Morgunblaðið - 20.11.1957, Qupperneq 18
18
1UORCIJ1SBT 4 91Ð
Miðvikudagur 20. nðv. 1957
-/?æðo Ólafs Thors
Framh. af bls. 1
Óvenjugóðar gæftir á síðustu
vertíð eru veigamesta atriðið
í stjórnarstefnunni. Þar fengu
fslendingar loksins þann, sem
valdið hefur, mann, sem ræð-
ur yfir skini og skúrum, veðri
og vindum.
Niðurgreiðsiurnar.
„Sannleikurinn er sá, að nýjar
niðurgreiðslur hafa ekki verið
teknar upp á þessu 15 mánaða
tímabili, nema á nýjum fiski,
sem nemur rúmu % vísitölu-
stigi.“
Til fróðleiks skal þess getið, að
í fjárlögum 1956 eru ætlaðar til
niðurgreiðslna 57 milljónir. En í
fjárlagafrumvarpinu, sem nú
liggur fyrir þinginu fyrir árið
1958, er áætlað í þessu skyni 125
milljónir, — eða 68 millj. kr.
meira heldur en 1956. Og nú seg-
ir Lúðvík Jósefsson, að með
þessum 68 milljónum sé greitt
niður % vísitölustig. Þarf frekar
vitnanna við um þessi ummæli
sannsöglispostulans?!
Stækkun fiskiflotans
„1 tíð núverandi stjórnar hefur
fiskiflotinn verið aukinn meira
á einu ári en áður á þremur
árum í tíð íhaldsins."
Sannleikurinn er sá, að á
þremur valdaárum síðustu stjórn
ar jókst flotinn um 4416 smá-
lestir, en á þessu ári aðeins um
1217 smálestir, og hafa menn þar
enn nýtt vitni um gildi orða
sannleikspostulans.
Bátagjaldeyrir og
útflutningssjóður
Þá er það margtugginn fróð-
leikur, sagði Ölafur, að Eysteinn
Jónsson og ég höfum vanrækt
að útvega fé til útvegsins, en L.
J. hafi bætt rækilega úr því.
Sannleikurinn er sá, að „hali“
sá, sem myndazt hafði á báta-
gjaldeyrinum, stafaði af því, að
bátalistinn var of lítill. Þrátt
fyrir óskir mínar, náðist ekki
samkomulag í fyrrverandi stjórn
um stækkun bátalistans. Er nú-
verandi stjórn innleiddi hið nýja
kerfi, hátollaði hún miklu fleiri
vörur en áður voru á bátalista.
Samt sem áður verður nú enn
um áramótin nýr „hali“, sem.
mun nema um eða yfir 50 millj.
kr. Ennfremur verða þá í land-
inu vörur, sem leggja til viðbctar
150 milljóna kvaðir á útflutn-
ingssjóðinn.
í þessum efnum er því sú
ein breyting á orðin, sem staf-
ar af því að nú eru miklu
fleiri vörur hátollaðar en áður
voru á bátalista, og svo af
hinu, að Lúðvík Jósefsson hef-
ur lagt mikla áherzlu á að
fá nú bráðabirgðalán í bönk-
unum, rétt á meðan verið er
að ganga frá samningum við
útgerðarmennina, lán, sem
síðar auka svo vanskil út-
flutningssjóðs.
Menn vantar á flotann
Þá eru það margendurteknar
staðhæfingar Lúðvíks og Þjóð-
viljans, að ég hafi rekið tvö þús-
und sjómenn í land af skipun-
um. Hvað er nú hæft í þessu?
spurði Ólafur. Sannleikurinn er
sá, að það ?r ekki ég, heldur
Lúðvík Jósefsson og hans kump-
ánar, sem ófarnaðinum valda.
Hinar gífurlegu kauphækkanir,
sem kommúnistar með hjálp
krata knúðu fram í verkföllunum
miklu 1955, lögðu svo stórfelld-
ar hækkanir á alla landvinnu í
þágu útgerðarinnar, að útgerð-
armenn hafa ekki getað greitt
sjómönnum nægjanlega hátt
kaup til þess að halda þeim á
flotanum. Það er þess vegna
sannleikspostulinn Lúðvík og
aðrir kommúnistar, sem ráku
ijómennina í land.
