Morgunblaðið - 03.01.1958, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.01.1958, Qupperneq 1
Hlutleysi virðist ekki lengur hugsanlegt í ófriði og hlutleysi á friðartímum þarf ekki að tryggja Nýjársávarp Góðir íslendingar! Við hjónin sendum yður öllum, nær og fjær, innilegar óskir um gott, farsælt og gleðilegt nýtt ár og hjartanlegar þakkir fyrir gamla árið. Við höfum þar margs að minnast, sem ekki er kostur á að rekja nánar í s<tuttu ávarpi. Hins liðna árs verður lengi minnzt fyrir veðursæid og ár- gæzku. Þess höfum vér öll notið í ríkulegum mæli, og búféð fær í vetur ilmandi töðu og úthey. Vér höfum þó verið minnt á, að sjávaraflinn er stopull. En svo er um allan veiðiskap, og verður ein vertíðin að bæta aðra upp. En vissulega geturn vér þakkað hið góða, gegna ár, mikla atvinnu og góða afkomu á flestum svið- um. Sérstaka þökk vil ég þó flytja héðan frá Bessastöðum, vegna umbóta á kirkjunni, til tveggja ríkisstjórna og hinna mörgu stuðningsmanna, sem lagt hafa fé og starf að mörkum, svo hún yrði samboðin staðnum og því heilaga verkefni, sem kirkjur þjóna. Það stenzt nokkurn veg- inn á, sem ráðgert var í upphafi, að kostnaður hefur verið greidd- ur til helminga af frjálsum fram- lögum og ríkissjóði. Og þó er álitleg fjárhæð frá Vestur-fs- lendingum, sem heimsótt hafa staðinn, geymd til framkvæmda á þessu ári, og sendi ég þeim beztu nýjárskveðju og þökk fyr- ir óbrigðula þjóðrækni. En höfuð atriðum er lokið, gluggaskreyt- ingu og hinu nýja altari. Ég vil og minnast heimsókna okkar hjóna í nokkur héruð á síðastliðnu sumri og þakka ágæt- ar viðtökur. Sumarblíðan lék við okkur, hlýít viðmót gerir manni gott, og ánægjuefni, að allir eru íslendingar, án tillits til flokka- skiptingar, við þau tækifæri. Þegar að er gáð, þá eiga ís- lendingar margar slíkar stundir, lausar við dægurþras og rig. Nú eigum við eftir að heimsækja ein fjögur lögsagnarumdæmi. Sú forseta íslands heildarmynd af landi og þjóð, sem vex í huganum, er ærið um- talsefni, en það geymi ég mér, þar til yfirreið er lokið. Ég vil ekki heldur láta hjá Ásgeir Ásgeirsson líða að minnast opinberra heim- sókna erlendra þjóðhöfðingja. Heimsókn Friðriks IX Dana- konungs og Ingiríðar drottning- ar í fyrra, var sögulegur atburð- ur. Slík heimsókn konungs, sem áður var vor eiginn krónprins, mun vera nokkuð fágæt í sög- unni, ef ekki einsdæmi, og báð- um þjóðunum, Dönum og ís- lendingum, til heiðurs og sóma. Það munu allir hér á landi minn- ast konungshjónanna með hlýj- um hug og virðingu, og konung- f ur hefur við síðustu samfundi, látið í ljósi við mig mikla ánægju yfir komunni og hrifning, og Framh. á bls. 14 Foot ræðir við Makaríos? LUNDÚNUM, 2. jan. (Reuter) — — Macmillan, forsætisráðherra Bretlands, ræddi í dag við land stjóra Breta á Kýpur, Sir Huge Foot, um framtíð eyjarinnar. Meðal viðstaddra var Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra. — Foot tók við landstjóraembættinu 3. des. sl. Hann flaug í gær til Lund úna og kveðst gera ráð fyrir að dveljast þar í tíu daga. Sennilegt þykir, að Foot verði falið að halda til Aþenu og ræða þar við