Morgunblaðið - 29.11.1957, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 29.11.1957, Blaðsíða 18
18 MORCVISBT 4Ð1Ð Föstudagur 29. nóv. 1957 Sigurjón Minníngarorb „Mínir vinir fara fjöld“. I HAUST hefur verið óvenjulega krankfellt og mikill manndauði, eða svo finnst mér. Ég minnist ekki að hafa á fáum vikum átt á bak að sjá jafnmörgum mönn- um, sem mér voru kærir og ég hafði átt mikið við að sælda um dagana. Skemmst er að minnast Sigur- jóns Stefánssonar, er andaðist 24. þ. m. og verður jarðsung- inn í dag. Sigurjón fæddist 14. maí 1887 í Framnesi á Skeiðum, sonur hjónanna Stefánssonar, er and- aðist 24. þ. m. og verður jarð- sunginn í dag. Sigurjón fæddist 14. maí 1887 í Framnesi á Skeiðum, sonur hjónanna Stefáns Ólafssonar bónda þar og Vilborgar Jóns- dóttur. Stefán var sonur Ólafs bónda í Fjalli, Stefánssonar prests í Felli í Mýrdal, og Mar- grétar yngri dóttur Ófeigs í Fjalli Vigfússonar. Vilborg, móð- ir Sigurjóns, var dóttir Jóns bónda í Arnarbæli í Grímsnesi Sigurðssonar og konu hans, Sig- ríðar Stefánsdóttur prests í Felli; voru foreldrar Sigurjóns þann- ig systkinabörn. Eru þessar ættir fjölmennar á Suðurlandi og skammt að rekja til mikils háttar manna, þótt eigi sé hér gert. Sigurjón ólst upp með móðut sinni í Arnarbæli í Grímsnesi og stundaði alla algenga vinnu í uppvexti sínum. Fullvaxta gekk hann í Flensborgarskóla og síðar í Verzlunarskóla íslands. Að því loknu réðst hann haustið 1916 til frænda síns, Helga Magnús- sonar kaupmanns og starfaði við verzlun hans sem skrifstofumað- ur og gjaldkeri til dauðadags. — Honum þótti vænt um starf sitt, rækti það með frábærri elju og Stefánsson samvizkusemi og undi við sitt. Var ævi hans því næsta við- burðalítil hið ytra. í langri og náinni viðkynn- ingu reyndi ég Sigurjón Stefáns- son þannig að hann væri óvenju— lega heill maður. Það var eins og hann hefði af eðlisávísun til- einkað sér „fornar dygðir" grískra spekinga: forsjálni, kjark, hófsemi, réttvísi. Nú þyk- ir sumum hæfa að hafa hinar fornu dygðir í skimpingi, en vel mættum vér þola, að þær væru iðkaðar meir með þjóð vörri. Sigurjón unni mjög þjóðlegum fræðum og átti gott bókasafn í því efni; þótti honum gott um það að ræða. Þessi áhugi var runninn af óvenjusterkri ætt- rækni og föðurlandsást. Hann hafði og ákveðnar skoðanir í þjóðmálum og fór ekki dult með. Trygglyndur var hann, vinfastur og vinavandur, en vildi öllum gott gera. Sigurjóni kvæntist 12. júni 1931 Þórunni Jensdóttur kaup- manns á Þingeyri Guðmundsson- Dugleg stúlka óskast í eina af elztu verzlun bæjarins í desembermánuð. Tilboð merkt: „Dugleg stúlka — 7893“, sendist afgr. blaðsins strax. ar, er lifir mann sinn. Eiga marg- ir Ijúfar minningar um gestrisni þeirra hjóna og híbýlaprýði. — Gekk og enginn þess dulinn, hví- líkur heimilisfaðir Sigurjón var, hversu hann var hugulsamur og nærgætinn um velferð barna sinna, og voru þau hjón mjög samhent um allt þetta. Dætur þeirra eru Anna Vilborg stúdent og Karla Margrét gift Þresti Sveinssyni. Sigurjón Stefánsson var hár maður og þrekinn og fyrirmann- legur, unglegur eftir aldri. Hann hafði kennt sjúkdóms þess sem dró hann til dauða, fyrir all- mörgum árum, en lífsfjörið var ærið og kjarkur og karlmennska óbilándi. Mátti enginn ókunnug- ur merkja, hvernig komið var, fyrr en fyrir nokkrum vikum. Æðruleysið var og hið sama til síðustu stundar. Sigurjóns Stefánssonar er gott að