Morgunblaðið - 18.12.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 18.12.1957, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvilcudagur 18. des. 1957 Hlustað á útvarp Árni Einarsson, kaupm. Minning INNAN um endalausar jólaaug- lýsingar um alls konar varning. sem kaupmenn og kaupfélög hafa á boðstólum — svo og morgun- tónleika, hádegistónleika, mið- dagstónleika, kaffitímatónleika, miðaftanstónleika, tónleika í Hátíðasal Háskólans, verk eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson • og loks danslagaplötuspil Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, heyrði mað- ur á sunnudag ágætt erindi séra Gunnars Árnasonar, nefnt Sunnu dagserindið: Átrúnaður þriggja íslenzkra höfunda eins og hann birtist í ljóðum þeirra, fyrsta er- indið, um viðhorf Bjarna Thor- arensens til trúar. Var erindi þetta framúrskarandi vel samið og áheyrilegt hjá hinum gáfaða, lærða og áhugasama presti og skáldi, höfundi og útvarpinu mjög til sóma. Bjarni Thoraren- sen var trúmaður einlægur, eins og víða kemur fram í ljóðum hans. Síðari hluta dags auglýsti Norðri bækur þær, er forlag þetta hefur nú á boðstólum. Með- V» al bókanna er skáldsagan Sól á náttmálum eftir Guðmund G Hagalín, sem eg tel víst að sé bezta og veigamesta skáldsagan þetta árið, heilsteypt verk og þaulhugsað. Hef eg þegar lesið þá bók, einu sinni, en mun lesa hana aftur, til nánari athugunar. Um ísland til Andesþjóða heitir bók, sem Norðri sér um, eftir Erling Brunborg, vel er látið af bók þessari, sem er ferðasaga og má víst allt gott um hana segja, svo merkir menn hafa hælt henni. Frú Elinborg Lárusdóttir las upp Úr bók er hún hefur skráð um dulrænar gáfur Kristínar Kristj- ánsson. Frú Kristín segir fyrir óorðna viðburði og kaflar þeir er lesnir voru í þetta sinn, eru eftir Sigurð Þórðarson, tónskáld Hann er viðurkenndur sæmdar- maður og dettur engum, er hann þekkir, í hug, að hann fari ekki með rétt mál. Ég hef lesið þessa bók og þykir forspárnar merkileg ar mjög. Annars er bókin vönd- > uð að allri gerð eins og aðrar bækur um sama efni eða líkt, sem frú Elínborg hefur skrifað Efalaust kaupa bókina margir. Bókin heitir Forspár og fyrir- bæri. Þá var talað við Ólaf Jóns son um hið mikla verk hans Skriðuföll og snjóflóð, sem fyrst og fremst er vísindarit. — Einar E. Sæmundsson hefur ritað bók er Sleipnir nefnist um hesta, las dr. Broddi Jóhannsson úr bók- inni. Nú vilja ungir menn víst helzt tala og lesa um bíla, flug- vélar og mótorhjól. — Jón Ey- þórsson las úr fjórða og síðasta bindi þeirra Pálma Hannessonar Hrakningar og heiðavegir. Var það saga um mann er villtist í stórhríð en komst, furðu lítið meiddur, til byggða. Fyrstu bind- in af þessi riti voru einkum á- gæt, enda naut ritsnilld og frá- sagnargáfa Pálma rektors sín þar fullkomlega. Þá var loks lesinn kafli úr þýddri bók eftir munk einn frá Tíbet, sú bók er skemmtileg og svo ótrúleg að gengur næst verstu reyfurum Rider Haggards og slíkra höf unda. Ég hef lesið.bók Lobsangs munks. Fleiri bóka Norðra var getið, svo sem bókar um Hóla- stað og myndabókar með húsum þeim er Guðjón Samúelsson teiknaði. Sá sem um þá bók gat, lét í ljós þá skoðun, að ef Guð jóns heitins hefði ekki notið. mundu helzt engin af þeim hús- um er hann teiknaði hafa verið byggð! Heldur fáránleg skoðun! Hitt er satt að Guðjón teiknaði mörg fögur hús, þótt stundum þætti honum vera nokkuð mis- lagðar hendur. Tónlcikarnir í Háskólanum, verk eftir Sveinbjörn Svein- björnsson. Flytjendur Hljómsveit Ríkisútvarpsins, Guðrún Símon- ar, Guðmundur Jónsson, Þor- steinn Hannesson og Dómkirkju- kórinn, stjórnandi var dr. Páll Isólfsson, fóru ljómandi vel L rm -------------- og hafa eflaust orðið mörgum til ánægju, einkum þó þeim, er í hátíðasalnum voru. — Um helgina var helzt þáttur frá Hornströndum, verst að maður sá er sagði frá einsetulífi