 þeirra eru einungis not- uð til óperusýninga.“ „Þér eruð bæði óperu- og leik- hússtjóri." „Já, það er rétt. Við höfum 2 hús í Wiesbaden. í því stærra sýnum við 16 óperur, 2 leikrit og 4 óperettur á ári, en í minna hús- inu 14 leikrit og 2 óperur.“ „Hvað eru margir listamenn ráðnir hjá ykkur?“ „Það eru vist einir 35 söngvar- ar og um 30 leikarar." „Svo að þið þurfið á miklu fé að halda.“ „Við fáum opinbera styrki, alls j 3 milljónir marka á ári, 52% af því frá Hessenríki en hitt frá Wiesbadenborg. Tekjur af starf- seminni eru um 1.500.000 mörk á ári — eða um þriðjungur af rekstrarkostnaðinum." „Hve oft sýnið þið hvért verk?“ „Við höfum fasta gesti á 7 sýn- ingar á hverju verki. Fyrir kem- ur, að við höfum ekki nema eina sýningu umfram það. Þegar bezt gengur, eru sýningarnar alls 20—25.“ Til samanburðar við ofan- greind ummæli dr. Schramm má geta þess, að 1 mark jafngildir tæpum 4 kr. skv. skráðu gengi. Tekjur íslenzka Þjóðleikhússins af aðgöngumiðasölu, leikskrám, húsaleigu o. s. frv. nema um 60% af heildarútgjöldunum eða næstum því helmingi meira hlut- I fallslega en er í Wiesbaden. Árið 1 1956 voru heildargjöldin 8.112.000 1 — en eigin tekjur 4.821.000. Sýnd Kaupið SUNKIST til sælgætis og matar — Síðustu kassarnir af sumaruppskerunni, ódýrar — ódýrari í heilum kössum fuusimuu eru hér árlega um 12 leikrit og 1—2 söngleikir — Fastráðnir leik arar eru 15, en 7 aðrir hafa gert svonefndan B-samning við leik- húsið. ★ „Hvað getið þér svo sagt mér um óperulistina í Þýzkalandi nú?“ „Óperur njóta enn sem fyrr mikilla vinsælda. Verk Mozarts, Wagners, Puccinis og Verdis eru sýnd á hverju ári víða um landið, en vinsældir tónskáldanna, sem nú eru uppi, eru öllu minni. Satt að segja er mjög erfitt að fá fólk til að hlusta á verk þ'eirra. Þó eigum við mörg óperutónskáld og verk þeirra eru alloft sýnd svo og söngleikir erlendra nútíma- tónskálda.“ eins og Hindemith. Nýjasta ópera hans er Upprisa Krists, en af eldri verkum eru Máninn og Carmina Burana þekktust. f verkum Orff eru töluð orð, tónlist og dans tengd saman á mjög listræhan hátt. Werner Egk er nokkrum árum yngri en Orff, fæddur 1901. Ég sagði áðan frá Endurskoðandan- um, en Columbus og Pétur Gaut- ur eru í hópi eldri verka hans. Tveim árum yngri er Boris Blaeher, sem ekki alls fyrir löngu samdi „Prússneska sögu“, skop- óperu um prússneskan hernaðar- anda. Fortner höfum við áður minnzt á, hann er nú um fimmt- ugt. Þá er að geta um Gottfried von Einem. Hann er nú um fer- tugt og gat sér fræð fyrir nokkr- Dr. Schramm og söngvarar hans — eins og þeir komu Hall- dóri Péturssyni fyrir sjónir. „Hvaða nútímaóperur falla yður bezt í geð?“ „Það er erfitt að segja svaraði óperustjórinn og hugsaði sig um. Ég held, að Peter Grimes eftir Benjamin Britten sé bezta óperan frá síðari árum. Það yrði erfitt að koma henni hér fyrir á sviðinu, annars er það verk, sem vafalaust ætti vel við íslendinga: Sjór, ský, vindur, birta. Svo get ég nefnt The Rake’s Pro gress eftir Strawinsky næst, en af þýzku óperutónskáldunum er mér Carl Orff hugstæðastur." „Þér vilduð e. t. v. segja okkur eitthvað meira um þýzku óperu- tónskáldin?" „Það má segj a, að þau séu fyrst og fremst lærisveinar Straw- inskys, Schönbergs og Hinde- miths. Sá síðastnefndi hefur ný- lega gengið frá nýrri óperu Die Harmonie der Welt, sem var frum sýnd í Múnchen á þessu ári. Hún fjallar um Kepler, stjörnufræð- inginn mikla. Hindemith er nú rúmléga sextugur og hefur samið margvíslega tónlist sem kunnugt er. Af eldri óperum hans er Matt- hías málari. þekktust." „Hafa fleiri nýjar óperur verið sýndar á þessu ári?