Morgunblaðið - 03.01.1958, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 03.01.1958, Blaðsíða 14
14 MORGVNBLAÐIÐ Föstudagur 3. jan. 1958. — Nýjársávarp forseta Islands Framh. af bls. 1 beðið að skila kveðju og þökk til íslendinga. Á sama hátt minn- umst við hjónin heimsóknarinn- ar til Danmerkur á sinni tíð með gleði og þökk. Við báðar heim- sóknir tóku Danir vel undir, bróðurlega og af áhuga, og heyrð ist ekki óvingjarnlegt orð. Meg- um vér og minnast þess, að við- horf er gerbreytt frá því er deilur voru harðar, og ekki eftir nema eitt mál að kalla, sem bíð- ur úrlausnar, handritamálið. Er ég nú bjartsýnni en áður á, að það mál verði leyst innan tíðar. Þá hafa þeir Gústaf VI Adolf Svíakonungur og Louisa drottn- ing og Urho Kekkonen, Finn- landsforseti, og frú hans, heim- sótt oss í síðastliðnu sumri, og er það öllum í fersku minni. Gústaf Adolf er gamall fslands- vinur, velunnari um bókagjafir og stórfróður um íslenzk efni. Kekkonen lét í ljósi við brott- för sína undrun og aðdáun á því, hve miklu fámenn þjóð gæti áorkað. „fslendingar eiga örugga og mikla framtíð fyrir höndum“, varð honum að orði. Slíkir þjóðhöfðingjar eru góðir gestir, og ánægjulegt hvilíka at- hygli ferðir þeirra vöktu í heima- löndunum. Mér hefir verið það Ijúf lesning, að fara yfir sænsk- ar og finnskar blaðagreinar frá þessum orlofsdögum, og sjá þann skilning og áhuga, sem fram kemur á íslenzkum efnum. í því er meiri landkynning en vér eig- um annars kost á. Og það hefur V. mér virzt, að vér íslendingar séum ærið viðkvæmir fyrir því, sem um oss er sagt meðal er- lertdra þjóða, stundum um of fyr- ir smáaðfinnslum og köpuryrð- um, sem lítið mark er tekið á. En allir gleðjumst vér einlæglega, þegar hróður íslands er fluttur út um heim af þekking og dreng- skap dómbærra manna. Er það að vonum. Bak við liggur vitund- in um það, að fámenn þjóð á mikið undir alþjóðaáliti og al- þjóðamannorði sínu. ísland var um aldir afskekkt og einangrað, og erlendis betur trúað kynjasögum en einfaldri frásögn af menning svo fámennr- ar og fátækrar þjóðar. Þó eign- uðust íslendingar marga vini meðal hinna merkustu manna, einkum á síðustu öld. Átti það mest rót sína að rekja til vakn- andi áhuga á hinum fornu bók- menntum, sem var eins og ný- fundið land í augum erlendra fræðimanna. En fornbókmennt- irnar eru ekki lengur nýnæmi, og hafa aldrei náð til almenn- ings í öðrum löndum en Noregi. Og raunar lifir engin þjóð né ríki á fornri frægð einni sam- an til langframa, eins og sjá má á örlögum ýmissa annarra þjóða, sem skapað hafa sígildar bók- menntir, t. d. grískar eða hebresk ar, svo ég nefni tvö dæmi. Hin forna frægð kemur þá fyrst að fullum notum, ef það sýnir sig, að atorkan lifir enn í kynstofn- inum, og vitsmunir og skaps- munir hrökkva til að mæta nýj- um viðhorfum. Eftir þeirri and- legu og verklegu menningu, sem oss auðnast að skapa, og stjórn- málaþroska verðum vér metnir. Manngildi og menning ræður úr- slitum um örlög fámennrar þjóð- ar, að svo miklu leyti sem við verður ráðið. Ég er þess fullviss, að vér fs- lendingar