Morgunblaðið - 19.12.1957, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.12.1957, Qupperneq 6
6 MORCUNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 19. des. 1957 * KVI KMY N Dl R * Spœnskar kvikmyndir SPANVERJAR hafa kvatt sér hljóðs á vettvangi kvikmynd- anna. Reyndar hafa þeir gert kvikmyndir í 60 ár, en nú eru upprisnir af bröndum borgara- styrjaldarinnar ungir listamenn sem eru í óðaönn að endurreisa merki spænskrar myndlistar. Fjöldi spænskra kvikmynda er með ólíkindum, og í fyrri heims styrjöldinni komst framl. upp í 400 myndir á ári Flestar þeirra eru óþekktar og áttu ekki erindi út fyrir landamæri Spánar. Á þriðja tug aldarinnar kemur Luis Bunuel fram á sjónarsviðið og gerir nokkrar myndir á Spáni, en bezta mynd hans „Terre sans Pains“ var þó bönnuð í heima- landi hans. Siðan hefur Bunuel eins og margir aðrir spænskir listamenn heldur kosið að starfa erlendis en í föðurlandi sínu Bunuel er fyrir löngu orð- inn heimskunnur leikstjóri. Gerði hann meðal annars „Los Olivida- dos“, sem Bæjarbíó sýndi fyrir nokkrum árum. Eftir borgarastyrjöldina á Spáni var frjáls kvikmyndagerð keyrð í dróma, kvikmyndaiðnað- urinn settur undir strangt eftirlit ríkis og kirkju. „Opus Dei“ (verk Guðs) heitir stofnun kaþólsku kirkjunnar, sem fer m. a. með kvikmyndamál og hefur fulltrúi „Opus Dei“ neitunarvald í kvik- myndamálum. Svo ber ekki að skiija, að kvikmyndagerð hafi legið niðri á Spáni undanfarin ár. Stjórnin lagði þegar í upphafi mikla áherzlu á kvikmyndagerð, skipulagði hana, veitti fé og stofn aði ágætan skóla í kvikmynda- gerð í Madrid. En það var kyrk- ingur í stríðskynslóðinni, upp- dráttarsýki og blóðleysi í lista- og menningarlífinu. Orsakir þessa eru öllum kunnar. Nú hafa stjórn arvöldin losað nokkuð skrúfurn- ar, enda leið ekki á löngu þar til kvikmyndagerð kviknaði til nýs og betra lífs með auknu, en þó mjög takmörkuðu frelsi. mm . * * ystuna , þökk sé framkvæmda- stjóra þess fyrir frumkvæðið. Hlaut að koma að því, að Hafnar- fjarðarbíó yndi sér ekki öllu leng ur i skugga Bæjarbíós, og færi á stúfana um útvegun mynda beint frá útlöndum. Ladislao (Lászlo) Vajda Það er athyglisvert, að leik- stjóri myndanna beggja, sem Hafnarfjarðarbíó hefur sýnt, svo og þeirrar næstu, er ekki spænsk- ur, heldur ungverskur. Laszlo Vajda fæddist í Búdapest árið 1906 en hefur dvalizt mestan hluta ævi sinnar utan heimalands síns, einkum í Þýzkalandi. Lét hann þar mjög til sín taka á ár- unum fyrir strið og var jaínvígur á handritasmíði og leikstjórn. Alls hefur hann samið 10 kvik- myndahandrit og stjórnað 24 Bunuel (1930) fékk uppreist. Litli snáðinn Pab- lito Calvo á mikinn þátt í við- gangi myndarinnar, eíida hefur varla jafnsnjall barnaleikur sézt á hvítu tjaldi síðan Jackie Coog- an lék með Chaplin í „The Kid“. „Marcelino“ verður mönnum lengi hugstæð, einkum er fyrri hlutinn hjartansljúfur, áður en guðlegheitin bera listina ofurliði. tJr „Bienvenido Mr. Marshall“. — t miðið: Heyrnarlausi borgarstjórinn. myndum. Meðal mynda hans eru „Die Liebe der Jeanne Ney“ (1927), „Nur Du“ (1930) og „Vest front 1918“. Síðan hefur hann verið nokkurs konar farandleik- stjóri í Evrópu og hafnaði loks á Spáni árið 1942, þar sem hann hefur dvalizt síðan. Vajda var flestum gleymdur, er „Marcelino" var sýnd á kvik- myndahátíðinni í Cannes 1956. Myndin vakti athygli og Vajda Myndin naut eðlilega sérstakra vinsælda á Spáni, og var kjörin bezta mynd ársins 1954. Er ekki ólíklegt, að margir fslendingar kysu hana beztu mynd, sem sýnd var hér órið 1957. Fáar myndir hafa talað eins beint til hjartans og „Marcelino". Sama verður varla sagt um „Tarde de Toros“, sem talar til grimmdarlostans. Að pynda dýr — með vatnið í munninum — þykir ekki löstur í Suðurlöndum, frekar en hnefa- leikar eða hvalskurður í Vestur- löndum. („Tarde de Toros“ mun hafa verið bönnuð á Bretlandi.) Að frátekinni misþyrmingunni fer ékki hjá því, að fimi og leikni toreodora, matadora, picadora og banderillos veki fegurðarkenndir, svo og skrautlegir búningar, rauð ur litur blóðsins, sem vætlar um svört hárin, og skuggar hins spænska kvölds á gulum sandi. Þessir tveir ungu listamenn (þeir eru liðlega þrítugir) námu báðir í kvikmyndaskólanum í Madrid. Á námsárum sínum gerði Berlanga tvær mjög athyglisverð ar myndir „E1 Circo“ og „Paseo Sobre una Guerra Antigua". Árið 1951 mynduðu þeir félagar eigið kvikmyndafélag og hafa síðan helgað sig kvikmyndalistinni ein vörðungu. Kunnustu myndir Bardems eru „Comicos" (1954), „Felices Pascuas" (1954) og verð- launamyndin „Dauði hjólreiða- mannsins“. Vonandi gefst okkur einhvern tíma tækifæri til þess að sjá a. m. k. þá síðastnefndu. Bardem þykir öllu snjallari svið- setjari en Berlanga. Eitt hefur þó Berlanga fram yfir vin sinn, og það er, að hann sver sig öllu meir í ætt við gamlar listvenjur þjóð- ar sinnar, myndir hans eru spænskari en hins, ef svo mætti að orði komast. Fyrir nokkrum árum gerði Ber langa myndina „BienvenidO’ Mr. Marshall", góðmótlega gaman- mynd um Marshall-hjálpina. Hlaut hún verðlaun í Cannes. Þá gerði hann „Novio a la Vista“ um ungar ástir á spænsku baðstrand- arhóteli anno 1900 og hræsni vandlætingarfullrar eldri kyn- slóðarinnar. Árið 1954 gerði Ber- lenga sér langa ferð til fátækustu héraða Spánar og kynnti sér lífs kjör alþýðunnar. f fylgd með hon um var vinur hans Cesare Zavatt ini, sem kunnur er fyrir handrit margra ítalskra ágætismynda (Hjólhestaþjófurinn, Sciusia, Um berto D) Uppskera ferðarinnar var nýtt kvikmyndahandrit, sem þeir sömdu í sameiningu: „Spænskar sögur“. Eru það svip myndir úr daglegu stríði alþýðu- mannsins, sagan af þorpsnauta- bananum, sagan af bóndanum í herþjónustu, sligan af barn- inu, sem gat ekki brosað, o. fl. sögur. Stjórnin hefur bannað Berlanga að gera kvik- mynd eftir handritinu, og þar við situr. í fyrra lauk Berlanga við „Calabuig“, sem við fáum að sjá í Bæjarbíói hvað líður. Fjallar myndin um atómprófessor, sem leggur vísindin á hilluna og flýr til lítils fiskiþorps í nágrenni Val encia, þar sem hann skemmtir þorpsbúum með flugeldum í stað þess að skemmta skrattanum með