Morgunblaðið - 29.11.1957, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 29.11.1957, Blaðsíða 12
12 mokcrvnr 4niÐ Fostudagur 29. nðv. 1957 FRÁ S.U.S. RITSTJÓRAR: JÓSEF H. ÞORGEIRSSON OG ÖLAFUR EGILSSON Fundur í Heimdalli. Fjölþœtt félagsstarf HeimdalIar í — Æska höfuðstaðarins fylkir sér undir merki félagsins til baráttu fyrir sjálfstæðisstefnuna AÐ Toknu vel heppnuðu sumarstarfi, ferðalögum víðs vegar um landið, byggðir jafnt sem óbyggðir, skógrækt, leiklistarstarfsemi, tónleikum og ýmsu fleiru, sem of langt yrði upp að telja, hefur Heimdallur F.C.S., f jölmennasta æskulýðsfélag landsins, nýlega haf- ið umfangsmikið vetrarstarf, og hafa fréttamenn síðunnar fengið eftirfarandi upplýsingar um störf félagsins og fyrirætlanir hjá for- manni þess, Pétri Sæmundsen, viðskiptafræðingi, og framkvæmda- stjóra, Jóni Ragnarssyni stud. jur. En mikill áhugi ríkir nú i félag- inu og hefir félögum f jölgað um hátt á annað hundrað síðan i haust. Stjórnmálanámskeið Fjölmennt stjórnmálanám- skeið er nýlega hafið á vegum félagsins, en hlutverk stjórnmála námskeiðanna er einkum tvíþætt, annars vegar almenn fræðsla um stjórnmál og atvinnumál og hins vegar æfingar í ræðu- mennsku. í>að er mjög mikilsvert fyrir ungt fólk að skilja eðli og tilgang þeirrar stefnu, er það berst fyrir auk þess sem nauð- synlegt er einnig, til þess að vera góður málsvari sinnar eigin stefnu, að kunna skil á fyrirætl- unum andstöðuflokkanna. Námskeiðið er með svipuðu sniði og s.l. ár, en á því námskeiði, sem var eitt fjölmennasta, sem Heimdallur hefur haldið, voru tekin upp ýmis nýmæli s.s. kvik- myndasýningar um efni hliðstæð þeim, sem á dagskrá voru, og einnig var kappkostað að láta þátttakendum námskeiðsins í té ýmis rit um stjórnmál, sem gefin hafa verið út af fé'aginu sjálfu, S.U.S. eða Sjálfstæðisflokknum. Þá er einnig ráðgert að taka fyrir ýmis þingmál og útvega nám- skeiðinu þá tilheyrandi þingskjöl, jafnframt því sem reynt verður að kynna skipulag og starfshætti Alþingis, '«nda þótt segja megi, að það sé ekai heppilegt, þegar svo úrræðalaust, og aðgerðalítið þing situr. Fyrir nokkrum árum var fyrst tekið upp að fá kunnáttumann í framsögn, til þess að leiðbeina á málfundum stjórnmálanáni- skeiðsir.s. Þótti það gefast mjög vel og hefur verið fastur þáttur í námskeiðunum síðan, enda vetur Pétur Sæmundsen verða menn að eiga auðvelt með að koma fyrir sig orði, til þess að geta tekið virkan þátt í stjórn- málabaráttunni. Stjórnendur námskeiðsins að þessu sinni eru þeir Guðmundur H. Garðarsson, Magnús Óskars- son og Sverrir Hermannsson. Auk þeirrar fræðslu, sem fer fram á stjórnmálanámskeiðinu, hefst á næstunni leshringjastarf- semi félagsins. Þátttakendur í leshringjunum hafa einkum verið nemendur úr tramhaldsskólunum og hefur viðfangsefni þe.’rra aðal lega verið bókmenntastefnur og kynning á verkum innlendra og erlendra höfunda. Að þessu sinni mun einnig verða fjallað um stjórnmál og hagræn efni. Hef- ur nú þegar verið afráðið viðfangsefnið íslenzk stjórnmála- saga eftir 1918 og kynning á hinni víðfrægu bók Júgóslavans Djilas ar. Útgáfustarfsemi og fundarhöld Heimdallur hefur ávallt lagt kapp á að kynna félagsmönnum og öðrum þjóðmálin á sem breið- ustum grundvelli með útgáfu stjórnmálarita og fundarhöldum, auk þess sem tekin hafa verið til meðferðar sérstök mál, sem ofar- lega eru á baugi hverju sinni og varða æsku landsins eða þjóðina í heild. Fyrir síðustu alþingiskosningar gaf Heimdallur út rit um „Varn- armálin" eftir Bjarna Benedikts- son og ásamt S.U.S. ritið „Vina- minni', þar sem safnað var sam- an kjarnyrðum sem samstarfs- flokkarnir í Hræðslubandalaginu höfðu sagt hvorir um aðra. Þá var gefin út hin vinsæla kosn- ingahandbók félagsins „Kjósenda handbókin", og er nú verið að vinna að „Kjósendahandbók“ fyr ir bæjarstjórnarkosningarnar. í sambandi við þrítugsafmæli Heimdallar var gefið út myndar- legt afmælisrit, sem hefur að geyma yfirlitsgreinar um flesta veigamestu þætti þjóðmálanna og er góð handbók fyrir æskufólk, sem vill á stuttum tíma kynna sér þessi mál. Innan fárra daga kemur