höfum hin beztu skil- yrði til að vera vinsæl og vel metin þjóð. Það hefi ég þráfald- lega sannreynt. Og ég er þess einnig fullviss, að fámennið þarf ekki að vera dragbítur á lífs- leið þjóðarinnar. Yegna fámennis tölum vér sjálfir stundum um land kunningsskaparins, meðal annars í þeirri merkingu, að mikil linkind sé sýnd í fram- kvæmd hegningarlaga. Má vera að nokkuð sé hæft í því, en það þarf líka mikla miskunn til að vega upp á móti g'immd fyrri alda í hegningum fyrir yfirsjón- ít, sem ekki eru lengur taldar til afbrota. Kunningsskapurinn felur í sér mildi og hjálpfýsi, þrátt fyrir stóryrði og návígi, og náungans kærleiki er hér nær- tækari en í mannhafi milljón- anna. Kunningsskapurinn, eða við- kynningin hver við annan, auð- veldar lausn ýmissa vandamála og gerir jafnvel kosningar, sjálft lýðræðið, traustara en sums stað- ar þar, sem.máske einn fulltrúi er kosinn fyrir sama mannfjölda og býr á öllu fslandi. Jafnræðið, dreifing auðs og valda, er trygg- ara í litlu þjóðfélagi en stóru, og átökin um rekstrarfyrirkomu- lag minni. Hvað sem fræðikenn- ingum líður, heyri ég því ekki haldið fram, að ríkið eigi að reka vélbátaútveg eða landbúnað, og engan mótmæla því að ríkið skuli reisa hinar stærstu verk- smiðjur, og rafstöðvar og reka þær sjálft eða í samvinnu við önnur almenn samtök. Samvinnu fyrirtæki eru og sjálfsögð og lög- vernduð. í þessum efnum eru að vísu háðar ýmsar landamerkja- skærur, og seint mun verða fullt samkomulag um skipting auðs og valda, og oft barizt á hvalfjöru. Hitt er þó staðreynd, að þegar um er að ræða ríkis- og einka- rekstur, þá eru viðfangsefnin einfaldari í framkvæmd og sjálf- sagðari hjá smáþjóð en stórþjóð. Ber þar margt til, sem hér verð- ur ekki fulltalið. Fræðileg hug- tök, svo sem ríkis- og einkarekst- ur, frelsi og skipulag eru stund- um talin ósamrýmanleg, en í fá- menninu leysir lífið sjálft hnút- inn. Sama máli er að gegna um líf og breytni hvers manns, þar verður frjálsræði, sjálfsagi og landslög að renna saman í líf- erni og lífsferli einstaklingsins, hvað sem líður fræðilegum hug- tökum. Ég vil bæta því við, að þroska einstaklingsins á að vera betur borgið í fámenni, en í Babel-borgum og hjá frumstæð- um þjóðfélögum, þar sem múg- æsingin getur einn daginn breitt klæði á veginn og veifað pálma- greinum, en hrópar svo áður en vikan er liðin: Krossfestið hann! fsland þolir hvorugt, hvorki múg æsing né algert einræði, við hvern sem það er kennt. Má vera, að sá tími komi, að smáríki færi sér svo vel í nyt góð skilyrði, að það verði talið til fyrirmynd- ar, og þau njóti að lokum fulls ör- yggis með öllum þjóðum. Þar á vor litla þjóð leik á borði, hvern- ig sem til tekst. Þessar hugleiðingar um kosti fámennisins eru miðaðar við oss fslendinga sjálfa, og aðrar þrosk aðar þingræðisþjóðir. Fámennið hefir galla, sem eru þrautræddir, og því hefi ég heldur dregið fram kostina, og ef þeirra byr stendur í seglin, þá má sneiða hjá boðun- um. Fámenn þjóð í stóru og hálf- numdu landi, hefir auk þess oln- bogarúm, sem ekki fæst í þéttbýl ustu löndum. Gras sem