kjarnorkusprengjum. Bæði Rúss- ar og Bandaríkjamenn komast á snoðir um dvalarstað prófessors- ins og gera honum gó_ð tilboð, sem hann hafnar öllum. í hitteðfyrra gerði Berlanga myndina „Los Gancheros" og er hún um spænska skógarhöggsmenn. — Myndin var bönnuð á Spáni. Er því ekki laust við að himr ungu listamenn Spánar eigi við ýmsa erfiðleika að etja, þar sem er hið stranga kvikmyndaeftirlit ríkis og kirkju. Berlanga er eindreginn fylgis- maður ný-raunsæisstefnunnar í kvikmyndum, og áhugi hans bein ist því einkum að vandamálum smælingjans, sem á ytra borðinu virðast hégómi einn, en verða risavaxin og örlagarík, ef betur er að gáð. ALTER EGO. Ævisaga Jessens komin skráð hefur Cuðm. C. Hagalín „í kili skal kjörviður" heitir bók sem komin er út hjá Noröra. Eru það minningar M.E. Jessens skólastjóra Vél- skólans í um það bil 40 ár. Bókin er skrásett af Guð- mundi G. Hagalín, mikið rit og vandað, nálega 350 bls. að stærð. Þúsundir íslendingar kannast við M.E. Jessen. Hann lagði öðrum mönnum fremur grundvöllinn að vélamenningu íslendinga, kom shrifar úr 1 daglega lifinu Berlanga (arftaki Bunuels?) Menningartengsl Hafnarf jarðar og Madrídar Nú í vetur hefur Hafnafjarðar- bíó sýnt tvær athyglisverðar spænskar myndir: „Marcelino pan y vino“ og „Tarde de Toros“. Sú þriðja mun vera á leiðinni: „Mio Tio Jacinto" og ku hún ekki standa hinum að baki. Fjall- ar hún um börn, og leikur dreng- urinn, sem lék Marcelino, aðal- hlutverkið. Þá mun Bæjarbíó hafa krækt sér í spænsku mynd- ina „Calabuig" eftir hinn upp- rennandi spænska listamann Ber langa. Bætist þá Berlanga í hóp þeirra öndvegisskálda kvikmynda listarinnar, sem Bæjarbíó hefur kostað kapps um að kynna ís- lendingum. Það er samt Hafnar- fjarðarbíó, sem hefur haft for 25 kr. veltan KRÓNU VELTAN ER 1 „£j FULLUM GANGI“ stendur í Morgunblaðinu í gær, og aðrar orðsendingar um veltuna hafa birzt undanfarna daga. Velvak- andi botnaði hvorki upp né niður í þessu fyrirbrigði, svo að hann spurði fróða menn: Hvað er eigin- lega þessi 25 krónu velta? „Hvað er þetta, góði, er enginn búinn að skora á þig?“ — var svarið. „Ég held að það hljóti að koma að því bráðlega". Hvað sem því líður, þá er mergurinn máls- ins sá, að hér er á ferðinn' nýjasta nýtt á sviði fjáröflunar í kosninga sjóð Sjálfstæðismanna fyrir bæj- arstj órnarkosningarnar. Veltan hófst með því, að nokkr ir menn úr bæjarstjórnarflokki Sjálfstæðismanna í Reykjavík komu niður I Sjálfstæðishús og lögðu 25 kr. hver í kosningasjóð- inn. Um leið nefndu þeir til 3 menn hver, sem þeir vildu skora á að leggja sömu upphæö af mörk um. Skrifstofa flokksins sá svo um að koma áskoruninni á framfæri til þessara 9 manna. Þeir komu á flokksskrifstofuna og borguðu hver sínar 25 kr., og tilnefndu einnig 3 menn hver, sem þeir skoruðu á að borga í sjóðinn. Þrisvar sinnum 9 eru 27. Þess ir 27 komu og lögðu sínar 25 kr. á borðið hver og nefndu 3 ný nöfn. Þá voru sendar áskoianir til 81 manns, sá hópur borgaði og skor- aði á 243 menn o. s. frv. Fyrirmynd þessa kerfis munu ýmsir kannast við. Er það smellin