Morgunblaðið - 19.12.1957, Side 10

Morgunblaðið - 19.12.1957, Side 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 19. des. 1957 TIL SÖLU saumavél, stígin (Werth- eim). Upplýsingar á Soga- veg 194. — Sími "2354. Chevrolet 154 6 manna, í úrvalslagi, til sölu og sýnis í dag. Bifreiðasalan Bókhlöðust. 7. Sími 19168. Höfum kaupendur að landbúnaðar-jeppum ’46 —’55. Hafið tal af okkur, ef þið viljið selja. BifreiSasalan Bókhlöðust. 7. Sími 19168. Erlendar málverkahœkur Glæsilegt úrval BÆK Góður, seltulaus pússningavikur frá Ragnheiðarstöðum til sölu. — Sími 2-30-60. TIL SOLU borðstofuborð og 6stólar, lít ið buffet; stofuskápur; — barnarúm og Sunbeam- hrœrivél. Tækifærisverð. — Birkimel 6, III. hæð, til hægri. TÍMM&rfor Barnakörfur og dýnur, Hjólhestakörfur. Iingólfsstræti 16, sími 14046 Þungavinnuvélar Sími 34-3-33 T Austurstræti 1 Fallegt úrval af síðdegis- og kvöld- kjólaefnum Fallegt kjólaefni er kærkomin . JÓLAGJÖF MARKAÐURINN Hafnarstræti 11 KARLMANNASKÓR svartir — brúnir, úr mjúku skinni, reimaðir og óreimaðir Kven- karmanns- og barna- inniskór — Gott úrval — Skóverzlun Péturs Andréssonar Laugavegi 17 — Framnesvegi 2 Símavarsla Unglingsstúlka óskast til símavörzlu nú þegar. — Upplýsingar hjá framkvæmdastjóra. (Ekki í síma). Merkasta sjálfsævisaga sem skrifuð hefir verið „Um lönd og lýði“ annað bindi sjálfsævisögu Þór- oergs Þórðarsonar. Um fyrsta bindi ævi- sögunnar „Steinarnir tala“ segir einn merkasti bókmenntafræðingur á Norðurlöndum, Kristján Albertsson, nýlega hér í blaöinu: „Með bernskuminningum Þórbergs Þórðarsonar, Steiu- arnir tala, og hinni mögnuðu frásögn Vatnadagurinn mikli (sem er prentuð m.a. í einni af bókum síðasta hausts: ls- lands er það lag) fær mjög sérkennilegur landshluti í fyrsta sinn málið í bókmenntum okkar: — sveitirnar und- ir Vatnajökli. Hvorttveggja er brot af hinu mikla verki, sem Þórbergur hefur verið að semja í ígripum alla ævi — hans eigin sjálfsævisögu. Vonandi tengir hann einhvern tíma öll brotin saman í eitt verk, sem eiga mun vísari les- endur, er fram líða stundir, en flest annað frá þessari öld. Því Þórbergur er einn mesti frásagnarsnillingur, sem Is- land hefur átt. Hann hefur margar gáfur skáldsagnahöf- undar; hann er allur sjón, taugar og tilfinning, skörp at- hugun, sterk ímyndun, óþrotlegt minni á menn og við- burði, og ýmist djúp alvara — eða spriklandi æringja- galsi. Hvers vegna varð hann þá ekki söguskáld? Af því að hann varð fyrir þeirri ógæfu (sem skáld) að vera líka vísindamaður. Vísindamaður, sem ekki bar mikla virðingu fyrir skáldinu — fremur en skáldið alltaf fyrir vísinda- manninum. Hvorugur gat úthýst hinum, svo þeir urðu að láta sér nægja, að leika hvor á annan. Þannig er þessi sjálfsævisaga orðin til — Dichtung und Wahrheit, eins og Goethe kallaði sína. Bernskuminningar Þórbergs byrja á brúðkaupsdegi foreldra hans, þrem árum áður en hann fæddist. Þórbergur man allt nákvæmlega um hegðun manna og dýra, allan þann sólarhring — auðvitað var vak- að fram úr. Geri aðrir betur. Engin leið er að sjá hvað er skáldskapur og hvað virkileiki í sögum Þórbergs af ævi sinni. Manni finnst allt vera sjálft hið ófalsaða líf, sem enginn geti upphugsað — svona hlýtur sérhvað að hafa gerzt. En nú er aðeins eftir að fella öll brotin í eina heild, sem — eftir úrfellingar og samþjöppun hér og þar — verð- ur klassískt verk. “ Suin bindiu af ævisögu séra Árna eftir Þórberg eru með öilu ófáanleg. — Látið það ekki henda yður að missa at' sjálfsævisögunni. — UNUHIJS, HELGAFELLI, VEGHÚSASTlG 7 REST BE3T Koddai eru Vinar-jólagjif Nafa.Jarkií Vandið val koddans B-stærð hæfir þeim.sem eru yfir 175 cm. á hæð. C-stærð hæfir þeim, sem eru 160—175 cm á hæð. D-stærð hæfir þeim, sem eru minna en 160 cm á hæð. E-stærð (svæfla) hæfa öllum. Leiðarvísir með hverjum kodda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.