vísinda- mönnum og Þórólfi ber saman um að drjúpi af smjör, og miklir rækt unarmöguleikar. Sævargrunnið kringum allt landið, sem er frum skógur fiskanna, afl í fossum og jarðhiti skapar þjóðinni vaxtar- skilyrði, svo engir þurfa að leita úr landi, ef rétt er á haldið. Fólks fjöldi er með minnsta móti, og má margfaldast, án þess að týnist sá arfur fámennrar menningar- þjóðar, sem ég hefi rætt um. Tæknin eykur afköstin til móts við þau lönd, sem bezt eru talin, og sjálfir sitjum vér við stýrið, svo ekki verða aðrir sakaðir um. í BLAÐINU Frjáls þjóð frá 14/12 er gerð tilraun til að hnekkja áhrifum fermingarræðu minnar, sem birtist í Morgunblaðinu 8/12. Aðferð sú, sem þar er notuð er sú sama, sem flestir stjórnmála- skussar viðhafa þegar þeir vinna skemmdarverk. Aðferðin er sú að slíta einstakar setningar úr sam- hengi, en draga fjöður yfir það, sem máli skiptir. Yfirskrift athugasemdar blaðs- ins er ákaflega sakleysisleg: „Mildur kristindómur á Sleð- brjót“. En það er víst átt við annað: Blaðinu finnst boðskapur inn of mildur. Það er svo að sjá, að blaðinu finnist Móselögmáli gert of lágt undir höfði í ræðu minni. En hver er svo fagnaðar- boðskapur Móselögmálsins? Það er „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn“, ef eitthvert boðorðanna er brotið. Á seinni hluta miðalda og upp úr þeim forheimskuðu sumar þjóðir sig á því að gera þetta lögmál að gildandi refsi- rétti, og á svo vanvirðandi vísu að yrði maður manni að bana á einhvern veg, þá átti að lífláta hann á nákvæmlega sama hátt. Þetta virðist vera sá kristindóm- ur, sem blaðið Frjáls þjóð óskar að verði endurvakinn. Svo eru í blaðinu talin upp boðorðin og harmað, að algildi þeirra sé dreg ið í efa. En af einhverjum óskilj- anlegum ástæðum er einu sleppt. Blaðið fellir niður boðorðið: „Þú skalt ekki girnast konu ná- unga þíns, ekki þrael hans eða am bátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi þinn á“. Ef til vill hefir Frjálsri þjóð ekki litizt á blikuna þegar blaðið sá að konan var talin með í gripaeign manns. Bæti þá líka komið til mála, að um skattsvik væri að ræða hvarvetna, þar sem konan væri ekki talin fram. Ég vil í sambandi við þessa boðorðaathugun benda Frjálsri þjóð á konu nokkra, sem um getur í Nýja testamentinu. Það er kona, sem hafði stigið víxlspor í lífinu. Hún hafði brotið eitt boðorðið. En sam- kvæmt rikislöggjöf Móse átti þessi kona að grýtast. Svar Krists var þetta: „Sá kasti fyrstur steini, sem saklaus er“. Svar Frjálsrar þjóðar mundi' vera: of mildur kristindómur. Að öðru leyti vil ég upplýsa Frjálsa Þjóð um það að boðorð gamla sáttmálans eiga ekkert skylt við kristindóm. Þau urðu til þúsundum ára fyrir En vér lifum í minnkandi heimi, og verðum að hafa samflot fleiri þjóða. Þegar þjóðin fékk full- veldi 1918 var þörfin á samstarfi sjálfstæðra þjóða aðkallandi, þó það tæki langan tíma að skiljast til fulls, og þegar íslenzka lýð- veldið var stofnað 1944 var al- þjóðasamstarf nauðsyn, sem lá í augum uppi. Sjálfstæði og sam- starfsþörf kom yfir oss fslend- inga á sama tíma. Síðan hefir margt