Morgunblaðið - 14.12.1957, Síða 24
ir ★
10
DAGAR TIL JÓLA
285. tbl. — Laugardagnr 14. desember 1957.
'k 'k J Q & '■&
DAGAR TIL JÖLA
Góður síldarafli í gœr
Hafnarverkamenn fengu nóg að starfa í gær er Gullfoss kom
að utan með ýmiss konar varningr — í lest og á þiljum uppi.
„Manni hitnar niður í slcósóla, bara af því að sjá svona kippu
af „Skota“, sagði maður nokkur er nærri stóð, er verið var að
skipa „jólaviskýinu" upp úr Gullfossi í gærmorgun.
Kjörsíöðum við bæjar-
stjórnarkosningarnar
verði fjölgað um þrjá
Samþykkf bæjarráðs i gær
SJÓMENNIRNIR á síldarbátun-
um voru glaðlegir á svipinn í
gær er þeir komu úr róðri, því
mjög góður síldarafli hafði verið
á miðum bátanna út af Eldey.
Fréttaritari Mbl. í Sandgerði
sagðist búast við að af um 2000
tunnu afla bátanna þar í gær,
myndu um 1000—1400 tunnur
síldar verða saltaðar, en hitt þá
fryst til beitu. Hæstu bátar þar
voru Hrönn II. með 282 tunnur,
Svanur með 200, Muninn 179 og
Magnús Marteinsson 177. Þangað
höfðu alls komið 14 bátar með
síld í gær.
Þegar þessi frétt var skrifuð
i gærkvöldi, voru Akranesbátar
ekki allir komnir að landi og
var búizt við að heildarafli þeirra
myndi vera um 2000 tunnur, en
14 bátar voru að veiðum. Var
Sigurvon með mestan afla, 250
tunnur, en Keilir, Heimaskagi og
Sveinn Guðmundsson voru þá
komnir að með um 200 tunnur
hver.
HAFNARFIRÐI. — Bezti síld-
veiðidagurinn nú um alllangan
tíma, var í gær, en þá höfðu flest-
ir bátanna frá 50 og upp í 170
tunnur. Er síldin nokkuð mis-
Piliiik í íjöltefli
KEFL A VÍ KURFLU G VELLI 13.
des. — Hermann Pilnik skák-
meistari tefldi fjöltefli í gær-
kvöldi við starfsmenn ísl. aðal-
verktaka á Keflavíkurflugvelli.
Teflt var á 34 borðum. Leikar
fóru þannig að Pilnik tapaði 4
skákum, gerði 5 jafntefli en vann
25. Hlaut hann því 81% vinninga.
Þeir sem unnu Pilnik voru:
Guðm. Páll Jónsson, Ólafur
Ámundason, Kaj Rasmussen og
Njáll Þórðarson. Jafntefli gerðu
Lárus Karlsson, Helgi Ólafsson,
Sveinn Jónsson, Hörður Jónsson
og Steingrímur Oddson. Fjöltefiið
hófst kl. 8V2 og lauk á miðnætti.
— BÞ.
FYRIR nokkrum dögum var
maður nokkur dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi, en hann hafði
m. a. ekið ökuleyfislaus á bíl,
sem hann hafði tekið í óleyfi.
Var dómur þessi óskilorðsbund-
inn.
Forsaga málsins er í stuttu
máli á þá leið að maðurinn, sem
starfar við bílaverkstæði hér í
bænum, fór ölvaður að kvöldi
dags við annan mann inn á verk-
stæðið og tók þar í heimildar
leysi bíl, sem var þar til við-
gerðar. Á bílnum ók hann niður
í bæ. Þar varð maðurinn á vegi
lögreglunnar. Ekki var það fyr-
ir það að maðurinn yrði valdur
að slysi eða bílaárekstri, heldur
var bifreiðin aðeins stöðvuð aí
Kosningaskrffsfofa
fyrir Suðumes
SJÁLFSTÆÐISMENN á
Suðurnesjum hafa opnað
kosningaskrifstofu í Sjálf-
stæðishúsinu í Keflavík. —
Þar eru veittar upplýsingar
um kjörskrár og annað varð
andi bæjarstjómarkosning-
arnar í janúar n. k.
Skrifstofan verður fyrst
um sinn opin frá kl. 10—7
daglega. — Sími 21.
jöfn að gæðum, og er hún ýmist
fryst eða söltuð. — Mestan afla
hafði Fróðaklettur eða 170 tann-
ur, Hafnfirðingur var með um
140 og Fram 130. Bátarnir fóru
allir aftur út í gær. — G.E.