sínu þar o. fl. talaði allt Of hart og var svo óskýr í málfari að hlustend- ur gátu ekki fylgzt með nærri því öllu er hann sagði. Hafði hann lent í ýmsu norður þar, var einbúi í 7 ár. — Þá var þátt- ur um rúbína og aðra eðalsteina, eitthvað í sambandi við bók Mykle?) Annars fróðlegt að vita. að hér eru slípaðir steinar svo sem glerhallar, hrafntinna o. fl. steinar. —• ★ Það er dálítið erfitt að skrifa um útvarp, þegar ekki er vænt- anlegt að það, sem ritað er, verði birt fyr en eftir kannske 8—10 daga. Aðrir blaðamenn hafa þá birt það, sem veigamest er, fyrir löngu og lagt út af því í blað- inu í löngu máli. Eða þá að heilar ræður hafa komið í blaðinu, sem maður er svo að reyna að segja aðalefnið úr í fáum orðum. — Nú — jæja! Maður gerir sitt bezta og við það situr. ★ Séra Jakob Jónsson talaði um daginn og veginn mánudag 9. des. Talaði hann skörulega og kom víða við. Sagði, að kvik- mynda þyrfti gömul vinnubrögð meðan þau væru enn í hefð. Þetta er satt. Hver heíur t. d. séð vögur og hey dregið upp af votlendi á þeim? Eru þær enn notaðar ein- hvers staðar? Örnefnum þarf að safna, einkum í sveitum sem farið hafa í eyði, þær sveitir byggj- ast væntanlega aftur, kannske þó ekki í bráð, — eftir 80—100 ár? Engin veit það. — M. a. talaði séra Jakob um flutning fólks til Canada, hann hefur sjálf ur dvalið þar. Taldi ekki ráðlegt að leita þangað. — Verst er að varnarlið Bandaríkjamanna flyt- ur út kvenfólk vort. Hvað ætn mörg þúsund íslenzkar konur ungar og fagrar, hafi gifzt er- lendum hermönnum síðastl. 17 ár? Að síðustu óskaði séra Jakob VIÐ þekkjum öll Nikolai Al- exandrovich .., “ sagði Krús jeff, þegar hann tilkynnti æðsta ráði Rússaveldis, að Bulganin væri orðinn forsætisráðherra. Sú staðhæfing orkaði reyndar tví- mælis. Því er ekki að furða, þó að við hér úti á íslandi þekkjum ekki ýkja mikið til hans annað en að hann er aldraður, gráhærð- ur náungi með geitarskegg, sést oft á myndum við hliðina á Krús- jeff og hefur nú skrifað undir langt bréf til Hermanns þar sem hann býðst til að taka ábyrgð á öryggi okkar — ef vissum skil- yrðum er fullnægt. Bulganin varð forsætisráðherra snemma árs 1955, þegar Malen- kov stóð allt í einu upp og sagðist ekki vera hæfur til að gegna þeirri miklu vanda- og ábyrgðar- stöðu. Bulganin er nú á 63. aldursári. fæddur í Njisni Novgorod, sem nú heitir Gorkij. í opinberum heimildum segir, að hann sé verkamannssonur, en faðir hans mun hafa verið skrifstofumaður. Er talið.að Bulganin hafi stundað nám í tækniskóla og fengið góða menntun í stærðfræði, eðlisfræði og þýzku, sem hann talar lýta- laust. Annars er það sem kunnugt er eitt af einkennum hins komm- úniska heims, að öruggar, opin- berar fréttir þaðan eru torfengn- ar og erfitt fyrir blaðamenn að kynna sér málin af eigin reynd. Hvað sem því líður er víst, að Bulganin gekk í bolsevíkkaflokk- inn 1917, rétt fyrir nóvember- þess að menn gættu hófs á kom- andi jólum í nautn áfengra drykkja til þess m. a. að auka ekki ástvinum þjáning meo drykkjuskap. Ef til vill verðui ræða sér Jakobs komin á prent áður en þessi orð birtast. Ræðan á það vel skilið að sem flesti: lesi hana. Fæstum mun þykja takast vel þátturinn er nefnist Leitin að Skrápskinnu. Það á að vera til- raun að koma á einum gaman- þætti og er ekki ómögulegt, að einhvér hópur fólks geti brosað að. Annars virðist þeim er nú í vetur ráða útvarpinu, helzt annað betur gefið en að koma af stað gamanþáttum. Hinn ungi nýbakaði formaður útvarpsráðs hefur víst öðru að sinna en því og hefur kannske ekki mikinn á- huga í þá átt. Ekki var erindi Sveins hag- fræðings Ásgeirssonar á fimmtu- daginn um Alþjóðlega samvinnu neytenda eiginlega gamanþáttur En þó var ekki laust við að það væri dálítið broslegt, svona bak við tjöldin, að heyra, að í landi þar sem er mat á flestu,. af opin- berri