Morgunblaðið - 03.01.1958, Blaðsíða 6
e
MORGUNBLAÐ1Ð
Fðstudagur 3. jan. 1958.
ftritS sem Eeið var athninamesla
ár í scgu knattspyruunuar hér
2 lcmdsleikir á árimi 1958 og athugað
usn tvöf&lda umferö 1. deildar
KNATTSPYRNUSAMBAND ís-
lands hélt ársþing sitt, hið 11 í
röðinni hér í Reykjavík dagana
30. nóv. og 1. des. Sóttu þingið
50 fulltrúar frá 9 sérráðum eða
samböndum. Björgvin Schram
setti þingið með ræðu, þar sem
hann bauð fulltrúa og gesti vel-
komna; en meðal gesta voru for-
seti ÍSI, form. ÍBR, form. KRR og
formaðúr Olympíunefndar.
Forseti Í'SÍ og form. KRR fluttu
KSÍ árnaðaróskir og þakkir fyrir
ágætt samstarf. Afhenti form.
KRR sambandinu fundahamar að
gjöf í tilefni af 10 ára afmælinu.
Er hamar þessi hinn glæsilegasti
gripur, gjörður úr indverskum
rósaviði.
Formaður KSÍ þakkaði árnað-
aróskir og gjöfina.
Fundarstjórar voru kjörnir
Hermann Ouðmundsson fram-
kvstj. ÍSÍ og Guðm. Sveinbjörns-
son. Einar Björnsson var kjörinn
fundarritari.
Athafnamesta ár
knattspyrnunnar
Skýrslur allar og reikningar
sambandsins lágu fyrir þinginu
fjölritað. En formaður skýrði
skýrslu stjórnarinnar nánar í
stuttri ræðu og gjaldkerinn
reikningana. Skýrslan ber með
sér að þetta hefur verið athafna
mesta ár knattspyrnunnar hér-
lendis tii þessa. Tekið var þátt
í heirnsmeistarakeppninni í
knattspyrnu, og leikið heima og
heiman, í Belgíu og Frakklandi.
Þá voru leiknir landsleikir við
Dani og Norðmenn. Auk þess-
ara heimsókna komu hingað
flokkar til keppni frá Tékkó-
slóvakíu og Rússlandi, úrvals-
lið frá Tékkóslóvakíu og Dyna-
mó-Kiev frá Rússlandi, komu
þessir flokkar í boði Víkmgs og
Vals.
Ýmsir flokkar fóru utan til
keppni, yngri flokkar frá Rvík,
bæði Vals, KR og Þróttar, og
eldri flokkar frá ísafirði, Kefla-
vík og Sandgerði.
Þá hefur aldrei verið meiri
eða almennari þátttaka í knatt-
spyrnu innanlands en á þessu
ári, og ekki áður farið fram
jafnmörg mót eða leikir verið
háðir en á sl. starfsári.
ÍUbreiðslufu
Stjórn KSÍ gekkst fyrir út-
breiðslufundum um knatt-
spyrnumál á árinu, bæði í Rvík,
Akranesi og víðar, voru þar
flutt erindi um heilsufræðileg
efni og þjálfun, kvikmyndir
sýndar o. fl. Er þetta nýmæli
og var því vel fagnað af áhuga-
mönnum um þessi mál.
Á árinu efndi sambandið til
happdrættis, fjárhag sinum til
styrktar, vinningurinn var bif-
reið Fiat 1400.
Unnið var að því að fá kvik-
myndir um knattspyrnuþjálf-
un.
Haldið áfram með hæfnispróf
in undir stjórn unglinganefnd-
ar sambandsins. Alls hafa 198
piltar hlotið bronze-merkið, 30
silfurmerkið og 7 gullmerki
sambandsins fyrir knatthæfni.
Landsleikir næsta ár
Ákveðnir hafa verið tveir
landsleikir á árinu 1958, við ír-
land (Eire) í Reykjavík í ágúst-
mánuði nk. og England þar í
landi í september, auk þess
verða leiknir þar tveir auka-
leikir. Síðar mun svo íslenzka
landsliðið leika í írlandi.
Þjálfaramál
Eitt mesta vandamál sam-
bandsins er útvegun þjálfara.
Karl Guðmundsson hefur unn-
ið mikið og gott starf fyrir sam-
bandið á þessu sviði undanfar-
in ár, en mun nú hverfa af landi
brott til Noregs um skeið. Auk
hans hafa þeir Hermann Her-
mannsson, Ellert 'Sölvason, Örn
Ingólfsson og Steinn Guðmunds-
son notað sumarfrí sín til knatt-
spyrnukennslu út á landi. Þess-
ir menn störfuðu á vegum KSÍ.