Makaríos erkibiskup um framtíð eyjarinnar og skilyrði þau, sem brezka stjórnin setur fyrir því, að biskupinn fái að halda heim til Kýpur aftur. Hansen fer fil Grænlands KAUPMANNAHÖFN, 2. jan. — H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana, skýrði frá því í nýjárs- ræðu sinni, að hann mundi heim sækja Grænland á fyrra helmingi ársins 1958. Kvaðst forsætisráð- herrann hlakka til að kynnast Grænlandi og Grænlendingum. D-listinn REYKVÍKINGAR! Listi Sjálfstæðismanna við bæjarstjórnarkosning arnar 26. janúar er D-list- inn. Athugið hvort þér eruð á kjörskrá. Kæru- frestur rennur út á sunnu dagskvöld. Hvor verður á undan til Suður- pólsins, dr. Fuch eða Hillary? Lundúnum, 2. jan. KAPPHLAUPIÐ til Suður- pólsins, milli Hillarys og dr. Vivian Fuchs, er nú að ljúka, og verður ekki annað séð en Nýsjálendingurinn og félagar hans muni bera sigur úr být- um. Báðir leiðangrarnir hafa hreppt slæm veður og orðið að yfirstíga allmargar hindr- anir, sem á vegi þeirra hafa orðið, en leiðangur dr. Fuchs hefur orðið að glíma við miklu erfiðara landslag, há fjöll og jökulsprnugur, síðasta áfangann. Brezki leiðangursstjórinn (dr. Fuch) hefur símað eftir sex daga þögn, að hann og menn hans ættu 300 mílna leið eftir, en sam- tímis hefur Hillaiy tJlkynnt, að leiðangur nar.s ætti aðeins eftir 70 mílur. Þeir félagar eiga þó við mikla erfiðleika að etja — hvorttveggja er að þeir eru að verða benzínlausir og að trakt- orarnir festast í snjónum og láta illa að stjórn. Segir Hillary, að þeir félagara séu reiðubúnir að skilja þá eftir og ganga síðustu mílurnar til Pólsins, ef nauðsyn krefur. Dr. Fuch hefur yfir að ráða öflugum skriðbílum og mundi láta nærri, að leiðangrarn- ir stæðu jafnt að vígi, ef Hillary og félagar hans verða að fara fótgangandi. — Hillary sendi eftirfarandi skeyti í dag: — Við höfum aðeins fjögur föt af benzíni eftir og ætti það að nægja, en ef nauðsyn krefur skiljum við traktorana eftir. — Hásléttan, sem þeir fara nú yfir er um 11 þús. fet á hæð. Loftið er mjög þunnt, mennirnir lerk- aðir og vélarnar eyða meira elds- neyti en ella. Þá má geta þess, að þriggja manna norskur leiðangur er einn ig á leiðinni til Pólsins. Hann er undir stjórn dr. Sigurds Helles. í dag barst skeyti frá leiðangr- inum þess efnis að honum sæktist ferðin illa. Gætu þeir félagar ekki haldið áfram nema um næt- ur og hefði það slæm áhrif á hundana. Þeir komast ekki nema 5—6 kílómetra á sólarhring. — Þess má geta, að sums staðar á Suðurskautslandinu er 60 stiga frost. Sjómenn í Keflavík o Vestmannaeyjum fella sam komulagið um fiskverðið Fárániegí sjáEfshól Lúðvíks Jósefssonar ÞAÐ MUN almenn skoðun að aldrei hafi jafnótímabært hól birzt um íslenzkan ráðherra eins og „Þjóðviljinn“ birti um Lúðvik Jósefsson á gamlársdag. Var því þar lýst, að sjávarútvegsmála- ráðherra hefði unnið það frábæra afrek að „semja um alla þætti útflutningsframleiðslunnar fyrir áramót“ og tryggja þar með óslit- inn rekstur atvinnutækja sjávarútvegsins allt frá áramótum. Ósamið við togarana Sannleikurinn í málinu er hins vegar sá, að ennþá er algerlega ósamið við