Morgunblaðið - 29.11.1957, Side 19

Morgunblaðið - 29.11.1957, Side 19
Föstudagur 29. nóv. 1957 MORfíVTVTtl 4Ð1Ð 79 Bería féll á kvennabúri egypzkur ritstjóri Rifsfjórinn er kominn úr þriggja vikna Rússlandsför KAIRÖ, 28. nóv. — Egypzkur ritstjóri, sem er nýkominn úr Moskvuför, segir, að Bería hafi veriS dæmdur til dauða vegna þess að hann hafi verið brezkur njósnari og hafi komið sér upp kvennabúri með ungum stúlkum Ritstjórinn heitir Mohammed Heikal og stjórnar blaðinu A1 Ahram. Hann skýrir ekki frá heimildamönnum sínum, en þess má geta, að hann er nýkominn heim úr þriggja vikna Rússlands- för. — Var hann í fylgd með egypzka hermálaráðherranum, Abdel Hakim Amer, sem er einnig nýkominn heim. Heikal segir, að áhrifa Bería hafi alls staðar gætt í Sovétríkj- unum, enda hafi hann verið bú- inn að koma ár sinni vel fyrir borð, þegar Stalín lézt. Krúsjeff varð að fá aðstoð hersins til að Dr. Adams bannað „að praktísera66 LUNDÚNUM, 28. nóv. — Eins og menn rekur minni til, var enski læknirinn, dr. John Adams, ákærður um morð á sínum tíma. en sýknaður. Nú hefur enska læknaráðið samþykkt að svipta hann leyfi til „að praktísera“. Ráðið tók þessa ákvörðun eftir aðeins 10 mínútna umræður. Eins og fyrr segir, var dr. Ad- ams sýknaður af ákærunni um morð, en honum var aftur á móti gert að greiða um 100 þús. krónur í sekt vegna brota á lögum um notkun eiturlyfja, líkbrennslu og útgáfu á lyfseðlum. leggja Bería að velli og var það mál auðsótt, því að lengi hefur legið þar í landi, að Rauði her- inn sæi ofsjónum yfir valdi ör- yggislögreglunnar. Samsærið gegn Bería tókst ágætlega, segir Heikal, og sólarhring eftir að hann hafði verið ákærður um fyrmefnd atriði, hafði hann ver- ið tekinn af lífL Um völd Krúsjeffs segir rit- stjórinn: í byrjun þessa árs ákváðu erfingjar Stalíns, að Krúsjeff skyldi komið fyrir sínu9 segir kattarnef. Meðal samsærismann- anna var Molotov, eins og kunn- ugt er. Klíka þessi ákvað að láta til skarar skríða í júní sl., en hún varð undir í átökunum í miðstjórn flokksins, eins og kunnugt er. Engan hafði órað fyrir því, að svo mundi fara, en Krúsjeff hafði eitt tromp á hend- inni, sem réði úrslitum: Zhukov landvarnaráðherra og þáverandi yfirmann Rauða hersins. An hans aðstoðar hefði Krúsjeff hlotið svipuð örlög og Bería á undan honum, segir Heikal. Loks ræðir hann um Malenkov og seg- ir, að hann hefði frekar átt skilið að skipa þann sess, sem Krúsjeff situr nú í. Lokað í dag SKRIFSTOFUM VORUM VERöUR KL. 2—4 VEGNA JARÐARFARAR ELDING TRADING COMPANY LOKAÐ í dag frá klukkan 9—2, vegna jarðarfarar. Efnalaug Reykjavlkur LOKAÐ KI.. 1—4 VEGNA JARÐARFARAR Verzl. Kristins Guðnasonar KLAPPARSTÍG 27 — Síðo S. U. S. Framhald af bls. 12. Við þær bæjarstjórnarkosning- ar, sem £ hönd fara, mun sjálf- stæðisæskan eigi láta sinn hlut eftir liggja fremur en áður. í Reykjavík mun Heimdall ur vinna að því að safna sem flestu æskufólki höfuðborgar- innar undir merki Sjálfstæðis flokksins, því nú er mikið