Unglingalandsleikir
Innan stjórnarinnar voru
ræddir möguleikar á því að
stofna til unglingalandsleikja
og koma á fót unglingalands-
liði (þ. e. leikmanna undir 20
ára aldri). Einn leikur unglinga
innan þess aldurs fór fram á
unglingadeginum í sumar, þar
sem úrvalslið Reykvíkinga og
utan Reykjvíkur áttust við.
Tókst þessi leikur mjög vel,
bæði fjörugur, skemmtilegur og
vel leikinn.
Á árinu átti finnska knatt-
spyrnusambandið 50 ára af-
mæli. KSÍ var boðið að senda
fulltrúa og þekktist það boðið
og fór ritari KSÍ utan af því til-
efni.
Miklar umræður urðu um
Bjorgvin Schram
skýrslu stjórnarinnar og létu
menn almennt í ljós ánægju
með störf hennar.
Æfinganefnd.
Meðal tillagna, sem samþykkt-
ar voru á þinginu voru þessar:
„Ársþing KSÍ 1957 ákveður að
framvegis skuli stjórnin skipa
þriggja manna nefnd, æfinga-
nefnd KSÍ, þegar að loknu árs-
þingi, til eins árs í senn. Nefndin
geri tillögur til stjórnarinnar fyr
ir 1. marz ár hvert um á hvern
hátt verði bezt komið við aðstoð
af hálfu KSÍ við sambandsaðiia
og knattspyrnufélögin í þjálfun-
armálum".
„Ársþing KSÍ 1957 heimilar
stjórninni að standa undir kostn-
aði við að senda erindreka til
sem flestra aðila KSÍ á árinu
1958 til að kynna sér störf þeirra
á knattspyrnusviðinu, halda út-
breiðslu- og hvatningafundi,
sýna kvikmyndir og stofna til
námskeiða fyrir þjálfara o. fl.,
eftir því sem við verður komið".
Unglingalandsleikir
„Ársþing KSÍ 1957 heimilar
stjórninni að leita eftir samstarfi
við erlend knattspyrnusambönd
um unglingalandsleik (aldur sé
undir 20 ára) miðað við að fyrsti
landsleikurinn geti farið fram
hér 1958 eða 1959“.
Bæjarstjórn og borgarstjóra
þakkað.
„Ársþing KSÍ 1957 lýsir yfir á-
nægju sinni í tilefni þess stór-
merka áfanga, sem náðist á sl.
sumri, í framkvæmdum við bygg
ingu íþróttasvæðisins í Laugar-
dal og lætur í ljós þakkir til
Laugardalsnefndar, framkv.stj.
hennar, borgarstjórans í Reykja-
vík, og bæjarstjórnarinnar og
annarra aðila sem stuðluðu að
því, að hægt var að taka knatt-
spyrnuvöllinn í Laugardal í notk
un í sumar. Þess er ennfremur
vænzt að framkvæmdunum verði
haldið áfram með sem mestum
hraða til þess að gera öðrum í-
þróttagreinum fært að fá afnot af
íþróttasvæðinu í Laugardal.
Auk þeirra tiliagna, sem hér
eru greindar, voru og ýmsar aðr
ar samþykktir gerðar, svo sem
um heiðursmerki sambandsins og
veitingu þeirra. Um kosningu full
trúa og rétt þeirra. Reglugerð
um þátttöku í opinberum knatt-
spyrnumótum, mikill bálkur í
27 greinum, saminn af milli-
þinganefnd. Um tekju- og gjald-
skiptingu af landsmótum, ferða
kostnað flokka o. fl. í því sam-
bandi. Um endurskoðun áhuga-
mannareglna í samráði við Í3Í.
Um tilhögun tvöfaldrar keppni
í 1. deild, skipun nefndar í því
máli, sem skila skal áliti til
stjórnarinnar fyrir 1. febr. n.k.