Suðurnesja
KEFL A VÍKURFLU G VELI ,1 12.
des. — 14. umferð á skákþingi
Suðurnesja var tefld í Keflavík
í gærkvöldi. Staðan er nú þannig:
Páll G. Jónsson 12 vinninga og 1
biðskák, 2. Ragnar Karlsson IOV2
vinn. biðskák og 2 ótefldar, Óli
Karlsson 10 vinn. 2 biðsk. og 1
óteflda, 4. Borgþór H. Jónsson
9V2 vinn. og 1 óteflda, Haukur
Magnússon OV2 vinn. 1 óteflda,
Guðm. Páll Jónsson 9 vinn., Hörð
ur Jónsson 8V2 og Ólafur Thorder
sen IV2.
Á sunnudaginn kl. 14 verða
tefldar biðskákir og þær skákir
sem ótefldar eru úr fyrri um-
ferðum, eftir því sem tími vinnst
til. — BÞ.
Kveiki á jólafré
HAFNARFIRÐI — Eins og nokk-
ur undanfarin jól, hefur vina-
bær Hafnarfjarðar, Frederiks-
berg, nú gefið bænum jólatré,
sem eins og í fyrra, hefur verið
konnð upp við Strandgötuna, á
móts við Linnetsstíg. Veiður
kveikt á trénu í dag kl. 5 og
mun þá sendiherra Dana hér á
landi afhenda tréð, en Johanne
Jörgensen, sem er dönsk kona,
en búsett hér í bænum, kveikir
á því. Við þetta tækifæri flyt-
ur bæjarstjórinn, Stefán Gunn-
laugsson, stutt ávarp og séra
Garðar Þorsteinsson prófastur
flytur jólahugvekju. Einmg
munu börn úr barnaskólanum
syngja jólasálma undir stjórn
söngkennara síns, Guðjóns Sig-
urjónssonar. —G. E.
lögreglumanni, sem spurðist fyr-
ir um ökuskilríki mannsins og
athugaði bifreiðina.
Kom brátt í Ijós að maður
þessi hafði verið sviptur öku-
leyfi ævilangt með dómi. Hafði
hann einnig áður verið dæmdur
fyrir bílþjófnað. Loks var hann
áberandi ölvaður er hann var
tekinn. Með hliðsjón af þessu,
sem hér hefur verið nefnt, var
maðurinn nú dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi.
BÆJARUÁÐ samþykkti í gær að
Ieggja til við bæjarstjórn, að kjör
stöðum yrði nú fjölgað úr þremur
upp í sex.
Hingað til hefur aðeins verið
kosið í Miðbæjarbarnaskólanum,
Austurbæjarbarnaskólanum og
barnaskólanum í Laugarnesi, auk
Ellihcimilisins, sem befur verið
HEIMDELLINGAR, komið í Val-
höll í dag kl. 1,15. Áríðandi að
sem flestir mæti.
sérstök kjördeild. En nú ltefur
bæjarráð lagt lil, að bætt yrði við
kjörstöðum í Melaskólanum, Lang
lioltsskólanum og Breiðagerðis-
skólanum.
Á sama tíma og stjórnarflokk-
arnir á Alþingi ætla að leggja
liömlur á bað, að kjósendur geti
neytt kosningaréttar síns, vill
bæjarstjórnin reyna að auðvelda
fólki nú, eins og frekast er unnt,
að sækja kjörstað. Samþykkt bæj-
arráðs miðar í þá átt og er á henni
hin fyllsta nauðsyn.
í GÆR kom út á vegum Almenna
bókafélagsins glæsilegt og merki-
legt rit, sem vafalaust mun vek.ia
mikla athygli bæði hér heima og
erlendis. Bókin heitir íslenzk
myndlist frá fyrri öldum og hef-
ur að geyma 70 úrvalsmyndir af
íslenzkum listgripum og lista-
verkum frá elztu tímum og allt
fram á 19. öld. Bókin er í stóru
broti og myndirnar flestar heil-
síðumyndir. Þeirra á meðal eru
14 litmyndir. Fegurri prentun
hefur ekki sézt á íslenzkri mynda
bók og getur þarna að líta sýnis-
horn af flcstum greinum íslenzkr
ar listar, tréskurði, málverki,
handritalýsingum, útsaumi, vefn
aði og málmsmíði. Flestar eru
myndirnar teknar af hlutum i
Þjóðminjasafni íslands, en nokkr
ar eru af íslenzkum listmunum,
sem geymdir eru í erlendum
söfnum.