minnast. Pétur Sigurðsson. rr Landssamband ísl. Grænlandsáhuga- manna" NÆSTKOMANDI sunnudag, 1. desember, gengst Farmanna- og fiskimannasamband íslands fyr- ir stofnun félagsskapar er nefnist „Landssamband íslenzkra Grænlandsáhugamanna". Stofn- fudurinn verður haldinn í. Iðnó og hefst kl. 2,30 síðdegis. Er öll- um heimilt að koma á stofnfund þennan. f tilefni af þessu ræddi Henry Hálfdanarson við frétta- menn í gær , en hann er einn í fimm manna nefnd, sem kosin var á nýafstöðnu Farmanna- og fiskimannaþingi, og á að annast undirbúning þessara mála. Aðrir í nefnSinni eru, Þorkell Sigurðs- son, Sigurjón Einarsson, Örn Einbjörg Þorsteinsdóttir Minningarorð AÐ afloknum 90 ára starfsferli óbrotinnar alþýðukonu, er áreið- anlega vert að nema staðar og líta um öxl. í höfuðdráttum var æviferill hennar þessi: Hún var fædd að Hrafnabjörg- um í Hörðudal 22. ágúst 1867. Foreldrar hennar voru Þorsteinn Kristjánsson og Guðbjörg Ein- arsdóttir er seinast bjuggu á Giljalandi í Haukadal. Hún ólst upp að mestu með móður sinni á ýmsum stöðum á Skógarströnd og Snæfellsnesi. í uppvextinum mun hún hafa kynnzt ýmsum erfiðum kjörum samtíðarinnar og líka hinum björtu hliðum á myndarheimil- um, enda var þetta eini skóli og veganesti til hinnar löngu starfs- ævi. Hún giftist 11. júní 1893, Hannesi Kristjánssyni járnsmið í Grunnasundsnesi við Stykkis hólm og hóf þar búskap, en þar bjuggu þau að mestu óslitið til 1927 að þau fluttust til Ingi bjargar dóttur sinnar að Hörðu bóli í Hörðudal, en mann sinn missti hún 27. marz 1931 en dvald ist svo hjá dóttur sinni, Ingi- björgu, til þess er hún dó 23. nóvember s. 1. Þau hjón eignuðust sex börn, er á legg komust. Þau eru: Ingi- björg, er fyrr getur, Kristjana, kennari, Kristján, læknir, Þor- steinn, forstjóri, Matthildur, er var ljósmóðir í Reykholtsdal og Guðbjörg, gift að Jörfa í Kol- beinsstaðahreppi. Auk þess áttu þau einn fósturson, Guðlaug Bjarnason húsgagnabólstrara, er til þeirra kom tveggja ára gamall og þau ólu upp sem sitt barn. Við, sem áttum þess kost að þekkja Einbjörgu í Nesi, minn- umst hennar ávallt sem hins gilda fulltrúa trúmennsku og manngæða. í framkomu var hún látlaus, mild og brosandi og vildi jafnan hvers manns vanda leysa án þess að krefjast launa fyrir. Hún var kona ljóðelsk og listræn og hygg ég að með henni hafi horfið margur fróðleikur, en við verðum oft svo sein að hirða það sem einhvers virði er og hjól tímans hefur snúizt og fleytt yfir á önnur stig þeim sem við hefðum átt að kynnast okkur til lærdóms og eftir- breytni. Hún hélt að mestu hæfileikum sínum til síðustu stundar og varði öllum kröftum sínum fyrir börn- in og barnabörnin. Þrem dögum fyrir andlát sitt var henni sagt að hún hefði eign- azt barnabarn. Þá leið bros yfir helsjúkt andlitið. Nýtt líf var vakið, en lífinu og fegurð þess unni hún mest. Afkomendur hennar munu nú vera orðnir um tuttugu. Það er arfur þjóðfélagsins, sem hún hef- ir unmð mest að að gera nýta þegna. Um leið og ég votta afkom- endum hennar samúð mína, óska ég að íslenzka þjóðin mætti eign- ast sem flestar konur með hug- arfari og atorku Einbjargar í Nesi. Kristján Hjaltason. Steinsson og Þorsteinn Stefáns- son. Tilgangur félagsins Henry Hálfdanarson, kvað til- gang þessa félags þann, að auka kynni milli Grænlendinga og íslendinga. Það væri álit félags- ins að íslendingar ættu meira til- kall til Grænlands en Danir, og auk