Morgunblaðið - 20.11.1957, Síða 19

Morgunblaðið - 20.11.1957, Síða 19
Miðvikudagur 20. nóv. 1957 VORGUNBl4Ð1Ð 19 Handknattleiksmenn vinna að fram- gangi stórmála við erfiðustu skilyrði Samtal við Árna Árnason form. HSÍ * MEÐAL áhorfenda að flestum handknattleikskappleikum og auk þess að sumum æfingum er annar tveggja eða þeir tveir menn sem hið nýstofnaða handknattleikssamband íslands skipaði í lands- liðsnefnd. Hlutverk nefndarinnar er að velja lið það er leika á í heimsmeistarakeppninni en hún fer fram í Berlín um mánaða- mótin febr.-marz n. k. Þangað fer ísl. lið, en hverjir það skipa er enn óráðin gáta. Spenningurinn vex og íþróttasíðan sneri sér til Árna Árnasonar, formanns sambandsins og spurði hann um ýmislegt varðandi heimsmeistarakeppnina og undirbúninginn. ★ Landsliðsnefnd Fyrsta skrefið varðandi undir- búninginn var að skipa landsliðs- nefnd og í hana voru skipaðir þeir Grímar Jónsson hinn kunni handknattleiksfrömuður í Val og Sigurður Nordal sem um árabil var einn þeirra sem færðu Ár- manni marga og góða sigra. Þessir tveir — nefndin, hefur ákeðið að velja ekki lið til sér- stakra æfinga, fyrr en að Reykja- víkurmótinu loknu, en því lýkur 8. des. n.k. Ástæður til þess eru ýmsar: 1) Handknattleiksmenn voru í októberbyrjun ekki í þeirri þjálf un að gott væri að sjá hverjir væru líklegastir til að skipa hóp til sérstakra æfinga. 2) Önnur ástæða er að það hefði skemmt Reykjavíkurmótið ef sérstakur hópur hefði verið val inn. Sumir eru þannig gerðir að þegar þeir hafa náð ákveðnu tak- marki — t.d. verið valdir í hóp til að æfa undir heimsmeistara- keppni, þá slaka þeir á, en leggja sig fram meðan þeir eru ekki valdir. Æfingatímar hins sérstaka hóps koma til með að verða um helgar sennilega á sunnudögum, en það er einmitt keppnisdagur flestra handknattleiksmanna. 3) Það getur heldur ekki talizt hlutverk algerlega févana hand- knattleikssambands að koma mönnum í þjálfun. Þess þáttur er samæfingar þjálfaðra manna, að æfa leikaðferðir o.h.p. Þeir sem eru í beztri þjálfun um 10. des. hafa mesta möguleika til Þýzkalandsferðar. hinum er neðar verða í röðinni. Fjögur lið verða því í mótinu og leiktími 2x30 mín (fullur leik- tími). — Hver verður þjálfari? — Það er enn óákveðið. Það er eins með það og svo margt annað í starfi þessa nýstofnaða sambands, að fjárskorturinn stendur alls staðar í vegi. Hann er aðalástæðan til heldur lítils starfs HSÍ. Einustu tekjur sam- bandsins eru skattar frá félögun- um — sennilega um 2000 kr. á ári. Og mikið verður ekki gert fyrir þá upphæð. Þýzkalandsferðin — Hvernig hugsið þið ykkur að kljúfa ferðakostnaðinn til Berlínar? — Við gerum ráð fyrir að förin kosti 40—50 þúsund krónur en það er fargjald 15 leikmanna, þjálfara og 3 manna fararstjórn- ar til Hamborgar. Þegar þangað er komið, greiða Þjóðverjarnir sem um mótið sjá ferðakostnað til Berlínar, dvöl og ferðina aftur til Hamborgar. Við reiknum fastlega með ríf- legum styrk frá utanfararsjóði til hins nýstofnaða sérsambands. Hitt verður að koma á annan hátt, með framlögum þeirra sem fara o.s. frv. Þess má einnig geta að hand- knattleikssamabandið hefur mik- inn hug á að reyna að koma fleiri handknattleiksmönnum hafi þeir áhuga á, með hópnum til Berlín- ar. Mundu þeir þá greiða ferðir, en hugsanlegt er að hægt verði að útvega ókeypis dvöl. Það er þó ekki víst. En gaman væri að fleiri fengju að sjá þetta stórmót, en aðeins þeir sem taka þátt í því. Af slíkum ferðum má meira læra á hálfum mánuði en mörgum árum hér heima. — ísland var óheppið með nið- urröðun í riðla? Það má fullyrða. Riðlarnir eru annars 4 og þannig skipaðir: 1. Svíþjóð, Pólland, Finnland, Spánn. 