Morgunblaðið - 14.12.1957, Blaðsíða 12
12
MORCVTSBl AÐIÐ
Laugardagur 14. des. 1957
Útg.: H.í. Arvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfus Jónsson.
Aðairitstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Öla, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Asknftargiald kr. 30.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
FJARMALAÖNGÞVEITI VINSTRI
STJÓRNARINNAR
IITAN UR HEIMI
Frá SameinuSu þjóðunum:
(Jrgangsefni, sem eitra andrúmsloftið
Betri almenn fræðsla um kjarn-
orkumál nauðsynleg
AÐFARIR vinstri stjórnar-
innar við afgreiðslu fjár-
laga fyrir árið 1958 sýna
e. t. v. betur en flest annað, út
í hvert öngþveiti núverandi rík-
isstjórn er komin með fjármál
ríkisins og efnahagsmál þjóðar-
innar í heild.
í nefndaráliti minnihluta fjár-
veitinganefndar, fulltrúa Sjálf-
stæðismanna, er gagnrýnd sú
ráðabreytni fjármálaráðherra á
síðasta þingi að vanrækja að gefa
nefndinni nauðsynlegar upplýs-
ingar um tekjuhorfur ríkissjóðs.
Þeir annmarkar hafi þó verið
smámunir miðað við þau óhæfi-
legu vinnubrögð, sem nú hafi
verið beitt við undirbúning fjár-
laga fyrir árið 1958. „Munu þær
starfsaðferðir einsdæmi við aí-
greiðslu fjárlaga“, segja fulltrúar
Sjálfstæðismanna. Síðan komast
þeir að orði á þessa leið í nefnd-
aráliti sínu:
Allar fyrri starfsreglur
þverbrotnar
„Fjárlagafrv. hefur verið til
athugunar í nefndinni síðan um
miðjan októbermánuð, en allt
þar til um síðustu helgi hefur
ekkert verið unnið að raunveru-
legri afgreiðslu málsins í nefnd-
inni, heldur hefur tíminn verið
notaður eingöngu til hefðbund
inna viðtala við forystumenn
ríkisstofnana og yfirlestur erinda.
Það var fyrst sl. laugardag að
tekin var ákvörðun um fjárveit-
ingar til verklegra framkvæmda
Föst venja er að gefa vegamála-
stjóra, vitamálastjóra, fræðslu-
málastjóra og fjármálaeftirlits-
manni skóla rúman tíma til þess
að undirbúa tillögur sínar um
skiptingu fjár til þessara mikii-
vægu framkvæmda, er undir
þeirra stjórn falla og eru einn
veigamesti þáttur í afgreiðslu
fjárlaga, en nú er þess krafi7t
að þeir skili tillögum sínum með
eins dags fyrirvara. Þingmenn
hafa því enga aðstöðu haft til
að bera saman bækur sínar og
þessara embættismanna um ein
stakar framkvæmdir í kjördæm-
um sínum, og þess er krafizt að
þingmenn afhendi nefndinni ósk-
ir sínar, án þess að geta kynnt
sér tillögur áðurnefndra embætt-
ismanna. Raunverulega er frv.
afgreitt frá nefndinni á tveimur
dögum og gefur auga leið, hvílíkl
flaustur hefur verið á afgreiðs]-
unni, enda þverbrotnar allar fyrri
starfsreglur nefndarinnar, og
verður að átelja harðlega þessi
vinnbrögð“.
FuIIkomið iirrpf*ðalevsi
Þessi lýsing á vinnubrögðum
fjárveitinganefndar undir for-
ystu Eysteins Jónssonar og
kommúnista gefur góða mynd
af því eindæma úrræðaleysi og
upplausn, sem ríkir í fjár-
málastjórn þjóðarinnar um
þessar mundir. Sú staðreynd
er svo undirstrikuð ennþá
rækilegar með því, að fjár-
málaráðherrann hefur ekki
treyst sér til þess ennþá, eftiv
að annarri umræðu f járlaga er
lokið, að benda á nýja tekju-
stofna til þess að mæta rúm-
lega 90 millj. króna raunveru-
legum greiðsluhalla, sem var
á frumvarpinu, hegar hann
lagði það fram. Það eina, sem
gerzt hefur, er að fjárveitinga-
nefnd hefur hækkað þennan
greiðsluhalla um rúmlega 12
milljónir króna, þannig að
segja má, að greiðsluhalli
frumvarpsins sé orðinn á 2.
hundrað millj. króna að lok-
inni 2. umræðu um það í þing-
inu.
