Morgunblaðið - 19.12.1957, Síða 24

Morgunblaðið - 19.12.1957, Síða 24
i? "k ~k DAGAR TIL JÓLA Jtlor^uiiMaíí 289. tbl. — Fimmtudagur 19. desember 1957. DAGAR TIL JÓLA Eina úrræði fjármálaráðherrans: Enn komið með Stóríelld fölsun á niðursfö ðum fjárlaga 85 millj. kr. tekjuoflun frestað fram í fehrúar Stjórnarliðið sker niður framlög til framkvæmda í Reykjavik slasaða sjómenn PATREKSFIRÐI, 18. des. — En hefur þýzkur togari leitað hér hafnar vegna slasaðra skipverja. Var þetta Bremerhaventogarinn Perseus, sem kom með fimm menn meira og minna meidda. Togarinn hafði verið að veið- í GÆR var útbýtt á Alþingi nefndaráliti frá meirihluta fjárveit-'t> inganefndar. Koma þar í ljós „úrræði" fjármálaráðherrans til þess að jafna hinn mikla greiðsluhalla á frumvarpinu tif fjárlaga fyrir árið 1958. Aðaltillaga fjármálaráðherrans og meirihluta fjárveit- inganefndar er sú, að greiðsluhallinn verði jafnaðoir með því að lækka framlag til dýrtíðarráðstafana úr 105 millj. kr., eins og lagt var til í frumvarpinu upprunalega, í 40 millj. kr. Framlagið til dýrtíðarráðstafana er þannig lækkað um 65 millj. kr. Ennfremur er ekki teknar upp í fjárlög þær 20 millj. kr., sem fjármálaráð- herra lýsti ýfir í haust, að nota þyrfti til aukinna niðurgreiðslna á vöruverði vegna hækkana á verði landbúnaðarafurða á sl. husti. Fölsun fjárlaga Urræ'ði fjórmálaráðherrans til þess að jafna greiðsluhalla fjár- laganna er því það eitt að falsa niðurstöður fjárlaganna um 85 millj. kr., þar sem yfirlýst er, að halda verður áfram óbreyttum niðurgreiðslum úr ríkissjóði, þar með reiknuð sú 20 millj. kr. aukn Snjóbíll Guð- mundar fastnr við Tungnaá SELFOSSI, 18. des. — Hinum kunna öræfagarpi og ferðalang. Guðmundi Jónassyni, hefur hlekkzt eitthvað á með bíl sinn austur við Tungnaá. Ekkert hef- ur Guðmund þó sjálfan sakað eða ferðafél. hans tvo. Annar þeirra er Sigurjón R;r>t vatnamælinga- maður. Guðmnndur fór í leiðang ur inn að Fiskivötnum og víðar, fyrra sunnudag á vegum raforku- málastjórnarinunar. Mun Sigur- jón Rist hafa verið að fram- kvæma þar vatnsmælingar. Þeir munu hafa verið á heim- leið, er óhappið vildi til. Þeir ætluðu að fara Tungnaá á ís, á snjóbíl Guðmundar, en hann hef- ur með einhverjum hætti orðið fastur I krapaelg. Frá Reykjavík fór í nótt hjálparbíll. Á stórum vörubíl var skriðbíllinn „Kraki“ íluttur. Vonuðust ferðalangarnir til þess að komast á vörubíln- um upp í Sölvahraun, en ætluðu að aka þaðan inn í Svartakrók. Eru leiðangursmenn vel búnir að hvers konar tækjum til að ná upp snjóbíl Guðmundar. Það er af Guðmundi og Sigur- jóni að segja að segja, að með þeim mun vera þriðji maður- lnn. Þeir eru vel útbúnir. Báðir eru þeir Guðmundur og Sigurjón miklir ferðamenn og fáir munu betur kunna að búa sig út til ör- æfaferöar, hvort heldur er að vetri til eða sumri, en þessir garpar báðir. Von var á að skrið- bíliinn Kraki kæmist i Svarta- krók seint í gærkvöldi. —G.G. ing, sem fjármálaráðherra gerði ráð fyrir á sl. hausti vegna hækk aðs verðs á landbúnaðarafurðum. Þá kemur það fram í nefndar- áliti meirihluta fjárveitinganefnd ar að gert er ráð fyrir að hækka áætlaðar tekjur af tollum og sköttum, ásamt tóbaki og brenni- víni um 26,5 millj. kr. Það mun áform ríkisstjórnar- innar að fresta tekjuöflun til þess að standa undir ráðstöfunum vegna dýrtíðarinnar fram yfir bæjarstjórnarkosningar. Þorir stjórnin ekki að sýna framan í 85 millj. kr. nýja skatta til þess að ná raunverulegum