“ „Þrjár aðrar, ef ég man rétt. Endurskoðandinn eftir Werner Egk var sýnd í Schwetzingen. Textinn er tekinn úr leikriti Go- gols. Ræningjarnir, nýtízkuleg tólftóna ópera eftir Gisleher Klebe var sýnd í Dússeldorf. Texti hennar er gerður eftir leik- riti Schillers. Og loks er það Blóðbrullaupið eftir Wolfgang Fortner við texta eftir Garcia Lorca. Frumsýningin var í Köln.“ „Og svo eigið þið nú ýmis tón- skáld, sem lá.ta að sér kveða, þó að ekki hafi komið verk frá þeirra hendi á þessu ári. Etv. vilduð þér telja upp helztu óperu- tónskáld Þjóðverja nú?“ „Ég var búinn að minnast á Orff, Hann er rúmlega sextugur, HEKLA Vestur um land í hring-ferð hinn 23. þ.m. — Tekið á móti flutningi til áætlunarhafna vestan Þórs hafnar í dag og árdegis á morg- un. — Farseðlar seldir á fimmtu- dag. — um árum með óperunni Réttar- höldunum, sem gerð er við texta frá Kafka. Svo eigum við Hans-Werner Henze. Hann er nú rúmlega þrít- ugur, en vakti athygli, er hann samdi óperuna Boulevard Soli- tude, þegar hann var 24 ára. Þar var á ferð ný útgáfa af sögunni um Manon Lescaut. í fyrra var var svo frumsýnd geysimikil ópera eftir hann König Hirsch. Textinn er gerður eftir gömlum ævintýrum og segir frá viðureign spillts landstjóra og konungs hans. Páfagaukur, trúðar og tal- andi myndastyttur koma þarna mjög við sögu. Óperan er geysi- mikið verk og hlaut misjafnar viðtökur, bæði mikið lof og mikið last. Að lokum er svo rétt að nefna Liebermann, sem reyndar er frá Sviss. Hann samdi Leonora 40/45 um lífið í París á stríðsárunum og tímanum þar á eftir, og hlaut lof fyrir. I sumar var ný ópera eftir hann frumsýnd í Salzburg: Kvennaskólinn, — textinn er gerð ur með hliðsjón af leikriti Moli- ére. ★ „Þér sögðuð blaðamönnum frá því um daginn, að þið hefðuð tónlistarhátíð á hverju vori í Wiesbaden. Slíkar hátíðir eru víst haldnar víðar í Þýzkalandi.“ „Við bjóðum óperuflokkum heim á hverju vori og hljómar þá söngur á ýmsum tungumálum hjá okkur. Það er rétt, að tón- listarhátíðir eru haldnar víðar. í Múnchen eru fluttar þýzkar óper- ur, í Bayreuth eru fluttar óperur Wagners og í Berlín er listahátíð, þar sem m. a. nútímatónlist er kynnt.“ Eftir þetta barst talið að ís- landsferðinni, ferðalögum austur á Þingvelli og víðar um Suðvest- uriand og starfsskilyrðum í Þjóð- leikhúsinu. Dr. Schramm kvað gott að syngja í leilchúsinu og vel séð fyrir öllu, er sviðið varðar. Hljómsveitargryfjan væri hins vegar of lítil. Að lokum lét hann í ljós ánægju sína með viðtökur hér í Reykjavík en hvarf svo eitt- hvað út í rangala leikhússins, sló taktinn og tók undir með öðrum elskhuganum inni á sviðinu, þó að blaðamanninum skildist, að sá armi liðsforingi væri að brugga einhver launráð gegn kærustunni sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.