togaraútgerðina um rekstur togaranna á þessu ári. En rekstrarhalli þeirra hefur aukizt stórkostlega á sl. ári, m. a. vegna vaxandi verðbólgu og dýr- tíðar í landinu. Er nú svo komið að við borð ldggur að sumir tog- aranna stöðvist og valdi þar með miklu atvinnutjóni í ýmsum byggðarlögum. Þrátt fyrir þessa staðreynd hefur sjávarútvegs- málaráðherra kommúnista varla talið það ómaksins vert að ræða við togaraútgerðina um vandræði Framhald á bls. 2. Við hvað eru Rússar hræddir ! BERLÍN, 2. jan. — Rússnesk-1 ir hermenn tóku sér stöðu á götum Austur-Berlínar í dag og við markalínuna milli borgarhlutanna. Voru þeir allir með alvæpni, margir með vélbyssur. Þetta er í fyrsta skipti, sem Rússar eru þannig útbúnir síðan í upp- reisninni 1953. Ekki er vitað um ástæðuna, en fréttamenn segja, að hún sé sú, að rúss- nesk hernaðaryfirvöld hafi komizt að því, að hópar rúss- neskra hermanna hafi á prjón unum að flýja til Vestur- Berlínar og vilji yfirmenn Rauða hersins fyrir alla muni koma í veg fyrir, að þeim tak- ist það. Hefur þessi viðbúnað- ur Rússa vakið mikla athygli í Þýzkalandi. Rokovssovskí varalandvarnaráðherra Rússlands MOSKVU, 2. jan. — Rokossovski marskálkur, sem undanfarið hef ur verið yfirmaður Rauða hers- ins í Trans-Kákasíu, hefur verið skipaður aðstoðarlandvarnaráð- herra Sovétríkjanna. — Mar- skálkurinn var sendur til Káka- síu, þegar sem verst horfði um friðsamlega lausn deilumála Tyrklands og Sýrlands. — Áður hafði hann verið landvarnaráð- herra Póllands og yfirmaður rauðu herjanna þar, en var rek- inn úr landi, þegar Gomúlka tók við. Loks má geta þess, að síðar varð liann aðstoðarlandvarnaráð herra Sovétríkjanna og hefur nú endurheimt þá stöðu. Uppreisn í Venesn- ela bæld niður WASHINGTON, 2. jan. — Setu- liðið í bænum Maracay í Venesú ela gerði uppreisuavtilraun í gærkvöldi, en hún hafði verið bæld niður í kvöld. Maracay er um 80 km. frá höfuðborginni Caracas. Hersveitir stjórnarinnar héldu þegar í stað á vettvang og mættu lítilli mótspyrnu í Maracay. — Flestir uppreisnarmanna voru teknir höndum, en foringjarnir flýðu úr landi. — Forseti lands- ins er Marcos Jiminez. Voru neyddir til að lenda í Albaníu LUNDÚNUM, 2. jan. — Á gaml- árskvöld neyddu albanskar orr- ustuþotur brezka Skymasterflug vél til að nauðlenda í Albaníu. — Brezka stjórnin hefur beöið franska sendiráðið í Tírana, höf- uðborg landsins, að grcnnslast fyrir um afdrif flugmannanna, sem eru sex að tölu. Ekki hafði Frökkunum tekizt að fá neina vitneskju um dvalarstað Bret- anna. — Brezka flugvéiin var á leiö frá Þýzkalandi til Singa- pore, þar sem hún átti að taka hollenzka flóttamenn frá Indó- nesíu og flytja þá til Hollands. Fleiri glæpir í Lundúnum LUNDÚNUM, 2. jan. (Reuter) — Scotland Yard hefur tilkynnt, að allar tegundir glæpa hafi auk izt í Lundúnum á sl. ári. — Á árinu voru 38 morð framin í borginni, eða heldur fleiri en ár- ið áður og bílaþjófnaðir voru helmingi fleiri en 1956. — Scot- land Yard segir enn fremur, að bæta þurfi við lögregluna um 3500 mönnum og 80 hundum, ef vel ætti að vera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.