Skýrslur nefnda
Auk skýrslu stjórnarinnar, sem
fyrr getur, lágu fyrir skýrslur
Landsliðsnefndar, formaður
Gunnlaugur Lárusson, Unglinga
nefndar, formaður Frímann
Helgason og Dómaranefndar, for
maður Guðjón Einarsson, sem
ekki gat mætt, en Halldór Sig-
urðsson flutti skýrslu nefndar-
innar í hans stað. Þessar nefndir
1 1 sl?rlf*ar úr :i
jji| daglega lífinu J
Eftir áramótin
GLEÐILEGT ár, lesendur góðir,
Ég vona að ykkur hafi liðið
bærilega um áramótin, þið hafið
borðað góðan mat, talað við
skemmtilegt fólk og haft gaman
af útvarpinu, ballinu eða hvað
sem það kann að hafa verið, sem
þið tókuð ykkur fyrir hendur.
Velvakandi hlustaði mikið á
útvarpið þessa daga. Hann lætur
þó öðrum eftir að ræða um dag-
skrána, en langar aðeins til að
koma einni smáathugasemd á
framfæri. Mætti ekki koma því
svo fyrir, að ræða forsetans hæf-
ist svolítið síðar á nýjársdag, t. d.
kl. 1,30 eða 2? Vafalaust vill það
bregðast allvíða á heimilum að
hádegisverði eða a. m. k. hús-
mæðraönnum sé lokið kl. 1 þenn-
an dag.
Um tíuleytið á gamlaársdag
fór Velvakandi heiman að frá sér
og í annað bæjarhverfi. Það log-
aði í mörgum spýtnahrúgum á
leiðinni, sums staðar í úthverfun-
um virtust ekki nema 100—200
m á milli brennanna. Þessir eldar
voru víst flestir kulnaðir eða
mjög teknir að minnka, þegar
kveikt var í hinum stóru bái-
köstum, sem íþróttamenn höfðu
komið upp. Klukkan var þá á
tólfta tímanum og mun margt
manna hafa farið út til að horfa
á brennurnar.
Veðrið á gamlaárskvöld var
fallegt, þó að nokkuð væri kalt
og margir sjáist nú með trefla á
götunum eftir að hafa staðið úti
við bálin. Geysimörgum flugeld-
um var skotið á loft og virtust
sumir komast nokkuð hátt, en
fæstir voru ýkjafallegir. Flug-
eldarnir, sem nú voru seldir í
búðunum, munu flestir hafa ver-
ið af ódýrum tegundum og ljós almanökum. Kennir þar margra
þeirra lítið. grasa.
En þó var gaman að skreppa Sunnan frá Ítalíu er komið
út á tröppur á miðnætti: Að inn- glæsilegt safn af litlum litprent-
unum á málverkum frá Eggerti
Stefánssyni og konu hans. Sjálft
veggspjaldið og hlífðarblað fram
an á dagtalinu er miðaldamál-
verk í ryðrauðum og gráum lit-
um. Því miður varð að rífa hlífð-
arblaðið af, en þá skapar hluti
myndarinnar ramma utan um
önnur málverk, — eitt fyrir
hverja viku. Fyrst er hluti af
málverki Giotto af barnamorð-
unum í Betlehem, er Heródes lét
myrða öll sveinbörn í borginni og
nálægum héruðum, þau er voru
tvævetur og yngri. Síðast er
mynd af götu, húsum og trjám eft
ir Utrillo.Fyrra málverkið er rúm
lega 500 ára gamalt, hið síðara
sennilega málað fyrir nokkrum
árum. Þar á milli er svo svolitið
ágrip af sögu málaralistarinnar
í myndum.
En þeir, sem gefa út dagatöl,
eru ekki allir að reyna að kenna
mönnum sögu listanna eða eitt-
hvað álíka göfugt. Sumiv hafa
mikla tilhneigingu til að minna
á sköpulag kvenna, aðrir á vega-
gerðartækni í Ameríku eða jafn-
vel skíðaferðir í Sviss. Og svo
má læra talsvert í tungumálun.
á því að lesa þau fáu orð, sem
fylgja með tölustöfum dagtal-
anna. Vitið þið, hvað janúar er
á ítölsku? Gennaio. Eða vikudag-
arnir: lunedi, martedi, mercoledi,
giovedi, venerdi, sabato, domen-
ica. Og svo er það finnskan. Á
þeirri tungu nefnist janúar
tammikuu og vikudagarnir: sunn
untai, maanantai, tiistai, keskivi-
Til Morgunblaðsins hefur að und j ikko, torstai, perjantai og lauan-
anförnu drifið mikið af vegg-1 tai.
an heyrðist klukknahijómur frá
útvarpinu. Víða á svölum og í
görðum voru krakkar með
stjörnuljós eða blys úti, en pabb-
ar og mömmur horfðu á. Uppi
í loftinu sprungu flugeldarnir
hver af öðrum en karlinn í tungl-
inu horfði á vel hálfur, nægilega
borubrattur til að mynda dular-
fullan glampa á hjarninu og sýna
okkur svört sundin og Esjuna
bláa og hvíta í fjarska.
