Morgunblaðið - 10.01.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.01.1958, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 10. jariúar 1958 MORC V N P. 7 A ÐIÐ ----------4-- Dagsbrúnarfundurinn sýndi vax- andi andúð á stjórn kommúnista Stjórn félagsins og rikisstjórnin harðlega gagnrýnd MIKLAR umræður urðu á fundi Verkamannaíélagsins Dagsbrún- ar í fyrrakvöld. Snérust þær að- allega um gagnrýni á stjórn kommúnista í félaginu og um frv. það, sem lagt var fyrir Alþingi um fastaráðningu verkamanna o. fl. Eunfremur var harðlega deilt á ráðherra kommúnista og þeir sakaðir um að bera hagsmuni verkamanna fyrir borð og svíkja fjölmörg loforð, sem þeir höfðu gefið, bæði áður en þeir fóru í ríkisstjórn og eftir það. Hannibal Valdimarsson var á fundinum ailan tímann og var hinn lúpulegasti undir hinni markvísu og rökstuddu gagnrýni verkamanna á framkomu hans. Fyrsta mál á dagskrá fundar- ins voru lagabreytingar. Undir þeim dagskrárlið tók Jóhann Sig- urðsson til máls. Mótmælti hann þeirri málsmeðferð, sem stjórn félagsins viðhafði, þar sem laga breytingar væru fyrst teknar til 2. umræðu, þremur og hálfu ári eftir að fyrri umræða hefði farið fram um þær. Þá hófust umræður um frum- varp um fastráðningar verka- manna. Hafði Edvarð Sigurðsson þar framsögu. Reyndi hann á all- an hátt að gera sem mest úr kost- um þessa frumvarps, sem stjórn- in hefur lagt fram á Alþingi. Frumvarpið gagnrýnt Næstur talaði Baldvin Baldvins son. Vítti hann að stjórn Dags- brúnar hefði ekki séð ástæðu til þess að gefa verkamönnum kost á að ræða efni þessa frumvarps, áður en það var flutt á Alþingi. Væri það ekki í fyrsta skipti sem Dagsbrúnarstjórnin réði mikil- vægum hagsmunamálum verka- manna til lykta, án þess að hafa nokkur samráð við félagsmenn. Taldi hann ákvæðum frumvarps- ins mjög áfátt og furðulegt að forystumenn Dagsbrúnar skyldu hafa léð því samþykki sitt. Lagði hann síðan fram eftir- farandi tillögu, sem samþykkt var með samhljóða atkvæðum að vísa til stjórnarinnar: „Fundur í Verkamannafélag inu, Dagsbrún, haldinn 8. jan- úar 1958, lýsir ánægju sinni yfir þeim ákvæðum frum- varps til Iaga um rétt verka- fóiks til uppsagnarfrests og um rétt til launa í sjúkdóms- og slysaforföllum, að því er snertir greiðslu launa í sjúk- dóms og slysatilfellum. Hins vegar mótmælir Verkamanna- féiagið Dagsbrún því harð- iega, að gengið hefur verið framhjá kröfum verkamanna um fastráðningc og gerir kröfu til þess að frumvarpinu verði brevtt á þann veg, að verkamönnum verði tryggð föst atvinnuráðning. Felur fundurinn stjórn félagsins að fylgja þessum málum fast eft- ir við ríkisstjórn og Alþingi’1. Af hálfu lýðræðissinna í félag- inu tók fyrstur til máls Þorsteinn Pétursson. Gagnrýndi hann fyrr greint frumvarp og átaldi meðal annars að í því væru ekki sekt- arákvæði, þannig að ekki væri unnt að koma fram refsingu gegn þeim atvinnurekendum, sem gerð ust brotlégir við lögin. Þá talaði Jóhann Sigurðsson. Hann gagnrýndi einnig ýmis at- r;ði frumvarpsins og benti meðal annars á, að ákvæðið um 150 vinnustundir í síðasta mánuði fyrir uppsagnarfrest, gerði at- vinnurekandanum fært að stilla svo til, að hlutaðeigandi verka- maður ynni ekki nema til dæmis 149 vinnustundir þennan um- rædda mánuð og væri þar með búinn að missa ákveðinn mánað- aruppsagnarfrest. Sívaxandi verðbólga og dýrtíð Jóhann Sigurðsson deildi einn- ig mjög á stjórn Dagsbrúnar