þess þyrftu fslendingar að eignast þar athafnasvæði. Sem dæmi mætti nefna, sagði Henry, að % alls togarafisks íslendinga væri veiddur við Grænland. Henry gat þess, að á undanförn- um Farmanna- og fiskimanna- sambandsþingum hefði verið rætt um réttarkröfur íslands til Græn lands og nauðsyn þess að fá þeim kröfum framgengt. Stofnaðar deildir Henry skýrði einnig frá því, að þegar hefðu verið stofnaðar deild ir víða úti um land í sama til- gangi, og ynnu þær fyrir hið væntanlega „Landssamband ís- lenzkra Grænlandsáhugamanna". Þessar deildir eru á Akureyri, ísafirði, Bolungarvík, Akranesi, og Selfossi og fleiri væru í upp- siglingu. Á stofnfundinum, mun liggja frammi listi til áskrifta fyrir þá er vilja gerast meðlimir félags- skaparins. Skákkeppni milli verksmiðia IÐJA, félag verksmiðjufólks, gengst fyrir skákkeppni milli verksmiðja í bænum og hefst hún n. k. laugardag. Teflt verður í VR-húsinu og hefst taflið kl. 4.30. f fyrstu umferð teflir Ofna- smiðjan við Hörpu, Nýja skó- verksmiðjan við Ölgerðina og Pípuverksmiðjan við Andrés Andrésson. Kassagerðin teflir ekki þennan dag. Flokkaglíma Reykjavíkur FLOKKAGLÍMA Reykjavíkur verður háð 8. des. að Háloga- landi. Glímt verður í þremur þyngdarflokkum og drengja- flokki, ef þátttaka fæst. Þátttaka tilkynnist til Glímudeildar UMFR fyrir 3. des. Ungmenna- félag Reykjavíkur sér um mótið að þessu sinni. Hilmor F'oss formoður Anglio AÐALFUNDUR Anglia — félags enskumælandi manna — var hald inn 8. nóvember sl. Formaður félagsins var endurkjörinn Hilm- ar Foss og ásamt honum í stjórn þess þeir Kristinn Þ. Hallsson, ritari, Sigfús Sighvatsson, gjald- keri, Hallgrímur Fr. Hallgríms- son, Geir Zoéga, Einar Pétursson og Árni Kristjánsson. Endurskoð endur eru þeir áfram Ólafur Pálsson og Viggó Jessen og for- í búðin öllu Hálogalandshverfinu Hef fengið til sölu í fokheldu ástandi íbúðarhæð við Sólheima. Hæðin er 167 ferm., óvenjulega glæsileg og vel teiknuð. Sér þvottahús er á hæðinni, sér hiti fyrir- hugaður. Stórar svalir móti suðri. Bilskúrsréttindi. Góðar geymslur í kjallara. Verð og skilmálar verða mjög hagkvæmt, ef samið er fljótlega. Talið við mig sem fyrst, Sala og samningar Laugavegi 29 — Stmi 16916. Sölumaður: Þórhallur Björnsson. Heimasími 15843. maður skemmtinefndar Haraldur Á Sigurðsson. Að loknum aðalfundarstörfum var fluttur leikþáttur undir stjórn Walters Hudd. Lék hann sjálfur annað hlutverkið á móti Herdísi Þorvaldsdóttur, en Bene dikt Árnason fór með smáhlut- verk. Sýnt var sem fyrr, að Mr. Hudd er mikill listamaður, enda leikur hans allur fágaður og rómað hversu vel frú Herdísi tókst að æfa hlutverk sitt á skömmum tíma. Vakti leiksýn- ing þessi mikinn fögnuð fundar- manna og kunna félagarnir Mr. Hudd miklar þakkir fyrir fram- lag hans. Annað skemmtiatriði var, að Guðrún Á. Símonar söng íslenzk og erlend lög og annaðist Fritz Weishappel undirleikinn. Var söngur Guðrúnar með ágætum að vanda. Loks las Walter Hudd talsvert úr verkum Shakespeares og má segja að sama var hvar hann drap niður, snilli hans var ávallt sönn. Jólafundur Anglia verður hald inn í Sjálfstæðishúsinu fimmtu- dagskvöldið 5. desember kl. 8,30 e. h. Þar verður til skemmtunar upp lestur Jóns Sigurbjörnssonar leik ara, gamanþáttur Sigríðar Hann- esdóttur og Guðbergs Ó. Guðjóns- sonar, danskeppni, jólahapp- drætti og að lokum dans til kl. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.