Morgunblaðið - 20.11.1957, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.11.1957, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 20. nóv. 1957 MORCVNBLAÐIÐ 17 Ólafur Sigbjörnsson Kvebjuorð MEÐ „Tröllafossi" er hingað kom frá New York 12. október s. 1. var meðal farþega Vestur-ís- lendingurinn Ólafur Sigbjörns- son frá Vík í Fáskrúðsfirði, er leit nú land sitt aftur eftir lang- ar fjarvistir. Ættingjum og vinum er komn- ir voru til að fagna honum heils- aði hann hress í bragði. Ekki varð greint á mæli hans að hann hefði dvalið erlendis í nær 40 ár. Vinum hans duldist þó ekki, að hann gekk eigi heill til skóg- ar, en engan grunaði að sam- vistir yrðu svo skammar er raun ber vitni. Ólafur Sigbjörnsson var fædd- ur að Vík í Fáskrúðsfirði hinn 2. febrúar árið 1892 einn 14 bama hjónanna Sigbjarnar Þorsteins- sonar og Jakobínu Bjarnadóttur er þar bjuggu. Af þcim systkin- um eru nú 4 á lífi, Ágústa, Sig- urður og Jóhanna, öll gift og búsett í Reykjavík og Jón bú- settur í Bandaríkjunum, ókvænt- ur. Snemma mun sjórinn hafa heill að Ólaf, enda uppalinn við einn hinn fegursta Austfjarðanna, þar sem hann stundaði sjóróðra með föður sínum og bræðrum frá barnæsku. Heima hjá foreldrum sínum dvaldi hann til 18 ára aldurs en fór þá til Vestmanna- eyja en síðar til Reykjavíkur og var hér á togurum 1—2 ár. Um áramótin 1913—14 fór hann til Englands. Er fyrri heimsstyrjöld- in var í algleymingi kom hann heim að ósk móður sinnar árið 1916. Fór hann þá enn til Vest- mannaeyja og gerðist þar for- maður á bát. Hann var svo lán- samur að bjarga þar brezkri skips höfn úr sjávarháska. Fékk hann og menn hans viðurkenningu fyr- ir. Árið 1920 fór hann alfarinn af landi burt fyrst til Englands en síðar til Bandaríkjanna, þar sem hann gerðist ríkisborgari. Hingað kom hann aðeins í stuttar heimsóknir árin 1929 og 1938. Frá Boston stundaði hann sjó óslitið fram til ársins 1942, er hann hætti sökum heilsubrests. Sama ár kvæntist hann Jessieu Macdonald, ágætustu konu af skozkum ættum. Festu þau kaup á litlum búgarði í Shapleigh í Maine. Árið 1952 varð hann fyrir þeirri sorg að missa konu sína. Eftir það leitaði hugurinn sífellt meir til íslands, unz hann á síð- astliðnu sumri ákvað að koma heim til vetrarlangrar dvalar. Ólafur Sigbjörnsson var hinn gjörvilegasti og drengilegasti maður að vallarsýn og framkomu, hið mesta snyrtimenni og sam- vizkusamur svo af bar. Mest var þó um vert hve góður sonur hann var móður sinni meðan hún lifði og hvílíka umhyggju og rækt- arsemi hann sýndi systkinum sín- um og ættingjum alla tíð. Lönd- um sínum ýmsum vestra nákomn um sem öðrum, reyndist hann , sönn hjálparhella. Hér dvaldist hann á heimili systur sinnar, Ágústu, og manns hennar Stefáns Björnssonar og Framkalla Ausco litfilmur Fljót afgreiðsla, vönduð vinna. — Verð: 40 kr. fyrir 35 m.m. og 50 kr. fyrir 6x6 mm. Afgreiðsla er í Aðalstræti 16. H. STOLZENWALD heimsótti ættingja og vini, eftir því sem heilsan leyfði. Fram- farir hér heima glöddu hann mjög og varð honum tíðreikað niður að höfn til að skoða okkar nýju skip. — Einna mest glæddi hann að sjá Dvalarheimili aldraðra sjómanna risið af grunni. Heimil- ið hafði hann skoðað og skrifað um það vinum sínum erlendis. Fyrstu daga nóvembermánaðar veiktist hann af inflúenzu, hættu lausri er talið var. Naut hann hinnar beztu aðhlynningar systra sinna og bróður. En vegna astma er hafði þjáð hann lengi, varsamt talið ráðlegra að hann færi í sjúkrahús. Var hann fluttur i Landsspítalann laugardaginn 9. nóvember. Hann kvaddi heimilis- fólk með gamanyrðum. Nú urðu skjót umskipti og laust fyrir mið- nætti sama dag var hann látinn. Allir vinir hans er hugsað höfðu með fögnuði til samvist- anna við hann eru harmi slegnir en vona að það hafi verið hon- um gleði að fá að dvelja síðasta skeiðið á ættlandi sínu. Hann var einnig sá gæfumaður að fá notið lítt skertra andlegra og líkamlegra hrafta til hinztu stundar. Löng lega hefði orðið honum þungbær. Við biðjum honum allrar blessunar og viljum treysta því að mannkostir þeir er hann var svo ríkulega gæddur muni enn duga honum vel. G. Bílavogir Eigum fyrirliggjandi: 20 tonna bílavogir. Verðið hagstætt Landssmiðian Sími 11680 NÝ FRÍMERKJABÓK Tegundasafn 34 textar (blóm, byggingar, flugvél- ar, hestar ,skip o.s.frv.) á 26 blaðsíð- um í lausblaðabók með skrúfum. — Verð aðeins kr. 25.00. Ennfremur stök blöð með 28 viðbótartextum. — Aukatextar afgreiddir eftir pöntun. Sent um allt land. Frimerkjasalan Lækjargötu 6, Reykjavík — Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu — Unglingur óskast til innheimtustarfa um óákveðinn tíma. Þarf ekki að vinna allan daginn. Upplýsingar g'efur Haraldur Jéuasson, Raímagnsverkstæði SIS Hringbraut 119 Kaupmenn - kaupíélöy Sel eins og að undanförnu mjög seljanlegar jóla- vörur: Skreyttar jólakörfur, blómaskálar, blóma- búnl. — Gott verð og góð vara. Sent um land allt gegn póstkröfu. Blóma- og grænmetismarkaðurinn Laugavegi 63 — sími 16990. Pantið í tíma. Ekki hsegt að afgreiða eftir 15 des. út á land Hve létt bað er að skrifa nafnið sitt eða langt bréf ... með Sheaffer’s White Dot Snorkel Pen. Úrval af gerðum, litum og verði frá kr.: 253.80. Fylltur á nýjasta hátt — engir hlutir settir til hliðar. Oddur og skapt, alltaf skínandi hreint Fæst í helztu báka- og ritfangaverzlunum. Emkaumboðsmaður: Egill Guttormsson, Reykjavík. Viðgerðir annast: Gleraugnaverzlun Ingólfs Gíslasonar, Skólavörðustíg 5 og Pennaviðgerðin, Vonarstiæti 4, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.