Og hvert? spurði Ólafur. í mínu
kjördæmi er það svo, að Lúðvík
hefur rekið svo marga sjómenn
upp á flugvöll, til þess að vinna
þar fyrir herinn, sem eins og
allir vita er löngu farinn, að nú
er ekki hægt að manna út bát-
ana nema að litlu leyti, þegar
síldin er loksins komin.
Ég held, að kommúnistum væri
sæmst að þegja um þessi efni,
sagði Ólafur.
Sjálfstæðisflokkurinn og
sjávarútvegurinn
Margar fleiri firrur Þjóðvilj-
ans og Lúðvíks leiðrétti Ólafur
og lauk þessum kafla ræðu sinn-
ar með að segja eitthvað á þessa
leið:
1. Ég hefi í höndium skjallegar
sannanir fyrir því, að enginn
flokkur átti jafnmikinn þátt í,
að nýsköpunartogararnir voru
keyptir til landsins, eins og Sjálf-
stæðisflokkurinn.
2. Aldrei fram að þeim tíma
höfðu fleiri vélbátar verið byggð-
ir og keyptir til landsins en í
tíð nýsköpunarstjórnarinnar. Það
var Sjálfstæðisflokkurinn, ásamt
Áka Jakobssyni, alþingismanni,
sem mestan þátt átti í þessu.
3. Stjórn Sjálfstæðisflokksins
lagði til gengisfellinguna 1950.
Hún hlaut þá ámæli margra fyr-
ir, þótt nú játi allir, að þetta var
óumflýjanlegt, en frá öndverðu
var ljóst, að það var útveginum
mikið bjargráð.
4. Bátagjaldeyririnn -var sú
skipan, sem bezt hentaði hags-
munum útvegsins. Sjálfstæðis-
flokkurinn réði þessu, ásamt
Eysteini Jónssyni, gegn andmæl-
um kommúnista og krata.
5. Síldar og fiskleitir vonu hafn
ar í stórum stíl, undir forustu
Sjálfstæðisflokksins.
6. Fiskveiðasjóður var stór-
efldur, undir forustu Sjálfstæðis-
flokksins.
7. Aldrei hafa verið byggðir
jafnmargir vélbátar og keyptir
til landsins sem í tíð fyrrver-
andi stjórnar.
8. Hið eina, sem Lúðvík getur
hælt sér yfir er, að hann hafi
„kreist út úr Eysteini Jónssyni“,
eins og hann sjálfur orðar- það,
meira fé til handa „luxusbíla-
og skrauthallaútvegsmönnunum“,
eins og Þjóðviljinn orðar það, en
mér hafi tekizt. Aður níddi Þjóð-
viljinn mig fyrir að skattpína
„fátækan almenning“ fyrir
„Iuxiusburgeisana“. Nú hælist
Lúðvik yfir því að vera í þess-
um efnum mér miklu fremri. Það
er satt, og ég efast ekkert um
þörfina. Fyrir Lúðvík er það bara
leiðinlegt, að hann borgar minnst
af þessu sjálfur. Það gerir fólk-
ið, „fátækur almenningur“, sem
skattana greiðir.
Landhelgin
Loks ræddi Ólafur landhelgis-
málið og gerði grein fyrir því,
hvers vegna L. J. hefðist ekkert
að í því, þrátt fyrir stóryrðin
fyrir valdatökuna.
Vísitalan
Næst rakti Ólafur herfilega
fölsun vísitölunnar og sívaxandi
dýrtíð og minnkandi kaupmátt,
sem þjóðin býr við, gjaldeyris-
skortinn, fjárskort og stórkost-
legan yfirdrátt ríkissjóðs og út-
flutningssjóðs bæði hjá seðla-
bankanum og öðrum bönkum, og
sagði frá mörgu því, sem blöðin
ekki hafa gert að umræðuefni.