2. Þýzkal., Frakkland, Noregur, Luxemborg. 3. Tékkóslóvakía, Ungverja- land, Rúmenía, Island. 4. Danmörk, Júgóslafía, Aust urríki og Brasilía. Ein þátttökutilkynning, frá Belgíu, barst of seint og komast þeir ekki inn í keppnina, nema eitthvert landið hætti við þátt- töku. ■fc Mikill áhugi — Heldurðu að handknattleiks- mennirnir séu ekki fullir áhuga á að gera hlut íslands sem bezt- an. Félogslíi Tvímenniugskeppni í Bridge Hefst í skála félagsins við Æg- issíðu, föstudaginn 22. þ.m. kl. 20,00. Verðlaun veitt. Þróttarar, fjölmennið, gestir eru velkomnir. Upplýsingar í síma 1 12 46. Knaltspyrnufélagið Þróttur. Þróttur: — Handknattleiksdeild: Engar æfingar í kvöld. Stjórnin. Til kaups óskast ★ Samæfingar og fjárskortur Það er ákveðið að samæfingar byrji strax að loknu Reykjavík- urmótinu og móti sem handknatt leikssamabandið heldur með þátt- töku FH, tveggja efstu liðanna í Rvíkurmótinu og úrvalsliðs úr Körfuknaltleiksmól Reykjavíkur MEISTARAMÓT Reykjavíkur í körfuknattleik, hið fyrsta sem haldið er, hófst s.l. fimmtudag. Fóru þá fram þrír leikir yngri aldursflokka. Gosi vann Ármann B með 40:14, ÍR A-lið vann ÍR B-lið með 56:11. Báðir þessir leikir voru í 3. aldursflokki. í 2. flokki vann KR lið ÍR með 26:25. Bæði liðin sem sigruðu í 3. flokki sýndu mjög góða tækni, og bar þó A-lið ÍR af. Hinar miklu tafir í körfuknatt- leikunum eru illa liðnar af áhorfendum, og hefur nýstofnað körfuknattleiksráð Rvíkur reynt að gera allt til þess að þær yrðu sem stytztar og er tilraunin gerð á þessu móti. Annað kvöld, fimmtudag, verð- Ur áframhald mótsins. Leika þá í 3. flokki Ármann A og Ármann B-lið, Gosi og ÍR B-lið. I 2. flokki leika Gosi og ÍR. Eftir það leikkvöld hefjast meistaraflokksleikirnir, sem vafa laust verða mjög spennandi því liðin eru talin jöfn að styrkleika núua. 2—4 herbergja íbúð í Vesturbænum, helzt á melun- um. — Góð útborgun. Tilboð sendist til: Málflutningsskrifstofu Einrs B. Guðmundssonar, Guðl. Þorlákssonar og Guðm. Péturssonar, Aðalstræti 6, III. hæð, (Morgunblaðshúsinu) símar 1-20-02, 1-32-02 og 1-36 02. NAIJÐUMGARljPPBOÐ sem auglýst var í 77., 78. og 79. tbl. Lögbirtinga- blaðsins á v.b. Freyfaxa NK 101 eign Bjarna Gísla- sonar, fer fram eftir kröfu stofnlánadeildar sjávar- útvegsins í bátnum sjálfum í Hafnarfjarðarhöfn föstudaginn 22. nóv. kl. 3 síðdegis. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. TEKNI8K TEGNE-KUR8US Bréfleiðis: Nemendur, sem vilja læra fag- teikningu geta komist að á bréfa- námskeiði voru. Þar er m. a. veitt tilsögn í: Flatarmálsfræði, reikningi, mæl- ingum. Skrift, varpmyndateikn- ingu, uppmælingu, vélfræði ofe áhaldavörzlu, verkfærum og vél- um, eðlisfræði, aflfræði, fagfræði, skipulagningu o. fl. Kennslan er skipulögð af vei'k- fræðingum í samráði við iðnverk fræðinga, teiknara og iðnlærða menn og lýkur með prófi. Engrar undirbúningsþekkingar er krafist til þátttöku í námskeið