Ekki hefur af hálfu stjórnar-
liðsins verið bent á nein ný úr-
ræði til þess að jafna þennan
greiðsluhalla og standa að öðru
leyti undir stórauknum útgjöld-
um vegna vaxandi dýrtiðar og
verðbólgu í landinu. Hins vegar
er vitað að stjórnin hefur skipað
nefnd til þess að gera tillögur un.
nýja skatta og álögur á þjóðina.
„Nýju úrræðin“ sjást
hvergi
En var það ekki einmitt þessi
ríkisstjórn og flokkur hennar,
sem lýstu því yfir frammi fyrir
alþjóð bæði fyrir og eftir kosn-
ingar, að þeir ættu gnægð „nýrra
úrræða“, sem beitt myndi gegn
vandamálum efnahagslífsins?
Vissulega lofuðu þessir flokk-
ar „nýjum úrræðum“. En þjóðin
hefur ekki séð framan í þau enn-
þá. Þau litu ekki dagsins ljós á
sl. hausti, og þau hafa ekki kom-
ið í ljós það sem af er því Alþingi,
sem nú situr. Og enginn gerir ráð
fyrir að*þau birtist á næstunm.
Þau hafa gufað upp, horfið í upp-
lausn og eymd vinstri stjórnar-
innar. Það eina sem stjórnin get-
ur er að dulbúa dýrtíð og verð-
bólgu og velta hallarekstri at
vinnulífsins í sífellt ríkari mæli
yfir á almenning. Allt bendir til
þess að stjórnin hafi enn nýjar
slíkar ráðagerðir í undirbúningi
bæði í sambandi við afgreiðslu
fjárlaga og rekstrargrundvöll
sjávarútvegsins.
Hvað ura rekstrargrund-
völl siávarútvegsins?
Eins og kunnugt er, var það
upplýst á aðaifundi. Landssam-
bands ísl. útvegsmanna, að miðað
við óbreyttan stuðning hins op-
inbera og óbreytt fiskverð, myndi
rekstrarhalli á meðalvélbát verða
um 140 þús. krónur á næstu ver-
tíð og rekstrarhalli hvers togara
um 1,1 milljón króna á næsta ári,
að óbreyttum aðstæðum. Óskuðu
samtök útvegsmanna þess að nyr
starfsgrundvöllur yrði fundinn
fyrir sjávarútveginn fyrir miðj-
an desember.
Ríkisstjórnin hefur ekki
minnst á það einu orði á Al-
þingi, hvernig hún hyggist
leysa. vandræði sjávarútvegs
ins. Ýmislegt hendir til þess
að hún hyggist fresta því fram
yfir hæjarstjórnarkosningar.
að sýna framan í úrræði sín
í þeim vandamálum.
Þannig blasir upplausnin og
úrræðileysið alls staðar við,
Vinstri stjórnin er þess van-
megnug að leysa nokkuru
vanda. Allt er að komast á
yztu nöf undir forustu hennar.
EITRUÐ vatnsból og óhreinn sjór
eru mál, sem hafa verið ræki-
lega rædd á alþjóðaráðstefnum
um margra ára skeið, enda þarf
sameiginlegt átak til að leysa
það vandamál. Annað skylt
vandamál hefir komið til sög-
unnar hin síðari ár, þar sem stór-
iðnaður hefir risið upp. Er hér
um að ræða eitrað, eða óheil-
næmt andrúmsloft. Evrópudeild
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinn-
ar, sem hefir aðsetur í Kaup-
maunahöfn, gekkst nýlega fyrir
því, að ráðstefna var haldin um
þessi mál. Fulltrúar frá fjórum
Norðurlandanna — öllum nema
íslandi — sóttu m.a. ráðstefnuna,
sem haldin var í Milanó.
Fundarmenn allir voru á einu
máli um, að hreint andrúmsloft
væri lágmark-mannréttinda-
krafa — en erfitt væri að tryggja
öllum þessi sjálfsögðu mannrétt-
indi. Þar sem ný iðnaðarfyrir-
tæki og verksmiðjur rísa upp ó-
hreinkast bæði vatn í nágrenn-
inu og sjálft andrúmsloftið. Ó-
hreinindin í andrúmsloftinu stafa
af sóti og gastegundum frá verk-
smiðjunum — eða með öðrum
orðum af úrgangsefnum frá fram
leiðslunni.
Reynsla ýmissa þjóða
Fulltrúi Breta á fundinum
skýrði m.a. frá því, að reynslan í
Bretlandi sýndi og sannaði, að
reykur og mistur frá verksmiðj-
um orsakaði sjúkdóma, sem oft
væru banvænir.