Stórlán í Þýzkalandi
Þá vék hann að lánamálunum.
Skýrði hann frá því,- að í tíð
fyrrverandi ríkisstjórnar hafi ís-
lendingum boðizt Sogslánið, ef
fallizt hefði verið á þau kjör, sem
núverandi stjórn samþykkti.
Þar næst vék Ólafur að því,
að hann hefði átt kost á 400
millj. kr. láni í Vestur-Þýzka-
landi fyrir einstakan velvilja
dr. Adenauer kanslara.
Færði Ólafur fram því til
sönnunar mörg skjalleg sönn-
unargögn. Vitnaði hann m. a.
í skýrslur tveggja þjóðkunnra
íslendinga, sem í hans umboði
höfð«u rætt málið við ráðu-
neytisstjóra dr. Adenauers, að
gefnu tilefni frá honum sjálf-
um, er hann var hér í heim-
sókn í byrjun júnímánaðar
1956. Segir þar m. a. orðrétt:
„f kvöldveizlu hjá utanríkis-
ráðherra 4. þ. m. hafði dr. Janz
skýrt forsætisráðherra frá því, að
dr. Adenauer hefði beðið sig fyr-
ir skilaboð til hans þess efnis,
að sambandsstjórnin hefði mik-
inn áhuga á því að veita íslandi
lið á sviði efnahags- og viðskipta-
mála, en nauðsynlegt væri, að
ákveðnar óskir og tillögur kæmu
fram frá íslenzku ríkisstjórn-
inni“.
Og er síðan rakið samtalið í
þessum tveimur skýrslum ög kem
ur þar fram, að ráðuneytisstjór-
inn telur Þjóðverja fúsa að lúna
íslendingum stóra fjárfúlgu.
Síðan vitnaði Ólafur í nótu-
sendingar og skeyti, er fram
höfðu farið milli kanslaráns og
hans sjálfs. Loks vitnaði Ólafur
í bréf frá ambassador íslands í
Bonn, dr. Helga Briem, en þar
segir, — að eftir heimkomu dr.
Janz, er hann hafði ráðfært sig
við kanslarann, hafi hann stung-
ið upp á, að íslendingar færu
fram á 100 millj. marka lán, eða
tæpar 400 millj. ísl. króna. Og
tók dr. Janz fram „að okkur
veitti ekkert af því í sements-
verksmiðjuna, í rafvæðinguna, í
endurbyggingu flotans og ýmis-
legt fleira, sem við hefðum á
prjónunum; myndum við alltaf
geta fengið þetta smám saman
eftir þörfum“.
Ennfremur segir dr. Helgi:
„Upphæðin virðist mér all há“.
Og ræðir hann síðan lánsbeiðnir
annarra þjóða, sem hafi verið
svarað neikvætt af Þjóðverjum,
og sýnir fram á, hversu einstak-
an velvilja kanslarinn sýni með
framkomu sinni gagnvart okkur.
Og loks bætir dr. Helgi við:
„Þess er ekki að leyna, að kansl-
arinn dr. Adenauer, er bak við
þetta lánamál og óvíst það hefði
mikinn byr“ án hans.
Eftir stjórnarskiptin fór dr.
Kristinn, núverandi ambassador
í London, til Þýzkalands, til þess
að sækja þetta lán. Úr lántök-
unni varð ekki. Mér er að sjálf-
sögðu alveg ókunnugt um,
hvernig á því stendur, sagði Ólaf-
ur.
Samskotalánið
Næst rakti Ólafur hungur-
göngu stjórnarliðsins um víða
veröld í leit að lánum. Alls stað
ar hefðu þeir gengið bónleið-
ir til búðar, hvergi fengið eyri,
nema 4 millj. dollara lánið,
sem þeir fengu með því skil-
yrði, að framlengd yrði dvöl
varnarliðsins á íslands, þ. e.
a. s. þeir seldu réttinn til að
verja landið.
