Morgunblaðið - 19.12.1957, Síða 7

Morgunblaðið - 19.12.1957, Síða 7
Fimmtudagur 19. ðes. 1957 MORCTJNBLÁÐIÐ 7 /CFÆAA/jDAfÆ Greiddir verða 5% vextir og vaxtavextir af skuldabréfunum Auk þess verða greiddar árlega KR. 300.000.oo í VINNINGUM íslendingar eru ein mesta flugþjóð í heimi. Fáar þjóðir eiga jafn mikið undir flugsam- göngum, enda tala tölur sínu máli. Á árinu, sem nú er að líða, flytja flugvélar Flug- félags íslands um 80.000 farþega, eða sem svar ar helmingi allra landsmanna. Þessar tölur bera ljósan vott um hina öru þróun í flugsamgöngum okkar. Flugfélag íslands hefur ávallt stefnt að því marki að veita sem bezta þjónustu með bættum flugvélakosti og tíðari ferðum til sem flestra staða. Vegna mikillar fjárfestingar í sambandi v ið flugvélakaup og aukinnar þjónustu, erfélagið hyggst veita í æ ríkari mæli í framtiðinni með því að efla enn frekar flugsamgöngur innan- lands og milli landa, verður ekki hjá því komizt, að Flugfélag íslands afli sér aukins fjár- magns. Með hliðsjón af framangreindu hefur stjórn félagsins ákveðið að leita stuðnings lands- manna. Hefur Alþingi og Ríkisstjórn í því skyni heimilað Flugfélagi íslands útgáfu happdrætt- isskuldabréfa að upphæð kr. 10.000.000.00. Gefin verða út 100.000 sérskuldabréf, hvert að upphæð kr. 100,00. Verða þau að fullu endurgreidd 30. des. 1963, með 5% vöxtum og vaxtavöxtum, eða samtals með kr. 134.00. Hvert skuldabréf gildir jafnframt sem happdrættismiði, og verður eigendum sérskuldabréf- anna úthlutað í 6 átr vinningum að upphæð kr. 300.000,00 á ári. Vinningar verða greiddir í farseðlum með flugvélum Flugfélags íslands innanlands eða milli landa, eftir vali. Útdrátt- ur á vinningum fer fram einu sinni á ári, í fyrst a skipti í apríl 1958. VINNINGAR: i i i i 5 10 20 30 84 vinningur á kr. 10.000 ---- - — 8.000 ---- 7.000 -------------6.000 ----- .. _ 5.000 ---------------4.000 ---- 3.000 ---- - — 2.000 ---- --------1.000 — kr. 10.000 ------8.000 ------7.000 ------6.000 ------ 25.000 ------ 40.000 ------ 60.000 ------ 60.000 ------ 84.000 Samtals kr. 300.000 -----SÖLUSTAÐIR:____________ Fyrst í stað verður sölu skulda- hréfanna hagað sem hér segór: Aðalsöluumboð verður hjá afgreiðslum og umboðsmönnum Flugfélags íslands víðs vegar um land. Auk þess munu I.andsbanki íslands, títvegsbanki Islands og Búnaðarbanki Islands, svo og útibú þeirra annast sölu happdrættis- skuldabréfanna. Gefið HAPPDRÆTTISSKULDABRÉF Flugfélags íslands í jólagjöf og eflið um leið íslenzkar flugsamgöngur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.