hálfu, fiskimat, ketmat, ull- armat, sildarmat, eftirlit með mjólk, vörueftirlit yfirleitt o. s. frv. þurfi, ofan á allt, að bætast „prívat“ félag neytenda til þess að endurmeta eða betrumbæta allt þetta kostnaðarsama og vold- uga opinbera mat og eftirlit. En kannske er ekki vanþörf á því og á þessari miklu félagsmálaöld er ágætt að fá ennþá eitt tækifæri til þess að vera í norrænni sam- vinnu og alþjóða-félagsskap með árlegum fundum í Stokkhólmi og París. — Já, blessuð gangið í Neytendafélagið, svo tala félags- manna verði ekki undir sex þús- undum. Sjálfsagt hefur félags- skapur þessi margt til síns ágæt- is. Erindi Þórðar Björnssonar, Er lendir gestir á öldinni sem leið var um James Bryce og nefndist Iávarður við Langjökul. Sir James fór landveg frá Seyðisfirði til Reykjavíkur, fór Vatnahjalla- veg og Kjöl og ritaði ferðaminn- ingar. Hann kunni íslenzku og var jafnan vinur íslands síðan, heiðursfélagi Bókmenntafélags- ins (dó 1922). Þættir Þórðar Björnssonar um ferðir útlendinga á 19. öld hafa verið ágætir. Þeim er nú lokið. byltinguna, og fyrsta starf hans varðaði áróður meðal vefara. Yf- irmaður hans þá var Kaganovits, sem nýlega missti völd og veg- tyllur eins og menn muna. Kagan ovits sendi Bulganin til Moskvu og þar var hann gerður að raf- stöðvarstjóra. Síðan var hann borgarstjóri Moskvuborgar 1931- 1937, lét þá allmikið að sér kveða og ferðaðist víða um lönd. Síðar varð hann aðalbankastjóri Rúss- landsbanka og háttsettur maður í hergagnaiðnaðinum. Þegar stríðið skall á var til- kynnt, að Bulganin hefði gerzt sjálfboðaliði. Hann varð fljótlega hershöfðingi, en starfið var ekki i því fólgið að ákveða, hvernig bardögum skyldi hagað. Bulgan- in var sem sé stjórnmálaerindreki EINN af þeim borgurum Reykja- víkur, sem settu svip sinn á bæ- inn og tóku undir orð skáldsins, sem kvað: „Þú rís og blómgast, Reykjavík, sem rós við landsins hjarta“, er látinn, Árni Einars- son, kaupmaður. Hann lézt 12. desember rúmlega 87 ára gamall og hafði legið sjúkur síðustu þrjá mánuðina. Árni Einarsson var fæddur 9. september 1870 ■ í nágrenni Reykjavíkur. en fluttist með for- eldrum sínum til Reykjavíkur eins árs gamall. Árni kvæntist 1896 Guðrúnu Kristínu Sigurðar- dóttur. Eignuðust þau þrjú börn, Sigurð, er dó 1914, 18 ára og var mikill harmdauði foreldrum hans, Egill, stórkaupmaður, og frú Sigríður. Guðrún Kristín dó árið 1928. Árni kvæntist í annað sinn 9. janúar 1937 hinni góð- kunnu listakonu Vigdísi Kristjáns dóttur, sem lifir mann sinn. Árni Einarsson fór mjög ung- ur að fást við verzlunarstörf og var hin fyrstu árin hjá Gunnari Einarssyni, er hafði mikla verzl- un um skeið í stóru húsi, er hann byggði á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu. En árið 1906 setti Árni á stofn verzlun á Lauga- vegi 24. Nokkrum árum seinna flutti hann verzlun sína á Lauga- veg 28. Hafði hann þar um margra ára skeið umfangsmikla verzlun bæði við bæjarmenn og í hernum og er sagður hafa hafzt eitthvað heldur skuggalegt að á bak við víglínurnar, þegar rauði herinn tók að æggja undir sig landsvæði, þar sem Þjóðverjar höfðu áður komið upp andkomm- úniskum hreyfingum. Skömmu eftir stríð var Bul- ganin gerður að marskálki og landvarnarráðherra, e. t. v. af því að hann hafði nægilega marg ar orður og þó nægilega lítinn hetjuljóma til að falla Stalin í geð. Síðan var hann tengiliður hers og ríkisstjórnar og þótti far- ast það liðlega úr hendi, enda orðinn þjálfaður í list stjórnlagn- innar og með mikla reynslu að baki. Bulganin hafði þó að því er virðist hægt um sig, menn sögðu að hann væri sá, sem opnaði Í dyrnar fyrir þeim, er vildu erfa völd Stalins. En fyrr en varði skaut honum upp við háborðið. Bulganin er að ýmsu leyti ólík- ur Krjúsjeff. Hann er'rólegur og vingjarnlegur, þegar hann vill það við hafa, með hreinar neglur, vel klæddur, — og angar af Köln