fyr- ir frammistöðu hennar í kaup og kjarainálum. Benti hann meðal annars á að ýmsar hálaunastétt- ir hefðu fengið verulegar kaup- hækkanir á síðustu misserum, án þess að stjórn Dagsbrúnar hefði gert minnstu ráðstafanir til þess að rétta hlut verkamannanna, í sívaxandi dýrtíð og verðbólgu, sem stöfuðu beinlínis af aðgerð- um ríkisstjórnarinnar í efnahags málum. Jóhann Sigurðsson sagði að lokum, að forsætisráðherra hefði í áramótaávarpi sínu hvatt verkamenn til þess að sýna þrautseigju og þolgæði. En verkamenn lifðu ekki enda laust á tómri þrautseigju og þolgæði, jafnvel þótt Hanni bal Valdimarsson og Hermann Jónasson krefðust þess. Þá talaði Jón Hjálmarsson og ræddi aðallega um frumvarpið, sem hann taldi gallað á ýmsa lund. Eftir að þessir verkamenn, á- samt launuðum starfsmönnunr Dagsbrúnar höfðu talað, var ræðutími takmarkaður samkv. tillögu formanns félagsiris. Var auðsætt að kommúnistar voru hræddir við gagnrýni verka- manna á stjórn Dagsbrúnar og vildu hliðra sér hjá ýtarlegum umræðum um vinnubrögð henn- ar. Þá töluðu þeir Guðmundur Nikulásson, Kristínus Arndal, Emil Helgason, Nikulás Þórðar- son og Sigurjón Bjarnason. Allir þessir menn töluðu gegn stjórn kommúnista í Dagsbrún og víttu harðlega meðferð hennar á öll- um hagsmunamálum félags- manna og það ofbeldi, sem komm unistar beittu I félagsstarfsem- inni. Átti í vök að verjast Stjórn Dagsbrúnar átti mjög í vök að verjast á þess- um fundi og var auðsætt, að mikil andúð ríkti meðal verka manna á framferði hennar, bæði að því er snertir undir- búning frumvarpsins og al- menna meðferð hennar á hagsmunamálum Dagsbrúnar- manna. Aðeins tveir verka- menn urðu til þess að veita stjórninni nokkurt lið. Auð- sætt er að Iisti lýðræðissinn- aðra í Dagsbrún, B-listinn, á miklu og vaxandi fylgi að fagna innan félagsins. ®----------------------------- — Eisenhower Frh. af bls. 1. skyndiárás yrði gerð — og óvin- urinn mundi ekki sleppa. Hvað langdrægu flugskeytunum við- viki, sagði hann, að Bandaríkin mundu ná Ráðstjórninni í fram- leiðslu þeirra, en einungis ef við- eigandi ráðstafanir yrðu gerðar þegar í stað. En þær kosta okk- ur aukið erfiði, við gerum okk- ur grein fyrir því, sagði hann. En við stöndum ekki einir, hélt Eisenhower áfram. Hann kvað samtök hinna frjálsu og fullvalda rikja Atlantshafsbanda- lagsins vera mikilvægust öryggi Bandaríkjanna. Hann kvað manninn þrá frið — og meira en það: Friðsamleg störf. Og við munum aldrei leggja árar í bát í tilraumum okk- ar til þess að koma á varanleg- um friði. Sá friður verður að vera tryggur, stórum sem smá- um — og ekki verður samið um afvopnun fyrr en skilyrðum þess verður fullnægt. Gat forsetinn einnig þess, að Bandaríkin vildu taka höndum saman við aðrar þjóðir til útrým- ingar sjúkdómum, sem helzt þjaka mannkynið — svo sem krabbameini og hjartasjúkdóm- um. Slíkt samstarf, sagði for- setinn að gæti orðið undanfari allsherjarsamstarfs mannkyns- ins, sem nefna mætti vísindin í þágu friðarins. í lok ræðu sinnar lagði for- setinn fram eins konar stefnu- skrá í átta liðum — og er hún í stuttu máli á þessa leið: 1. Landvarnaráðuneytið verði endurskipulagt, til þess að tryggja sem bezt einingu og afköst — og hernaðarmálin verði undir yfirstjórn borgaralegra yfirvalda. 2. Endurbætt verði viðvörun- arkerfi Bandaríkjanna, sem var- ar við yfirvofandi árás. Fram- kvæmdum á sviði eldflauga verði hraðað — og flugsveitir verði staðsettar dreifðar en áður. 3. Bandaríkin haldi áfram að veita erlendum ríkjum aðstoð. 