Morgunblaðið - 22.12.1957, Blaðsíða 1
48 síður
I
Þessi gamanmynd um NATO-fundinn birtist nýlega í brezku blaði. Texti hennar er
við að snúa okkur að dagskrá fundarins eða eigum við að fara að lesa póstinn?
Eigum
Rússar hafna tillögum NATO
um nýjar samkomulags-
umleitanir Dulles únægðui
MOSKVU, 21. ág. — Einkaskeyti frá Reuter.
I DAG lauk fundum Æðstaráðs Sovétríkjanna með því að sam-
þykkt var ályktun um utanríkismál. í ályklun þeirri vísa Rússar
á bug samþykkt ráðherrafundar NATO um að hefja aftur umræður
um afvopnunarmáiin og að efna til utanríkisráðherrafundar.
I stað þess að fallast á tilboð NATO-fundarins, skora Rússar
á Vesturveldin að ganga til stórveldafundar, þar sem æðstu menn
stórveldanna setjist að samningaborði. En NATO-fundurinn hafði
lýst því yfir að ekki væri vænlegt að halda slíka ráðstefnu nú,
þar sem líkur væru litlar á samkomulagi.
WASHINGTON, 21. des. — John
Foster Dulles, utanríkisráðherra,
er kominn 'heim eftir Parísarför
sína. Á leiðinni heim kom hann
við á Spáni og ræddi við Franco.
Dulles kveðst vera ánægður
með Parísarráðstefnuna. Taldi
hann að stefna og skoðanir Banda
ríkjastjórnar hefði jafnvel feng-
ið betri undirtektir á ráðherra-
fundinum en hann hefði búizt
við.
Ályktun þessi var samþykkt^
að loknum ræðum þeirra Krúsj-
effs og Gromykos, þar sem þeir
höfðu ráðizst harðlega á NATO-
fundinn.
Krúsjeff lagði áherzlu á það í
Frétfaþjámisfa Nato í
molam og Spaak stirSur
sinni ræðu, að banna bæri notkun
kj arnorkuvopna og stöðva kjarn-
orkutilraunir frá næstu áramót-
um. Þá tók hann undir tillögur
Pólverja um að banna að setja
upp eldflaugastöðvar í Þýzka-
landi, Póllandi og Tékkóslóvakíu.
Gromyko réðst einnig harðlega
á framkomu Vesturveldanna í af-
vopnunarmálunum. Hann kvað
Bandaríkjamenn, Breta og
Frakka eina eiga sök á því að
upp úr afvopnunarumræðunum
slitnaði. Þetta stafaði af því að
þessar þrjár þjóðir væru nú að
vígbúa sig af kappi.
Gromyko sagði einnig að
NATO-ráðstefnan hefði verið
mikill ósigur fyrir Bandaríkin.
Það hefði komið í Ijós að Evrópu-
þjóðir snerust gegn bandarísku
tillögunum um eldflaugastöðvar í
Evrópu. Nú vissu Vesturveldin
ekki sitt rjúkandi ráð. Þau hefðu
séð hinar stórfelldu tæknilegu
framfarir í Rússlandi og skildu
nú loks að þau hefðu ekkert
hernaðarlegt bolmagn á móti
Rússum.
PARÍS 21. des. — Fréttamenn og
fréttastofnanir hafa aö undan-
förnu kvartaö sáran undan því,
hve fréttaþjónusta Atlantshafs-
bandalagsins hafi farið í mola,
þegar ráðherrafundurinn stóð
yfir á dögunum. Einkum virðist
það nú almennt rnál fréttamanna,
að hinn nýi framkvæmdastjóri
NATO, Paul Henri Spaak hafi
ekki verið þeim vanda vaxinn,
að stjórna stórum blaðamanna-
fundi.
Minnzt lipurðar Izmays.
Það hefir ætíð verið siður við
ráðherrafundi NATO, að útbýtt
sé meðal fréttamanna stuttum út-
drætti úr ræðum ráðherranna og
fyrrverandi framkvæmdastjóri
NAT©, Ismay lávarður svaraði
spurningum af velvilja og oft
með sinni alþekktu gamansemi.
Nú minnast gamlir fréttamenn
hans með virðingu og þykir sem
eftirmaður hans, Spaak, hafi til
að bera lítið af þeirri lipurð, sem
Ismay átti.
Gramur við fréttamenn.