Finnar gáfu þá skýrslu, að hjá
þeirp yrði talsvert efnalegt tjón
árlega vegna úrgangsefna frá
iðnaðinum, t.d. frá brennisteins-
verksmiðjum.
Svíar sýndu fram á, að plöntu-
líf hefði verið drepið á stóru
svæði og efnalegt tjón orðið á
verðmætum, þar sem gastegund-
ir óhreinkuðu andrúmsloftið.
Slíkt á sér einkum stað við járn-
og koparverksmiðjur í Svíþjóð
og í efnagerðarverum, sagði
sænski fulltrúinn. Svíinn tók sem
dæmi, að frá olíuverksmiðju einni
í Kvarntorp komi hvorki
meira né minna en 12 milljónir
kúbik-metra af úrgangsefnum
daglega. Er hér um að ræða 12
smálestir af ryki, 200 smálestir af
alls konar brennisteinsgufum og
1200 kúbikmetra af öðrum eitruð
um eða óheilnæmum lofttegund-
um. Rannsókn hefir farið fram á
íbúum í héraðinu umhverfis
Kvarntorp, og komið hefir í ljós,
að fólkið er óeðlilega þreytt og
þjáist af margs konar kvillum,
t.d. andarteppu, bronkítis og
annarri „brjóstveiki".
Líkar sögur voru sagðar frá
öðrum löndum. í Hollandi hafa
menn t.d. neyðzt til að grípa til
niðurskurðar á kvikfénaði í iðn-
aðarhéraði einu, og í málmiðnað-
arhéruðum í Póllandi hefir orð-
ið vart meðal barna sjúkdóma,
sem ekki finnast annars staðar.
í Svisslandi telja menn%ig hafa
slæma reynslu af aluminium
verksmiðjum, þar sem bæði gróð-
ur og dýr hafa drepizt í nám-
unda við slíkar verksmiðjur.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
verður miðstöð til varnar
Á ráðstefnu Evrópudeildar Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í
Milanó kom fulltrúunum saman
um, að eitrað og óheilnæmt
andrúmsloft væri vandamál, sem
mjög varðaði yfirvöld í flestum
Evrópulöndum og að nauðsynlegt
væri að gera ráðstafanir til þess
að draga úr þeirri hættu, sem
stafar af óheilnæmu andrúms-
lofti. I mörgum löndum er þetta
vandamál nýlega til komið og
þar hafa menn litla reynslu í þess
um efnum. f öðrum löndum er
þetta vandamál gamalt og hafa
þar verið gerðar ráðstafanir tii
þess að draga úr hættunun.. Ættu
þær þjóðir, sem eiga í þessu í
fyrsta sinn, að nota sér þekkingu
þeirra, sem reyndari eru.
Mönnum talaðist svo til, að Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunin væri
heppileg miðstöð. Þar væri safn-
að saman þekkingu á þessum
málum og reynslu í baráttunni
gegn vágestinum. Var samþykkt
að fela stofnuninni þetta verk-
efni. Á fundinum var ákveðið að
beina þeim tilmælum til ríkis-
stjórna, að skipa nefndir til að
fylgjast með því, að allar hugs-
anlegra varúðarráðstafana væri
gætt, þegar nýjar verksmiðjur
eru byggðar.
Loks samþykkti fundurinn, að
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
skyldi gangast fyrir námskeiðum,
þar sem heilbrigðisfulltrúar,
læknar, verkfræðingar, efnafræð-
ingar og aðrir sérfræðingar
fengju tækifæri til þess að kynna
sér nýjungar og reynsiu manna
til þess að verjast eiuuðu og
óhreinu andrúmslofti.
Framfarir á sviði
kjarnorkunnar
Nefnd sérfræðinga, sem kom
saman til fundahalda í Genf fyr-
ir skömmu fyrir tilstuðlan Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
komst að þeirri niðurstöðu, að
það væri nauðsynlegt að koma
á fót upplýsingastofnun, sem
hefði það hlutverk að fræða al-
HÉR fara á eftir nokkrar upplýs-
ingar um ferðir skipa Eimskipa-
félagsins:
M.s. „Gullfoss" mun fara frá
Reykjavík 17. des. til Akureyrar
með við.comu vegna farþega á ísa-
firði og Siglufirði. Þaðan fer m.s.
„Gullfoss" 19. des. til Reykjavík-
ur. Skipið mun síðan fara frá
Reykjavík 27. des. áleiðis til Kaup
mannahafnar.
M.s. „Tungufoss“ fór frá
Reykjavík 11. des. með fullfermi
af vörum til ísafjarðar, Siglu-
fjarðar, Akureyrar og Húsavikur.