i húfi, að þeim flokkum, sem svo ógiftusamlega hefur tekizt stjóm landsins og hafa hvað eftir annað gert sig hera að f jandskap við hagsmuni Reyk- víkinga, auðnist ekki að ná meirihlutaaðstöðu í bæjar- stjórn Reykjavíkur. Mjög mörg af málefnum þeim, sem bæjarstjórnin fjallar um, snerta æskuna á einn eða annan veg, og fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins í bæjarstjórninni hafa ávallt haft opin augu fyrir þörf- um og áhugamálum æskunnar, eins og dæmin sýna. Þess vegna er það ekki einungis hugsjóna- mál heldur einnig mikilsvert hagsmunamál reykvískrar æsku, að sigur Sjálfstæðisflokksins við þessar kosningar verði sem glæsi- legastur. Stjórn Heimdallar skipa nú Pétur Sæmundsen form., Baldvin Tryggvason varaform., Jóhann J. Ragnarsson ritari, Björn Þórhalls son gjaldkeri, Hannes Hafstein, Indriði Pálsson, Sigurður Helga- son, 'Skúli Möller, Stefán Snæ- björnsson, Hrafn Þórisson, Ólaf- ur Jensson og Vilhjálmur Lúð- víksson. Lokað Vegna jarðarfarar verður verzlun okkar og skrifstofum lokað frá hádegi í dag. Heigi Magnússon & Co. Einangrunarkork fyrirliggjandi — Lækkað verð — Símið --- Við sendum. Borgartúni 7 — Sími 22235. Skrifstofur vorar verða lokaðar i dag frá klukkan 1-4 eftir hádegi vegna jarðarfarar Guðm. Guðmundsson & Co. Ó. V. Jóhannsson & Co. G. Helgason & Melsted. Hafnarstræti 19. AÐALBJÖRN KRISTJANSSON frá Miðgerði í Höfðahverfi andaðist í sjúkrahúsi Akur- eyrar 28. þ. m. Jarðarförin ákveðin síðar. Vandamenn. SIGRlÐUR KOLBEINSDÖTTIR, fyrrum húsfreyja á Veigastöðum, Svalbarðsströnd, and- aðist í Bæjarspítalanum 27. þ. m. Þorlákur Marteinsson, Kristín Þorláksdóttir. Föðurbróðir minn EINAR EYJÓLFSSON frá Sléttabóli, andaðist aðfaranótt 28. þ.m. í Landakots- spítala. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Guðjón Guðlaugsson. Móðurbróðir minn TORFI KRISTJÁNSSON, Bíldudal, andaðist í sjúkrahúsi Patreksfjarðar, 27. nóvember 1957. Fyrir hönd vandamanna, Kristín Pétursdóttir. Sonur okkar og fóStursonur BJARNI MAGNtJSSON lézt í Tulsa, í Oklahoma 26. þ.m. Jóhanna Bjarnadóttir, Jón Bjarnason. Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og jarð- arför eiginmanns míns og föður okkar EINBJARNAR ÞÓRÐARSONAR frá Straumfjarðartungu Einnig þökkum við kvenfélagi Miklaholtshrepps góða aðstoð. Ragnheiður Kristjánsdóttir og börn. Þökkum af hjarta öllum þeim mörgu, er veittu okkur hjálp í veikindum og sýndu okkur hluttekningu við andlát og jarðarför konu minnar, móður okkar og tengdamóður ÞORGERÐAR HRÓB J ARTSDÓTTUR frá Mið-Grund. Jón Eyjólfsson, börn og tengdabörn. Þökkum hjartanlega sýnda samúð við andlát og jarð- arför móður minnar, tengdamóður og ömmu SVEINSÍNU ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR Janus Guðmundsson, Friðrika Friðriksdóttir, Sjöfn Lára Janusdóttir. - Þökkuð innileg samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför Arna STEINÞÓRSSONAR Eiginkona, synir, tengdadætur og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.