hugmynd að beita því nú til að fá fé í kosningasjóðinn og verður vafalaust brugðizt vel við. Lítil slúlka tapar penlngum ÞAÐ komu tveir menn á skrifstof ur Morgunblaðsins í fyrra- kvöld og spurðu eftir Velvakanda. Jú,hann var þar, bauð mönnunum auðvitz' inn og sópaði nokkrum blöðum af Tímanum og Þjóðviljan- um af stólnum inni í kamersinu sínu — auðvitað beint í bréfakörf una. „Hvað skyldu þei: vilja, þess ir“, hugsaði Velvakandi. „Líklega hefur einhver búðardama verið ó- notaleg við þá og þeir vilja láta segja henni til syndanna". En það var nú reyndar ekki erindið. Mennirnir kváðust hafa lesið það í Morgunblaðinu þá um morg- uninn, að lítil stúlka hefði tapað peningum. Sagan um telpuna var i stuttu máli á þá leið, að hún fór inn í Tryggingastofnun á mánu- dag til að sækja barnalifeyri fyr- ir móður sína, — 685 krónur. Þá var kl. rúmlega 1. En með ein- hverjum hætti glataðist féð og telpan leitaði að þvi allt til kl. 9 hingað til lands ungur að árum en fullhugi mikill og á að baki glæsilegan, árangursríkan og ánægjulegan starfsferil. Hann man tímana tvenna frá því er um kvöldið án árangurs. Mennirn ir. sem komu til Velvakanda, vildu biðja hann að benda fólki á að koma til hjálpar, og sjálfir lögðu þeir fram 100 kr. En nú hefur komið f ljós, að hvatningin var með öllu óþörf, þvi almenningur hafði brugðizt vel við, sent á lögreglustöðina 10.710 kr. og beðið um, að peningunum yrði komið til telpunnar eða móður hennar. Það varð því góður endir á þessari sorgarsögu. Nýlt happdrættislán FLUGFÉLAG íslands þurfti að borga hvorki meira né minna en 48 milljónir króna fyr- ir nýju Viscount-vélarnar tvær, sem komu 1 vor. Lán fengust að vísu erlendis fyrir hluta kostnað- arins, en all-mikið fé vantar enn, ekki sízt þar sem ekki er talið hag kvæmt að selja allar þær eldri vélar, sem einu sinni var ætlunin að láta upp í kostnaðinn. Af þessum söknm hefur nú ver ið ákveðið að selja Lappdrættis- skuldabréf innanlands. Eiga bréf in að kosta 100 kr. hvert og verða þau endurgreidd eftir 6 ár. En á livei-j u vori þangað til verður dreg ið um flugfarseðla fyrir 300 þús. kr. — Þá átt þú, lesandi góður, þess kost að bregða þér út í heim í vor fyrir rOO kr., ef heppnin er með. — M.E. Jessen menn og skepnur fældust, er þeir heyrðu mótorhljóð, þar til nú, er vélar hafa tekið við vinnu hestsins að mestu, og maðurinn stjórnar léttri hendi afkastamikl- um vélum. Móðurlandið og fósturlandið Bókinni er skipt í tvo megin- kafla. Hinn fyrri fjallar um æsku- og námsár í Danmörku, baráttu stórhuga æskumanns til að verða að nýtum manni. Sá kafli ber heitið Móðurlandið. Síðari kaflinn ber heitið Fóst- urlandið og þar er nánast að finna söguna um það er „kjölur“ var lagður að vélamenningu landsmanna. Þar er um byltingu að ræða á fáum áratugum og ævi saga manns er lifað hefur og mót- að slíka byltingu hlýtur að verða hverjum nútímamanni fagnaðar efni. Guðm. G. Hagalín tekst frásögn in vel, enda er hann löngu viður- kenndur meistari á þessum svið- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.