4. Lögin um viðskiptafríðindi og tollaívilnanir fyrir vinveitt ríki verði framlengd unv fimm ár. 5. Sett verði löggjöf, sem heimili gagnkvæm skipti á tækni- legum upplýsingum milli Banda- ríkjamanna og bandamanna þeirra. 6. Aukin verði fjárframlög hins opinbera til vísinda og mennta- mála. 7. Aukin verði útgjöld á fjár- lögum. 8. Lögð verði áherzla á sam- vinnu við aðrar þjóðir í barátt- unni gegn sjúkdómum — og leit- azt verði við að auka vináttu og skilning milli þjóða heims. í síðari fregnum segir, að þing- menn hefðu ekki verið á einu máli um það hvort ræða Eisen- howers hefur haft tilætluð áhrif. Þeim finnst forsetinn ekki hafa lagt næga áherzlu á að nú yrði að láta til skarar slcríða, hann hefði ekki verið nægilega til- þrifamikill, er hann gerði þjóð- inni grein fyrir hvað framund- an væri. Annars mundu áhrifin tala sínu máli — og framtíðin mundi leiða það í Ijós hvort for- setanum hefði tekizt að sameina fólk af báðum flokkum undir sitt merki. Margir voru hins veg- ar þeirrar skoðunar, að Eisen- hower hefði í dag haldið beztu ræðu sína — og í þeirra hópi var Kefauver. Frá London og París berast þær fréttir að stjórnmálamenn hafi fagnað mjög ræðunni, sérstak- lega orðum þeim, er Eisenhower viðhafði um nánara samstarf inn- an Átlantshafsbandalagsins. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er í Vonarstræti 4, V.R. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10 daglega. Símar skrifstofunnar eru 1 71 00 og 2 47 53. Upp- lýsingar um kjörskrá eru veittar í síma 1 22 48. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna og gefa upplýsingar um þá, sem verða fjarverandi á kjördegi. Svisslaeidiðiitir reynir siíJó- mokstursvél á Hellisheiði BÍLSTJÓRAR mjólkurbílanna og stóru flutningabílanna sem nú einir bíla geta brotizt austur yfir Fjall, hafa séð á ferðum sínum snjómokstursvél. Hún er þar til reynslu. Snjómokstursvél þessi, er frá sömu verksmiðju í Svisslandi og vél sú sem Reykjavíkurbær keypti fyi'ir tveim árum. Þessi vél er allmiklu stærri enda smíð- uð til þess að moka þjóðvegi. Hún tekur upp í sig snjóinn en þeytir honum síðan út fyrir vegbrúnina. Vegagerð ríkisins fékk vél þessa senda til reynslu hér og stjórnar henni Svisslendingur frá Fimmfugsafmæli BJÖRN PÁLSSON flugmaður sjúkraflugvélarir.nar, verður fimmtugur í dag. Er Björn fyrir löngu orðinn þjóðkunnur maður fyrir starf sitt. Það var hann, sem fyrstur manna hóf slíkt flug hér á landi, en það varð aftur til þess að út um byggðir landsins hafa nú verið gerðir margir sjúkra- flugvellir, til stóraukins örýggis fyrir fólk í . fjölda sveita. Björn var orðinn fulltíða maður er hann lærði á flugvél, en er talinn allra flugmanna öruggastur og kunnugastur flugi á innanlands- leiðum. Fundur Sjálfsfæðis- félaganna í Halnarf. HAFNARFIRÐI — f kvöld kl. 8,30 halda Sjálfstæðisfélögin sameiginlegan fund í Sjálfstæðis- húsinu. Á honum verða bæjar- málin rædd svo og væntanlegar bæjarstjórnarkosningar. Frum- mælendur eru nokkrir af fram- bjóðendum flokksins, en einnig verða frjálsar umræður. Er allt Sjálfstæðisfólk hvatt til að fjölmenna á fundinn, sem hefst stundvíslega kl. 8,30. — G. E. verksmiðjunni í Sviss. Vélin mokar í yfirferð 175 cm breiða slóð eftir veginum eða innan við fulla breidd stærri bíla. Vélin er ekki hraðskreið, sem