Nú hefðu þeir loks gengið
með samskotapottinn milli
NATO-ríkjanna og teldu sig
myndu fá þar 100—150 millj.
kr. lán gegn því að lofa að
svíkja ekki í bráð varnarsamn
inginn. Sýndi þetta, að NATO-
ríkin vissu orðið, að peningar
er það eina, sem megnar að
halda núverandi ríkisstjórn
við loforð sín og drengskap-
arheit.
Slík væri smán íslendinga
orðin.
Lauk Ólafur máli sínu með
því að segja, að slík ríkis-
stjórn væri þjóðarskömm og
þjóðarhætta og bæri þess
vegna öllum fslendingum að
vinna að falli hennar.
Mikil inflúenza
í Eyjum
VESTMANNAEYJUM, 19. nóv.
— Innflúenzufaraldurir.n, sem
gengið hefur í Vestmannaeyjum
að undanförnu er nú um það bil
að ná hámarki sínu. Var barna-
skólanum lokað í dag en um það
bil 40% nemenda vantaði. Gagn-
fræðaskólinn hefur verið lokaður
í hálfan mánuð. Fyrirhugað er að
reyna að hefja kennslu í honum
á morgun. Að sögn héraðslæknis-
ins hefur veikin verið fremur væg
þó einstaka hafi orðið allliart úti.
— Bj. Guðm.
90% af skólum í Frakk-
landi lokað í gœr
París, 19. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
MEIRA en ein milljón ríkis-
starfsmanna efndu í morgun til
sólarhringsverkfalls til þess að
leggja áherzlu á launakröfur. Er
þetta þriðja verkfallið á einum
mánuði, sem nær til allra byggð-
arlaga landsins. Ef gengið yrði
að kröfum ríkisstarfSmanna
mundu ríkisútgjöld aukast um
meira en 100 millj. franka á ári
og er það langt frá því að vera í
samræmi við stefnu núverandi
stjórnar í efnahagsmálunum, því
að í dag samþykkti þingið efna-
hagsáætlanir Gaillards þar sem
gert er ráð fyrir auknum skött-
um og að dregið verði verulega
úr ríkisútgjöldum.
Verkfallið hafði mjög lamandi
áhrif á allt daglegt líf í Frakk-
landi í dag. Meira en 90% allra
skóla varð að loka og jafnframt
lömuðust allra flugsamgöngur í
landinu. Síma- og póstþjónusta
lagðist svo að segja niður og
hljómplötur voru leiknar í allan
dag í franska útvarpinu. Þá varð
og mjög erfitt að fá drykkjar-
vatn í París, er leið á daginn.
Um 7 þús. verkfallsmanna söfn
uðust saman fyrir framan fjár-
málaráðuneytið í dag og síðan
gekk hópurinn áleiðis til þing-
hússins þar sem verið var að
ræða efnahagsáætlun Gaillards,
en vopnað lögreglulið hefti för
kröfugöngumanna.
Caillard hlaut traust
Sparnaður og aukin afköst er stefna hans
París, 19. nóv.
Einkaskeyti frá Reuter.
GAILLARD leitaði í dag trausts
þingsins eftir umræðurnar um
efnahagsmálin og tillögur hinnar
nýju stjórnar í þeim. Hlaut Gill-
ard 256 atkv. og meðal þeirra,
sem studdu hann voru sósíalist-
ar og kaþólski þjóðarflokkurinn.
Kommúnistar og poujadistar
greiddu atkvæði gegn stjórninni
en um 60 þingmenn sátm hjá.
Áður en gengið var til atkvæða-
greiðslu flutti Gaillard stutta
ræðu þar sem hann komst m. a.
svo að orði í sambandi við vopna-
sendingar Breta og Bandaríkja-
manna til Túnis, að ríkisstjórnir
þessara tveggja bandalagsríkja
Frakklands yrðu að gera sér það
ljóst, að nú riði meira á en
nokkru sinni áður að NATO-rík-
in standi sem eitt.