Síðan mun skipið ferma á 10 höfn
um við Norður- og Austurland,
fuilfermi af síld, íiskimjöli og öðr-
um varningi til Gautaborgar og
Hamborgar. Gert er ráð fyrir að
skipið sigli frá Austurlandinu um
22. des. og verði losað í Ham-
borg um 7. janúar.
M.s. „Fjallfoss" fermir um þess
ar mundir 2300 smál. af mjöli og
skreið á Seyðisfirði, Akureyri og
Siglufirði. Skipið affermir þessar
vörur í Liverpool, London og
Rotterdam. Gert er ráð fyrir að
m.s. „Fjallfo.ss“ fari frá Norður-
landinu um 18. des., og verði los-
aður í Rotterdam um 28. des.
M.s. „Reykjafoss" mun ferma
fullfermi af mjöli, skreið og ýms-
um útflutningsafurðum í Reykja-
vík, Akranesi, Keflavík, Isafirði,
Súgandafirði og Vestmannaeyjum
menning um kjarnorkuna og
framfarir á því sviði.
Fjöldi manns er mjög á verði
um allt, sem þeir heyra, eða sjá
jm kjarnorkumálin og trúa var-
lega, aðrir eru ginkeyptir fyrir
alls konar tröllasögum í þessu
sambandi. Það er t.d. fjöldi
manns sem trúir því, að með
kjarnorkunni hafi maðurinn vak-
ið upp þann draug, sem hann ráði
ekki við og muni verða öllu
mannkyninu að falli innan
skamms.
Bæði efinn og oftrúin eru hættu
leg fyrir heilbrigða þróun þessa
ógnarafls, sem vísindin hafa nú
leyst úr læðingi með uppgötvun-
um sínum og rannsóknum á kjarn
orkunni.
Kjarnorkan í daglegu lífi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
gekkst fyrir fundinum í Genf til
þess að fá álit sérfræðinga um
hvað hægt væri að gera og til
þess að varpa ljósi á þau and-
legu og efnislegu vandamál, sem
koma til sögunnar, er kjarnork-
án verður nýtt í daglegu lífi. í
sérfræðinganefndinni voru 11
fulltrúar frá jafnmörgum þjóð-
um, en úr hinum ólíkustu vis-
inda- og atvinnugreinum.
— O —
Alménningur virðist gleypa við
öllu, sem borið er á borð um
kjarnorkumálin í blöðunum og í
útvarpinu. Jafnvel þótt menn
skilji ekkert af því, sem þeir
lesa eða heyra um þessi mál taka
þeir það, sem heilagan sannleika.
Skortur á réttum upplýsingum
um þetta nýja afl, skapar hættu-
lega óvissu, segja sérfræðingarn-
ir. Þeir töldu, að þær kjarnorku-
stofnanir, .sem stofnsettar hafa
verið, ættu að leggja áherzlu á,
að blöð og útvarp fái réttar upp-
iýsingar um kjarnorkumálin.
til Rotterdam og Hamborgar. Gert
er ráð fyrir að m.s. „Reykjafoss"
sigli frá íslandi um 19. des. og
verði . affremdur í Hamborg um
28. des.
M.s. „Dettifoss“ fer væntanlega
frá Ventspils 13. des. áleiðis til
Reykjavíkur. Skipið er væntanlegt
til Reykjavíkur um 19. des., með
fullfermi aí fóðurvörum, pappír,
timbri og bílum frá Finnlandi og
Rússlandi.
M.s. „Goðafoss" fór frá Reykja
vík 11. des. áleiðis til New York
með um 1500 tonn af frystum fiski
og um 100 tonn af öðrum útflutn-
ingsafurðum. Gert er ráð fyrir að
m.s. „Goðafoss sigli frá New York
um 28. des. og komi til Reykjavík-
ur um 5. janúar.
M.s. „Lagarfoss" er væntanleg-
ur til Riga um 18. des. Skipið mun
afi'erma þar 1500 tonn af frystum
fiski og ferma í Riga 800 tonn af
sementi, í Ventspils 650 tonn af
járni og í Kaupmannahöfn, milli
jóla og nýjárs, 800 tonn af ýmsum
vörum. M.s. „Lagarfoss“ er vænt-
anlegur til Reykjavíkur fyrstu
dagana í janúar.
Eins og sjá má af ofangreindu,
stendur nú þannig á ferðum skipa
Eimskipalélagsins, að búast má
við að einu skipin sem verða I
Reykjavíkurhöfn um jólin, verði
m.s. „Gullfoss" og m^s. „Detti-
foss“. — (Frá Eimskip).
Tveir „Fossanna" verða í
Reykjavík um jólin