m. a. stafar af því að hún getur hreinsað upp á leið sinni eftir vegunum hvorki meira né minna en 10 tonn af snjó á mínútu hverri! Hún ekur með um 3 km hraða miðað við klukkustund. Geta má þess að vegurinn um Hellisheiði er um 10 km langur. Undanfarna daga hefur vélin verið í Svínahrauni, en hún mun í gær hafa verið send upp á Hellisheiði. Sem fyrr segir er hún hér til reynslu og mun óráðið hvort vélin verður keypt. Fyrst ætlar vegamálastjóri að ganga úr skugga um hvort hún þyki henta og með hvaða vinnu- brögðum megi ná mestum ár- angri, t. d. hvort heppilegt þyki að láta snjóýtu garða snjóinn fyr ir vélina sem síðan mokar hon- um upp og þeytir út fyrir veginru Mun vélin enn um sinn verða reynd á hinum snæviþakta vegi austur fyrir Fjall. Sjálfsfæðisfólk á Suðurnesjum heldur árshátíð SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Keflavík halda árshátíð sína á morgun, laugardag, í Ungmenna- félagshúsinu. Ólafur Thors flytur ræðu á há- tíðinni svo og Álfreð Gíslason, bæjarfógeti. Skemmtiskrá verður mjög fjöl- breytt: Leikþættir, gamansögur, danssýningar og veitingar góðar. Að skemmtiskrá lokinni verður dansað. Árshátíðin er haldin fyrir allt Sjálfstæðisfólk á Suðurnesjum, sem vafalaust mun fjölmenna. Panta má aðgöngumiða í skrif- stofu Sjálfstæðisflokksins í Keflavík, sími 21. / fallhlíf niður á Suðurheimskautið CHRISTCHURCH, Nýja-Sjá- landi, 9. jan. — Brezkur herfor- ingi, Stanley Moss að nafni, kom hingað í dag á Ieið sinni til Suð- urheimskautsins. — Mun hann varpa sér út úr flugvél í fallhlíf og svífa niður tii stöðva Banda- ríkjamanna þar. Mun hann stökkva út með tvær fallhlífar — í öryggisskyni, því að það hefur komið fyrir hvað eftir annað, þegar birgð- um hefur verið varpað úr flug- vél til rannsóknarstöðvarinnar, að fallhlífin hefur ekki opnazt. Er því kennt um hve loftið er þunnt yfir heimskautshálendinu „Ég ætla ekki að hálsbrjóta mig á þessu“, sagði Moss, „þess vegna hef ég tvær falihlífar“. ★ ★ Bretar hafa farið þess á leit við bandaríska flugherinn, að hann fljúgi Moss inn yfir heim- skautið þar eð Bretar hafa ekki tiltækar flugvélar á þessum slóð- um. Mun Moss varpa sér út í 3,000 feta hæð, en snjóbreiðan er á þessum slóðum 11,000 fet yfir sjávarmáli. Þá er þess og getið, að flugvélin getur ekki flogið með minni en 200 mílna hraða þegar Moss varpar sér út. Vegna þess hve loftið er þunnt í þessari hæð verður ekki hægt að draga meira úr hraða flugvélarinnar. Þessi för Moss er farin í sam- bandi við leiðangur, sem hann mun veita forystu í maímánuði nk. til Norðurheimskautsins. Er ætlunin að reisa þar björgunar- stöð til öryggis fyrir „Pólarflug- ið“ svonefnda. — Reuter. U tankjörstaðakosning ÞEIR, sem ekki verða heima á kjördegi geta kosið hjá sýslu- mönnum, bæjarfógetum og hreppstjórum og í Reykjavík hjá borgarfógeta. Erlendis er hægt að kjósa hjá íslenzkum sendiráðum og ræðismönnum, sem tala íslenzku. Kosningaskrifstofa borgarfógetans í Reykjavík er í póst- húsinu, gengið inn frá Austurstræti. Skrifstofan er opin iiá kl. 10—12 f. h., 2—6 og 8—10 e. h. daglega. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisfiokksins, Vonarstræti í, veitir allar upplýsingar og aðstoð í sambandi við utankjör- fundaratkvæðagreiðslu. Skrifstofan er opin frá kl. 10—10 daglega. Símar: 17100 og 2 47 53. Upplýsingar um kjörskra í síma 122 48.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.