Morgunblaðið - 10.01.1958, Síða 8

Morgunblaðið - 10.01.1958, Síða 8
6 MORCUNRT 4010 Fðs'fn'flaerur 10. ‘anúar 1958 * * Akiuiies cr mikilí útflutningsbær Hafnargerðin á Akranesi Ríkisstjórn Ólafs Thors tryggði fram gang málsins Meirihluti bœgarsfjórnar reynir að fela þá, sem lögðu grunávöllinn að verkinu „Mótið í Moskvu” Greinar Magnúsar Þórðarsonar gefnar út sérprentaóar MIKIÐ hefur að undanförnu ver- ið rætt og ritað um framkvæmíi- ir í Akraneskaupstað síðustu ár- in og ekki nema það bezta um það að segja, þegar eitthvað er vel gert og unnið. En þegar saga er sögð, þarf að segja hana alla. eða a. m. k. góðan útdrátt úr henni allt frá byrjun. Maður er engu nær, ef lesa á sögu, að lesa aðeins síðustu blaðsíðuna og sleppa öllu öðru — en þannig hefur „þrífóturinn" hér á Akra- nesi sagt frá sínum „afrekum“ um framkvæmdir bæjarins, og þá einkum og sér í lagi um hafnar- framkvæmdirnar, sem nú er ný- hætt við, en þó ólokið. Þeir sýna bæjarbúum og þeim öðrum, sem þessum málum eru kunnugir lítilsvirðingu og vanmeta þeirra heilbrigðu skynsemi, er þeir bera það á borð, að allt hafi verið gert á tveim síðustu árum. Það sér hver heilvita maður, sem eitt- hvað hefur kynnt sér þessi mál. að slíkt er ekki framkvæman- legt. Hitt er svo annað mál, að nýj- um áfanga nefur verið náð þessum málum og ber að þakka það öllum þeim er hafa lagt bar hönd á plóginn — og engan und- an draga. Því er það, að ég rita um þetta mál nú fremur öðru að ég vil leitast við að segja út- drátt úr allri sögunni frá byrjun Rifja hana upp fyrir þeim, sem áður þekktu, en gefa hinum kost á því að kynnast öllum sannleik- anum. Það var áður en Akranes fékk kaupstaðaréttindi, að hafinn var fyrsti undirbúningur að þessum hafnarframkvæmdum. Sá maður er hafði mestan veg og vanda af öllum undirbúningi og fram- kvæmdum fyrst í stað, var Finn- bogi R. Þorvaldsson, prófessor. Þá var það, er fyrst var kosið til bæjarstjórnar hér árið 1942, að hingað valdist, sem fyrsti bæjarstjóri, Arnljótur heitinn Guðmundsson og með honum kemst stór skriður á málið. — Haraldur Böðvarsson, sá stór- huga framfara- og athafnamað- ur, mun fyrstur hafa vakið máls á gildi hinna velþekktu kera til hafnarvirkja og Arnljótur tók það mál þegar upp. Fyrir harðfylgi og dugnað þess ara manna og þeirra Sjálfstæðis- manna er að baki þeim stóðu, voru svo keypt til landsins fimm stór ker í þessu augnamiði. Er hvert ker um 62.5 m á lengd. — — Síðar voru keyptar feri- urnar, sem komið hafa að góð- um notum, þrátt fyrir annan til- gang í fyrstu. Með þessu var lagður sá hornsteinn, sem nú hef- ur verið byggt upp af. Þá þegar var fyrsta kerinu sökkt og hafn- argarðurinn lengdur um það og nokkru síðar öðru. Það eru þessi atriði, sem ég hefi nefnt hér í stórum drátt- um, er ég tel þau veigamestu í sögu hafnarinnar, en núver- andi bæjarstjórnarmeirihluti sleppir og vill gleyma. Eitt mikilvægt atriði er þó eftir en það er hið geysimikla og ómetanlega starf, sem Pétur Ottesen hefur innt af hendi í þrotlausri haráttu fyrir hag og