Um dagatöl
EITT af því, sem menn verða
að afla sér nú um áramótin
eru vasabækur og önnur dagtöl.
höfðu unnið mikið starð á árinu.
Starfandi nefndir á þinginu
voru þessar: Kjörbréfanefnd, for
maður Haraldur Guðmundsson.
Allsherjarnefnd, form. Ólafur
Jónsson. Fjárhagsnefnd, formað
ur Ármann Dalmannsson. Laga-
og leikreglnanefnd, form. Sig-
urjón Jónsson.
Loks skal geta einnar tillögu
sem samþ. var umræðulaust og
í einu hljóði:
„Ársþing KSÍ samþykkir að
leggja fram kr. 2500 úr sjóði KSÍ
í söfnun til styrktar lamaða i-
þróttamanninum, Ágústi Matthí
assyni“,
Stjórnarkjör
Björgvin Schram var endur-
kjörinn formaður KSÍ með lófa-
taki, sömuleiðis voru þeir Guð-
mundur Sveinbjörnsson og
Ingvar Pálsson, sem ganga áttu
úr stjórninni, endurkjörnir
með lófataki. Stungið var upp
á sömu varamönnum i stjórn-
ina og áður, þeim Sveini Zoega,
Páli Pálssyni og Haraldi Snorra-
syni. Haraldur baðst eindregið
undan kosningu, en Sveinn og
Páll veoru endurkjörnir, og Axel
Einarsson í stað Haraldar.
í knattspyrnudómstól K'SÍ
voru þessir kjörnir: Bogi Þor-
steinsson, Sigurjón Jónsson og
Brandur Brynjólfsson. Vara-
menn: Ólafur Sigurðsson og
Hörður Felixson (KR).
Endurskoðendur voru endur-
kjörnir þeir Haukur Eyjólfsson
og Hannes Sigurðsson.
í lok þingsins ávarpaði for-
maður þingheim, þakkaði
traust það, er sér hefði verið
sýnt með einróma endurkjöxi,
þá bauð hann samstarfsmenn
sína bæði í aðalstjórn og vara-
stjórn velkomna til starfa að
nýju. Þakkaði hinum fráfar-
andi varastjórnarmanni, Har-
aldi Snorrasyni, ágæt störf í
þágu sambandsins á liðnum ár-
um og bauð hinn nýja vara-
mann velkominn til starfa í
hans stað. Þakkaði síðan fud-
arstjóra ágæta fundarstjórn
og skoraði síðan á alla fulltrúa
að vinna sem virkast og jákvæð-
ast í félögum sínum og fá aðra
til að gera hið sama, að sem
mestum og beztum framförum
á sviði knattspyrnunnar á ís-
landi.
Þingforseti bað fulltrúa siðan
hrópa ferfalt húrra fyrir knatt-
spyrnuíþróttinni, og sleit svo
11. þingi KSÍ.
IKF. vtuin ÍB.
rasð 44:22
Keflavíkurflugvelli, 2- jan —
Á sunnudaginn milli jóla og ný-
árs kom flokkur ÍR-inga til
Keflavíkurflugvallar og keppti
við IKF í körfuknattleik. Leikar
fóru svo að IKF sigraði með 44:
22. ÍR-ingar eru núverandi ís-
landsmeistarar í körfuknattleik.
— BÞ.
Falasund í Sundhöll
Hafnarfjarðar
SUNDHÖLL Hafnarfjarðar býð-
ur öllum þeim er þess óska, að
koma og þreyta fatasund, laugar-
daginn 4. janúar nk., kl. 1—7
e. h. Föt verða menn að koma
með sjálfir, og verða þau að vera
hrein. Vonast sundkennarar skól-
anna sérstaklega eftir því að nem
endur noti sér þetta, þar sem ekki
er hægt að láta fara fram fata-
sund þegar sundpróf eru tekin.
En nauðsynlegt er að menn viti
hvernig það er, að synda alklædd
ur.
Sundhöllin verður síðan lokuð
frá 4.—17. janúar vegna hreins-
unar á tækjum laugarinnar. Böð-
in verða þó opin á þessu tima-
bili, frá kl. 1—7.30 e. h.