breytzt, og skylt að geta þess, að eins og nú er komið viðskiptum, samgöng- um á sjó og í lofti, vígbúnaði og allri tækni, þá geta fámennar þjóðir ekki staðið einar og varn- arlausar. Öll vopn eru nú geig- vænlegri en í síðustu styrjöld. Þar er enginn samanlxirður. Það er viðurkennt af leiðtogum stór- veldanna, að stórstyrjöld verði ekki takmörkuð við tiltekið svæði. Hlutleysi virðist ekki lengur hugsanlegt í ófriði, enda vísar reynslan til þess, og hlut- leysi á friðartímum þarf ekki að tryggja. í upphafi stóðu vonir til þess að Hinar sameinuðu þjóð- ir héldu uppi alþjóðalöggæzlu, en þegar það brást, var Atlants- hafsbandalag stofnað. En sú hug sjón og von vakir, sem fyrirheit var gefið um, við stofnun Hinna sameinuðu þjóða, að unnt verði að skapa öryggi með afvopnun, eftirliti og friðarvilja, sem komi fram í verki. Til þess að svo megi verða liggja knýjandi rök. Engin þjóð getur lengur unnið Kristsburð. Ekki veit ég heldur til þess, að þau hafi nokkurn tíma verið ættleidd til kristin- dóms nema það hafi þá komizt í kring á síðasta flokksþingi Þjóðvarnarmanna. Það er blað- ið segir, að ég hafi lagt ferm- ingarstúlkunum „ríkt á hjarta . . . að taka varlega mark á boðorð- um“ er vissulega uppspuni einn. Það eina, sem ég lagði þeim ríkt á hjarta og brýndi fyrir þeim var það að feta veg þjónustunnar eftir þeirri náð, sem þeim er gefin. Þá virðist blaðinu ekki falla vel í geð að ég skuli minnast á fall, reisn og hulda hönd við ferm ingarstúlkurnar. Út af þessu vil ég minna Frjálsa þjóð á söguna um hinn glataða son. Sjáum Vér þar ekki fagra mynd af falli, reisn og hulinni hönd? Frjáls þjóð mun segja: of mildur kristindómur. En þá vildi ég spyrja: Hverjum kæmi betur mildur kristindómur en einmitt Þjóðvarnarmönnum? Ég þykist vita að Þjóðvarnar- mönnum hafi þótt miður að Morg unblaðið fékk ræðu mína til birt- ingar. Þeir óttast að hún kunni að hafa einhver áhrif Sjálfstæðis- mönnum til hagsbóta við næstu bæjarstjórnarkosningar. Fyrir þá sök er gerð þessi heimskulegu at- hugasemd um mildan kristindóm. Þar er eitt „klámhöggið". í fyrra lézt að heimili sínu eftir stutta legu Þjóðvarnarflokk ur íslands. Var víst hvergi flagg- að í hálfa stöng. Jarðarförin fór fram í kyrrþey eins og nú er stundum farið að tíðkast. Eitt sinn voru íslendingar ákaflega hræddir við afturgöngur. Var þá leitað ýmissa ráða til að kveða þær niður. Gáfust þau ráð oft vel. Nú er Þjóðvarnarflokkurinn að burðast við að ganga aftur, en ís- lendingar orðnir óhræddir við afturgöngur. Þau meðul, sem í gamla daga gáfu góða raun við að kveða niður drauga duga að vísu ekki lengur. En meðalið er til og það er þetta: Kjósið engan Þjóðvarnarmann hvorki til bæj- ar- og sveitarstjórna né til Al- þingis. Þjóðvarnarflokkur ís- lands er með öllu málefnalaus. Eina stefnumál hans er að hafa landið óvarið svo að hvers kyns óaldarflokkar geti gert strand- högg við strendur íslands. Þeir vilja hafa landið opið fyrir nýju Tyrkjaráni og nýjum hundadaga- kón&um. Eini rétti Þjóðvarnarflokkur Is lands er Sjálfstæðisflokkurinn. Járn- og stálvörur rafmagnsvörur Útvegum frá umbjóðendum vorum: MOTOKOV, Prag: Baðker Raflagningarefni Rafmagnsbúsáhöld Vasaljós, rafhlöður perur o. fl. R. Jóhannesson hf. Hafnarstr. 