inu, vegna þess að fyrstu fögin kenna nemendunum nauðsynleg- ustu grundvallaratriði t. d. flat- armálsfræði. Skólaskrá og umsóknareyðublöð fást ókeypis, án skuldbindingar til þátttöku, hjá TEKNISK TEGNE—KURSUS Sct. Annæ Palæ, Dronningens Tværgade 21. — Köbenhavn K. Sími: PAlæ 6081. — Jú, þeir hafa sýnt mjög mik- ! inn áhuga, og án hans yrði förin varla farin. Það má t.d. taka að KR, FH og ÍR 3 af okkar beztu liðum hafa lagt upp í utanferðir og þær eru mikilsverðar. KR og FH hafa þegar sýnt að við erum ekki á rangri leið þó við tökum þátt í þessu stórmóti. Ekki skal búizt við sigrum, en ég veit að drengirnir gera allt til að standa sig sem bezt. Utanferðir KR og FH hafa sýnt að ísl. lið geta leik- ið með góðum árangri á stærri völlum, sem okkur vantar nauð- synlega hér heima. Þannig fórust form. handknatt leikssamb. Árna Árnasýni orð. Hann og félagar hans í handknatt leikssamabandinu, landsliðsnefnd in og fleiri vinna við hin erfið- ustu skilyrði að framgangi hinna stærstu mála, en slíkt hefur löng- um einkennt ísl. íþróttahreyfingu. Það er stórt spor sem ísl. hand- knattleiksmenn taka með því að fara út í heimsmeistarakeppni, með aðeins 1 landsleik að baki fyrir mörgum árum. En þeir hafa sýnt í öðrum leikum að þeir eru menn til að mæta hinum stærstu verkefnum, og vonandi mun svo enn reynast. — A. St. Öllum þeim, sem minntust mín á sextugsafmæli mínu, þakka ég hjartanlega alla vinsemd og góðvild í minn garð. Sveinbjörn Gíslason. Alúðar þakkir til ykkar allra, sem heiðruðu mig á einn eða annan hátt á sextugsafmæli mínu. Guð blessi ykkur ölL Óskar Jónsson, Hafnarfirði. Hjartans þakklæti færi ég öllum vinum mínum nær og fjær er héldu mér samsæti á áttræðisafmæli mínu og sýndu mér margvíslegan sóma og vináttu með gjöfum, skeytum, blómum og ljóðum. Guð blessi ykkur öll. Jón Arason, Suðurlandsbraut 95E. Faðir okkar og tengdafaðir SIGURJÓN JÓNSSON fyrrv. bóksali, Þórsgötu 4, lézt í Landsspítalanum aðfara- nótt 19. nóvember. Börn og tengdabörn. Faðir okkar GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON frá Fíflholti, andaðist að Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 16. þ. m. Börn hins látna. Konan mín GUBRÚN BJARNADÓTTIR frá Ártúni, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu- daginn 22. nóvember n.k. kl. 10.30 f.h. Gunnlaugur Sigurðsson. Jarðarför móður minnar HALLDÓRU SIGURÐARDÓTTUR Eiríksgötu 4 fer fram frá Fossvogskirkju á morgun, fimmtudaginn 21. nóv. kl. 10.30. F.h. systra minna, ættingja og venslafólks. Jón J. Víðis. Jarðarför móður minnar SVEINSÍNU ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR fer fram föstudaginn 22. nóvember frá heimili hennar í Keflavík og hefst með húskveðju klukkan 1,30. Janus Guðmundsson. Maðurirm minn og faðir okkar ARINBJÖRN JÓNSSON Hofteig 20, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju laugar- daginn 23. þ.m. kl. 10.30 fyrir hádegi. Athöfninni verður útvarpað. Eiginkona og dætur. Hjartans þakkir til allra, sem auðsýndu okkur samúð og vináttu vegna andláts og jarðarfarar litla drengsixis okkar, sem andaðist 11. nóvember sl. Guðbjörg og Ólafur Þórðarson, Borgarnesi. Þökkum innilega auðsýnda samúð vegna fráfalls SIGRÍÐAR ÓLAFSDÓTTUR frá Bolungavík Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.