Bókin er prentuð hjá Dr. C.
Wolf & Sohn í Miinchen, en
Kristján Eldjárn, þjóðminja-
Friðrik og
Larsen eiga
biðskák
Gtigoric og
Reshevsky með
7 vinninga
í 12. umferð á skákmótinu f
Dallas urðu úrslit þessi:
Friðrik — Larsen biðskák.
Reshevsky — Yanofsky biðsk.
Szabo — Evans jafntefli.
Najdorf — Gligoric jafntefli.
Eftir þessa umferð standa leik-
ar svo:
Reshevsky 7 v. og biðskák.
Gligoric 7 v.
Szabo 6V2 v.
Friðrik 6 v. og biðskák.
Larsen 5V2 v. og biðskák.
Yanofsky 5 v. og biðskák.
Najdorf 5 v.
Evans 4 v.
Það var Veniis
í GÆRKVÖLDI voru gerðar um
það allmargar fyrirspurnir, hvort
það gæti verið Sputnik II, sem
sæist á suðvesturloftinu.
Mbl. gekk í tilefni þessa á vit
próf. Trausta Einarssonar sem
upplýsti, að hér væri hvorki um
Spútnik eða eldflaugar að ræða,
heldur þá gömlu góðu stjörnu
Venus.
Venus er nú lágt á suðvestui-
loftinu og mjög skær, sagði próf.
Trausti. Hún á eftir að verða enn
skærari og mun skærast skína
á aðfangadagskvöld.
Þá var einnig spurzt fyrir um
það í gær hjá blaðinu, hvaða
furðuflugvélar hafi verið á lofti
um klukkan 2, en þessir „hlutir“
eins og fyrirspyrjandi prðaði það
komu úr suðvestri og flugu til
suðausturs og birtust fyrst tveir
og síðan aðrir tveir.
Um þetta er ekki gott að segja.
Flugstjórnin á Reykjavíkurflug-
velli, sagðist geta bent á þann
möguleika að hér hafi verið um
þrystiloftsflugvélar að ræða, en
um það leyti voru 8 slíkar vélar
á sveimi hér í nágrenni bæjar-
ins, sumar mjög hátt en aðrar
lægra á lofti, sumar spúandi
hvítum reykmekki, en aðrar ekki.
vörður, hefur að öðru leyti séð
um útgáfu bókarinnar. Hefur
hann skrifað skýringar með
myndunum auk ýtarlegs formála
um íslenzka alþýðulist, kjör henn
ar og viðfangsefni.
Með útgáfu þessarar bókar
gefst mönnum nýtt tækifæri til
að kynnast listviðleitni Islend-
inga fyrr á tímum. Mun mörgum
koma á óvart sú snilld og feg-
urð, sem blasir við á flestum
blaðsíðum bókarinnar.
Bókin er prentuð bæði með ís-
lenzkum og enskum texta.
Varðarkaffi í Valhöll
1 dag kl. 3-5 s.d.
„Z5 krónu veltan“
FJÁRÖFLUNARNEFND Siálfstæðisflokksins hefur nú hafið
starfið í sambandi við DæjarstjornarKOsnmgarnar hinn 26.
janúar næstkomandi.
Hefur nefndin efnt til svonefndrar „25 krónu veltu“,
sem borgarstjóri og bæjarstjórnarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hafa hleypt af stokkunum með því að greiða hver
um sig kr. 25.00 til Fjáröflunarnefndarinnar og um leið
skorað á þrjá aðra Sjálfstæðismenn að gera slíkt hið sama
Er þess vænzt, að allir góðir Sjálfstæðismenn taki áskor-
minni og svari jafnframt með nýrri áskorun.
Hér með er Skorað á Sjálfstæðisfólk, sem ekki hefur
þegar fengið áskorun, að mæta í skrifstofu nefndarinnar í
Sjálfstæðishúsinu og taka þátt í „25 ltrónu veltunni“. —
Skrifstofan er opin til kl. 7 í kvöld og kl. 2—6 á morgun
(sunnudag).
Fjáröflunarnefnd Sjálfstæðisflokksins.
Dæmdur í 3 mán. fangelsi
íslenzk myndlist frá f yrri öldum
Ný, glæslleg myndabók frá
Almenna bókalélaginu