velferð þessa bæjar, jafnt í þessum málum sem öðrum. Verður honum það seint full- þakkað. Og að lokum í þessu sambandi: Það sem fyrst og fremst knúði þessa menn til hafnarframkvæmdanna nú, og um leið hjálpaði þeim og tryggði lán og ábyrgð -íkisins í þessum málum, var staðsetning og fram- kvæmdir Sementsverksmiðjunn- ar á Akranesi. Hafði Ólafur Thors allan veg og vanda af þess um málum innan ríkisstjórnar- innar. Þetta skal einnig haft í huga, því ella hefði getað orðið bið á öllum framkvæmdum. Óhöndulegir samningar En nú er komið að síðustu blaðsíðunni, þ. e. a. s. 1. heftis. þar sem enn er margt ógert. Um hana hefur meirihluti bæjar- stjórnarinnar á Akranesi básún- að og þanið sig, eins og þar væri sagan öll, en ýmsu hafa þeir þó gleymt af henni, eða ekki vilj- að segja frá því frekar en upp- hafinu. Þeir hafa aldrei sagt frá því hversu óhöndulega þeim fórst við samningagerðina v;ð hina þýzku verktaka, svo að bæ; inn hefur stórskaðazt af. Þeir hafa lítið frá því sagt, að um áætlaðan kostnað, kr. 9.6 milljónir fyrir allt verkið. var hægt að semja, en því höfnuðu þeir og sömdu heldar um eitt og eitt atriði í einu Jón Ben. Ásmundsson jöfnum höndum, svo að nú er kostnaðurinn kominn upp i 20 milljónir og heildarskuldir bæjarins orðnar um 60 millj. Sjálfstæðismenn eiga sjálfsagt að bera ábyrgð á þessum afglöp- um, samkvæmt rökfærslu vinstri manna, en svo mun þó eigi verða, er að skuldadögum kemur, því að þá mun þetta ásamt öllum öðrum þeirra axarsköftum, verða stór frádráttur í þeirra fáu fram- kvæmdamálum. Já — úr því að ég minntist á framkvæmdamal þeirra, er ekki úr vegi að geta hér að síðustu lítillega þess eina. er þeir hafa ávallt unnið fram úr áætlun, en bað er álagning útsvara. Árið 1953 voru útsvörin 3,4 millj., samt. 9,5 millj. 1957 og hækka enn á þessu ári, svo að á valdatíma þessarar bæjar- stjórnar hafa þau nærri þrefald- azt. Minna mætti þó gagn gera. Tími appgjörs - Þrátt fyrir það, að mun minni atvinna hefur verið siðasta ár — og afkomumöguleikar fólksins eftir því, þá hafa þeir sótt svo fast að mönnunum með greiðslu útsvara undanfarin ár, að algjört einsdæmi mun vera, enda hefur Framh. á bls. 12 SAMBAND ungra Sjálfstæðii- manna og Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna í Reykja vík, hafa nýlega gefið út í bæki- ingsformi greinar þær um „Mótið í Moskvu“, er Magnús Þórðarson, stud. jur. ritaði hér á síðuna í ágúst og september sl., en þær vöktu þá þegar mjög mikla at- hygli víðsvegar um land. Ástæða er til að fagna því, að landsmönnum skuli nú gefast tækifæri til að lesa hina merku frásögn Magnúsar í heilu lagi, því í henni felst margvíslegur lærdómur fyrir þá, er ekki hafa átt þess kost að kynnast lífi og högum almennings austan járn- tjalds af eigin raun. Kommúnisminn á fallanda fæti I formála fyrir ritinu er komizt að orði á þessa leið: „Það er flestum ljóst, að fræði- kerfi kommunismans er nú á fallandi fæti. Fjörutíu árum eftir að kommúnistar sviku samstarfs- menn sína í alþýðubyltingunni miklu 1917 og brutust