út á vegum Heimdallar og S.U.S. ritið „Mótið í Moskvu“ eftir Magnús Þórðarson, en greinar Magnúsar um þetta efni, sem birtust í Morgunblaðinu, hafa vakið hina mestu eftirtekt og hafa kommún- istar staðið uppi varnarlausir fyrir hinni rökföstu gagnrýni Magnúsar og varla reynt að bera hönd fyrir höfuð sér. Þá er í undirbúningi útgáfa rits um þá þætti bæjarmálanna, sem einkum snerta æskuna, og verður því dreyft fyrir bæjarstjórnarkosning ar. Auk þessa mun blaðið Heim- dallur brátt hefja göngu sína og koma út annað slagið a.m.k. fram að kosningum. Ráðgert er að efna til nokkurra fræðslufunda um bæjarmálin og verður kappkostað að fá til fram sögu unga menn,sem starfa síns vegna eru sérstaklega kunnugir ýmsum þáttum bæjarmálanna. Útbreiðslufundir Heimdallar hafa ávallt verið andstæðingun- um mikill þyrnir í augum, enda hefur á þessiim fimdum gleggst komið í ljós hvílíku mannvali æskufólks félagið hefur á að skipa, auk þess sem fundirnir hafa sýnt styrk félagsins með því að vera vel sóttir. Mvm því áform að að halda slíkan útbreiðslufund eftir áramótin. Annað félagslíf Jafnhliða stjórnmálalífinu er innan Heimdallar fjölþætt félags starfsemi, sem miðar að því að fullnægja félagsþörf meðlima á öðrum sviðum. Ber þar fyrst að nefna fjöltefli og skákkennslu, þar sem beztu skákmenn á land- inu hafa miðlað af þekkingu sinni og þreytt kapp við Heimdellinga og gesti þeirra. Hljómplötukynn- ing er nýlega hafin innan félags- ins, og verða þar kynntar úrvals- útgáfur af klassiskri tónlist, bæði reynt að leika þekkt tónverk og kynna önnur, sem af ýmsum ástæðum hafa ekki náð útbreiðslu hér á landi. Vorið 1956 þegar hið glæsilega félagáheimili Sjálfstæðismanna i Valhöll var tekið til aínota fékk Heimdallur þar ágætt herbergi til afnota fyrir skrifstofu sína, auk þess sem það fékk aðgang að hinum glæsilegu salarkynnum hússins. Sköpuðust við þetta stór bætt starfsskilyrði fyrir félagið. Nú er verið að ljúka við að ganga frá sérstökum salarkynnum fyrir Heimdall í Valhöll og fær félagið þá auk skrifstofubúsnæðis um- ráð yfir litlum fundarsal, þar sem félagsmenn geta k.,inið saman til þess að ræða áhugamál sín og verja tímanum við skák eða aðra dægradvöl. Nauðsynlegt er að efla bókakost félagsins eftir föng um, en hann hefur verið og er ónógur, enda erfitt um vik að koma upp góðu safni á meðan félagið hafði ekki til umráða ákveðið húsnæði. Verður lagt kapp á að afla fræðirita um stjórn mál erlend og innlend þ.á.m. úr- klippusafns. Skrifstofa Heimdallar í Val- höll er nú opin allan daginn og eru félagsmenn hvattir til þess að koma á skrifstofuna til skrafs og ráðagerða og til starfa fyrir félagið og Sjálfstæðisflokkinn. Kvöldvökur og kynningarkvöld félagsins hafa jafnan verið vin- sæll þáttur í skemmtanalífi ungs fólks í höfuðstaðnum, enda jafnan verið til þeirra vandað. Vinstri blöðin hafa oft reynt að bera út óhróður um þessar skemmtanir Heimdallar, sem þeir hafa séð of- sjónir yfir, en slík skrif hafa jafn an fallið dauð og ómerk og ein- ungis orðið til þess að fylkja Heimdellingum fastar um félag sitt. Þessum þætti félagsstarfsins verður haldið áfram með svipuðu sniði og undanfarið og er næst á dagskrá fullveldisfagnaður 1. des ember og jólakvöldvaka á annan jóladag. Vegna hinna miklu umsvifa félagsins, eru sjóðir þess nú léttir og þess er því vænst að félags- menn greiði árgjöld sín greiðlega, en inhheimta þeirra stendur nú yfir. Einnig er vel þegið, að menn sjái sé fært að bæta við lágmarksgjaldið einhverri upp- hæð, en öll útgjöld félagsins miða að því að auka og efla félags- starfið og má því segja að félags- gjöldin komi þannig aftur til fé- laganna. Kosningaundirhúningur Allt frá stofnun feiagsins fyrir rúmum þremur áratugum hafa Heimdellingar jafnan, er til kosn- inga hefur dregið, skipað sér í öfluga fylkingu til einarðrar bar- áttu fyrir stefnumálum Sjálfstæð isflokksins, og jafnframt tryggt ungu fólki úr sínum röðum sæti í bæjarstjórn og á Alþingi. Frh á bls. 19. Frá hljómleikum Hermanns Prey. Pilnik tefiir við félagsmenn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.