8, sími 1-71-81 FERROMET, Prag: Saum, allar gerðir Gaddavír Múrhúðunarvírnet Móta- og bindivír Húsgagnaf j aðrir Smíðajárn, alls konar Pípur Fittings Tréskrúfur, o. fl. Orðsending til Frjálsrnr þjóðar neitt á með stórstyrjöld, heldur er mannkyn allt í hættu. Rökin eru þung, og friðarþráin rík. Og Islendingar munu að sjálfsögðu leggja því sitt lið, að hinar ýtr- ustu tilraunir séu gerðar til að skapa það alþjóðaöryggi, sem all- ur heimur þráir. Viðfangsefnin eru örðug og víða ýfingar, kyn- stofnar og þjóðir á mismunandi þroskastigi, og sumir herskáir, þó þeir veiti friðnum augna- eða öllu heldur orðaþjónustu. En ef þeir sem öflugastir eru, ná saman í verki, og ekki eingöngu orði kveðnu, þá er árangur vís. Það væri mikið fagnaðarár, sem nú er að hefjast, ef það auðnaðist að stíga nú hin fyrstu spor til sátta og friðar. En vísast tekur full- komin afvopnun hugarfarsins langan tíma. Vér lifum á öld óvissunnarr en óttinn einn bjargar engu. Mar- tröðin má ekki koma í stað fram- tíðardraumanna. Það er hugrekki að sjá hætturnar, en halda þó áfram ferðinni. Bezta ráðið til að sigrast á kvíða fyrir hvern einstakan og þjóðina í heild er, að sýna trú og tilgang í lífi sínu og starfi, trú á tilgang lífsins og gróandi þjóðlíf í frjálsu landi. Ég lýk svo máli mínu með vorri gömlu, daglegu bæn, fyrir þjóð vorri og öllum mannheimi: „Tilkomi þitt ríki. Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni!“ Og endurtek óskina og vonina um gott, farsælt og gleðilegt nýtt ár. Með þeirri forystu, sem hann nú hefir er hann einn allra flokka, sem er þess umkominn að vernda og virða íslenzka hagsmuni. Styðj ið Sjálfstæðisflokkinn við næstu bæ j arst j órnar kosningar. Sigurjón Jónsson. Fjöhenn féfagsvisf á Akranesi AKRANESI, 2. jan. — Sjálfstæð- isfélögin á Ákranesi efndu til fé- lagsvistar á nýjársdagskvöld og var spilað á 60 borðum og er það fjölmennasta félagsvist sem haldin hefur verið hér á Akra- nesi. — Oddur. Aldarminning Halldórs Jónssonar ALDARAFMÆLI átti 12. des. Halldór Jónsson frá Hrauni í Ölfusi. Hann var giftur Vilborgu Jónsdóttur frá Urriðakoti og bjuggu þau síðustu 18 árin að Gullbringum í Mosfellssveit og verður honum bezt lýst með sjómannavísum þessum, sem gerðar voru um hann þegar hann var ungur. Hlunna gota hér um mar Halldór völdum stýrir. Bezt og snotur bóndi þar býr í koti Vilborgar. Sínum góða siglum mar sævar glóða hirðir snar. Hleypir á slóðir hnýsunnar Halldór bróðir Magnúsar. Hrauni frá ég Halldór finn hart þó löginn freyði. Fram á bláan fiskakinn fokkumávinn temur sinn. A knerri súða krappamaður heitir Halldór Jónsson hugaður. Hann er gildur sjómaður. Kunnugur. PARÍS, 30. des.: — Mendés France, hinn kunni franski stjórn málamaður, bar í dag fram í franska þinginu ályktunartillögu um að ríkisstjórnin láti gera alls- herjaráætlun um stórleg: aukna fræðslu í vísindum og tækni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.