til valda, hefur kenning þeirra, svo fögur sem hún kann að virðast við fyrstu sýn, reynzt i framkvæma mesta kúgunarstefna, sem sagan getur um, og er þá langt til jafn- að. í skjóli vopnavalds hefur hinni kommúnistisku yfirstétt tekizt að mynda öflugt lögregluríki, sem með blóðugu ofbeldi hefur undiiv okað fjölda þjóða. Þótt kommún- ismanum leiki hugur á að beita allar þjóðir heims sömu aðferð, og ógni með því stöðugt hinum frjálsa heimi, hefur það sem bet- ur fer enn ekki tekizt vegna ein- arðrar samstöðu lýðræðisþjóð- anna í baráttunni við kommún- ismann. Því ber að harma hina dæmalausu framkomu núverandi ráðamanna íslands í utanríkis- málum þjóðarinnar. Það verður þungur róður að afmá þann smánarblett, þegar heiðarlegir menn hafa aftur fengið forsjá þeix-ra mála. ^randlaust fólk beitt blekkingum Það er alkunna, að kommúnist- ar beita blekkingum gagnvart grandlausu fólki og fullnægja með því trúarþörf margra þeirra manna, sem leggja þeim lið sitt. Allir þekkja friðardúfuna sál- ugu, og eftir lát hennar gripu kommúnistar til stórkostlegra cirkushalda í löndum sínum, þar sem ætlazt er til, að heilbrigð hugsun saklausra boðsgesta víðs vegar að úr heiminum kafni í veizluglaumnum. Ein slík cirkushátíð var haldin í Moskvu sl. sumar, og var Magn- ús Þórðarson stud. jur. meðal þeirra, sem sóttu það mót. Greinar þær, sem hér fara á eft,- ir, ritaði hann í Morgunblaðið í ágúst og september sl. Vöktu þessar greinar im Moskvumótið slíka athygli, að stjórnir Heim- dallar og SUS töldu rétt að gefa þær út sérprentaðar. Útgefendur vona, að lestur þessara greina megi verða til þess að opna augu manna enn frekar fyrir hæt.t- unni af kommúnismanum og baráttuaðferðum þjóna hans.“ Ritinu „Mótið í Moskvu" hef- ur að undanförnu verið dreift um hin ýmsu bæjarhverfi Reykja- víkur af sjálfboðaliðum og áform að er að senda það út um byggð- ir landsins við fyrstu hentug- leika. Til minnis fyrir Akurnesinga •jlf Sjálfstæðismenn lögðu grundvöllinn að lokaðri höfn á Akranesi. 'fc Sjálfstæðismenn keyptu kerin, sem gert hafa hafnargerðina framkvæmanlega. ★ Sjálfstæðismenn keyptu ferjurnar, sem reynzt hafa ómetanlegar við hafnargerðina á Akranesi. Sjálfstæðismenn gengu frá samningum Akranes- bæjar við Sementsverksmiðju ríkisins, en þeir samningar tryggðu fyrirgreiðslu ríkissjóðs. Pétur Ottesen hefur manna mest beitt sér fyrir hafnargerð á Akranesi. ■fc Ríkisstjórn Ólafs Thors veitti ríkisábyrgð fyrir erlendum lánum til Akraneshafnar. Ríkisstjórn Hermanns Jónassonar skuldar Akra- neshöfn 7 millj. króna. 'A>- Vinstri menn á Akranesi vildu ekki semja um allt verkið í heild við hina Þýzku verktaka fyrir kr. 9,6 millj. Kostnaður er því orðinn rúmar 20 millj. króna og auk þess er verkið mun minna í smöum en til stóð í öndverðu. ýkf Hafnargerð á Akranesi er ekki nærri Iokið. -y^ Sjálfstæðismenn munu enn sem hingað til hafa forgöngu um auunar hafnariramkvæmdir á Akranesi. 1 ( } I l t & J t t ( I I I i J, f t J. ( 1 I s I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.