1 sambandi við NATO-ráðstefn
una komu hundruð erlendra
fréttamanna til Parísar. í frásögn
um þeirra liggja þeir Spaak á
hálsi fyrir það, að hann hafi tek-
ið upp aðra siði en fyrrverandi
framkvæmdastjóri. Hann lét oft
sinnis í ljós gremju yfir spurn-
ingum, sem bornar voru fyrir
hann og sagði við blaðamenn:
— Verið þið nú ekki svona óþæg-
ir í spurningum ykkar. Einnig
kvaðst hann ekkert geta sagt
blaðamönnum um einstakar ræð-
ur. Um það yrðu þeir að leita
til ráðherranna hvers í sínu lagi,
sem þær hefðu haldið.
Oft varð aðeins að styðjast
við orðróm.
Mistökin í fréttaþjónustunni
leiddu m. a. til þess, að Aden-
auer forsætisráðherra Þjóð-
verja varð sjálfur að láta
dreifa sinni ræðu og vildi þá
svo illa til, að henni var dreift
hálftíma áður en hann flutti
Pramh. á bls. 23
Atvarleg mistök hjá
Tito að vLðurkenna
a-jDýzku
Talið að Krúsjeff hafi
með gylliboðum.
Vínarborg, 21. des.
KUNNUR Balkan-sérfræðingur,
dr. Stefan Marinoff, hefir ritað
athyglisverða grein í austurríska
blaöið „Salzburger Nachrichten“,
þar sem hann staðhæfir, að Krú-
sjeff hafi blekkt Tító illilega með
gylliboðum, er hann fékk hann
til að viðurkenna austur þýzku
stjórnina. Sú ákvörðun Títós
hefur rúið hann öllu trausti vest-
rænna ríkja, en hinsvegar hef-
stjórnina
tælt hann til þess
ur Krúsjeff ekki efnt fyrlrheit
sín við Tító. Stendur Tító nú uppi
með sárt enni og reynir að draga
úr áhrifum ákvörðunar sinnar
með því, að fresta að skipa í sendi
herraembættið í Austur-Berlín.
Bonn-stjórnin reiddist.
Það kom mönnum á Vestur-
löndum mjög á óvart, þegar Tító
forseti Júgóslavíu tilkynnti í
Frh. á bls. 23.
Soekarno farinn úr landi
Og nú talar stjórn Indónesíu um
friðsamlega lausn
DJAKARTA, 21. des. — Það er nú almælt í Indóncsiu, að Soehara*
forseti sé farinn úr landi og varaforsetinn hafi tekið við völdum.
Stjórn Indónesíu hefur svarað tilmælum NATO með því að krefj-
ast þess, að bandalagið hlutist ekki til um mál Indónesíu.
Utanríkisráðherra Indónesíu
dr. Subandrio flutti ræðu á þjóð-
þinginu í dag, þar sem hann
skýrði frá því að Indónesíustjórn
hefði sent tvær mikilvægar orð-
sendingar, aðra til NATO um að
hefja ekki íhlutun í deilu Indó-
nesa og Hollendinga. Hin orð-
sendingin var til Breta, þar sem
skorað var á þá að heimila Hol-
lendingum ekki að nota Singa-
pore sem bækistöð til hernaðar-
árása á Indónesíu.
Þá skýrði ráðherrann frá því
að stjórnin hefði leyst upp
Vestur-Irian (Nýju Guineu)
fylkinguna, en það er hópur
manna, sem hefur beitt sér
fyrir hefndarráðstöfunum í
garð Hollendinga vegna deil-
unnar um vesturliluta Nýju
Guineu. Kvað ráðherrann ekki
sæmilegt að beita Ilollendinga
hefndarráðstöfunum, heldur
ættu Indónesar að reyna að
semja við Hollendinga um
friðsamlega lausn.
Öflugur hervörður var í dag
við höfnina í Djakarta, þegar um
1000 Hollendingar gengu um borð
í brezkt farþegaskip, sem mun
flytja þá til Amsterdam.
Stuðningsblað stjórnarinnar,
Buluh, skýrir í dag frá því að
kínverska kommúnistastjórnin
hafi heitið Indónesum víðtækri
efnahagsaðstoð, sem einkum yrði
fólgin í vefnaðarvörum og vélum.
Fyrsta myndin af jarðskjálftasvæöinu. Móðir biður Allah um vernd.
y