greiðslu- jöfnuði á fjárlögum, hvað þá skattana sem þarf til að afla auk- ins fjár til stuðnings útflutnings- framleiðslunni. Níðst á Reykjavík Að öðru leyti bera tillögur meiri hlutans með sér, að það er ætlun stjórnarliðsins að níð- ast á Reykjavík við setningu fjár laga fyrir næsta ár. Ýmis fram- lög til framkvæmda í bænum eru stórlækkuð, svo sem framlag til iðnskólans, framlag til bygging- ar nýrrar lögreglustöðvar og framlag til nýrra skólabygginga. „E5 krénu veltao“ „25 KRÓNU VELTAN“ er í fullum gangi. Sjálfstæðisfólk! Mætið á skrif- stofu Fjáröflunarnefndarinnar í Sjálfstæðishúsinu og takið þátt i veltunni. Þið, sem skorað hefur verið á, vinsamlegast gerið skil hið allra fyrsta. Skrifstofan er opin frá kl. 9—7 í Sjálfstæðishúsinu. FJÁRÖFLUNARNEFND SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Frá Alþingi 3. umræða um fjárlögin hefst í dag kl. 1.30. YOrðsending frá SjálfstæðisfBokknum SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur opnað skrifstofu, til undirbúnings bæjarstjórnarkosninganna, í Vonarstræti 4 II hæð. Skrifstofan veitir upplýsingar um kjörskrár og aðstoðar við kjörskrárkærur. Þar eru einnig veittar upplýsingar varðandi utankjörstaðaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan verður fyrst um sinn opin frá kl. 9—6 daglega. Símar skrifstofunnar eru: 24753 og 17100. Stjórmœrlifiið vill ebki 2 kjördago Kosnmgafrumvarpið aígreift seint í gœrkvöfdi Á TÓLFTA tímanum í gærkvöldi var gengið til atkvæða í efri deild Alþingis um kosningalagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Jón Kjartansson flutti tillögu um, að kjördagar skyldu vera tveir að vetrarlagi. Stjórnarliðið feldi þá tillögu. Þá lagði Jón til, að kjör- stjórnir fengju heimild til að hafa 2 kjördaga, ef veður hamlar kjörsókn. Ekki náði sú tillaga heldur fram að ganga. Stjórnarliðið var á móti. Loks var frumvarpið samþykkt óbreytt eins og neðri deild gekk frá því í fyrrakvöld og afgreitt sem lög. Fylgismenn stjórnarinnar greiddu því atkvæði, Sjálfstæðismenn voru á móti. um í Víkurúlnum. Búið var að innbyrða trollið og stóðu skip- verjar í fiskaðgerð á þilfari, í versta veðri, en veðurhæðin mun hafa verið 9—10 vindstig. Togarinn ætlaði að ieita vars en snögglega reið sjór yfir skipið að aftanverðu, með þeim afleið- ingum að fimm menn slösuðust meira og minna sem fyir segir. Læknirinn tók á móti hinum slös- uðu sjómönnum. Einn þeirra hafði fótbrotnað annar var rif- beinsbrotinn, og sá þriðji var fingurbrotinn. Tveir voru minna meiddir og gátu farið út aftur með togaranum, er læknir hafði gert að meiðslum þeirra. Nú liggja hér í sjúkrahúsinu nlls 6 þýzkir togarasjómenn, sern allir eru slasaðir. — Karl. Ein af Dakotaflugvélum F. í. Sola skuldobréia F. í. hefst á morgun Hvert skuldahréfanna gildir jaín- framt sem happdrættismiði EINS og kunnugt er, hefir Flug- félag íslands fengið leyfi Alþing- is og ríkisstjórnar til sölu happ- drættisskuldabréfa, og hefst sala skuldabréfanna á morgun í Reykjavík og næstu daga annars staðar á landinu, að því er for- ráðamenn félagsins tjáðu blaða- mönnum í gær. Skuldabréfin verða til sölu í afgreiðslu félags- ins, bönkum og sparisjóðum. Verð skuldabréfanna alls 10 millj. kr. Verð skuldabréfanna nemur alls 10 millj. kr., og verða þau endurgreidd að sex árum liðnum með 5% vöxtum og vaxtavöxtum Láni þessu er skipt í eitt hundrað þúsund hluti, hver að upphæð 100 kr., og er tilgangurinn sá að gera sem flestum