arvatni. „Sannur riddari", sagði frönsk dansmær einhvern tíma, þegar Bulganin hafði farið fögr- um orðum um fegurð hennar og fimi. En hinu má ekki gleyma, að Bulganin er þó fyrst og fremst kommúniskur forsætisráðherra hins heimsveldissinnaða Rússarík is, gamall byltingarmaður, með flekkaða fortið. Og bréfin, sem hann sendir út um heim, hafa sinn tilgang eins og allir vita. utanbæjarmenn. Rak hann verzl- unina af sínum alkunna dugn- aði og lipurð, en á kreppuárinu 1922 varð Árni fyrir miklum áföllum fjárhagslega og varð þá að selja verzlunina og hús sitt. Jafnframt kaupmennskunni hafði Árni í 8 ár á hendi heil- brigðisfulltrúastarf fyrir Reykja- vík og var sá fyrsti í því starfL Gegndi hann því starfi með mikilli prýði en varð að hætta, er verzlun hans hafði aukizt það mikið að hún krafðist allrar starfsorku hans. Eftir að Árni hætti að verzla, tókst hann ýmis störf á hendur. Var í mörg ár umboðsmaður ýmissa þekktra danskra fyrir- tækja, sem seldu vörur til ís- lands. Einnig sá hann í mörg ár um innheimtu og ýmis önnur störf fyrir systurnar í Landa- koti. Er mér kunnugt um, að þær mátu hann mikils. Öðru hvoru var hann starfsmaður á afgreiðslu Sameinaða gufuskipa- félagsins, og einnig starfaði hann um skeið hjá raftækja- og véla- verzluninni Heklu. Þá er að minnast á hið annað ævistarf Árna Einarssonar, en þa|S er hans mikla og gifturíka starf fyrir verzlunarstéttina í Reykjavík, sem hann vann af framúrskarandi ósérplægni og áhuga. Á ég þar við störf hans í þágu Verzlunarmannafélags Reykjavíkur og Styrktar- og sjúkrasjóðs verzlunarmanna. Um 50 ára skeið nutu þessi félags- samtök verzlunarmanna hans eldlega áhuga og fórnfýsi. Fyrstu kynni mín af Árna voru aðallega í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Fáum árum áður en ég varð formaður félagsins 1922, hafði Árni bjargað eign- um félagsins, sem verið höfðu í hinni mestu vanhirðu, þegar félagið lá niðri um skeið. Og má með sanni segja, að það hafi verið honum fyrst og fremst að þakka að félagið var endurreist. Síðan hefur það staðið allt til þessa dags í miklum blóma og varð heimili og forustufélag verzlunarstéttarinnar. Og Árni átti enn eftir að starfa mikið fyrir félagið, því að þau 9 ár, sem mér var falin forusta félagsins, er hann mér einna minnisstæðastur af þeim mönn- um, sem ég kynntist í félaginu. Ósérplægni, viljakraftur hans og áhugi var öllum til fyrirmyndar. Hann beið aldrei til morguns að gera það, sem honum var falið að vinna í dag. Ég hef fáa þekkt, sem voru félagslyndari en hann. I En skærust er minningin í | huga mínum, er ég hugsa um hann meðal hinna mörgu barna á jólatrésskemmtunum félagsins, því að þá ljómaði hann af gleði, og hið göfugmannlega bros hans sýndi þá hinn mikla kærleika hans til alls og allra. Fyrir sitt mikla, fórnfúsa og heillaríka starf í þágu þeirrar stéttar, sem er ein af mikilvæg- ustu stéttum í þjóðlífi okkar, var hann af forseta íslands sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunnar ár- ið 1945. Hann var og að sjálf- sögðu bæði heiðursfélagi í Verzl- unarmannafélagi Reykjavíkur og Styrktar- og sjúkrasjóði verzl- unarmanna. Það má segja, að hann var gæfumaður. Samborgarar hans elskuðu hann og virtu, hann eign aðist ágætar konur, sem sköp- uðu honum unaðslegt heimili, og elskuleg börn, sem urðu honum til mikillar ánægju. En hann varð líka eins og flest- ir að mæta ýmsum örðugleikum á langri ævi, en hans létta lund og ódrepandi kjarkur og vilji unnu alltaf sigur. Ég kom oft á heimili þeirra Vigdísar og hans og naut margra ánægjustunda á þessu listfenga heimili, þar sem Vigdís skapaði svo að segja daglega ný lista- verk með málverkum og vefnaði. Árni studdi konu sína af mikl- um áhuga í þessu starfi og vildi Framh. á bls. 23 Þorsteinn Jónsson. skrifar úr daglega lífínu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.