— ★ —
Meðal stjórnmálasérfræðinga í
París er það álitið, að sigur
frönsku stjórnarinnar í atkvæða-
greiðslunni í dag byggist á þrem
meginatriðum:
1. Vopnasendingar Breta og
Bandaríkjamanna til Túnis hafa
eflt samstöðu Frakka innbyrðis
enn meira og hefur það berlega
komið fram í þinginu.
2. Margir þingmenn, sem í
rauninni eru andvígir hinum
nýju skattaálögum, greiddu
D a g s k r á
sameinaðs Alþingis, 20. nóvem-
ber 1957, kl. 1,30.
1. Byggingarsamvinnufélög,
þáltill. — Ein umr.
Fræðslustofnun launþega,
þáltill. — Ein umr.
Brotajárn, þáltill. Ein umr.
Hafnarbótasjóður, þáltill. —
Ein umr.
Afnám áfengisveitinga á
kostnað ríkisins, þáltill. —
Frh. einnar umr.
Kennaraskólinn, þáltill. —
Ein umr.
Efnaiðnaðarverksmiðja í
Hveragerði, þáltill. — Ein
umr.
Verndun fiskimiða, þáltill. —
Ein umr.
Skýrsla um Ungverjalands-
málið, þáltill. — Fyrri umr.
Strandferðaskipið Herðu-
breið, þáltill. — Ein umr.
Flugsamgöngur við Vestfirði
þáltill. — Ein umr.
Útboð opinberra fram-
kvæmda, þáltill. — Ein umr.
Hafnargerðir, og endurskoð
un hafnarlaga, þáltill. —
Fyrri umr.
Aðsetur ríkisstofnana og
embættismanna, þáltill. —
Fyrri umr.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12
13.
14.
Afmæli. — 80 ára er í dag, 20.
nóv. Rósa Jónsdóttir, Sólvöllum
13, Akureyri, fyrrum húsfreyja
að Yzta-Bæ í Hrísey, ekkja Ágústs
Jónssonar útvegsbónda þar.
stjórninni atkvæði til þess að
forðast enn eina stjórnarkrepp-
una, sem hefði getað orðið Frakk
landi og frönskum stjórnmálum
mjög hættuleg eins og nú standa
sakir.
3. Margir stjórnmálamenn eru
þeirrar skoðunar, að nú geti ekk-
ert bjargað Frakklandi frá gjald-
þroti annað en sparnaður og auk-
in afköst, en stefna Gaillards í
efnahagsmálunum miðar ein-
mitt að því.
— Utan úr heimi
Frh af bls 10
þyngist um helming frá brúð-
kaupsdeginum fram að fimm-
tugu.
Það kennir margra grasa í þess-
um 12 síðna bæklingi um fituna.
Þar eru nefndar margar tölur til
dæmis um það, hvað fólk eigi
mikið á hættu með því að fitna
óhóflega með aldrinum.
★
Er blaðaviðtalinu við Krarup
prófessor — í tilefni af útgáfu
bæklingsins — lauk, var borið
fram sherry og lokkandi smá-
kökur. En þó að enginn af við-
stöddum væri feitur, voru menn
mjög uppburðarlitlir við át og
drykkju. Einstöku maður seild-
ist til kökubakkans, en indælar
smákökur voru svo til ósnertar,
þegar haldið var heimleiðis.
Karlmenn:
hæð grann- meðal- þrek-
cm ur þungur vaxinn
156 53 56 61
158 54 58 62
160 56 59 64
162 57 61 65
164 59 62 67
166 60 64 68
168 62 65 70
170 63 67 71
172 65 68 73
174 66 70 74
176 67 71 75
178 69 72 77
180 70 74 78
182 72 75 80
184 73 77 81
186 75 78 83
188 76 80 84
190 78 81 86
K o n u r
hæð grann- meðal- þrek-
cm grönn þung vaxin
150 47 51 54
152 48 52 55
154 49 53 56
156 51 54 58
158 52 55 59
160 53 57 60
162 54 58 61
164 56 59 63
166 57 60 64
168 58 62 65
170 59 63 66
172 61 64 68
174 62 65 69
176 63 67 70
178 64 68 71
180 66 69 73