kleift að kaupa bréfin. Verð hvers bréfs er bví nú 100 kr., en að sex árum liðn- um verður það endurgreitt með 134 kr. Auk þess að greiddir eru vextir og vaxtavextir, gildir sérhvert skuldabréfanna sem happdrætt ismiði. Vinningarnir eru för með flugvélum félagsins eða afsláttur af flugförum. Verðmæti vinning- anna nemur alls 300 þús. kr. á ári og verður dregið um þá í aprílmánuði hvert ár. Frkvstj. F. í., Órn O. Johnson, skýrði blaðamönnum frá tildrög- um þess, að F. 1. hefur nú söiu happdrættisskuldabréfa. Á þessu ári byrjaði félagið að endurnýja flugvélakost sinn. Sl. vor voru fest kaup á tveimur nýjum milli- landaflugvélum, sem ásamt nauð- synlegum varahlutum, þjálfun o. fl. kostuðu um 48 millj. kr. Tjáði framkvæmdastjórinn blaðamönnum, að Viscountflug- vélarnar nýju hefðu reynzt mjög vel, og flutningar félagsins milii landa hefðu stóraukizt með til- komu þeirra. 33 millj. kr. lán En til þess að geta aflað þess- ara farkosta varð félagið að taka tvö stórlán erlendis, alls að upp- hæð 33 millj. kr., en það fé, sem á vantaði, hugðist félagið fá með því að selja þrjár af eldri flug- vélum sínum, þ. e. a. s. tvær Dakotaflugvélar og aðra Sky- masterflugvélina. Auk þess var ráðgert að selja Skymasterflug- vélina „Sólfaxa" á næsta ári. Önnur Dakotaflugvélin var seld á sl. vori, en Skymaster- flugvélin ,,Gullfaxi“ er enn óseld, og fyrirsjáanlegt er, að söluverð hennar verður mun lægra en a- ætlað hafði verið. Stafar það af stórauknu framboði slíkra véla á heimsmarkaðinum. Nauðsynlegt a3 halda annarri Dakotavélinni og „Sólfaxa“ Vegna sífelldrar aukningar innanlandsflugsins, er nú Ijóst, að félaginu er mikil nauðsyn á að geta haldið annarri Dakotavél- inni, sem áformað var að selja, og einnig „Sólfaxa", sem er i vaxandi mæli notaður til flug- ferða innanlands. Hefir hann einnig verið mikið notaður til flutninga milii Danmerkur og Grænlands og þannig aflað þjóð- inni gjaldeyris. Til þess að úr þessum fyrir- ætlunum félagsins geti orðið, þarf það mjög á auknu fjármagni að halda. Að öðrum kosti mun ekki hjá því komizt að selja verði flugvélar, sem nauðsynleg- ar eru, ef félagið á að geta rækt þjónustuhlutverk sitt við þjóð- ina, en á það hefir verið lögð megináherzla. Starfræksla innan- landsflugsins- er á ýmsan hátt mun erfiðari en millilandaflugs- ins, bæði tæknilega og fjárhags- lega, en þar telur félagið aðal- verkefni sitt vera, þó að einnig sé nauðsynlegt að halda uppi samgöngum til og frá landinu. F. t. leitar stuðnings þjóðar- innar allrar F. í. hefir aldrei sótt um fjáx- hagsaðstoð til hins opinbera, þó að sumar flugleiðanna séu aug- ljóslega reknar með tapi. En for- ráðamenn F. í. hafa nú ákveðið að leita til þjóðarinnar allrar um stuðning við starf þess, þar sem félagið á nú við mikinn fjár- hagslegan vanda að etja vegna mikillar fjárfestingar við endur- nýjun og aukningu flugvéla- kostsins bæði til flugferða innan- lands og milli landa. Á Öll þjóðin á mikið undir því, að samgöngur séu sem beztar og tryggastar. Forráðamenn félags- ins kváðust því vonast til þess, að vel yrði brugðizt við mála- leitan félagsins, að verzlanir og fyrirtæki, sem eru mjög háð góð- um samgöngum, og allur almenn- ingur, hver eftir sinni getu, styðji félagið með því að kaupa skuldabréfin og nota þau jafnvel til gjafa, ekki sízt til yngri kyn- slóðarinnar, sem yrði þannig vii'kur þátttakandi í veigamiklu uppbyggingarstarfi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.